Vísir - 30.03.1963, Page 3

Vísir - 30.03.1963, Page 3
V1SIR . Laugardagur 30. marz l963. Franskt fiskirannsóknaskip í Reykjavík t kortaklefa skipsins eru margvísleg tæki og mætti helzt nefna 5 fiskleitatæki frá þremur þjóðum. Franska fiski- og hafrannsókn arsldpið Thalassa frá Brest á Bretagne í Frakklandi kom til Reykjavikur í gær á leið sinni til hafsvæðisins milli Grænlands og lslands, en þar verður skipið við rannsóknir næstu vikur. Hér stendur skipið við í tvo eða þrjá daga. Fréttamaður og ljósmynd ari Vísis fóru um borð í skiplð, sem er skuttogari búinn mörg- um rannsóknartækjum. Tveir stjórnpallar eru á skipinu. Á að- alstjórnpalli skipsins eru m. a. bergmálsdýptarmælir, mjög full komin miðunartæki auk ann- arra siglingatækja. Annar stjórn pallur aftur á skipinu er notað- ur þegar togað er. Hann er mun minni en aðalstjórapallur og með helztu tækjum. Niðri í skip inu eru rannsóknarstofur á- samt litlum lestum, og vinnu- borðum, en þangað er fiskurinn tekinn inn eftir að hafa verið hífður um borð. Pláss er fyrir 34 skipsmenn og 16 sérfræðinga, en með skipinu eru nú 7 fiski- fræðingar, sex franskir og elnn enskur. Skipið var mjög hreinlegt, að- búnaður skipverja virtist hinn fullkomnasti, enda er skipið ekkí eldra en frá 1960, smíðað í Le Havre. 1 skut skipsins. Hliðið fremst á myndinni er lokað þegar ekki er verið að veiðum. Það liggur framan við skutopið, sem togað er upp um og inn á dekkið, sem mennimir standa á. 1 dekkinu er hleri, sem er opnaður þegar láta á í lestarnar, sem eru tvær, litlar frysti- lestar. Togvindurnar eru inn undir byggingunni, sem sést aftast á myndinni. í einni af rannsóknarstofum skipsins. Þær eru þrjár talsins, búnar margvíslegum rannsóknartækjum. Miðhluti skipsins, skipsmenn voru að þrífa dekkið og notuðu sápuvatnið óspart.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.