Vísir - 25.03.1963, Síða 3
VÍSIR . Mánudagur 25. marz 1963.
VEFW*i
Starfsfræðsí■
an # gær
Bandaríski sendikennarinn, próf. Ward svarar spurningum upi
bandaríska skóla. \
Úr deild verzlunarskólans,
Mikil aðsókn var á starfs-
fræðsludaginn í iðnskólanum í
gær. Fulltrúar frá 160 starfs-
greinum og stofnunum svöruðu
spurningum 2742 ungra pilta og
stúlkna. Þá voru 9 vinnustaðir
opnir og gengu þrír strætisvagn
ar til þeirra, og voru stöðugt
a ferðinni.
Ragnar Georgsson, skólafull-
trúi opnaði sýninguna, lúðra-
sveit drengja, undir stjórn
Karls Runólfssonar, lék. Við-
staddir voru m.a. borgarstjór-
inn í Reykjavík, Geir Hall-
grímsson, og ýmsir aðrir for-
ráðamenn borgarinnar, auk
nokkurra alþingismanna. Ólaf-
ur Gunnarsson, sálfræðingur,
skipulagði þennan starfsfræðslu
dag eins og aðra sem haldnir
liafa verið hér í borginni.
Um 700 manns beið fyrir ut-
an dyr Iðnskólans, þegar þær
voru opnaðar. Hafði lúðrasveit
drengja farið út í góða veðrið
og lcikið fyrir fólkið. Margar
nýjar deildir voru á sýning-
unni: Rannsóknarstörf í þágu
Iandbúnaðarins, húsgagnabólstr
un, sútun, myndhögg og mynd-
skurður, verzlunarskólinn og
kennaraskólinn, bandarískir,
brezkir, þýzkir, finnskir, sænsk-
ir, norskir og danskir skólar,
hver með sinn fulltrúa.
Þeir níu vinnustaðir, sem
tóku á móti fólki frá starfs-
fræðsludeginum voru: Barna-
hcimilið Hagaborg, verkstæði
Flugfélags íslands, bifreiða-
verkstæði Þóris Jónssonar,
Loftskeytastöðin á Rjúpnahæð,
Blikksmiðja og tinhúðun Breið-
fjörðs, Vélaverkstæði Sigurðar
Sveinbjörnssonar, Radioverk-
stæði landssímans, Slökkvi-
stöðin og Sláturfélag Suður-
lands. Var mikil aðsókn á
þessa staði.
„Þórólfur Beck er einn
bezti innherji Bretlands
— segir Bobby Cox
framkv.stjóri St. Mirren
Eins og skýrt var frá hér á síð-
unni fyrir skömmu er Þórólfur
Beck nú í mjög góðu formi og hef-
ur hlotið hin beztu ummæli gagn-
rýnenda.
St. Mirren lék í síðustu viku
Ieik í bikarkeppninni á heimavelli
sínum í Love Street gegn hinu
víðfræga liði Partic Thistle og
urðu úrslit þau að jafntefli varð
1—1 og munu liðin því leika sam-
an aftur á hlutlausum velli.
Þórólfur skoraði fyrra markið
eftir 66 mínútna leik og sézt
greinilega á meðfylgjandi mynd
hve glæsilegt markið var enda
sögðu blöðin að það væri „the
goal af Therolf’s life“. Er aðeins
voru 5 mínútur til leiksloka fékk
McParland framvörður Partic
tækifæri til að skora en var greini-
lega rangstæður, en öllum til
mestu furðu hunzaði dómarinn út-
rétt flagg línuvarðarins og dæmdi
mark.
Ógurleg reiði gagntók nær
20.000 áhorfendur í Love Street og
hinn ágæti markvörður St. Mirren
varð gagntekinn reiði og elti dóm-
arann hálfa vallarlengd til að mót-
mæla dóminum. Ekki er vitað hve-
nær síðari leikur liðanna verður.
1 Glasgowblöðunum að undan-
förnu hafa margar myndir af Þór-
ólfi birzt og viðtöl við hann. 1
News of the World segir Þórólfur
að hann hafi brennandi áhuga á
að komast í úrslitaleikinn í bikar-
keppninni að þessu sinni og nefnir
3 meiginástæður:
1) Ég vil fá að sanna að ég hafi
komizt yfir meiðsli mín frá I vetur.
2) Ég vil með því sýna hinum
ágæta framkvæmdastjóra okkar
hollustu — og
3) Ég vil standa við loforðið,
sem ég gaf vinum mínum frá ís-
landi, sem komu til að horfa á
mig í úrslftaleiknum gegn Rangers
í fyrra. Þeir voru afar óánægðir
með leik okkar, en ég lofaði betru
næst.
Blaðið segir Þórólf nú þegar
hafa uppfyllt 2 fyrstu atriðin en
hið þriðja sé nú eitt eftir. Þórólfur
hafi á 18 mánuðum í skozkri
knattspyrnu lært gífurlega mikið.
Hann hafi lært „takklingar" og
hafi bætt við hraða sinn svo um
munar. Sjálfur segir Þórólfur að
honum hafi ekki líkað við hinar
hörðu „takklingar" fyrst í stað og
hann ekki tekið rétt á móti þeim.
Meðan hann var meiddur á ökla
í vetur horfði hann á fjölda leikja
og lærði „takklingar" með góðum
árangri. „Núna veit ég að harkan
er aðeins hluti af leiknum og héð-
an í frá er ég með á nótunum.
Bobby Cox, framkvæmdar-
stjóri St. Mirren, segir um Þór-
ólf: „Þórólfur er án nokkurs
vafa einn af beztu innherjum
Bretlands. í Þórólfi fer saman
gott jafnvægi, afburða góð
knattmeðferð og hugrekki. Eini
áberandi gallinn í leik Þórólfs
er hve Iengi hann heldur knett-
inum, en þetta orsakast af þvl
að Jim Robertson, hinn ungi
og reynslulitli útherji við hlið
Þórólfs er enn ekki alveg kom-
inn upp á lagið að leika sig
lausan, en þegar það lagast
mun boltinn ganga hraðar á
vinstri vængnum i St. Mirren-
liðinu".
Þórólfur skorar glæsilega gegn Partic Thistle.