Vísir - 14.03.1963, Qupperneq 16
VÍSIR
Fimmtudagur 14. marz 1963.
Sölusýning á mál-
verkum Mugnásar
A. Arnasonar
Sðlusýning stendur yfir þessa
dagana á málverkum eftir Magnús
Á. Ámasori i Málverkasöiunni að
Týsgötu X.
Sýning þessi stendur aðeins í
nokkra daga, eða fram I næstu
viku, en þar eru sýndar 26 mynd-
ir, landslagsmyndir, sem Magnús
hefir málað siðari árin eða einkum
1961—62. Myndirnar eru frá Vest-
fjörðum og hér úr nágranni
Reykjavíkur.
Sýningin var opnuð á miðviku-
dag klukkan eitt, og fyrsti gestur-
inn, sem leit inn, keypti samstund-
is mynd af Búlandstindi.
Ormar Þór Guðmundsson arkitekt og Aðalsteinn Richter skipulagsst. á hinu fagra nýja byggingasvæði.
■ •’•£* ■ vV * ý*; -x
•x. ' VW'*',. 'V . '7
Heiftarleg spreng■
ing í Hafnarfírði
Heiftarleg sprenging varð í
gærkveldi f verkstæði Rafveitu
Hafnarfjarðar vlð Hverfisgötu. All-
ar rúður f vinnsalnum brotnuðu,
menn sem voru að vinnu þar inni
köstuðust til vegna þrýstingsins
og einn þeirra slasaðist. Verkfæri
og aðrir hlutir færðust úr stað og
allstór járnplata sem mennirnir
>voru að vinna með þeyttist alla
ieið upp f loft á salnum. Talið er
furðuiegt að ekki skyldu hafa hlot-
izt af alvarlegri meiðsli á mönnum
en raun varð á og ekki meira tjón
í vinnusalnum.
Sprengingin varð um kl. 22.30 í
gærkveldi og fjórir menn voru þá
við störf í verkstæðinu. Ekki er
fullrannsakað ennþá með hvaða
hætti hún varð, en svo virðist sem
hún hafi orðið í eða við vinnuborð
Framh. á bls. 5
Nýtt hverfí norð-
austan í Laugarás
Enn hefir verlð skipulagt og
samþykkt nýtt fbúðahverfi í
Reykjavík, að þessu sinni norð-
austan i Laugarásnum. Þaðan
er hin fegursta útsýn til Esj-
unnar, yfir Viðey og Sundin,
og upp til Mosfellssveitar eins
og allir vita, sem einhvern
tíma hafa verið i Laugarásbíói,
Óvenjumikill afli:
Aldrei meiri mann-
ekla hjá ísbiminum
en hið nýja hverfi verður þar
austur af, milii Austurbrúar og
fyrirhugaðrar Elliðavogsbraut-
ar. Þarna verða nokkur þriggja
hæða sambýlishús, á norður-
og norðausturmörkum þessa
svæðis, en á suðurhluta svæð-
isins verða 11 parhús. Uppi
undir Austurbrún á að reisa
verzlunarhús og gert er ráð
fyrir opnu svæði með barna-
leikvelii. AIIs verða 82 íbúðir
í þessu hverfi, eða um 350
manns, ef gert er ráð fyrir fjög-
urra manna fjölskyldu í hverri
ibúð.
Aðalsteinn Richter, skipu-
lagsstjóri Reykjavikurborgar,
hefir að sjálfsögðu ráðið mestu
um skipulagningu þessa borg-
arhverfis, og ságði hann í við-
tali við Vísi, að leitazt hefði
verið við að hafa hliðsjón af
því að sólar nyti sem bezt, að
háu húsin mynduðu skjól fyr-
ir norðan og norðaustanáttinni,
og útsýnið nyti sin jafnframt
sem bezt.
„Við höfum jafnaðar-
lega átt því láni að
fagna að hafa nægan
mannafla, sagði Ingvar
Vilhjálmsson forstjórií
hjá ísbirninum h.f. í við-
tali við Vísi í morgun,
en nú höfum við svo
marga báta og þeir afla
svo vel að við erum í
vandræðum með fólk til
þess að gera aflanum til
góða og bjarga öllum
þeim verðmætum, sem
berast á land. Það hefir
aldrei verið eins mikil
mannekla hjá okkur.
f frystihúsi okkar vinna um
200 manns og okkur vantar enn
töluvert af stúlkum í frystihús-
ið Einnig vantar okkur fólk til
að vinna að skeriðarverkun.
Við vinnum til kl. 10 eða 12
á hverju einasta kvöldi. Það
bætir nokkuð úr skák að við
fáum nú orðið töluvert af fólki
sem kemur til okkar kl. 5 síð-
degis, er það hefir iokið dags-
verki sínu annars staðar, t.d.
fólk úr léttum iðnaði, og það
leggur oft á sig að vinna til
miðnættis. Það er mikið á sig
lagt og þetta er að sjálfsögðu
dýr vinna, en hvað skal segja,
)
dýrara er að þurfa að fleygja
aflanum".
Hraðfrystihúsið ísbjörninn er
úti á Seltjamarnesi, eins og
kunnugt er, og er því um lang
Framh. á bls. 5
Hlupu '.jðfana uppi
Tvö innbrot voru kærð til rann-
sóknarlögreglunnar í gær.
Annað þeirra var í Nýju sendi-
bílastöðina fyrir sunnan Mikla
torg. Þar var stolið um 200 kr. í
peningum og auk þess var brot-
in allstór rúða innanhúss til að
komast inn f afgreiðsluherbergið,
þar sem peningarnir voru geymdir.
Hitt innbrotið var í Héðinshöfða,
en það hús stendur mannlaust oft-
ast. í því hefur Skjalasafn Reykja-
víkur skjalageymslu, Skipulag
Reykjavíkur hefur þar að ein-
hverju leyti bækistöð og sama
gegnir um Æskulýðsráð Reykja-
víkur. Aðkoman að húsinu var
ljót, sagði rannsóknarlögreglan við
Vísi í morgun. Alls höfðu 64 rúður
Framh >ls S
Stæríf n bíki'
sendingín
Þc,gar Drangajökuil kom til
Reykjavíkur fyrir nokkrum dög
um hafði hann innanborðs 100
bíla af Fólksvagnsgerðinni
Mun þetta vera stærsta bíla-
sendingin sein komið hefur f
einni ferð til iandsins. Er þetta
eitt af mörgu sem sýnir hina
gífurlegu eftirspurn eftir bílum
í landinu og dugar þó Vart til,
því að öll þessi bílasending er
þegar seld fyrirfram. Vinna inn
flytjendurnir nú að þvi í óða
önn að afgreiða pantanirnar.
Sömu sögu er að segja hjá
öðrum bílainnflytiendum að
þeir anna vart eftirspurninni.
Ljósmyndari Visis tók hjá-
liggjandi mynd í inorgun innivið
Kleppsveg þar sem hinum in-
innfluttu Fólksvögnum hefur
verið lagt um stundarsakir með-
an verið er að afgreiða þá til
kaupendanna.