Vísir - 25.03.1963, Side 8

Vísir - 25.03.1963, Side 8
VÍSIK Útgefandi: Blaðaútgáfan VfSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og ?fgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði. f lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. í hag allra landsmanna Hin nýja tollskrá verður nú lögð fyrir þing. Eftir henni hefir verið beðið með eftirvænt- ingu. Ríkisstjórnin gerði nokkrar breytingar á toll- skránni fyrir meira en ári. Var þá tollur lækkaður verulega á ýmsum vörutegundum sem heyrðu til nauð- synja og einnig á nokkrum munaðarvörum. Þá hafði ekki tollur verið lækkaður hér á landi um fjöldamörg, ár. Þessi tollalækkun varð mikil hagsbót hinum al- menna neytanda en raunin varð sú, að þrátt fyrir tolla- lækkunina hélt ríkið óskertum tekjum sínum vegna þess að svo mjög dró úr smyglinu. Of snemmt er að ræða hið nýja tollafrumvarp í einstökum atriðum. En hugsunin að baki þess er sú að gera ýmsar nauðsynlegar lagfæringar og breyting- ar á tollskránni, sem lengi hafa beðið. Þá mun og tollar lækka margir hverjir og sumir skattar verða með öllu lagðir niður. Þannig hefir ríkisstjórnin látið vinna mikið starf að undanförnu að því að koma góðu lagi á tollamál landsins. Er ekki að efa að hinni nýju tollskrá mun yfirleitt verða fagnað vegna þess, þótt óhjákvæmilegt sé að stjórnarandstaðan reyni að finna henni sitthvað til foráttu, þar sem kosningar eru á næsta leiti. En hið viðamikla nýja tollskrárfrumvarp leiðir hugann að því hve þau eru orðin mörg framfaramálin sem núverandi ríkisstjórn hefir lögfest. Minnst var á tollalækkunina. Skattalækkunin er í fersku minni, er tekjuskattur á láglaunatekjum var með öllu afnuminn. Stóraukning almannatrygginganna verður samþykkt innan skamms á þingi. Fjölmörg ný lög hafa verið sett um margar ríkisstofnanir og rekstur þeirra og margar þeirra verið sameinaðar með stór- kostlegum sparnaði. Landhelgismálið var leyst. Verzl- unin hefir verið gefin frjáls að mestu leyti og upp- bótarkerfið fellt niður. Þannig hefir stjórnin lagt áherzlu á frelsið, og leyst höftin. Hún hefir rekið alhliða framfarastefnu í hag alls Iandsfólksins. Þar hefir engri einni stétt verið hyglað umfram aðra. Stöðnun og atvinnuleysi hefir verið bægt frá dyrunum en hagsæld almennings hefir stóraukizt. Þessar staðreyndir vitna um að stefna stjómarinnar hefir verið rétt. Og það sést einnig af því að stjórnarandstaðan á engin stefnumál við þessar kosningar. Hvar eru um- bótamál framsóknar og kommúnista? Hver hefir heyrt þeirra getið? Blöð þeirra fylla síður sínar innantómu þrasi um iandhelgismálið og Efnahagsbandalagið. — hvorttveggja mál sem heyra fortíðinni til og hafa þeg- ar hlotið sína lausn. Það má með sanni segja að í garði stjómarandstöðunnar vex ekki annað en arfi og illgresi. Uppblásturinn verður þar brátt algjör. Húsið Downing Street 10 i London er heimsfrægt sem bú- staður brezka forsætisráðherr- ans. En sumarið 1960 flutti Macmillan forsætisráðherra brott úr því og hefur síðan bú- ið f bráðabirgðahúsnæði i flota málaráðuneytinu, Admiralty House. Á meðan hefur mikil viðgerð staðið yfir í Downing Street 10. Þegar Macmillan hvarf á brott úr húsinu taldi hann að hann gæti flutt aftur í Downing stræti sumarið 1962, en það hef ur farið öðruvísi en hann hugði, enn sér ekki fyrir endann á við- gerðinni og vel getur svo farið að Macmillan sjálfur fái aldrei að flytja aftur í þetta sögu- fræga hús, — í Englandi eru kosningar fram undan og þeim geta fylgt stjórnarskipti áður en honum gefist kostur á að flytja inn I gamla bústaðinn. Viðgerðin á Do;ning Stræti 10 hefur staðið I 2ý2 úr, en orð- ið miklu umsvifameiri, en menn ætluðu, tekið lengri tíma og sérstaklega hefur kostnaðurinn við viðgerðina hrokkið langt fram úr áætlun. Þegar viðgerðin hófst var á- ætlað að hún myndi kosta um 400 þúsunð sterlingspund eða nærri 50 milljónir króna. Það þótti strax há upphæð og heyrð ust raddir um að fásinna væri að gera við þetta gamla hús, fyrir helming þessarar upphæð ar, mætti rífa hinn gamla hjall og byggja nýtt og miklu glæsi- legra hús. En Bretar eru fast- heldnir á gamla siði og var það V í S I R . Mánudagur 25. marz 1963. Hér sést hinn frægi forsætisráðherrabústaður Breta, sem sögulegar minningar eru tengdar við. Nær hefði verið að rífa &;Si: Vtevfp R ><;£%<•-, ' r ÍíjTT < f DOWNING STREET10 samkvæmt eðli þeirra að vilja varðveita hinn fræga forsætis- ráðherrabústað I sinni uppruna- legu mynd, þó það kostaði mik- ið fé og fyrirhöfn. Ekki er þó víst ,að þeir hefðu haldið fast við gamla tfmann f þessu efni, ef þeir hefðu gert sér grein fyrir þvi að kostnaður inn yrþi jafn mikill og raun ber nú vitni. Nú þegar er búið að verja 900 þúsund pundum eða meira en 100 milljónum króna til viðgerðarinnar og þessi upp- hæð á enn eftir að hækka stór- kostlega. Nýlega skýrði bygg- ingameistarinn frá þvi að við- gerðin yrði ekki undir 1,5 millj. punda eða um 180 millj. króna. Óheppnin hefur elt viðgerðar- starfið frá byrjun. Verkamenn- irnir hafa átt f sífelldum erjum við byggingameistarann. Það hófst strax og verið var að reisa vinnupalla utan um húsið. Verkamennirnir sem unnu við það gerðu verkfall. Sfðar gerðu pípulagningamenn verkfall, næst trésmiðir. Þvfnæst lögðu allir 500 starfsmennirnir sem unnu við bygginguna niður vinnu í hálfan mánuð út af deilu um kaffitfmann. Enn end- urtók sama sagan sig, þegar steinsmiði einum var vikið úr starfi. Og loks gerðist það í sumar að vinna við bygginguna lagðist niður í þrjá mánuði. Allar þessar vinnustöðvanir og verkföll hafa orðið til að hækka kostnaðinn við bygging- una. Þó veldur það enn meiri hækkunum, að viðgerðin hef- ur orðið umfangsmeiri en búizt var við f fyrstu. Það hefur kom- ið í Ijós að húsið í Downing Street 10 var eftir 300 ára notk un í miklu verra ásigkomulagi en búizt hafði verið við. Bygg- ingasérfræðingarnir sem skoð- uðu það fyrir viðgerð afsaka sig með því, að erfitt hafi verið að framkvæma skoðunina meðan húsið var enn f notkun. Þeir fengu aðeins að koma stutta stund inn í hvert herbergi og bora nokkrar holur í veggina, síðan urðu þeir að hreinsa allt ryk og salla í burtu í skyndi og setja teppin á að nýju, áður en vinnutfmi f skrifstofunni hæfist að nýju. gerðarkostnaðurinn á Downing Street 10 muni nálgast 200 milljónir króna. Enn kunna margir íhaldssamir Bretar að halda því fram, að það sé jafn- vel þess virði, að viðhalda sögu frægu húsi. Fleiri munu þó vera þeirrar skoðunar jafnvel í hinu íhaldssama Bretlandi, að slíkt sé alger fásinna. Þeir líta á þessa viðgerð sem opinbert hneyksli og benda m.a. á það, að húsið sé á engan hátt neitt sérstætt eða framúrskarandi hvað ytra útlit eða byggingar- stfl snertir. Þeim finnst að það hefði ekki verið nema ágæt hreingerning að fiarlægja þenn- an gamla og ljóta húskumbalda úr hjarta Lundúnaborgar og reisa þar nýjan og glæsilegan forsætisráðherrabústað í sam- ræmi við kröfur nútímans. Þeir komust að því að þessi rnikla húsasamstæða sem Sir George Downing reisti þarna á 17. öld var ekki eins traustlega byggð og sum önnur hús frá sama tíma. Downing hafði greini lega byggt þau sem leiguhús- næði og ekki vandað neitt sér- lega til smíðinnar. Alvarlegasta uppgötvunin var þó sú, að und- irstaða hússins væri ótraust. Þarna var áður mýri og hafði orðið að reka stólpa niður í hana til að mynda undirstöð- una. Síðan hafði landið verið þurrkað og stólparnir fóru að fúna. Nú kom í ljós að endur- nýja varð undirstöðu hússins og varð það óhemju kostnaðar samt verk. Það er nú sýnilegt að við- r !ran vígir risastíflu íranskeisari vígði í fyrradag mesta mannvirki sinnar tegund- ar í Mið-Austurlöndum, stfflu til vatnsmiðlunar og orkufram- leiðslu. Stífla þessi, sem er 25 km. fyrir suðvestan Teheran, höfuð- borg landsins, er sjötta hæsta mannvirki af þessu tagi í heirn- inum, og kostaði hún um 75 milljónir dollara. Frá henni verður vatni veitt á 145,000 hektara lands, og raforkufram- leiðslan mun árlega nerfia 520.000 kw.stundum. *SESS®eS3SS3í/BÍ

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.