Vísir - 08.02.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 08.02.1963, Blaðsíða 16
Föstudagur 8. febrúar 1963. Iðja sem urum5% hækkun Það hefur orðið að samkomu lagi milii Félags ísl. iðnrekenda og Iðju, félags verksmiðjufólks i Rcykjavík, að frá og með 1. febrúar s.l. hækki allir samn- ingsbundnir kauptaxtar féiag- anna, þar með taldir ákvæðis- vinnutaxtar, um fimm prósent. Byhíng í írak í morgim: KASSCM FORSÆTISRÁD■ HÍRRA SKOTINN Tll BANA í morgun gerðust þau tíðindi suður i írak, að hópur háttsettra liðsfor- ingja úr hernum gerði vopnaða byltingu og náðu þegar í stað á sitt vald höfuðborginni Bag- dad. Útvarpaði útvarps- stöðin í höfuðborginni tiikynningu frá þeim um að Karem Kassem for- sætisráðherra hefði ver- ið skotinn í vopnavið- skiptum, sem urðu í morgun. í sömu tilkynn- ingu kemur það f ram, að herforingjarnir, sem hafa tekið völdin, eru fylgismenn Nassers Eg- yptalandsforseta og stefna að því að sam- eina allar Arabaþjóðir. En þeir segja, að Kass- em forsætisráðherra hafi svikið loforð sín um að vinna að slíkri samein- ingu. Launatillögur ríkisstjórnarinnar: 80 millj. króna kjarabætur Eins og kunnugt cr, voru á s.l. vori sett lög um kjarasamninga op- inberra starfsmanna. Var í lögun- um gert ráð fyrir, að Iaunakjör rík- isstarfsmanna væru ákveðin með heildarsamningi milli ríkisins og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, en Kjaradómur skæri úr, ef samningar tækjust ekki. Fer sér- stök nefnd, skipuð af fjármálaráð- herra, með fyrirsvar af hálfu ríkis- ins í samningum þessum, en Kjararáð af hálfu Bandalagsins. Seint í nóvember s.I. lagði Kjararáð fram tillögur sínar um launaflokka og launastiga og hafa þær verið birtar. Tillögur Kjara- ráðs gerðu ráð fyrir yfir 100% launahækkun að meðaltali frá nú- gildandi launalögum og mundu þær hafa í för með sér allt að 600 millj. kr. aukningu á launaútgjöld- um ríkisins og ríkisstofnana á ári. Undanfarna mánuði hefur samn- inganefnd ríkisins unnið að tillög- um af hálfu ríkisstjórnarinnar. Þær tillögur voru lagðar fram í dag. Fela þær f sér fjölgun launaflokka í 25, en launaflokkar eru 15 sam- kvæmt núgildandi launalögum frá árinu 1955. Jafnframt er flokkaröð- inni snúið við þannig að lægsti flokkurinn verður nú 1. fl., en hæsti launaflokkurinn verður 25. fl. Byrjunarlaun I 1. fl. (nýliðar við vandaminnstu störf) verða kr. 3500 á mánuði samkv. tillögunum, en hámarkslaun í 25. fl. (ráðuneytis- stjórar, biskup, landlæknir, sendi- herrar o. fl.) verða kr. 14.700 á mánuði. Aldurshækkanir samkv. núgild- andi launalögum eru fjórar, eftir 1 ár, 2 ár, 3 ár og 4 ár Eftir til- , r 1 a ■ U n. >> : > ; ' j) , "■** . Lfl. vByrjunarlaun ■ ■'' 1 ■ Eftir 10 ár i ,#?* 3500 í 4500 4750 5000" ' i '5250 ^ t 5000^ 5000 % 5250 5250 . 5500 ' 5500 5750 Æxk: 5500 5750 6050 3- ■ 6. 5500 5750 6000 6300 7- 5750 > v,4 6000 6250 6550 ö. 6000 6250 6500 6800 9- M|p«6250 6500 6800 7150 10. 6800 7100 7450 . m« ^jBp°00 7100 7400 ; 7750 12. ■ m ' .7700 7700 8050 8100 f400.2 8450 14, 15. ISo 8050 8400 8400 8750 8800 9200 16. 6400 8 750 : lliillill II ilililllil 37. ið.:; 8900 9400 0800 9700 10200 - 10200 10700 19 . 9950 Jf 10400 10850 11400 20. 11300 : 11850 }$0:\ I 1 i ■; I ; 1 22. 12 3Ö0 , rjÍÍjro 12900 25. Vsf‘-3 13500: 124. 13400 14100 ,25. 3.4000 ' , >, , 14700 iögum nefndarinnar verða aldurs- hækkanir þrjár þ.e. eftir 1 ár, 3 ár og 10 ár 1 efstu flokkunum er þó aðeins ein aldurshækkun, eftir tíu ára starf. Tillögurnar eru í höfuðdráttum byggðar á þeim meginreglum, sem lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna ákveða, að Kjara- dómur skuli hafa hliðsjón af við úrlausnir sínar, en þær eru: 1. Kjör launþega, er vinna við sambærileg störf hjá öðrum en rikinu. 2. Kröfur, sem gerðar eru til menntunar, ábyrgðar og sér- hæfni starfsmanna. 3. Afkomuhorfur þjóðarbúsins. Samkvæmt reglunni um viðmið- Framhald á bls. 5. Leit oð þrem börnum í gær var lögreglan beðin um aðstoð við leit að þremur börnum sem farið höfðu að heiman frá sér, en komust öll heil á húfi til skila. Skömmu eftir hádegið í gær var lögreglan beðin að svipast um eft- ir tveim fjögurra ára gömlum börnum sem farið höfðu heimanað frá sér frá Fálkagötu. Var tekið að óttast um þau, þar sem ekki var vitað hvert þau höfðu farið, og bæði aðstandendur og lögregla leit uðu þeirra. En nokkru síðar komu börnin sjálf heim. í gærkvöldi um hálftíuleytið bah.. lögreglunni aftur beiðni um aðstoS við leit að 8 ára dreng sem far- ið hafði frá barnaheimili í Mos- fellssveit. En f þann veginn sem leitarflokkur var að leggja af stað með sporhundinn í fararbroddi barst tilkynning um að drengurinn væri kominn fram. Verðmæti inn- og útfluttrar vöru á sl. ári jókst um ca. 18% að krónutölu, miðað við árið 1961, gamkvæmt bráðabirgðatölum Hag- stöfu Islands. Verðmæti útflutningsins allt síð- ast ár nam 3.618,8 milljónum kr. 57stunda vinnuvika verka- mams að meðaltali 1961 Allmjög hefur að undanförnu verlð rætt og ritað um hina svo kölluðu „vinnuþrælkun“, og hef ur þvf þrælkunarhugtaki þá einna helzt verið haldið á Iofti af stjórnarandstæðingum. Pétur Sigurðsson (S) kvaddi sér hljóðs á Alþlngi í gær og ræddi af þekkingu um vinnutíma verka- fólks og fleira. Af þekkingu er sagt, því Pét ur hafði við að styðjast athug- anir sem gerðar hafa verið á vegum vinnutímanefndar þeirr- ar, er Alþingi skipaði fyrir nokkru og rannsakar þessi mál. 1 ræðu Péturs kom m. a. fram, að verkamaður vann 1961 57 stundir í viku að meðaltali. Einnig upplýsti Pétur, að óunn- ar greiðslustundir, þ. e. bein fríðindi, væru hvergi meiri en hér á íslandi. Samkv. skýrslum, sem vitnað var í, kemur í ljós, að meðal- launatekjur verkamanns 1961 voru 78.3 þús. og ef miðað er við þá tölu annars vegar og skattaframtöl annars vegar, er Ijóst að heildartekjur verka- nanns eru 15—18% hærri en aunatekjur. Vinnutími lægst aunaðs verkafóiks 'ar betta ár !653 stundir, 207f ' ;v. tímar, 15.9 vinnuvikur e 17.8 tímar á viku (allt meðaltalstölur). Til hliðsjónar má geta þess að Dagsbrún gerir ráð fyrir 300 vinnudögum á ári eða 2400 dag vinnutfmum eða um 300 dag- vinnutímum meira en unnið var árið 1961. Þessar upplýsingar sagðist Pétur vilja gefa, vegna hinna sífelldu umræðna um „vinnu- þrælkun", og lét fylgja með hvernig hugarfari Framsóknar- manna var háttað gagnvart vinnutímanum, þegar sá flokk- ur fór með völd. Er ekki ástæða til að rekja þau atriði hér, enda margsönnuð o galkunn. (Sjá nánar um ræðu Péturs f þingfréttum bls. 6). ugve: við ísl. flugflotann Enr, hafa íslendingar eignazt nýja flugvél. Er það Skymaster flugvél, sem Flugfélag íslands hefur fest kaup á og kallast Straumfaxi. Getur hún flutt 68 farþega. Hún ber einkennisstaf ina TF-FID. Er flugfloti Flug félagsins nú orðinn 8 flugvélar, vær Viscountvélar, þrjár Sky- nastervélar og þrjá Dakotavél _ir. Auk þess hefui félagið eina Skymasterflugvél á leigu. Alls ^etur þessi floti flutt 464 far- þega í einu. Á síðasta ári og þes a er ís- lenzki flugflotinn mjög að auk- ast, enda hefur aldrei fyrr verið um eins mikla aukningu á far- þegaflugi að ræða og nú. í fyrra keyptu íslendingar til landsins fimm flugvélar og var í þeim hópi ein stór flugvél, Cloudmastervél, sem Loftleiðir keyptu. Nú í sumar sjá Loftleiða menn fram á gífurlega aukningu farþega yfir Atlantshafið og er fyrirsjáanlegt að það verður að Framh. á bls. 5. v—...w . 1 ij t..'.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.