Vísir - 26.03.1963, Blaðsíða 2

Vísir - 26.03.1963, Blaðsíða 2
■ >o V í SIR . Þriðjudagur 26. marz 1963. '/////sm'//////,mw/////. w////////mz",//Æ 3W Borgakeppni á skíðum: Milljónaborgin tapaði fyrir RCYKJA VÍK Reykjavík vann milljóna borgina Glasgow í borga- keppni á skíðum, en beið lægra hlut gegn Bergen, enda mikill aðstöðumun- ur, þar eð Norðmenn voru í „heimabrekkum sínum“ m .jm .4* ^ ^ ^ Magnús talinn beztur Magnús Pétursson, hand- 1 knattlelksdómari úr Þrótti, I dæmdl 3 leikjanna á Norður- I landamótinu 1 handknattleik og ) fékk mjög mikið lof fyrir . frammistöðuna þar. Meðal hand 1 knattieiksleiðtoganna, sem á I Hamri voru, var Magnús viður- I kenndur sem bezti dómari keppninnar. Dómarar voru þó ekki helðr- I aðir sérstaklega fyrir frammi- stöðu, en það voru hins vegar . „bezti markvörður keppninn- ar“, „bezti framherjinn“ og „bezti varnarmaðurinn“. Það | var Svíi, sem var talinn bezti markvörðurinn, en Svíi var 1 einnig bezti sóknarleikmaður- inn, þar sem Danl hreppti hins ) vegar bikarinn fyrir að vera , bezti vamarmaður keppninnar. Af ísiendingum komu heizt 1 til greina í þessu tilliti mark- | vörðurinn Brynjar Bragason úr Víking og Viðar Sfmonarson úr Haukum f Hafnarfirði, sem stóð I sig bezt ísiendinganna. | í Solfonn í Harðangri, sem j er um 7 tíma ferð frá Berg- len. Tími 6 fyrstu Norð- mannanna í svigi og stór- j svigi var alls 875,7 sek., en hjá Reykvíkingum var tím inn 945,4 sek. gegn 1C74,5 sek. Skotanna. | ' v I í A-flokki í sviði átti Reykjavík i keppendur númer 5.—9. eða 5 keppendur í röð. Valdimar Örn- ólfsson var beztur þeirra og náði að aukl bezta brautartíma keppn- innar á 38.6 sek. Nœstur var Þor- bergur Eysteinsson, Gunnlaugur Sigurðsson, Hinrik Hermannsson og loks Sigurður Guðjónsson. 1 B-flokki átti Reykjavík 10., 11. og 13. mann en f C-flokki voru reykvfsku keppendurnir dœmdir úr Ieik. Eftir svigið höfðu 6 beztu Norð- menn um 20 sekúndna forskot yfir íslendingana, en Skotarnir voru talsvert á eftir. Stórsvigið færði Bergensmönn- um enn meira forskot og unnu þeir keppnina með um 70 sekúnd- um, en samanlagður tími Glasgow- manna var um 2 mín. lakari en Reykvíkinga. 1 stórsvigi A-flokks stóðu Reykvíkingar sig vel og áttu 2. og 3. mann en það voru þeir Þorbérg- ur Eysteinsson og Sigurður Einars- son, en 6, og 9. maður voru einnig frá Reykjavfk. í B-flokki átti Reykjavík 10. og 11. mann en í C-flokki 5, mann. Einn Skotanna varð fyrir því ó- láni að fótbrjóta sig í keppni þess- ari, sem tókst að öðru leyti mjög vel. Keppendur voru alls 113. Skotar nokkru fleiri, en Bergenbú- ar að sjálfsögðu langflestir. Tíminn sem réð var sem fyrr segir tími fyrstu 6 manna. Flestir skíðamannanna komu heim aðfaranótt mánudags með áætlunarflugi Flugfélags íslands frá Bergen, en heim var haldið þegar að aflokinni keppni og jafn- vel ekki beðið eftir úrslitunum. Ellen Sighvatsson, formaður Skíðaráðs Reykjavíkur hélt þó á- fram ferðglagi sínu svo og Valdi- mar Örnólfsson og hin unga frú hans, en þau voru gefin saman fyrir nokkru. '.V.V.'.VAW.VV.VAV.V.VAWAV.V.V.W.V.'.V.VAW Ríkharður aftur heima Þjóðverjum fannst batinn ótrúlegur Ríkharður Jónsson, hinn vin- sæli knattspyrnumaður af Akra- nesi og fyrirliði Iandsliðsins, er nýkominn heim eftir mánaðarveru á æfingastöð fyrir iþróttamenn í Þýzkalandi, en þar hefur hann áð- ur dvaiið svo sem kunnugt er og gengið undir aðgerðir sérfræðinga vegna meiðsla þeirra í baki, sem hann hefur í nokkur ár átt við að stríða. — Sérfræðingarnir voru mjög ánægðir með árangurinn, sagði Ríkharður. Þeir ætluðu vart að trúa hve skjótan báta ég hef feng- ið. Ég var að þessu sinni látinn æfa daglega, hjólaði m. a. 5 kíló- metra á degi hverjum, réri 2 kíló- metra og framkvæmdi ýmsar aðr- ar erfiðar æfingar. Ég fullyrði þvi að ég er í stórgóðri úthaldsþjálfun, óvenju góðri meira að segja. — Hver var árangur ferðarinnar nú? — Mjög góður árangur náðist. í fyrra stakk ég.lítilsháttar við, en nú er það horfið og $g finn ekki til þreytu Iengur, eins og ég gerði þá. Ég vildi biðja þig að koma á framfæri f Vísi mínum beztu þökkum til þess aragrúa fólks, sem á sínum tíma styrkti mig með landsmdlafélagið Vörður Musica Nova JpYRáTU hljómleikar Musica Nova voru haldnir í súlna- sal Hótel Sögu í gær. Á efnis- skránni voru eins og vera ber, eingöngu verk samin á þessari öld. 20 grúppur fyrir flautu, obo og clarinett eftir Bo Nilson var leikið af þeim Averil Willi- ams, WiIIiam Webster og Gunn ari Egóilson, og það býsna fag- lega. Þetta er eins konar happa og glappa músik, þar sem búast má við ótal útkomum innan hins takmarkaða ramma hljóð- færaskipunarinnar. Möguleik- arnir skipta eflaust hundruðum þúsunda, svo að fáránlegt væri að dæma verkið eftir þeim eina sem þarna hljómaði, og ekki myndi ég nenna að hlusta á nema eins og fjóra fimm í við- bót, svo þetta er vonlaust og sleppum því. Noktúrna fyrir hörpu eftir Jón Leifs var þá leikin af Jude Mollenauer Webster, Þetta veigalitla og nauðaómerkilega smáverk mun hafa heyrzt hér a.m.k. einu sinni áður, og hefði því gjarn- an mátt kyrrt liggja að þessu sinni. En auðvitað er maður guðsfeginn hverju tækifæri sem gefst til að heyra slíkan af- bragðs harpista leika listir sín- ar, ekki sízt þegar hún mun senn vera á förum af landi burt, og mjög vafasamt að snilling- arnir í útvarpinu fái hálfdrætt- ing hvað þá meir í hennar stað. Ingvar Jónasson, Gunnar Egils- son og Þorkell Sigurbjörnsson léku þá Kontrasta eftir Béla Bartók og sluppu vel frá því. JjETTA verk er fádæma erfitt fyrir fiðluna og clarinettið, enda samið sem eins konar glansstykki fyrir tvo nafnfræga einleikara. Hins vegar er það tvímælalaust meðal .lakari verka Bartóks og sannast að segja, ef við tökum mið gf meistaraverkum eins og músík- inni fyrir strengi og slagverk eða sumum kvartettunum, hálf- gerður fíflaskapur. En það hef- ur þó ekki náð jafn almennum vinsældum og hljómsveitarkon- sertinn og þriðji píanókonsert- inn, og af augljósum ástæðum. ég ekki að halda fram að Hlym- ir eftir Atla Heimi Sveinsson sé bezta verkið sem Musica Nova flutti okkur að þessu sinni. En flestir geta að minnsta kosti verið mér sammála um að það er lang skemmtilegast, eða leiddist nokkrum þær 20 mín- útur eða svo sem tók að flytja það? í þvl eru margir óhemju fallegir sprettir, og ef ekki snilldarlegir, þá i það minnsta stór sniðugir. Á síðustu árum er búið að gera mikið af því að láta strengjahljóðfæraleikara sarga alls konar furðutóna og banka og berja óhljóð út úr instrúmentum slnum. Sömu- leiðis er það að verða afgamalt bragð að láta píanistann skríða undir eða oní píanóið, að ég tali ekki um brotnar flöskur, enda dugar þeim Cage og Tudor ekki minna en kassi hvorum, ef gagn á að vera í uppátækjum þeirra. En oftast hefur gleymzt að þess ar óvenjulegu aðferðir eru auka atriði, og að aðalatriðið er hvernig þeim er raðað saman, hvernig tekst að komponera úr þeim eina órjúfandi listræna heild. Þetta hefur Atla tekizt, hvar sem öðru líður, enda verkar ekkert af brögðum hans yfirborðslogt, þau eru öll I sam- ræmi við anda og innri bygg- ingu tónverksins, og vona ég að við eigum eftir að heyra miklu meira frá honum.. Hann stjórnaði þeim ellefu hljóðfæra- leikurum sem fluttu Hlymi, og má mikið vera éf'hann 'erekKi efni í ágætan hljómsveitar- stjóra. Hvernig. væri að Sin- fóníuhljómsveitin tæki það til athugunar? Méð því mætti þó spara svolítinn gjaldeyri. jþAÐ er ástæða til'að óska Musica Nova til hamingju með þessa hljómleika. Þeir sýna að við höfum hér hljóðfæraleik- ara, sem eru færir um að flytja erfiðustu nútímaverk, bæði af tækni og hugarfarsástæðum. Einnig væri ekki úr vegi að samgleðjast þeim mörgu áheyr- endum sem fylltu salinn, og þekktu þar með sinn vitjunar- tíma. Leifur Þórarinsson. fjárframlögum stórum og smáum — Leikurðu með í sumar? Þessir peningar hafa fært mér — Því ekki það. Heilsan virðist heilsuna aftur, en það var meira ætla að leyfa það og mér finnst en hinir bjartsýnustu þorðu aðástæðulaust annað en að gera ráð vona. ' fyrir því. Heldur Landsitiúlafélagið Vörður almennan félagsfund miðvikudaginn 27. marz kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu. Fundarefni: NÝJA TOLLSKRÁIN. Frummælandi Gunnar Thoroddsen fjármáiaráðherra. Allt Sjálfstæðisfólk velkomið meðan húsrúm leyfir. Landsmúlafélagið Vörðurí

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.