Vísir - 26.03.1963, Blaðsíða 6

Vísir - 26.03.1963, Blaðsíða 6
6 V í S I R . Þriðjudagur 26. marz 1963. ■ / ný- u hverfín Byrjað verður að leggja hita- veitu f Háaleitishverfið nýja i vor, en um það leyti er fyrir- hugað að úthlutað verði lóðum í þessu hverfi. Er undirbúning- ur undir þessa hitaveitulagningu f fullum gangi, samkvæmt upp- lýsingum Geirs Hallgrímssonar, borgarstjóra, á fundi borgar- stjómar í gær. Hverfi þetta verður tengt dælu stöð við Grensásveg. Hún tekur að vísu ekki til starfa fyrr en ú næsta ári svo að á meðan verð- ur hverfið tengt Hlíðastöðinni, um Mýrarhverfi tii bráðabirgða, ef þörf verður hitunar í haust. Það hefur áður komið fram á borgarstjórnarfundum, samkv. áliti sérfróðra manna, að lagn- ing hitaveitu um leið eða áður en byrjað er að byggja f hverfi, hefur mikinn sparnað í för með sér ekki aðeins fyrir borgarsjóð, heldur ekki sfður fyrir húsbyggj endur, sem þá geta sparað sér að kaupa kyndingartæki, jafn- framt því sem kynding verður frá upphafi ódýrari vegna notk- unar á hitaveitu, heldur en ef olíukynding væri notuð. Verið er að vinna að hitaveitulagningu í eitt af nýjasta hverfi borgarinnar, „Gerðin“, og þeirra umhverfi. Ekk'i er ósennilegt að lagn- mgunni verið lokið i haust. Ekki er búið að fullbyggja nærri öii hús i þessu hverfi, né er heldur búið að flytja inn i nema minnihluta þeirra. Það er stefna þeirra, sem stjóma þessum málum, að íbúar nýrra hverfa geti i framtíðinni flutt inn i húsin hituð af hitaveitunni í stað þess að notast við olíukyndingu. (Ljósm. Visis B. G.) iíasi. -Jm- — Talsvert er farið að bera á skemmdarverkum unglinga og barna eins og raunar er venjan þegar daginn tekur að lengja og vorið nálgast. Rannsóknariögreglan skýrði Vísi frá því í gær að trjágarðaeigendur, sem eiga trjálundi á Fossvogsbletti austan Bæjarspítalans nýja, hafi borið sig illa undan ásækni og skemmdarverkum krakka í görð- unum að undanförnu. Krakkar, og þá sér f lagi strák- ar, hópast þangað suðureftir, fara yfir girðingarnar og ráðast á trén, fletta af þeim börkinn og brjóta bæði greinar og toppa. Einna verst leikinn er garður Daníels Fjeld- steðs læknis. Sams konar skemmdarverk hafa verið unnin í þessum trjálundum á undanförnum árum og tekur það eigenduna að vonum mjög súrt að sjá gróðurinn jafn illa leikinn af einskærri skemmdafýsn. Nú eru það vinsamleg tilmæli lögreglunnar til foreldra að þeir brýni fyrir börnum sfnum ást og virðingu fyrir trjágróðri og um- fram allt að reyna að stemma stigu við skemmdarverkum barna sinna. Lögreglan tekur það ennfremur fram að eigendur trjágarðanna amist engan veginn við því að börn leiki sér þar f grenndinni ef þau haga sér vel. Þá hefur rannsóknarlögreglan ennfremur skýrt frá því að í þess- um mánuði hafi tvívegis verið kært yfir skemmdarverkum drengja á barnaleikvellinum við Hólmgarð. Meðal annars var farið í bæði skiptin inn í skýli gæzlu- stúlkná á leikvellinum, í annað skiptið var brotið spjald í hurð og auk þess tvær rúður brotnar, en í hitt skiptið voru brotnar þar sjö rúður. Þetta mun þó ekki vera eini leikvöllurinn í borginni sem er grátt leikinn af skemmdarfýsn stráka. Lögreglan kvaðst vera búin að yfirheyra milli 10 og 20 stráka vegna skemmdanna á Hólmgarðs- Ieikvellinum, en það mál sé þó enn ekki fyllilega upplýst. á Akureyri Ferðaskrifstofan Saga f Reykja- vík hyggst opna útibú á Akureyri í vor og tekur þá jafnframt að sér afgreiðslu Norðurleiða h.f. og ým- issa sérleyfishafa norðanlands, sem bækistöð hafa á Akureyri. Samkvæmt upplýsingum frá for- stjóra ferðaskrifstofunnar Sögu, Njáli Símonarsyni, hefur fengizt gott húsrými miðsvæðis á Akur- eyri fyrir ferðaskrifstofuna. Er það stór afgreiðslusalur og tvö minni herbergi í Skipagötu 13, en það hús er skammt frá höfninni, beint fyrir neðan pósthúsið. Það er hugmyndin að ferðaskrif- stofan opni þarna 1. maí n.k. og hefur verið auglýst eftir manni til að veita henni forstöðu, en auk hans munu a.m.k. tvær stúlkur starfa þar yfir sumarmánuðina. I ferðaskrifstofunni verða far- miðar seldir I innanlands- og utan- landsferðum og hvers konar fyrir- greiðsla jafnt fyrir innlenda sem erlenda ferðamenn, þ.á.m. útvegun á gistihúsaplássi, bilaleiga og ann- að sem óskað verður eftir. Þarna verður svo — eins og að framan segir — afgreiðsla bæði fyrir Norðurleiðir h.f. og eins fyrir ýmsa aðra sérleyfishafa á Norður- landi. Prentarar sam>ykkja kför, er þeir höfðu ólur feElt Umræður um tækniskóla — Bætt atvinnuástand á Sigiufirði — Iðnlánasjóður að lögum — Hámarksþóknun til verkfræðinga. Prentarar í New York samþykktu i gær að binda endi á 15 vikna verkfall sitt, og hverfa aftur til vinnu. Tveir af hverjum þremur greiddu atkvæði með þessu á al- mennum fundi, en áður hafði verið hafnað með fremur naumum meirihluta atkvæða samkomulagi, sem samninganefnd prentara hafði fallizt á. Nú sáu prentarar sig um hönd og ónýttu þá samþykkt. Eftir er nú aðeins einn Þrándur í Götu þess, að blaðaútgáfa geti hafizt á ný með venjulegum hætti: Eftir er að semja við myndgerðarmenn, sem halda fast við þá kröfu, að vinnuvika þeirra verði 35 klst. í stað 36 >4 • Beint tap útgefenda á dag hef- ur verið 4 milljónir dollara, en ó- beint tap fjölmargra stofnana og fyrirtækja af völdum verkfallsins verður ekki tölum talið. M.a. hafa leikhús og aðrir skemmtistaðir orðið fyrir gífurlegu tjóni vegna minnkandi aðsóknar, almenn við- | skipti hafa minnkað, og allur al- menningur orðið fyrir leiðindum, ; tjóni og tapi af völdum þess. Búizt er við mikilli verðhækkun blaðanna, þegar þau fara að koma út aftur. jyjESTUR hluti þingfundarins í neðri deild fór í umræð- ur um frumvarpið til laga um tækniskóla, en þess frumvarps er getið annars staðar í blað- inu. Til viðbótar því skal þess getið að ýmsir tóku til máls, og létu uppi álit sitt á stofnun tækniskóla og verklegri tækni- menntun. Meðal þeirra var Ey- steinn Jónsson, formaður Fram- sóknarflokksins. Eysteinn lýsti afdráttarlausu fylgi sinu við frumvarpið, fagnaði því af heilum hug og mælti eindregið með þvf. Gísli Guðmundsson (F), Ingvar Gíslason (F) og Einar OlgeirSson (K) gerðu Iítils háttar athugasemdir, og sá síð- astnefndi gagnrýndi einkum Iengd þess tíma, er tækninám, sem um var rætt, tæki unga menn. •Ráðherrann svaraði því til að það atriði hefði verið rætt ítar- lega af nefnd þeirri er undir- bjó málið, og það, að gera iðnskólapróf að skilyrði til inn- göngu í tækniskólana, væri sett, þar sem slíkt fyrirkomu- lag væri á Norðurlöndum. Væri eftir Ellert B. Schram það þó mjög til athugunar nú, og mundum við íslendingar að sjálfsögðu fylgjast með fram- vindu þeirra athugana. Gísli Jónsson (S) tók til máls og beindi því til ráðherra hvort ekki væri athugandi að breyta kennslufyrirkomulagi í iðnskól- anum sjálfum sem að mörgu leyti væri nú ábótavant. Enn fremur tók Gísli undir þá gagn- rýni Einars Olgeirssonar að ekki væri rétt að gera iðnskóla- próf að skilyrði fyrir inngöngu í tækniskólann. J7MIL JÓNSSON fylgdi úr hlaði frumvarpi til laga um þátttöku Síldarverksmiðju rík- isins í útgerðarfélagi á Siglu- firði. Forsendur þess frumvarps eru þær að SR reisti fyrir nokkrum árum hraðfrystihús á staðnum. Þar sem síldarverk- smiðjunum er hagkvæmt að reka frystihús og halda þannig f starfsfólk, sem þær nauðsyn- lega þurfa á að halda sumar- mánuðina, er eðlilegt, að'verk- smiðjurnar taki hátt i þeirri út- gerð, sem nauðsjmleg er til að frystihúsið fái nægt hráefni. Auk þessa styrkir þessi ráð- stöfun mjög atvinnuástandið á Siglufirði bæði sumar og vetur. Eysteinn Jónsson mælti með frumvarpinu, kvað það vera staðnum til hagræðis, og lýsti stuðningi sínum við framgang þess. \ Önnur veigamikil mál voru ekki tekin fyrir, en frumvarp- ið um Iðnlánasjóð var afgreitt sem lög. J EFRI DEILD spunnust um- ræður einkum um bráða- birgðalög ríkisstjórnarinnar um hámarksþóknun fyrir verkfræði störf. Mál þetta kemur frá neðri deild og hefur áður verið rakið efnislega.. Sem og þar, gagn- rýndu fulltrúar stjórnarandstöð unnar frumvarpið (Alfreð Gísla son og Ólafur Jóhannesson). Ólafur lýsti því áliti sínu að réttmæti setningar bráðabirgða laganna væri vafasamt, og við- hafði sömu rök og Framsókn- armenn f neðri deild höfðu á takteinum á sínum tíma. Alfreð Gíslason (K) mótmælti þvi harkalega, á hvern hátt rík- isstjórnin hefði brugðizt við kröfum verkfræðinga um hærri laun. Þeir Magnús Jónsson og Ingólfur Jónsson ráðherra, sá fyrrnefndi var framsögumaður nefndar, bentu báðir á, hvernig Framh á bls 5. iiiimiwinwtiiiimiiM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.