Vísir - 09.04.1963, Síða 16
VÍSIR
Þriftjudagur 9. aprfl 1963
Tösku
stolið
Á laugardagskvöldið, 6. apríl s.l.
var stolið brúnni leðurtösku úr
m.s. Akraborginni, sem lá þá hér
f Reykjavlkurhöfn og hefur eig-
andinn kært þetta töskuhvarf fyrir
Iögreglunni.
Eigandi töskunnar — ungur
maður — var meðal farþega með
m.s. Akraborginni þegar hún kom
hingað kl. 20.45 á laugardags-
kvöldið. Var pilturinn með allmik-
inn farangur, sem hann skildi eftir
á bekk f skipinu, þar eð hann hafði
ekki aðstöðu til að taka hann með
sér f land. Hugðist hann geyma
föggur sínar í skipinu um nóttina,
hvað hann og gerði.
Á sunnudagsmorgun þegar pilt-
urinn kom til skips að vitja farang-
urs síns, var hann þar sem skilizt
hafði verið við hann kvöldið áður
að undantekinni brúnni leður ferða
Framh. á bls. 5
Guðmundur Jörundsson skip-
stjóri, sem staddur er f Bremer-
haven, hafði samband við skrif-
stofu sína í Reykjavík f morgun
og skýrði frá því að lokið væri
við að setja frystitæki f togara
hans, Narfa, en með tækjum
þessum verður fiskurinn heil-
frystur um borð jafnóðum og
hann veiðist og geymdur í 20
stiga frosti í lest. Narfi er fyrsti
íslenzki togarinn sem fær þessi
tæki, en með þeim geta togarar
fyllt sig á veiðum hversu lang-
an tíma sem það tekur án þess
að nokkur hætta sé á að aflinn
skemmist og er hér því um
merkilega nýjung að ræða. —
Prófanir á þessum tækjum
standa yfir og hafa gefið góða
raun. Þeim mun verða haldið
áfram f næstu viku, en síðan
kemur Narfi heim frá Bremer-
haven, þar sem frystitækin voru
sett í hann, og fer á veiðar.
Ákveðið er að hann sigli með
allan sinn afla fyrst um sinn á
erlendan markað, fyrst til Bret-
lands.
Byggt hefur verið yfir bak-
borðsganginn á Narfa, þar hef-
ur frystitækjunum verið komið
fyrir og er aflinn heilfrystur þar
í blokkum og blokkirnar renna
á færibandi niður í lest, sem á
að halda 20 stiga frosti. Tæki
þessi eru ensk og munu Bretar
hafa orðið fyrstir til þess fyrir
2—3 árum að setja slík frysti-
tæki í minni skip og Þjóðverj-
ar eru að byrja á þessu. Narfi
er nær 1000 Iestir að stærð, en
að minnsta kosti 3 íslenzkir
togarar eru heldur stærri.
Sptíð snjókomu á Vest-
fjörðum og Norðurlandi
Veður breytti skyndi-
lega um til hins verra á
öllu Norðurlandi í morg-
un. Er komið þar norðan
rok, versta veður og
býst Veðurstofan við
Oscar-
verðlaun
1 gær var úthlutað hinum
frægu kvikmyndaverðlaunum,
Oscars-verðlaunum. Bezta kvik
myndin var taiin Arabíu Law-
rence, sem Richard Burton
leikur f og bezti leikstjórinn
David Lean. Gregory Peck var
talinn hafa sýnt beztan leik
karlleikara í myndinni „To
KiII á Mockingbird“ og Ann
Bankcroft bezta Ieikkonan í
kvikmynd um ævi Helen Keller.
snjókomu á öllu Norður
lándi í dag, má búast við
að hún nái suður á
Breiðafjörð og verði all--
mikil á Norðurlandi.
Veðurstofunni barst auka-
veðurskeyti um 10 leytið í
morgun frá Horni og var þar
skýrt frá því að snjókoma væri
byrjuð þar og fjúk með 6 vind-
stigum.
Ástæðan fyrir þessu er sú, að
lægð er yfir vestanverðu land-
inu en háþrýstisvæði yfir Græn-
landi. Hefur Ioftþrýstingur auk-
izt fyrir norðan Vestfirði. Veður
stofan hafði spáð norðanátt, en
veðurbreytingin hefur þó gengið
* hraðar en hún bjóst við. Á
Austur Grænlandi er nú ofsa-
veður og var rokið þar svo mik-
ið að veðurathugunarmaður
komst ekki út til þess að lesa
hitann.
Þetta skyndilega vorhret get-
ur gert strik I reikninginn fyrir ;
þá mörgu sem hafa ætlað að
ferðast til Vestfjarða og Norður
lands yfir páskana. Að vísu virð i
ist nú útlit fyrir að skíðafærið ,
verði betra. Hitt er svo hugsan-
legt að færið á vegum spillist og
Torgsala kærð
Fisksalar í Reykjavik hafa kært
yflr torgsölu rauðmagasala nokk-
urs sem selt hefur rauðmaga und-
anfarið undir beru lofti í Vestur-
bænum.
Rauðmagasali þessi mun hafa
fenaið leyfi til slíkrar sölu fyrir
13 árum en það leyfi mun nú
vera útrunnið. Hefur hann haft
bækistöð sína við Melavöllinn
gegnt Birkimel. Eftir Itrekaðar
kvartanir fisksala hér í bænum
mun lögreglan hafa stöðvað þessa
toresölu í eær.
flugfæri versni og erfitt verði að
komast norður. Hér sunnan-
lands er spáð norðanátt og bjart
viðri. Búast má við að kólni í
veðri á öllu landinu.
Veðurstofan vill hins vegar
engu spá um það fram I tímann
hvernig veður verði á páskun-
um, því að nú sé allra veðra
von.
Mynd þessi var tekin fyrir
tveimur dögum á helzta sklða-
svæði ísfirðinga í Seljalandsdal.
Þama sést einn af skíðaskálum
Isfirðinga, Harðarskálinn svo-
kallaði og í venjulegu árferði
þekur fönnin alla jörðina. Nú
eru snjóskaflar þarna aðeins á
víð og dreif, þó að skíðafólkið
geti að sjálfsögðu fundið góðar
brekkur og gott færi til skíða-
göngu. Er sömu söguna að segja
frá ísafirði sem annars staðar
á Iandinu að slíku snjóleysi
muna menn ekki eftir á þessari
öld. 1 morgun virtist hins vegar
vera að breytast veðráttan og
er spáð snjókomu um allt norð-
anvert landið. (Ljósm. D. Sigm.)
Oskráð vegna misskilnings
Þrjú morgunblaðanna sögðu
frá því í morgun að ýmist væri
búið eða stæði til að kyrrsetja
tvo af bátum Guðmundar Jóns-
sonar útgerðarmanns á Rafnkels
stöðum. Ástæðan væri sú að
ekki væri búið að skrá á skipin.
Þjóðviljinn bætti því við að út-
gerðarmaðurinn hefði ekki
skráð á skipin til að komast hjá
því að borga skipverjum það
sem þeim bar.
Vísir aflaði sér upplýsinga um
málið í morgun. Samkvæmt
þeim mun ekki hafa verið skráð
á Vlði II vegna misskilnings í
sambandi við mannaskipti, en á
Jón Garðar hefur ekki verið
skráð. Skipið er nýkomið úr
klössun og ekki farið á veiðar.
Engin kyrrsetning stendur fyrir
dyrum, á skipunum.
Það er alrangt hjá Þjóðviljan-
um að þetta standi I sambandi
við launamál, eftir því sem út-
gerðarmaður skipanna tjáði Vísi
í morgun. Það er einnig rangt
hjá Þjóðviljanum í þessu sam-
bandi að Guðmundur á Rafnkels
stöðum sé aðili að síldársamn-
ingum í Sandgerði, vegna þess
að bátar hans eru gerðir út á
síldveiðar frá Gerðum.
Afvopnaður
Síðastliðið sunnudagskvöld var
maður afvopnaður er hann hafði
tekið upp hníf fyrir framan Þórs-
kaffi og gert sig líklegan til að
ráðast á annan- mann sem hann
hafði orðið saupsáttur við.
Pétur Sigurðsson.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna:
Kosið til Lands-
fundar í kvöld
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfélag- vinnulöggjafarinnar. —
anna í Reykjavík heldur fund í I Kosnir verða fulltrúar á Lands-
Sjálfstæðishúsinu í kvöld, og hefst i fund Sjálfstæðisflokksins 25.—28.
hann kl. hálfníu. apríl n.k.
Pétur Sigurðsson, alþingismaður,1 Ný skírteini verða afhent full-
flytur erindi um endurskoðun! trúum við innganginn.