Vísir - 02.03.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 02.03.1963, Blaðsíða 3
V1SIR . Laugardagur 2. marz 1963. 3 25 ára afmælis Atvinnu- deildar háskólans er minnzt um þessar mundir. í tilefni þess komu hinar ýmsu deildir henn- ar upp sýningum í húsakynn- um sínum, sem eiga að sýna og gefa yfirlit yfir starfsemi þeirra. Atvinnudeildin skiptist sem kunnugt er niður í Fiskideild, Iðnaðardeild og Búnaðardeild, sem allar hafa fjölda sérfræð- inga á að skipa. Þeir fást við vísindalegar rannsóknir, sem kunna í náinni framtíð að hafa mikla þýðingu fyrir íslenzkt at- vinnulíf. Þar er leitað nýrra leiða til að auka framleiðsluna á allan hátt. í gær bauð atvinnudeildin Al- þingismönnum að koma í heim- sókn og kynna sér yfirlitssýn- ingarnar. Voru vísindamenn á ýmsum sviðum þar fyrir til að skýra fyrir þingmönnum þau Hér skýrir Sturla Friðriksson grasræktartilraunir, sem hann hefur framkvæmt og hlýða alþingismenn með mikilli athygli á stutt erindi hans. Hér sjást talir f. v.: Birgir Finnsson, Sigurður ÖI. Ólafsson, Friðjón Sigurðsson skrifst.stj. Alþingis, Jón Skaptason, Eggert G. Þorsteinsson, dr. Sturla Friðriksson, Ragnhildur Helgadóttir, Geir Gunnarsson, Friðjón Skarphéðinsson, Hannibal Valdimarsson og Gylfi Þ. Gfslason ráðherra. Sig. Ól. Ólafss. og Eggert G. Þorsteinss. skoða afbrigði af kartöflum viðfangsefni sem nú er einkum unnið að og hvaða þýðingu rannsóknimar geta haft fyrir íslenzkt atvinnulíf. Er ekki ó- sennilegt, að þingmönnum auk- ist þannig skilningur á því, hver nauðsyn ber til að sam- þykkja þýðingarmikil frum- vörp, enda er þeirra mátturinn og valdið. Myndsjáin birtir í dag fáein- ar myndir frá þessari þing- mannaheimsókn í Atvinnudeild- ina. Myndirnar eru að þessu sinni valdar úr heimsókninni í landbúnaðardeildina, enda hafa þingmenn eins og alþjóð er kunnugt sérstakan áhuga á öllu því sem lýtur að landbúnaði. Sýna framborin frumvörp á Alþingi upp á síðkastið þetta gloggt. Nú um þessar mundir er ein- mitt verið að hefja undirbúning að stofnun mikilla rannsókna- stöðva við Keldur í Mosfells- sveit, þar sem Atvinnudeildin fær betra og meira rými en áð- ur til ýmis konar tilrauna í þágu atvinnuveganna. WV. ^WV. VWS .SSV.SSV SSSSV SSVSSViS Geir Gígja dýrafræðingur skýrir baráttuna við meindýr og sjúkdómana i Inndbúnaðinum út fyrir Gylfa ráðherra, Friðjóni skrifstofustjóra og nafna hans, þingforsetar.um. BÍW~

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.