Vísir - 30.05.1963, Side 7
V í SI R . 7immtudagur 30. maí 1963.
Reykjanes skoðað —
r ■vw^vW¥M^‘V^^vl,-'>»WVWVVVWVy^yVll¥¥V¥y¥¥^^^^^^^^l'
Framh. af bls. 4
fleira. Áttu þau Anna fjölda
barna og ekki annars getið en
hjónaband þeirra hafi orðið í
hvívetna hið hamingjusamasta.
JJafnarberg er helzti áfangi
þessarar ferðar okkar í
dag og stutt þaðan úr Höfnum.
Það hefst skammt fyrir austan
bæinn Kalmanstjörn og er
um hálfa viku siávar að lengd,
Ekki verður ekið fram á bjarg-
brúnina, en leiðin frá götunni
er stutt, veðrið auk þess gott
svo allir fagna því, að fá sér
smá spássergöngu yfir slétt
hraunið og sleikja sólskinið
um leið. Það var ekki kominn
mikill fugl í bjargið miðað við
það sem venjulegt er, en það
gera sennilega kuldarnir í vor.
Þó sá víða fugl á eggjum og
enn meir af fugli sem ekki var
enn tekinn að verpa.
Hafnarbjarg er lágt, líklega
sem næst 40 metra hátt þar
sem það er hæst. En það er
þverhnípt og ógengt talið.
Stundum hefur verið sigið í
það eftir eggjum en ekki að
staðaldri. Hafnarbjarg er senni-
lega það fuglabjargið sem er
hvað næst Reykjavík og hefur
það auk þess til sfns ágætis að
það er mátulega lágt til að
fólk geti fylgzt með öllu sem x
því gerist ofan frá bjargbrún.
í hinum hærri fuglabjörgum er
oft örðugt að sjá fuglinn eða
varpstöðvar hans því þær eru
sjaldnast ofarlega í berginu. —
Það er ekki hugmynd mín að
gefa neina lýsingu á fugla-
bjargi en þó geta þess að það
er í röð þess sérkennilegasta
og skoðunarverðasta sem um
ræðir í dýralífi á íslandi. Á
það getur maður horft hug-
fanginn' klukkustundum saman
án þess að fá nokkurn tíman
nóg.
TJegi er tekið að halla og
ekki unnt að dvelja lengur
á Hafnarbjargi þótt maður feg-
inn vildi. Við göngum sömu
Ieið til baka að bílunum, stöldr-
um þar litla stund og snæðum
nestisbitann. Að því búnu
hefst ferðin að nýju og nú á-
fram austur nesið í stefnu á
Reykjanesvita. Við ökum ná-
lægt sjónum og höfum ágæta
útsýn til hafsins. Langt í suðri
gnæfir Eldey ein rismikil og
tíguleg upp úr haffletinum.
Stundum gaf fleiri eyjar að líta
út við hafsbrún, en þær voru
meir til stundargamans heldur
en Iangframa, því þær hurfu
með jafn skjótum hætti og þær
höfðu myndazt. Og allar höfðu
þær orðið til við eldsumbrot.
Eldar hafa ekki aðeins brunn-
ið miklir um allt Reykjanes
heldur og fyrir öllu Reykjanesi.
Annálar herma t. d. frá því
að ekki hafi orðið færri en 5
eldgos í hafinu út af Reykja-
nesi á 13. öld einni. Og fyrsta
eldgos í Reykjanessjó, sem
sögur herma, átti sér stað árið
1211. Það var sett í samband
við andlát Páls Skálholtsbisk-
ups sem lézt um áþekkt leyti.
Var sagt að allar höfuðskepnur
hafi sýnt á sér hryggðarmerki
þegar hann dó.
Árið 1783, sama ár og Skaft-
áreldar brunnu, myndaðist
ey í hafi úti fyrir Reykjanesi.
Þetta var klettaey sem kastaði
frá sér ösku og vikri svo mikl-
um að skip áttu jafnvel í erf-
iðleikum með að komast leiðar
sinnar. Eynni var nafn gefið
og kölluð Nýey. En einn góðan
veðurdag var hún horfin svo
ekki sá urmull eftir og hefur
ekki örlað á henni síðan. Þá
er og getið um eyju, sem átt
hafi að myndast suðvestur af
Eldey árið 1884, en mjög óljós-
ar fregnir eru um hana og hafi
hún á annað borð orðið til
hefur hún sokkið svo til nær
jafnharðan aftur.
í einhverjum gömlum annál
. er getið um Voðahvin í lofti
sem átt hafi að koma úr sjón-
um fyrir Reykjanesi árið 1546.
Hvinurinn bergmálaði í öllurn
fjöllum á Reykjanesskaganum,
en færðist síðan norður yfir
landið. Hann átti að vera tákn
fyrir skæðri drepsótt sem herj-
aði á Iandsbúa seinna á því
sama ári.
Reykjanestáin þar sem vitinn
stendur er einn skemmtilegasti
staðurinn á sunnanverðu
Reykjanesi. Þar er býsna margt
skemmtilegt að sjá svo sem
hverasvæði, jarðsprungur og
gjár, sjávarhella, klettadranga
í sjó og þar er gróðurlendi lítils
háttar, en þó nóg til þess að
gleðja augað í þessari bik-
svörtu eyðimörk. Hvítur vitinn
stingur og mjög í stúf 1 þenna
sorta allt í kring. Hann stendur
á hól og gnæfir við Jiiminn. í
stórviðri verður brim ferlegra
og stórbrotnara við Reykjanes
en víða annars staðar. „Grunn-
sjórinn beljar um voginn svo
jarðimar nötra“ myndi Einar
Benediktsson hafa sagt.
T> eykjanesviti mun vera fyrsti
*■ viti sem byggður var á Is-
landi. Stóð í erfiðleikum að fá
fjárframlög til byggingar hans
þar sem danska stjórnin taldi
þess enga þörf. Skip hefðu
ekkert að gera fyrir Reykjanes-
vitann á vetrum, en á sumrin
væri svo bjart að viti væri
gagnslaus. Þó kom að því að
íslendingar fengu vilja slnum
framgengt og síðan hefur vitinn
verið endurbyggður tvisvar.
Áður stóð hann úti á Valahriúk,
en þar hrundi mikið úr berg-
inu, bæði í jarðskjálftum og
af sjávargangi og var hann því
fluttur upp á hólinn þar sem
hann stendur nú.
Á jarðhitasvæðinu við
Reykjanesvita er Gunna sá
hverinn sem- merkastur þykir.
Gunnuhver heitir eftir mögnuð-
um kvendraug, sem að sjálf-
sögðu hét Gunna. Hann var til
hinna mestu vandræða um allt
Reykjanes þar til síra Eiríkur
f Vogsósum tók til sinnaráðaog
steypti Gunnu í hverinn.
Gunnuhver þótti áður fyrr
merkilegur fyrir þær sakir að á
honum sáust svókallaðir hvera-
fuglar synda, og meira að segja
átti að hafa tekizt að skjóta
einn slíkan fugl á Gunnu.
Það var náttúra hverafugla að
þeir syntu á sjóðandi vatni, en
sú var önnur náttúra þeirra að
kjötið af þeim soðnaði ekki í
heitu vatni, heldur f köldu. Þeir
sem etið höfðu töldu kulda-
bragð vera af kjötinu.
Círa Oddur Gíslason, sá hinn
0 sami sem rændi Önnu í
Kirkjuvogi, hafði um skeið á-
ætlanir á prjónunum að vinna
postulín úr Gunnu. Hann
dvaldi þar um skeið og safnaði
allmiklu magni af leir sem
síðan mun hafa verið sent til
útlanda til rannsóknar. Aldrei
varð þó af frekari framkvæmd-
um og Gunna hefur verið látin
í friði síðan, að því undan-
skildu þö að jarðskjálftar
hvekktu hana 1887 og breyttu
hennar upprunalegu mynd. 1
Fimmtugur í dag:
f
Pétur
T dag er einn af reyndustu og
virtustu sendimönnum ís-
lands á erlendri grund fimm-
tugur. Það er Pétur Eggerz,
sendiherra hjá Evrópuráðinu og
Alþjóðakjarnorkumálastofnun-
inni í Vín.
Pétur Eggerz fæddist í Vík í
Mýrdal 30. maí 1913, sonur hins
mikla stjórnmálaskörungs Sig-
sendiherra
urðar Eggerz, fyrrv. forsæíisráð
hei’ra og Sólveigar konu hans.
Hann varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1933. Inn
ritaðist hanri þá í lagadeild Há-
skólans hér og lauk þaðan lög-
fræðiprófi árið 1939. Gegndi
hann síðan dómara og ráðuneyt
isfulltrúastörfum í tvö ár, unz
hann var skipaður ríkisstjóra-
Pétur Eggerz sendiherra á ráðherrafundi Evrópuráðsins í Strassborg
þeim sömu jarðskjálftum komu
miklar sprungur í Valahnúk,
bær vitavarðarins skemmdist
og lampar brotnuðu í vitanum.
Y'ið dveljum skemur en skyldi
’ við Reykjanesvita.. Við eig-
um göngu upp á Þorbjarnarfell
fyrir höndum og dagur líður
óðum um kveldi. Á allri þeirri
leið er enn yfir úfið hraun að
fara. Það er blátt áfram ótrú-
lega úfið og hrjúft. Ströndin
fyrir austan hraunið hefur
reynzt hálfgerður skipagrafreit-
ur og tvö síðustu stórslysin
sem þar hafa orðið er þegar
Skúli fógeti strandaði rétt
sunnan við Staðarhverfi í
Grindavík 1933 og oiíuskipið
Clam 1950 nokkrum spöl sunn-
ar við skagann. Skúli fógeti
strandaði í aprílmánuði 1933 í
dimmviðri og roki á stað þeim
sem Albogi heitir. Ólög gengu
látlaust yfir skipið og i þeim
skolaði 13 skipverjum fyrir
borð, sem allir dimkknuðu, en
25 varð bjargað. Brezka olíu-
skipið Clam er síðasta stóra
skipið sem strandað hefur við
austanvert Reykjanesið. Það
hafði nokkrum dögum áður rek
ið upp í Laugarnes og var
enskur dráttarbátur fenginn til
að draga skipið til Englands.
Þegar skipin voru nýkomin fyr-
ir Reykjanesið slitnuðu dráttar-
taugarnar svo hvorugt skipið
I fékk nokkuð aðgert til hjálpar.
Clam rak tæpum tveim stund-
um síðar upp í brimgarðinn við
Reykjanes og þar fórust 27
manns, flest Kínverjar, er þeir
höfðu í forboði skipstjórans
tekið skipsbátana og ætluðu að
bjarga sér á þeim til lands. En
bátunum hvolfdi í brimgarðin-
um og mennirnir drukknuðu,
að 4 undanteknum sem tókst að
krafsa sig eða rak í land. Öllum
þeim sem eftir urðu í skipinu
varð bjargað.
Við ökum gegnum Grindavik.
Þar væri gaman að nema stað-
ar, en Þorbjörn bíður eftir okk-
ritari, er Sveinn Björnsson hafði
verið kjörinn ríkisstjóri íslands
þegar tengslin við Danmörku
rofnuðu. Er forsetaembættið var
stofnað, varð Pétur Eggerz
fyrsti forsetaritarinn.
Síðustu tvo áratugina tæpa
hefir hann gegnt margvíslegum
störfum í utanríkisþjónustunni.
Fyrst sendiráðunautsstörfum i
London og Washington, og síð-
an í Bonn. Árið 1956 var Pétur
skipaður fastafulltrúi íslands
hjá Evrópuráðinu í Strassborg
með sendiherranafnbót og fasta
fulltrúi hjá Alþjóðakjamorku-
málastofnuninni i Vín árið
1956, er Islendingar hófu aðild
að þeirri alþjóðastofnun. Ýms-
um öðrum trúnaðarstörfum hef-
ir Pétur Eggerz gegnt, auk þess
sem hér að framan er talið.
Hann hefir setið fjölmargar al-
þjóðaráðstefnur fyrir íslands
yind og var m. a. skipaður
framkvæmdastjóri Flóttamanna
sjóðsins í París 1959,
Hann er kvæntur Ingibjörgu
•Pálsdóttur Ólafssonar konsúls í
Færeyjum, og hefir þeim hjón-
um orðið tveggja barna auðið.
★
■pins og að framan er greint
var Pétur Eggerz þátttak-
andi í hinni nýstofnuðu íslenzku
utanríkisþjónustu allt frá byrj-
un og hefir meginstarf hans
legið á því sviði. Þá reið á
miklu að valinn maður væri í
hverju rúmi, svo vel tækist til.
Munu allir sammála um að upp-
bygging utanríkisþjónustunnar
hafi farizt giftusamlega, þótt
ærin væru verkefnin, sem hin-
um fáu íslenzku sendifulltrúum
var falið að annast.
Á þeim tæpum tveimur ára-
tugum, sem síðan eru liðnir,
hefir Pétur Eggerz þjónað landi
sínu við umsvifamikil embætt-
isstörf bæði austan hafs og vest
an. Þeim störfum hefir hann
gegnt af einstakri alúð og allir
þeir íslendingar, sem á fund
hans hafa leitað erlendis, munu
hafa sótt til hans holl ráð og
drjúga aðstoð, þegar á hefir
þurft að halda.
Vísir færir Pétri og fjölskyldu
hans beztu ámaðaróskir á
þessum tímamótum.
ur og upp á hann skal klifið.
Hann stendur einn sér, gnæfir
yfir alla hnúka og hæðir á
sunnanverðu Reykjanesinu og
af honum sést í þrjár áttir til
hafs, þaðan sést líka yfir brunn-
asta hraun íslands og beztu
fiskimið í heimi. Það er ekki
til einskis að ganga á Þorbjöm.
Óðinsfélagar
Málfundafélagið Óðinn minnir
meðlimi sína á stærsta og glæsi
legasta happdrættið, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur efnt til
vegna starfsemi sinnar og skor-
ar á þá að gera skil við fyrsta
tækifæri. Aðeins 7 dagar eru þar
til dregið verður. Skrifstofa
Sjálfstæðisflokksins verður opin
frá kl. 9—22 daglega.
w*
>an