Vísir - 09.04.1963, Page 8
8
l'l II i' lllll'MIIW—■T3
.^É
Utgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR.
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og íl*greiðsla Ingó'.fsstræti 3.
Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði.
í lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 iinur).
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.
Húsnæðislánin
Með mikilli eftirvæntingu hefir verið beðið eftir
úthlutun úr sjóðum Húsnæðismálastjómar um land
a!lt. Nú eru fregnirnar komnar. Aldrei fyrr hefir verið
úthíutað jafn miklu fé í einu. 85 milljónir eru nú lán-
aðar um land allt, en hingað til hefir Húsnæðismála-
stjórn lánað mest á einu ári 86 millj. króna. Alls fengu
1440 umsækjendur lán að þessu sinni.
Hin mikla úthlutun íbúðarlána sýnir tvennt. í
fyrsta lagi það að núverandi ríkisstjórn gerir meir en
nokkru sinni fyrr í lánamálum húsbyggjenda og hefir
tryggt þeim óvenju mikið lánsfé. Er nú mjög annar
háttur hafður á þessum málum en þegar vinstri stjórn-
in sat að völdum.
I öðru lagi ber úthlutunin með sér að óvenju mik-
£ð er nú byggt af nýjum íbúðum. Skortur hefir meira
að segja verið á timbri og byggingarvörufirmu segja
að sjaldan hafi fleiri hafið nýbyggingar en á þessu
vori. Sú staðreynd sýnir Ijóslega að í byggingum er
sama góðærið sem í öðrum atvinnugreinum landsins.
Stjórnarandstaðan hefir marglýst því yfir að nú-
verandi stjórnarstefna hljóti að Ieiða til samdráttar og
kreppu. Innan tveggja mánaða lýkur þessu starfstíma-
bili stjórnarinnar, og ennþá er ekkert tekið að bóla
á kreppu framsóknar. Ættu stjórnarandstæðingar nú
að herða sig í leitinni að samdrættinum svo að þeir
geti sýnt glögg vitni um hann á næstu vikum. Ella
en engin von til að nokkur leggi framar trúnað á orð
þeirra og spádóma.
Hin ófrjálsa list
Sjaldan hafa íslenzkir kommúnistar talað svo
opinskátt um hug sinn í lista- og menningarmálum sem
fulltrúi flokksins í útvarpsþættinum í fyrrakvöld.
Hann hélt því hiklaust fram að sjálfsagt væri að ríkis-
valdið markaði línurnar í menningarmálum og gæfi
listamönnum og rithöfundum í skyn hvað og hvemig
þeir eigi að mála, yrkja og skrifa. Og réttlætingarinnar
á þessari furðulegu skoðun var ekki langt að leita!
Listin á að þjóna uppbyggingu hins sósíaliska ríkis.
Það er undravert að heyra mann mæla þannig
bót ófrjálsri list og íhlutun ríkisins í listmálum. Það
minnir á skrif nazistanna á árunum fyrir stríðið. Það
er jafn undravert að talsmenn slíkrar skoðunar skuli
finnast í jafn lýðfrjálsu landi sem ísland er. En eitt
ættu menn með slíkar skoðanir að hugleiða. í landi
þar sem ríkið skipuleggur listina, eins og flest annað,
væri útilokað að þeir fengju að láta til sín heyra í út-
varpsþætti eða á prenti — nema þeir bergmáluðu skoð-
anir valdhafanna.
’awBSKms®
V I S I R . Þriðjudagur 9. apríl iö63
NegraUj óms veit
í GLAUMBÆ
Um þessar mundir skemmtir
í Glaumbæ negrahljómsveit
Don Williams frá Vestur-Indí-
um I henni eru þrír menn.
Hljómsveitarstjórinn Don
Williams leikur á píanó og
syngur. Bill Rainy spilar á
bassa, og Con Clayton á tromm
ur og trompet og syngur þar
að auki.
Þeir félagar hafa spilað og
sungið um alla Evrópu og
dvöldust nú síðast 1 Svíþjóð.
Fréttamaður Vísis hafði tal af
Williams fyrir skömmu og
spurði meðal annars:
— Hvenær byrjuðuð þið að
leika saman, félagarnir?
— Við hittumst f París 1958,
en þangað kom ég frá London
með annari hljómsveit, Okkur
líkaði svo vel hver við annan
að við ákváðum að að skella
okkur saman og sjá hvernig
gengi. Það hefur gengið svo
vel, að ég býst ekki við að
breytingar verði á í bráð.
— Hvers konar músík spilið
þið aðallega?
— Glaðværa og skemmtilega.
Við reynum að velja eitthvað
sem kemur fólki 1 létt skap,
og sem hjálpar því til að
skemmta sér. Við höldum til
dæmis sjálfir mikið upp á
calypso, sem má kannski kalla
okkar þjóðartónliSt.1 Aáhör^
aðalatriðið að laga sig eftif
smekk fólksins, og það gerum
við auðvitað af beztu getu.
— Hvað dveljizt þið lengi
hér á landi?
— Tvo mánuði líklega, og
svo höldum við aftur til Sví-
þjóðar.
— Hvemig líkar ykkur lífið
í þessu starfi?
— Það er dásamlegt. Að
vísu þarf maður að vinna mjög
mikið, og þetta er oft mjög
þreytandi, en ég gæti samt ekki
hugsað mér neitt annað. Til
dæmis þegar við erum að leika
fyrir fólk, sem lifir sig inn í
þetta með okkur, og þegar
stemningin er góð, þá er ekki
hægt að hugsa sér neitt
skemmtilegra.
— Við hlökkum mjög mikið
til að skemmta hér, Sagði Will-
iam að lokum, og vonum að
öðrum þykir eins gaman og
okkur.
Að dæma eftir þeim fréttum
sem um bæinn berast, er söng-
ur og ieikur þeirra félaga með
ágætum og munu því eflaust
margir leggja leið Sína í
Glaumbæ til þess að sjá þá og
heyra.
Hljómsveit Don Williams.
Deilan um e'tirmann Áden-
auers útkijáð um
í fréttum frá Bonn segir, að
um páskana eigi að gera gang-
skör að því að fá úr því skorið
hver verða skuli eftirmaður Ad-
enauers kanslara, er hann lætur
af embætti sfðar á árinu. Kristi-
legi lýðræðisflokkurinn vill fá úr
þessu skorið f tæka tíð fyrir
þingkosningarnar í Neðra-Sax-
landi 19. maí.
Þingnefnd flokksins kemur
saman á fund f Bonn 23. apríl
ásamt systurflokknum í Bæjara-
landi, og eru þessir tveir sam-
starfsflokkar einhuga um, að
Ludwig Erhard verði fyrir val-
inu.
Þeir þrír stjórnmálaleiðtogar
a0rir, sem til mála hafa komið
sem forsætisráðherraefni, hafa
lýst sig samþykka þessu, en þeir
eru Heinrich von Brentano -
fyrrv. utanríkisráðherra, Franz
Josef Strauss og Josef Hermann
Dufhues. En vandamálið rnikla
er, hvort Adenauer fæst til þess
að fallast á Erhard sem eftir-
mann sinn.
Áður hafa verið birtar fréttir
um, að Adenauer muni draga sig
í hlé í október á hausti kom-
anda, en eftir ósigur Kristilega
lýðræðisflokksins í Rheinland-
Pfalz kosningunum nýlega, telja
margir helztu menn flokksins
æskilegt, að Adenauer láti af
embætti jafnvel fyrr, en allir
eru þó sammála um, að Aden-
auer verði forsætisráðherra þeg
ar Kennedy Bandaríkjaforseti og
De GauIIe Frakklandsforseti
koma til Bonn í júní n.k.
ieleif s*iitife*inef
I NTB-frétt frá Genf í gær
segir, að sovétstjórnin hafi fall-
izt á uppástungu Bandaríkja-
stjórnar um beint fjarskiptasam
band milli Hvíta hússins og
Kremi, til þess að draga úr
þeirri hættu, að styrjöld brjót-
ist út.
Tsarapkin, fulltrúi sovétstjórn
arinnar á afvopnunarráðstefn-
unni gerði grein fvrir ákvörðun
stjórnar sinnar. — Full-
trúi Bandaríkjanna lýsti ánægju
fyrir hönd Bandaríkjastiórnar
yfir þessari ákvörðun sovét-
stjórnarinnar, sem hann taldi
hina mikilvægustu.