Vísir - 26.03.1963, Blaðsíða 16
QSQ Banaslys í Kópavogi í morgun
Þriöjudagur 26. marz 1963.
Poul Reumert úttræður
Poul Reumert hinn kunni danski
ieikari er áttræður í dag og er
mikiS um hátíðahöld í Kaupmanna
höfn í tilefni afmælisins. Poul
Reumert hefur algera sérstöðu sem
iistamaður í Danmörku. Hann er
viðurkenndur mesti leikari Dana,
elskaður og dáður af allri dönsku
þjóðinni, mikill persónuleiki, heil-
steyptur maður.
Frægð hans hefur flogið víðar.
Hann hefur leikið gestaleik á öll-
um Norðurlöndum og víðar í
Evrópu. í Frakklandi hefur hann
hlotið einstæða viðurkenningu,
sem einn mesti Moliere-túlkandi,
sem uppi er og hefur hann farið i
gestaleik til Parísar og unnið þar
mikla leiksigra.
Hvert stórhlutverk hans á fætur
öðru á Konunglega leikhúsinu hef-
ur markað spor í danskri leiksögu.
Poul Reumert hefur orðið ná-
tengdur Islandi gegnum hjúskap
sinn við önnu Borg, en hún hefur
sjálf sigrað á fjölum Konunglega
leikhússins. Hann hefur oft komið
í gestaleikferðum. Fyrst kom hann
til íslands bæði í einkaerindum og
Framh. á bls. 5
Tollskráin rædd
á Varðarfundi
Gunnnr Thoroddsen
Gunnar Thoroddsen,
fjármálaráðherra, talar
um tollskrána á fundi
Landsmálafélagsins
Varðar í Sjálfstæðishús-
inu annað kvöld, mið-
vikudagskvöld, og hefst
Tundurinh kl. 20.30. Hér
er um mikilsverðan fund
að ræða, þar sem toll-
skráin er alfct af stærstu
málum þess alþingis,
sem nú situr, og hefur
hennar verið beðið með
mikilli eftirvæntingu.
1 morgun varð enn eitt bana-
slysið í umferðinni er sjö ára
drengur varð fyrir bifreið á Kárs-
nesbraut i Kópavogi og hlaut bana.
Slys þetta varð laust fyrir
klukkan hálfníu í morgun, en þá
var bifreið ekið vestur Kársnes-
brautina. Þetta var fólksbifreið og
eftir því sem fram hafði komið
við frumrannsókn í morgun hafði
hún verið á hægri ferð, enda voru
akstursskilyrði erfið og hættuleg
vegna fljúgandi hálku. Troðin
snjóföl var á veginum og var
hált sem ís.
Slysið átti sér stað milli hús-
anna nr. 29 og 38, sem eru sitt
hvoru megin við götuna, en rétt
áður en þangað var komið kveðst
ökumaður bifreiðarinnar hafa veitt
drengjum athygli sem voru hjólríð-
andi utan við akbrautina. En rétt
um það leyti sem bifreiðin var að
komast á móts við þá, telur öku-
maðurinn að einn drengjanna hafi
snarbeygt inn á akbrautina og í
veg fyrir sig. Gat bifreiðarstjórinn
ekki hemlað nógu snögglega til að
forðast árekstur, enda flughált svo
sem áður greinir. Lenti drengurinn
á hægra framhorni bifreiðarinnar
og féll í götuna.
Þegar bifreiðin hafði numið
staðar og ökumaðurinn kom út lá
drengurinn á hjólinu rétt fyrir aft-
an bifreiðina. Var hann fluttur í
sjúkrabifreið í slysavarðstofuna i
Reykjavík en þegar þangað kom
var hann örendur.
Drengurinn hét Jóhann Ólafsson,
sonur Ólafs Þorgrímssonar bifreið-
arstjóra á Kársnesbraut 25.
FJOGURRA BiLA ÁREKST-
UR f FOSSVOG/
Fljúgandi hálka myndaðist á göt
um Reykjavíkur seinni hluta næt-
ur og í morgun vegna snjóföls sem
á þær kom.
Hálkan átti sinn þátt í nokkrum
áfekstrum sem urðu, einkum í út-
hverfum borgárinnar í morgun. Á
tímabilinu frá kl. 7—9 f. h. hafði
lögreglan verið ræst út fjórum sinn
um vegna árekstra, en taldi að þeir
myndu þó hafa verið fleiri, en öku
mennirnir ekið brott af áreksturs-
stað í hinum tilfellunum.
Sögulegastur þessara árekstra
varð í Fossvogi, rétt fyrir sunnan
Nesti á 9. tímanum í morgun. I
honum lentu fjórir bílar, en lög-
reglan taldi að ekki hafi orðið veru
legar skemmdir á farartækjunum
og ekki slys á fólki.
1 gærkveldi, laust fyrir klukkan
Frestað
Kvöldvaka Ferðafélags íslands,
sem verða átti í Sjálfstæðishúsinu
í kvöld, fellur niður að sinni vegna
veikindaforfalla ræðumannsins, dr.
Haraldar Matthiassonar.
Frá kvöldvöku þessari er skýrt
á öðrum stað í blaðinu í dag og
þar sagt að hún verði í kvöld. En
1 morgun barst stjórn Ferðaféiags-
ins tilkynning um að dr. Haraldur
væri forfallaður vegna veikinda og
hefur kvöldvökunni þv£ verið frest
að um óákveðinn tíma.
hálf níu var ekið á tryppi á Sléttu-
vegi, tryppið slapp ómeitt að því
er virtist, en bíllinn skemmdist.
Umferðarslys varð í Lækjargötu
móts við hús nr. 6 eftir hádegið í
gær. Þar varð Jón Þ. Björnsson,
Lynghaga 13, fyrir bifreið og var
fluttur í Slysavarðstofuna, en síðan
heim.
Ný fram-
haldssaga
Ný framhaldssaga hefst í
blaðinu á morgun. Nefnist hún
„STJÖRNÚSKIN OG SKUGG-
AR“ (á frummálinu „The Dark
between the Stars“), eftir Jane
Blackmore. Sagan fjallar um
afbrot og ástir og er bráðT
spcnnandi frá upphafi til enda.
Hún gerist á gömlu, ensku ætt-
arsetri.
Stjórnmólanámskeið Heimdallar:
„ Hvað er framundan í
íslenzkum stjórnmúlum?"
Stjórnmálanámskeiði
Heimdallar lýkur með
ræðu Bjarna Benedikts-
sonar, dómsmálaráð-
i
herra í kvöld. Nefnist
hún: „Hvað er framund
an í íslenzkum stjórn-
málum?“ - Fundurinn
hefst kl. 20.30 í Valhöll
við Suðurgötu. Öllum fé
lagsmönnum Heimdall-
ar er heimill aðgangur.
Bjarni Benediktsson
Færeyingar bíBa eftir
flugleyfí fslendinga
Við erum ekki örugg-
ir um að Flugfélag ís-
lands fái leyfi til lend-
inga í Færeyjum, en við
reiknum með því, sagði
Hákon Djurhuus lög-
maður Færeyja í stuttu
símtali við Vísi í morg-
un. Það eru dönsku loft
ferðayfirvöldin, sem
taka ákvörðun um þetta.
— Hafið þið Færeyingar beð
ið Dani um að flýta málinu?
— Já, við vorum að þvi fyrir
nokkrum dögum og skýrðum
þeim frá því að við Iegðum
mikla áherzlu á þetta mál. Við
fengum það svar, að ákvörðun
yrði tekin næstu daga — i de
förste dage —. Hér I Færeyjum
er mikill áhugi fyrir að þetta
flugsamband komist á.
— Gerið þið Færeyingar ekki
undirbúningsráðstafanir fyrir
flugið?
— Jú, lögþingið hefur veitt
fé til þess að byggja flugstöðv-
arbyggingu við flugvöllinn í
Vágum og einnig hefur verið
veitt fé til þess að leggja veg-
arspotta á Vágey sem styttir
mjög leiðina frá flugvellinum
til Torshavn. Yrði þá ekið að
ströndinni á Vágey beint and-
spænis Vestmanna, farið yfir
sundið með ferju og síðan ekið
eftir þjóðveginum frá Vest-
manna til Torshavn. Við búumst
við að flugið geti hafizt í byrj-
un maí.