Vísir - 08.02.1963, Blaðsíða 5

Vísir - 08.02.1963, Blaðsíða 5
VÍSIR . Föstudagur 8. febrúar 1963. 5 Tvær nýjar bækur eftir Matthías Jóhannessen '■Stjóraendur þáttarins Efst á baugi, Tómas Karlsson og Björgvin'* NGuðmundsson. í 5// EFST A BAUGI í 100. SKIPTI í kvöld verður 100. þátturinn „Efst á baugi“ í útvarpinu f um- sjá þeirra blaðamanna Björgvins Guðmundssonar og Tómasar Karlssonar. Hafa þeir nú annazt þennan þátt í meir en tvö ár. Þátturinn fjallar eins og út- varpshlustendum er kunnugt um allt það helzta sem gerist hverju sinni úti í heimi og hefur hann ætíð verið hinn fjölbreyttasti, gefið gott yfirlit yfir helztu at- burði og þróun heimsstjórnmál- anna og leyft hlustendum að fylgjast með því sem kemur hverju sinni fyrir frægt fólk, bæði stjómmálamenn, menning- arfrömuði, milljónamæringa og filmstjörnur. Með þessari fjöl- breytni hefur þeim félögum tek- izt að halda þættinum léttum og skemmtilegum. í vetur hafa þeir tekið upp á þeirri nýjung að fá erienda fréttamenn frá ýmsum dagblöð- um tii að flytja stutta þætti um það, sem þeim finnst athyglis- verðast í fréttunum hverju sinni og nú í kvöld munu fjórir rit- stjórar koma fram í þættinum og segja álit sitt á viðhorfum í Evrópu eftir að slitnað hefur upp úr samningaviðræðum Breta og Efnahagsbandalagsins. .V.V/AW.V.W.V.V.W.V.V.W/.W.VV.V.V.W.V.V.V, Meistaraskóliim tekiaa til starfa í gær komu út á forlagi Helga- íells tvær nýjar bækur eftir Matth ías Johannessen, og eru þá komn- ar út eftir hann alls 10 bækur, frá þv£ að hann hóf rithöfundar- feril sinn með ljóðabókinni Borg- in hló árið 1958. Þessar 2 nýju bækur Matthíasar heita Hugleið- ingar og viðtöl og ljóðabókin Vor úr vetri. Ljóðabókin Vor úr vetri er 61 bls. að stærð og hefur að geyma 26 kvæði, sem öll eru ort i hefð- bundnum stíl. Hér mun vera um eins konar framhald að ræða af síðustu Ijóðabók höfundar Jörð úr ægi; þó sú bók sé öll í hinu frjálsa formi. Gunnlaugur Scheving hef- ur teiknað allmargar myndir í bók- ina. Hugleiðingar og viðtöl er allstór bók, eða 263 bls. Skiptist hún £ 13 kafla, sem heita: Þögn og bylting, Ein skoðun, Brot úr dagbók, Gegn- um trektina, Trú og kommúnism- inn, Og samt snýst hún, List og móðurmjólk, Pasternak, Talað við tvö skáld. Oskuhaugar mannlifsins, Velferðarríkið og siðasti kaflinn Steinn Steinarr. Víða er komið við í þessum hugleiðingum og viðtöl- um, sumt hefur birzt áður, en 80 méllj. — Framhald af bls. 16. un við kjör á almennum vinnu- markaði eru laun í 4. flokki ákveð- in með hliðsjón af launataxta Dags brúnar fyrir almenna verkamanna- vinnu, en í þeim flokki eru t. d. aðstoðarmenn i vörugeymslum. Lauii i 9. flokki eru á sama hátt ákvgðin sem næsti því sem iðnað- armenn hafa samkv. vikukaups- samningum á hinum almenna vinnumarkaði. Erfiðara er um við- miðun við almennan vinnumarkað, að því er varðar efri flokkana, þar eð hliðstæður eru þar fáar fyrir hendi. Fjölgun launaflokkanna er við það miðuð, að unnt sé að taka meira tillit til menntunar, ábyrgðar og sérhæfni starfsmanna en nú er gert. Störf rikisstarfsmanna verða stöðugt margbreytilegri, stofnanir stækka, verkaskipting og kröfur um menntun aukast. Þessari þró- un fylgir þörf á auknum launamis- mun. Launaflokkafjölgunin hefur ó- hjákvæmilega I för með sér hækk- un launa hjá hluta starfsmanna og mismunandi mikla, enda mun sú skoðun hafa hlotið almenna við- urkenningu, að launamunur sé nú minni hjá ríkisstarfsmönnum en heppilegt geti talizt. Ganga þó til- lögurnar í þessu efni mun skemmra en kröfur Kjararáðs. Samninganefnd ríkisins hefur á- ætlað, að meðallaunahækkun skv. tillögunum sé 15 — 16% og út- gjaldaaukning ríkissjóðs af þessum sökum nemi um 80 millj. króna á ári. Hér fara á eftir nokkur dæmi um þær launabreytingar, sem til- lögumar hafa í för með sér. Talsímakonur við innanlands- þjónustu eru skv. núgildandi Iauna lögum í 13. flokki, hækka í 12. flokk og komast i hámark þess flokks eftir 6 ára starf. Byrjunar- Iaunin eru kr. 4048 á mán. og há- markslaun kr. 5517 eftir 6 ára starf. Samkvæmt tillögum verða tal- símakonur við innanlandsþjónustu í tveim flokkum 4, og 6. Bvriunar- laun í 4. flokki eru kr. 5000 á mán., eða 24% hærri en núver- andi byrjunarlaun. Laun eftir 3 ár verða kr. 5500 eða sem næst jöfn núverandi hámarkslaunum. Laun eftir 10 ára starf verða kr. 5750 Matthías Johannessen. meiri hluti bókarinnar er þó nýr af nálinni. Hún er tileinkuð Valtý Stefánssyni, ritstjóra. Báðar eru bækurar tilorðnar á síðustu tveimur árum. eða 4% hærri en núverandi há- marslaun. Þær talsímakonur, sem fara i 6. floklr, fá í byrjunarlaun kr. 5500 á mánuði, sem er 36% hærra en núverandi byrjunarlaun. Eftir 3ja ára starf komast Iaunin upp í kr. 6000, sem er 9% hærra en núver- andi hámarkslaun, og eftir 10 ára starf verða launin kr. 6300 á mán- uði eðí T4% háerri en núverandi hámarkslaun. Lögregluþjónar. Þeir eru nú i 10. launaflokki með byrjunarlaun kr. 4876 á mán. og hækka £ kr. 6351 eftir 4ra ára starf. Skv. til- lögunum eru lögregluþjónar í 9. flokki með byrjunarlaun kr. 6250 eða 28% hærri en núverandi byrj- unarlaun. Eftir þrjú ár eru launin komin upp í kr. 6800, sem er 7% hærra en núverandi hámarkslaun, og eftir 10 ár verða launin kr. 7150 eða 13% hærri en núverandi hámarkslaun. Hjúkrunarkonur eru nú í 11. launaflokki, flytjast í 10. flokk og komast £ hámark þess flokks eftir 6 ára starf. Byrjunarlaun eru kr. 4406 á mánuði, en hámarkslaun kr. 6351. Skv. tillögunum eru hjúkrunar- konur I 11. Iaunaflokki, með byrj- unariaun kr. 6800 á mán. eða 54% hærri en núverandi byrjunarlaun. Laun eftir 3 ár verða kr. 7400 eða 17% hærri en núverandi hámarks- laun og eftir 10 ár kr. 7750, sem er 22% hærra en núverandi há- markslaun. Barnakennarar eru nú í 9. launa- flokki með byrjunarlaun kr. 4876 & mán. og hámarkslaun kr. 6783 eftir 4ra ára starf. Skv. tillögun'um eru bamakennarar í 12. flokki með byrjunarlaun kr. 7100 á mán., sem er 46% hærra en núverandi byrj- unarlaun. Laun eftir 3 ár eru kr. 7700 eða 13% hærri en núverandi hámarkslaun, og eftir 10 ára starf eru launin kr. 8100 eða 19% hærri en núverandi hámarkslaun skv. Iaunalögum. Löglærðir fulltrúar hjá sýslu- mönnum og bæjarfógetum eru í 7. launaflokki með byrjunarlaun kr. 5858 á mán. og hámarkriaun kr. 7770 eftir 4ra ára starf Skv tillögunum verða beir í 18. launa- flokki neð bvrmnarlaun kr O^OO, sem er 60% hækkun, kr. 10200 eftir 3 ár eða 31% hærra en nú- verandi hámarkslaun og kr. 10700 eftir 10 ára starf, sem er 38% hækkun frá únverandi hámarks- launum. Náttúrufræðingar hjá Atvinnu- deild Háskólans o. fl. stofnunum eru nú í 6. launaflokki með kr. 8263 í mánaðarlaun. Skv. tillögun- um verða þeir í 19. launaflokki með byrjunarlaun kr. 9950, kr. 10850 eftir 3 ár og kr. 11400 eftir 10 ár. Hækkunin er 20%, 31% og 38% eftir því hvort miðað er við byrjunarlaun, laun eftir 3 ár eða eftir 10 ár. Prófessorar eru nú í 4. launa- flokki með 9743 kr. I mánaðarlaun. Skv. tillögunum eru þeir i 23. launaflokki með kr. 12850 í mán- aðarlaun. Hækkunin er 32%. Eftir 10 ár verða launin kr. 13500 á mán., sem er 39% hækkun. Ráðuneytisstjórar, biskup, Iand- læknir o. fl. eru nú i 3. launa- flokki með kr. 10545 á mánuði í laun. Þeir verða £ 25. launaflokki með mánaðarlaun kr. 14000, og er það 33% hækkun. Eftir 10 ára starf verða launin 14700 eða 39% hærri en núverandi laun. Endurbætur — Framhald af bls. 16. leysa með einhverjum hætu, þar sem núverandi flugfloti þeirra, 5 Cloudmastervélar muni ekki geta annað eftirspurninni. Þessi aukning stafar m. a. af þeirri auglýsingu, sem félagið hefur hlotið vegna deilnanna við SAS. Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um það, hvernig þetta mál verði leyst, hvort keypt verði ný flugvél eða tekin á leigu. Þá er skýrt frá því i annarri frétt, að Bjöm Pálsson flugmað- ur sé búinn að festa kaup á nýrri 15 farþega flugvél, sem á að fljúga til ýmissa staða, sem ekki hafa fullkomna flugvelli. Enn fremur er vitað, að flug- félagið Flugsýn hefur þegar keypt eina flugvél í Bandaríkj- unum og hefur hug á að fá sér aðra, auk þess sem einkaflug- menn munu vera að hugsa um flugvélakaup. Síldarverksm. — Framhald af bls. 1. mönnum og sýnir það eitt út af fyrir sig hver hugur er í mönnum. í ráði er að reisa nýj- ar síldarverksmiðjur í ár á tveimur stöðum austanlands, á Borgarfirði og Breiðdalsvík, og fullgera og endurbæta ýmsar verksmiðjur, sem fyrir eru. Miklar endurbætur verða gerðar á Síldarverksmiðjum rík- isins á Siglufirði og munu af- köst þeirra aukast við það ,en sumar þessara verksmiðja eru orðnar gamlar og þarfnast end- urnýjunar. Einnig verða gerðar ýmsar endurbætur á verksmiðj- unni Rauðku á Siglufirði. Þá verða gerðar endurbætur á verksmiðjunni á Raufarhöfn svo og verksmiðjurnar á Bakka- firði og Seyðisfirði fullgerðar, en þær voru reistar i fyrra og vannst þá ekki tími til að ljúka öllum frágangi. Loks er þess að geta, að Aðalsteinn Jónsson á Eskifirði ætlar að stækka síld- arverksmiðju sína og endurbæta og fleira er í deiglunni í þessum málum. hæstaréttarlögmaður Austurstræti 17 Simi 13354 Meistaraskólinn hóf starfsemi sína fyrir nokkrum dögum í Iðn- skólanum. í fyrra átti að reka skólann, en tókst ekki vegna lé- legrar aðsóknar. í þetta sinn eru 50 nemendur, trésmiðir og múrarar, sem hyggjast sækja um leyfi til borgaryfirvald- anna til að fá að standa fyrir bygg- ingarstarfsemi í Reykjavik. Kennsl Þótt enn sé hríðarveður í Skotlandi og allir vegir tepptir milli Skotlands og Englands lít- ur út fyrir, að vetrarveðráttan sé nú að syngja sitt síðasta vers að sinni í álfunni. I gær fór að hlána vestan til á Englandi og búizt við að hlákubeltið muni færast vfir mikinn hluta lands- ins í dag Menn éttast nú vatna- vexti og verðir eru t. d. rii" all- ar ár í Devon op viðár. Á meginlandinu allt austur i Rússland er hláka og syðst í Ukrainu orðið svo hlýtt, að an í skólanum miðast við þetta. Kennarar eru um 15—20 talsins. Þór Sandholt, skólastjóri Iðn- skólans, upphafsmaður að Meist- araskólanum sagði Vísi í morgun að Meistaraskólinn væri visir að fullkomnari skóla fyrir þá, sem vildu stunda framhaídsnám í iðn- greinum sínum. menn eru teknir að iðka sjóböð. Nyrzt á meginlandinu eru þó enn kuldar og í gærkvöldi og nótt fór eitt mesta hríðarveður í mörg ár yfir Skotland og hríðaði þar enn, er síðast frétt- ist. Þúsundir einka- og vörubíla eru á kafi- i fönn, járnbrautar- lestir hafa stöðvazt, eða eru langt á eftir áætlun, og í ein- migruðum bæjum og flugstöðv- um hafa farbegar svo hundruð- um skiptir tafizt dægrum sam- an. Hláka úti í áHu

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.