Vísir - 30.05.1963, Síða 1
Fyrsti hópurinn frá Kannda
til Eyja kemur 4. júní
Fyrsti hópur Vestur-Islendinga
til starfa hér á landi mun leggja
af stað frá New York i Loftleiða-
flugvél 4. júní. Fer þessi hópur til
starfa í frystihúsum í Vestmanna-
eyjum.
í þessum hóp eru 20 manns. Það
eru fjögur frystihús í Vestmanna-
eyjum, sem fá fólk þetta til starfa
hjá sér og greiða allan kostnað við
ferð þeirra. Þess er rétt að geta,
er frá þessu er sagt, að LÍÚ og SH
o. fl. áttu hlut að því að séra
Róbert Jack fór í könnunarferðina
vestur, þ. e. til þess að athuga
möguleikana á að fá vestur-íslenzkt
fólk til starfa hér, og gaf sú könn-
Framhald á bls. 5.
VAXANDIHLUTDEILD LAUN-
ÞC6A / ÞJÓDARTCKJUNUM
19W \<)h%
VERK VIÐREISNARINNAR
Síðustu árin hefir hlutdeild launþega í þjóðar
tekjunum vaxið. Er það órækasta vitni þess að lífs-
kjörin hafa batnað í landinu og að framleiðslu-
aukningin fellur þeim í skaut sem að henni vinna.
Er þetta enn ein sönnun þess hver áhrif viðreisn-
arstefnan hefir haft í landinu.
yj. Framkvæmdabankinn og síðar Efnahagsstofn-
un hafa reiknað út hver hlutdeild stærstu launa-
stéttanna, verkamanna, sjómanna og iðnaðar-
mánna hefir verið í þjóðartekjunum síðustu árin.
Miðað er við töluna 100 árið 1950. Allt fram til
loka stjómartíma vinstri stjómarinnar jókst hlut-
deild launþega í þjóðartekjunum ekkert, var aðeins
100 árið 1957 og 101 1958. En á síðasta ári 1962
hafði hlutdeild þessara stærstu atvinnustétta þjóð-
arinnar vaxið upp í 106 eða um 6%.
j>f Er þetta ótvíræðust sönnun þess að stefna nú-
verandi ríkisstjómar í efnahagsmálum hefir verið
rétt, og stærstu launþegastéttunum til hagsbóta.
Hlutur þeirra í hinum vaxandi þjóðartekjum hefir
stækkað hlutfallslega meira en annarra lands-
manna. Framhald á bls. 5.
Hoppdrætti Sjálfstæðisflokksins:
BIFREIÐ FYRIR
100 KRÓNUR
Ef heppnin er með ekur þú
á kjörstað eftir 7 daga f einum
af hinum glæsllegu happdrættis
bílum Sjálfstæðisfiokksins. Vinn
ingamir eru sem alkunnugt er
fimm bifreiðar af nýjustu ár-
gerð, tveir Taunus, tveir Voiks-
wagen og einn Austin Gipsy.
Dregið verður aðeins fjórum
dögum fyrir kosningar — 5.
júní. — Um leið og þú skapar
þér möguleika til að eignast
bifreið fyrir fáeinar krónur
hefurðu lagt að mörkum til
styrktar starfsemi Sjálfstæðis-
flokktins vegna kosninganna.
ENGINN SJÁLFSTÆÐISMAÐ-
UR MÁ LIGGJA A LIÐI SlNU.
Styðjið og styrkið starf-
semi Sjálfstæðisflokks-
ins. — Takið þátt í happ
drættinu um bílana
fimm. — Miklir vinnings
möguleikar. — Dregið
eftir viku. — Miðinn
kostar aðeins hundrað
krónur.
Meðalaldur karla 70
ár og kvenna
Meðalævi karla hér á
landi er nú komin yfir
sjötugt og meðalævi
kvenna er komin yfir 75
ára aldur. Er meðalæv-
in hér með því lengsta
sem þekkist í heiminum.
Er greint frá þessu í síð-
ustu Hagtíðindum.
I aðeins einu landi í heimin
um, Svíþjóð er meðalævi
kvenna lengri en hér. Hún telst
hér á landi slétt 75 ár en í Sví-
þjóð 75.24.
Fáein lönd eru talin hafa
hærri meðalaldur karla en hér
tíðkast. Hann telzt nú vera hér
á landi 70,7, en þessi lönd eru
hærri: Svíþjóð 71,69, Noregur
71,11 og Holland 71 ár slétt.
Hækkun sú sem hefur orðið
á mannsaldrinum á fslandi síð-
ustu öldina gengur kraftaverki
næst, en þetta hefur tekizt með
framþróun læknavísinda, hrein-
læti og b-jttum Iífskjörum.
Fyrir rúmri öld á áratugnum
1850—60 var það reiknað út
að meðalaldur karla væri 31,9
ár en kvenna 37,9 ár. Um alda-
mótin var meðalaldurinn orðinn
fyrir karla 44,4 ár og fyrir kon-
ur 51,4 ár.
Um 1930 var meðalaldur á
íslandi 56, ár en fyrir konur
61 ár.
í Hagtíðindum segir um þetta:
Á rúmum 100 árum hefur meðal
ævi nýfæddra barna lengzt um
38,8 og 37,1 ár. Meiri hlutinn af
þessari hækkun meðalævinnar
stafar af lækkun barnadauðans.
I’ einu nágrannalandi okkar er
manndauði og meðalaldur lfkur
og hann var á Islandi fyrir heilli
öld. Það er Grænland. Þar reikn
ast meðalaldur karla nú vera
32,17 ár og meðalaldur kvenna
37,49 ár.