Vísir - 10.04.1963, Page 7
V1SI R . Miðvikudagur 10. apríl 1963.
ta
mmamssES&isss'JSíssíSissm.
7
FERÐALÖG
í páskavikunni er alltaf mik-
ið um að vera. Þá fær fólk
lengsta aukafrí ársins og fara
þá margir út úr bænum til að
létta sér upp. Hér birtist yfirlit
yfir það helzta, sem fólk getur
gert sér til dægrastyttingar yfir
hátíðina.
SKÍÐAMÓT
Landsmót skíðamanna verður
haldið á Siglufirði, og má búast
við að þar verði glaumur og
gleði ekki síður en á sumri væri.
Fjölmargir keppendur taka
þátt í mótinu og eru auk Sigl-
firðinga fimmtíu og sex kepp-
endur frá ýmsum stöðum, sem
væntanlega hafa með sér nokk-
uð fylgilið. Á Siglufirði eru tvö
hótel, sem hafa herbergi fyrir
um. það bil fimmtíu manns, og
verða þau notuð f þágu gest-
anna. Keppendur dveljast og á
heimilum víðs vegar um bæ-
inn.
Sérstök matstofa verður opn-
uð, svo ekki ' þarf fólk að
svelta, og verður hún opin með-
an á mótinu stendur. Einnig
munu hótelin selja mat. Fyrir
utan hótelin eru svo vistarverur
þær, sem síldarstúlkur dveljast
í á sumrin, og reynslan sannar,
að þar rúmast ótrúlegur fjöldi.
Skarðið er ekki enn þá fært
bílum, en hugsanlegt að svo
verði fyrir páska.
Áætlunarferðir verða tvisvar
í viku, frá Akureyri og Sauðár-
króki, sjóleiðina. Ferðirnar —
verða á þriðjudögum og föstu-
dögum. Einnig verða flugferðir
með fjögurra sæta vél Sveins .
Eirikssonar tvisvar í viku frá
Reykjavík til Siglufjarðar.
ISAFJÖRÐUR
Á fsafirði mun einnig verða
glatt á hjalla. Skíðafélög-
in gangast fyrir skíðakennslu í
Seljalandsdal, á skíðaviku, sem
haldin verður um páskana. M.s.
Hekla fer frá Reykjavík mið-
vikudaginn 10. apríl vestur um
land. Eins og kunnugt er hefur
Flugfélag fslands sérstök far-
giöld fyrir sldðafólk. og verða
eflaust margir til að hagnýta
sér þau. í Seljalandsdal er rúm-
góður skáli. sem mun framreiða
veitingar allan daginn Skemmt-
analif verður mikið fvrir uía'n
skíðaiðkanir, og verða kvöld-
vökur á hverju kvöldi og að
endinsu veglegur lokafagnað-
ur, Búast má við við. að beztu
•. skíðamenn Ísf’rðinga verði á
landsmótinu » Sifi;lufirði en bað
ætti ekki að standn skemmti-
legum stundum á ísafirði fyrir
þrifum.
AKUREYRI
Dánsleikir og kvöldyökur eru
einnig á dagskrá á Akurevri, op
einnig munu þar stunda.ðar heil-
brigðari skemmtanir. svo sem
skíðakennsla.' Skíðahótelið nýia
„verður opið á hverjum degi. op
einnig Hótel Akureyri og Hóte’
KEA. Vegna viðgerða á Hótel
Akureyn verður veitingasalur-
inn ekki opinn og opnar lík-
lega ekki fyrr en í sumar. En
á fimmtudag verða gistiher-
bergi opnuð til móttöku á gest-
um.
Mikið er upppantað af gisti-
herbergjum, en eitthvað mun
vera eftir a£ svefnpokaplássi,
og matur verður framreiddur
allan daginn hvar sem því verð-
ur við komið.
Geta má þess, að aðeins er
steinsnar frá Hótel Akureyri og
Hótel KEA, upp í Hlíðarfjall,
þar sem mest verður um skíða-
hetjurnar. Flugfélag íslands sér
einnig um ferðir til Akureyrar,
með sérstökum skíðafargjöld-
um. Og mikill kveðjufagnaður
er ráðgerður annan páskadag.
BÍLFERÐIR
Töluvert mikið verður um
ferðir út úr bænum, í Öræfi,
og á aðra staði um pásk-
ana, og munu margar ferða-
skrifstofur beina sínum farar-
tækjum þangað. Ferðaskrifstof-
an „Lönd og Ieiðir“ gengst fyr-
ir eins dags ferð um Suðurnesin
á páskadag.
Ferðafélag Islands sér um
tvær Þórsmerkurferðir, aðra
fimm en hina tveggja daga.
Lagt verður upp í lengri ferð-
ina á fimmtudag, en hina á
laugardag. Væntanlega verður
farið að Hágavatni.
Guðmundur Jónasson leggur
af stað á skírdág í fimm daga
Öræfaferð. Farið verður um
Bæjarstaðaskóg.
Blaðið hafði samband við
nokkrar bílaleigur, sem leigja
bíla án bílstjóra, og einnig þar
var allt upppantað, og jafnvel
langir biðlistar.
Þetta er aðeins lauslegt yfir-
lit yfir það sem fólk getur haft
fyrir stafni meðan á hátíðinm
stendur.
NÝJA BÍÓ sýnir að þessu sinni
„From the Terrace“ Leikarar
eru Paul Newman, Joanne
Woodward. og Myrna I.oy: —
Myndin er stórbrotið drama,
byggt á samnefndri skáldsögu
eftir John O Hara. Paul NeW-
man, sem leikur aðalhlutverkið.
er einn af alfremstu kvikmynda
leikurum Bandaríkjanna. og vin
sældir hans hafa farifj ört vax-
andi eftir hverja mynd. Nokkr-
ar af kviktnyndum hanc hafa
komið hingað. svo sem Some-
bodv up the-e 1 ikev me“ og
„The Helen Morgan story“.
>V
TÓNABÍÖ sýnir hina viðfrægu
.gamanmynd „Min kone fra Par-
is“ I henni 'eru vinsælustu leik-
arar Dana þau Ghita Nörby og
Ebbe Langberg, ásamt frörrsku
stiörnunni Önnu Gaylor.
Efni myndarinnar er um ung-
an léttlyndan Dana, sem um
Iangan tíma hefur stundað nám
í. borg ástarinnar, París. Hann
má ekki sjá unga stúlku án þess
að verða ástfanginn í lengri eða
skemmri tíma, og eins og allir
slíkir menn ler.dir hann í ótal
ævintýrum og vandræðum.
Myndin er í iitum, og heitir á
í'slenzku Sniöll eiginkona.
GAMLA BÍÓ sýnir „The swiss
family Robinson". Það er æv-
intýramynd í liturn frá Disney,
með leikurunum John Mills,
Tommy Kirk. James McArthur,
og hinum óviðjafnanlega Kevin
Þessi mynd var tekin einhvemtíma þegar „betur“ viðraði í Kveradölum en undanfarið, og skíðasnjór
var nægur. Á henni sést fólkið vera að spenna á sig skíðiu, og búa sig undir að Ie|gja í brekkumar.
Corcoran. Þeir sem sáu mynd-
irnar Pollyanna eða Old Ye’Ier
muna áreiðanlega eftir gull-
hærða snáðanum með bláu
augun sem alltaf var í vand-
ræðum vegna prakkarastrika
sinna „The swiss family Rob-
inson“ fjallar um fjölskyldu,
sem verður skipreika á eyði-
eyju. og lýsir lífi þeirra þar í
blíðu og stríðu, bardaga við sjó-
ræningja o. fl.
STJÖRNUBÍÓ sýnir mynd er
nefnist „Þúsund og ein nótt“.
Það er teiknimynd, fyrsta langa
teiknimyndin sem gerð hefur
verið um hinn „nærsýn Mr.
Magoo“. Teiknimyndir með
Magoo, hafa um langan aldur
verið vinsælar aukamyndir í
Stjörnubíói.
★
HAFNARBÍÓ sýnir, Kona Fara-
ós. Ameríska stórmynd í litum
sem fjallar um tvo Faraóa, sem
eru að reyna að vinna ástir
sömu konu, og beita til þess
öllu sínu valdi. Leikarar eru
John Drew Barrymore og Linda
Cristal
★
HÁSKÓLABÍÓ sýnir mynd með
hinu skemmtilega nafni „Girls,
Girls, Girls“. og Elvis Presley.
Sagt er frá ungum fátækum
fiskimanni (Presley) sem allar
stúlkur elta (Presley), og á enga
ósk heitari en að eignast eigin
bát. Nokkrir skúrkar eru að
sjájfsögðu í myndinni. sem
Presley lemur svo eftir því sem
við á. Einnig syngur hann mik-
ið. Myndin er að sjálfsögðu í
litum.
KÖP4V0GSEÍÓ sýnir fjöruga
brezka gamanmynd Don’t both-
er to'knock, með Richard Todd,
Nicole Maurev og Elk Sommer
í aðalhlutverkum. Þar leikur
Rihard Todd óbetranlegan
kvennabósa Bill að nafni, sem
hefur það fyrir sið, að gefa öll-
um ástmeyjum sínum, um all-
an heim, lykil að íbúð sinni í
Englandi. Eftir miltið basl tekst
honum loks að ná í þá réttu.
en það gengur ekki eins vel að
halda í hana. Og nú fær Bill
karlinn að . hlaupa. Richard
Todd er nú orðinn þekktur leik-
ari. en þetta mun þó vera eitt
fyrsta gamanhlutverkið hans.
Margar myndir með honum
hafa verið sýndar hér á landi
og má þar helzt minnast saka-
málamyndarinnar Á valdi ótt-
ans, sem er einhver bezta sinn-
ar tegundar sem hér hefur sézt.
AUSTURBÆJARBÍÓ sýnir
þýzka gamanmynd, „Góði dát-
inn Svejk“. Flestir kannast við
þetta bráðskemmtilega efni, og
þekkja hæfileika Þjóðverja til
þess að gera góðar gaman-
myndir. Aðalhlutverkið leikur
Heins Riiman, einn bezti leik-
ari Þjóðverja. Hann mun seint
gleymast þeim, sem sáu þýzku
útgáfuna af Frænku Charleys.
★
LAUGARÁSBÍÓ sýnir hina stór
fenglegu mynd Exodus Hún er
í litum, sýnd með 70 mm filmu
og sexföldum stereofóniskum
hljóm. Leikarar eru Paul New-
man, Eal Mineo, Eve Marie
Saint, og John Derek. Myndin
er byggð á heimsfrægri sögu
Leon Uris, og leikstjóri er Otto
Preminger.
★
BÆJARBÍÓ sýnir fransk-ítalska
litkvikmynd „Sólin ein var
vitni“. Það er franskt drama,
með leikurunum Alain Delon
og Marie Laforet.
L E I K H Ú S
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur sýn-
ingu á Ieikritinu Andorra annan
páskadag.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
sýnir á skírdag Hart í bak. Og
á annan páskadag Eðlisfræðing-
KÆRKOMIN
FERMINGAR-
Mtt)
Fleildsölubirgðir:
H
Sími 2-37-37