Vísir - 30.03.1963, Blaðsíða 1
■
Sigurður Ágústsson.
gmgpMgg
[?|pgS|
,
■
Listí Sjálfstæðisflokksins
Árekstrar bifreiða í Reykjavik
eru nú komnir á 6. hundrað á
tæpum þrem mánuðum frá áramöt-
j um, en eru þó ívið færri heldur
en á sama tíma £ fyrra.
Þann 28. þ. m. var árekstra-
, fjöldinn í Reykjavík samtals 521 í,
stað 552 á sama tíma 1 fyrra. Eitt-
hvað hefur þó dregið saman hvað
árekstrafjölda snertir, einkum um
síðustu helgi, en þá var allmikið
, um árekstra hér í borg.
Umferðardeild rannsóknarlög-
reglunnar telur þessa árekstratölu
all hagstæða miðað við þann
aukna bílafjölda sem komið hefur
í umferð- á götur Reykjavíkur á
þessu eina ári, en sú aukning
skiptir mörgum hundruðum.
1 1 .............
Börnin í 1-B i Miðbæjarbarna-
skólanum eru £ boltaleik i frí-
minútunum. Það er sjáifsagt að
nota góða veðrið, ekki sízt þeg-
ar það er eins og á blíðasta
sumardegi. Þannig var veðrið í
gærdag. Ljósmyndari Vísis var
á flakki um borgina í leit að
„sumarmyndum" og tók þá með
al annarra þessa mynd. (Ljósm.
Vísis, I. M.).
53. ár. — Laugardagur 30. marz 1963. — 74. tbl.
/ Vesturlandskjördæmi
I
Flug til Færeyja
1 fyrradag barst Flugfélagi íslands
óformleg tilkynning frá Erlendi
Paturssyni í Færeyjum, að félag-
inu hafi verið veitt leyfi tii Fær-
eyjaflugs er gildi til 1. okt. n.k.
Engin staðfesting hafði borizt á
þessu af hálfu dönsku flugmála-
stjórnarinnar til Flugfélags íslands
í gærkvöld og heldur ekki til ís-
lenz.ku flugmálastjórnarinnar, að
því er Vísi var tjáð. Þrátt fyrir
það má ætla að tilkynningin frá
Erlendi Paturssyni sé á fullum rök-
um reist og þá mun félagið hefja
áætlunarflug í vor til Færeyja,
eins og það hafði áður gert ráð
fyrir.
En til að anna því flugi til við-
bótar við annað innan- og utan-
landsflug sitt verður Flugfélag Is-
lands að taka sérstaka flugvél á
leigu og verður þar væntanlega um
að ræða Dakotavél, því stærri flug-
vélar geta ekki lent á þeim flug-
velli, sem nú er til í Færeyjum.
Hins vegar er gert ráð fyrir mikl-
um endurbótum á flugvellinum og
jafnvei að láta fara fram athugun
á byggingu nýs fiugvallar.
Kjördæmisráð Sjálfstæðismanna í Vesturlands-
kjördæmi hefir gengið frá lista Sjálfstæðisflokks-
ins við næstu alþingiskosningar.
Er hann sem hér segir:
1. Sigurður Ágústsson alþingismaður.
Jón Ámason alþingismaður.
Ásgeir Pétursson sýslumaður, Borgamesi.
Þráinn Bjarnason, Hlíðarholti, Staðarsveit.
Friðjón Þórðarson sýslumaður, Búðardal.
Sr. Eggert Ólafsson prófastur, Kvennabrekku,
Dalasýslu.
Sigríður Sigurjónsdóttir, Hurðarbaki, Borgar-
firði.
Páll Gíslason yfirlæknir, Akranesi.
Jón Guðmundsson bóndi, Hvítárbakka, Borgar-
firði.
Pétur Ottesen fyrrv. alþm., Ytra-Hólmi.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10
Á að snúa íslend-
ingum heim á Frón
Þrjú íslenzk samtök
hafa gert út mann til
Kanada að finna fólk í
íslendingabyggðum þar
vestra, sem vill fara til
íslands og setjast þar
að, einkum til starfa í
sambandi við sjávarút-
vegmn.
Samtökin eru Landssamband
íslenzkra útvegsmanna, Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna og
Síldarverksmiðjur ríkisins, sem
hafa sent séra Robert Jack út
' af örkinni til að ráða Vestur-
íslendinga hingað til lands.
Séra Robert héit utan fyrir
viku síðan og var ætlað að
hann myndi verða allt að fjórar
til fimm vikur í leiðangrinum.
Engar fréttir um árangur hafa
ennþá borizt, enda ekki við því
að búast. Tilefni þess að fyrr-
nefnd samtök sendu séra Ro-
bert af stað, er einkum það, að
mikinn mannafla skortir á báta
flotann og reyndar í aðrar grein
ar sjávarútvegsins, t. d. í frysti
húsin. Á séra Robert að bjóða
fólkinu að koma hingað og setj-
ast hér að með stuðningi fyrr
greindra samtaka.
Góður afli
Stapafell sigldi i sólinni inn
á Reykjavíkuihöfn um tvöleytið
f gærdag, vel hlaðið sild, er það
hafði fengið austur af Hrauns-
vík. Um 1100 tunnur fékk bát-
urinn.og allt í einu og sama
kastinu. Nótin rifnaði að vfsu.
Bátunum gekk misjafnlega,
sagði skipsmaður á Stapafell-
inu, — við fengum þessa síld
snemma um morguninn. Bílar
frá Júpiter og Marz voru komn
ir niður á Ingólfsgarð tii að
sækja síldina, þegar báturinn
lagðist upp að bryggjunni. All-
margir borgarbúar höfðu
reikað niður að höfn til að
njóta góða veðursins, og safnað
ist fólk saman á Ingólfsgarði,
þegar báturinn var að leggjast
upp að bryggjunni.
FRIMÍNUTUR I SUMARSOL
Jón Árnason.
órekstrar
Yfir 500
VÍSIR