Vísir - 26.03.1963, Síða 4

Vísir - 26.03.1963, Síða 4
V 1 S IR . Þriðju.dagur 26. marz 196! M—ww——piMniWiiinniin—wriiii———w iij^iupn ........................................ Bandaríska sýningarhöllin stöku sýningarhallir. pannig ut fullgerð. Auk þess hafa einstök ríki Bandaríkjanna sínar scr- ríkjunum, heldur og hvaðanæva úr heiminum — hvers konar þjóð við erum og hvernig land okkar er, sýna hvað okkur hefir orðið ágengt á liðnum tíma og sam- tímis reyna að gefa mönnum hugmynd um komandi tíma. Forsetinn minnti á, að eink- unnarorð sýningarinnar væru: Friður á grundvelli skiinings. Þau einkunnarorð hæfðu vel nútíman- um. Það er í apríl 1964 -— eftir rúmt ár, sem sýningin verður opnuð, á sýningarsvæði við Flushing Bay, skammt frá La Guardia flugvellinum í New York. Sýningin 1933 Hún hófst 30. apríl og var haldin í minningu þess, að 150 ár voru liðin frá því fyrsti for- seti Bandaríkjanna tók við stjórn. Framkvæmdastjórn íslenzku sýn- ingarinnar skipuðu þeir Vil- hjr^nur Þór, þá forstjóri, Har- aldur Árnason kaupmaður og Við opnun sýninga*innar flutti Franklin D. Roosevelt forseti ræðu í viðurvist 600.000 manns. íslenzka sýningin vakti þegar sérstaka athygli sakir smekkvísi og góðs fyrirkomulags og hlaut hún mikið lof I blöðum. * 17. júní helgaður íslandi 17. júní var helgaður íslandi sérstaklega á sýningunni og Is- landi sýndur margvíslegur sómi af hendi stjórnenda. I hátíðlegri athöfn í íslands- skálanum flutti La Guardia borg- arstjóri ræðu, og bar mikið lof á íslendinga fyrir menningu þeirra og dugnað. íslenzku sýningunni var slitið .1. nóvember. Framkvæmdastjóri hennar flutti ræðu og skýrði frá því, að 2 milijónir manna hefðu skoðað sýninguna. Heiidarkostn- aður við hana varð 450 þúsund krónur. Tekur ísland þátt í heimsýning- Stjórn Heimsýningar- innar, sem haldin verður í New York 1964-1965, hefir snúið sér til Geirs H. Zoega og beðið hann að koma fram fyrir sína hond hér á landi og veita upplýsingar öllum þeim, sem hyggja kynnu á þátt- töku í sýningunni. Geir sagði mér frá þessu, er ég leit inn í skrifstofu hans í vikunni sem leið, en hann var þá í undirbúningi með að skrifa rík- isstjórninni, borgarstjórn og ýmsum stofnunum til þess að tilkynna þeim, að stjórn Heims- sýningarinnar og stjórnar ýmissa sýningardeilda og stofnana, hefðu skrifað sér varðandi þátttöku ís- lands í sýningunni, og sent hon- um ýmsar upplýsingar hana varðandi, sem væntanlegum þátt- takendum geta komið að gagni. Geir tók m. a. svo til orða, er ég spurði hann nánara um þetta: Mikill áhugi. — Eftir bréfum þeim að dæma, sem ég hefi fengið frá N. Y., virðist mér vera mikill áhugi þar fyrir þátttöku íslands, íslenzkra stofnana og fyrirtækja, sem stendur til boða að fá sýn- ingarskála og hvers konar fyrir- greiðslu. íslandsskálinn á Heimssýningunni i New York. Þess,-er að minnast, að ísland tók þátt í heimssýningu, sem haldin var í New York 1939. Var íslandi til sóma Þátttaka íslands í þeirri sýn- ingu var landi, og þjóð til sóma. Ég. lít svo á — og undir það munu margir taka, — að hér sé nú um nýtt tækifæri að ræða, sem íslendingar megi ekki láta ganga sér úr greipum til þess að kynna landið, menningu þess og afurðir. Menn skildu nauðsyn þessa 1939 og menn ættu ekki síður að hafa opin augun fyrir mikilvægi þátttöku nú. Ekki seinna vænna Og það er ekki seinna vænna að hefjast handa, þvf að undir- búningur t ekur sinn tíma, eigi þátttakan að verða til sóma og koma að gagni. Ýmsar þjóðir voru komnar af stað^ með undir- búning að þátttöku síðari hluta sumars árið sem leið. Það er vit- að að þátttökulöndin skipta mörgum tugum og að menn munu streyma á þessa sýningu hvaðanæfa úr heiminum í mill- jóna tali. Þátttaka íslands mundi gagna okkur ekki aðeins á Ame- ríkumarkaðnum heldur og vegna til þeirra kynna, sem sýningar- gestir frá mörgum löndum myndu fá þarna af íslenzkum iðnaði og útflutningsafurðum. Kennedy um sýninguna Kennedy forseti Bandaríkjanna sagði, er framkvæmdir hófust og hafði þakkað borgarstjóra New York og sýningarstjórninni og öðrum allt það, sem þá hafði á- unnist: Við fáum hér tækifæri til þess 1964 að sýna \.75 milljónum manna — ekki aðeins frá Banda- Ragnar Kvaran landkynnir. Hafði hún til umráða 300 þúsund krónur, en þetta fé var framlag frá ríkissjóði, Reykjavíkurbæ og ýmsum fyrirtækjum og stofnun- um. Meginþættir ísl. sýningarinn- ar voru tveir: 1. Almenn^menning þjóðarinn- ar að fornu og nýju. 2. Atvinnu- vegir nú og framleiðsluvörur til söiu erlcndis. Menningarsýningin var um: Siglingar og landafundi forfeðr- anna, stjórnskipulag þjóðarinnar, þinghald til forna o. fl., bók- menntir fornar og nýjar, listir, menningarástand nú og Island sem ferðamannaland. — Hinn hlutinn var í tveimur deildum, önnur helguð landbúnaði, hin siávarntvpfTÍ Mikið tækifæri. Menn munu verða sammála um, að hér gefist mikið tækifæri til þess að kynna menningu og framleiðslu þjóðarinnar. Þeir ráð- herrar, sem Geir H. Zoega hefir skrifað um sýninguna, svo sem að ofan er getið, eru fjármála- ráðherra Gunnar Thoroddsen og viðskiptamálaráðherra Gylfi Þ. Gíslason. 'Ennfremur hefir hann skrifað borgarstjóra og ýmsum stofnunum og viðskiptafyrirtækj- um. —. Mikla áherzlu ber að leggja á, að góðan tíma þarf til undirbúnings þátttöku, og verði þátttaka ákveðin þarf að ganga rösklega til verks. — Á. Th. Tækifæri, sem Jijóðin má ekki missa úr greipum UNISPHERE — táknlíkan Heimssýningarinnar, en því er komið fyrir í tjörn, sem það endurspeglast f, og iíkanið 45 metra hátt. Hnattiíkanið er gert sem grind með lengdar- og þverbaugum. Það á að minna á nauðsyn samstarfs og skilnings þjóða milli á grund- velli einkunnarorða sýningarinnar: Friður á grundvelli skilnings.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.