Vísir - 31.05.1963, Side 9

Vísir - 31.05.1963, Side 9
VfSIR . Föstudagur 31. mai 1963. BJARTSÝNIR Á FRAMTÍÐINA Fram til skamms tíma,* hefur varla verið hægt að tala um aðrar atvinnu greinar hér á landi, en fiskveiðar og landbún- að. Á þessum atvinnu- greinum hefur þorri landsmanna byggt af- komu sína og af þeim hefur ríkið sjálft dregið björg í bú. Á síðari árum hefur þó þriðju atvinnugrein- inni iðnaði vaxið fiskur um hrygg, og átt svo miklum uppgangi að fagna, að fullvíst er að ekki muni langur tími líða þar til hann stendur jafnfætis, tveim fyrr- nefndum atvinnugrein- um. Óumdeilanlegt er, að iðnað- arrekstur hvers konar á sér mikla framtíð hér á landi, ef rétt er að unnið, og nægilegt svigrúm gefið þeim mönnum, sem fremst standa. Iðnrekendur héldu nýlega ársþing sitt, og í síðustu viku fór aðalfundur Iðnaðarbank- ans fram. Til að fá betri yfir- sýn yfir viðhorf iðnrekenda gagnvart aðstöðu iðnaðarins í landinu, hefur Vísir snúið sér til formanns Félags fsl. iðnrek- enda, Gunnars J. Friðrikssonar forstjóra. Beindi blaðið sérstak- lega þeirri spumingu að Gunn- ari, hvað gerzt hefði í þessum málum á undanförnum árum. Viðskiptafrelsi. „Það sem hlýtur að vera mik- ilsverðast I okkar augum, eru tvfmælalaust þær efnahagsráð- stafanir sem gerðar voru árið 1960, og leiddu til þess að við- skipta- og fjárfestingarfrelsi komst á. Eftir margra ára tak- mörkun og stöðvun f þeim efn- um, var sérlega þýðingarmikið fyrir rekstur iðnfyrirtækja, að fá loks tækifæri til að endur- nýja vélakost sinn og kaupa hráefni frá nýjum og ákjósan- legri mörkuðum. Viðskiptafrels- ið olli að sjálfsögðu gjörbylt- ingu f þeirri viðleitni atvinnu- rekenda að framleiða sem bezta vöruna, auk fjölbreytninnar og nýjunganna sem fylgdu f kjöl- farið. Fjárfestingarfrelsi. tími hefur liðið án þess að iðn- aðurinn hafi haft tækifæri til að byggja yfir sig, endurnýja húsakost sinn. Ástandið var þannig á árunum 1956—59 að fjárfestingarleyfi voru að mestu takmörkuð og háð duttlungum misvitra stjórnmálamanna, sem skorti algjörlega skilning á þessum þörfum. Var svo komið að húsakostur alls iðnreksturs var vægast sagt mjög lélegur. Með fjárfestingarfrelsinu hefur orðið gjörbreyting hér á, og tal- andi tákn þess eru hin fjöl- mörgu nýju verksmiðjuhús, sem í byggingu eru, eða eru þegar risin. Má nefna sem dæmi, Kassagerðina, Ultima f Kópa- vogi, Steinstólpar inn í Vogum, Byggingariðjan í Ártúni o. fl. o. fl. Flest iðnfyrirtæki hafa og endurnýjað vélakost sinn, enda byrjuðu menn yfirleitt á því. Lagfæringar | á skattalögum. Stórt spor var stigið, þegar lagfæringar á skattalögunum 'í voru gerðar, þótt þær hafi þá aðeins verið áfangi, að því marki, sem leiðir af sér heil- brigðan fjármálarekstur fyrir- tækja. Framhaldið hlýtur að vera í þá áttina, að kleift verði m að setja hér á fót almennings- hlutafélög í ríkari mæli. Á ég þar við fyrirtæki, sem geta orðið sjálfstæðar heildir, en ekki háðar þeim, sem um rekst- urinn sjá hverju sinni. Þar get- ur fjöldi manna haft hönd í bagga, og leiðir það að sjálf- sögðu til þess, að ef slakað er á stjóm fyrirtækisins, er hægt að skipta um framkvæmdar- stjóra eða forystumenn. Slíkt ástand sem í almenningshluta- félögum felst, er bæði aðhald og hvatning þeim, sem á hverj- um stað ráða. Gunnar J. Friðriksson formaður Félags íslenzkra iðnrekenda. Lánsf jármál í betra horf. í lánfjármálum eru lögin um iðnlánasjóð þýðingarmest, en þau voru samþykkt á slðasta þingi. Með þeim lögum var iðn- aðinum gert jafn hátt undir höfði sem öðrum atvinnugrein- um. Iðnlánasjóður var að visu til áður, en einskis megnugur. Nú hefur hins vegar sjóðnum verið tryggðar tekjur, og heim- ilt er að lána úr honum allt að 60% af byggingarkostnaði iðn- aðarhúsa, sem reist eru. Þau lán mega vera út á II. veðrétt, en það eru mjög hagkvæm skil- yrði. Sjóðurinn getur lánað út 47 millj. kr. á þessu ári, og er það jafnmikið og hann hefur lánað út, samanlagt allt frá ár- inu 1935." Varðandi lánsfjármálin, gat Fjárfestingarfrelsið var einn- Gunnar þess og, að lögum Iðn- ig mjög kærkomið. Óhóflegur aðarbankans hefði verið breytt — segir Gunnar J. Friðriksson formaður fél. ísl. iðnrekenda og nú er bankanum heimilt að auka hlutafé sitt ótakmarkað, en áður var það lögbundið við 6 y2 millj. kr. Framkvæmdaáætlun. „Þess verður að geta," hélt Gunnar áfram, „að iðnrekendur eru mjög ánægðir með þá ráð- stöfun stjórnarvalda að leggja fram framkvæmdaáætlun og beina fjárfestingunni 1 ákveð- inn farveg. Kemur slík skipu- lagning og áætlun að miklu gagni fyrir iðnaðinn af skiljan- legum ástæðum. Tækniskólinn. Eins og þróun þjóðfélagsins ber með sér, þá hlýtur iðnaður- inn að taka við þeirri fólks- fjölgun sem verður 1 landinu. Til þess að svo geti orðið, þarf þó að auka alla almenna mennt- un varðandi iðnaðinn, og byggja verður upp stóran og öflugan hóp tæknimenntaöra manna. Fyrsta skrefið I þessa átt hefur nú ])egar verið stigið með lögunum um Tækniskól- ann og ber að fagna þvl. Iðn- aðarmálastofnunin hefur og efnt til námskeiða, og sömu- leiðis verkstjóraskólinn. Allt stuðlar þetta að þvl að veita fólki meiri menntun og fræðslu 1 hagræðingu og sklpulagi. Einn draugur eftir. Af þessari upptalningu má sjá, að iðnrekendur hafa mjög fengið leyst úr brýnustu vandræðum sínum á undan- förnum árum, og sé ég ekki á- stæðu til að draga dul á það. Stjórnarvöldin hafa mjög greitt götu okkar, gefið viðskipti og fjárfestingu frjálsa, aukið lánsfé að miklum mun og gert tilraun- ir til að byggja upp iðnað á eðlilegan og skipulegan hátt. Þetta ber að þakka. Hinu er ekki að leyna, að hér er margt sem betur mætti fara, því enn er við lýði það fyrirkomulag, sem iðnrekendur og reyndar allir þeir sem sjálfstæðan at- vinnurekstur reka, hafa hvað mesta andúð á. Á ég þar við verðlagshömlurnar. Allt starf okkar og öll heilbrigð uppbygg- ing getur orðið til einskis ef ó- raunhæf verðlagsákvæði eiga að fá að hindra eðlilega þróun. Þau verðlagsákvæði sem hér eru enn í gildi eru stærstu þornin í holdi iðnrekenda". Bjartsýnir á framtíðina. „Hvað um það," sagði Gunn- ar J. Friðriksson, að lokum, „ég held ég geti mælt fyrir munn flestra iðnrekenda, þegar ég segi að við erum bjartsýnir á framtíðina, og mikill hugur er í mönnum. Sú bjartsýni mun haldast, þjóðinni til góðs, svo framarlega sem frelsið I verzl- un og fjárfestingu er við lýði." MARGT UNGT FOLKIJUNI FERÐ V.-ÍSLENDINGA Tvelr hópar Vestur-lslendinga eru væntanlegir hingað til lands fyrir 17. júní, sem kunnugt er, og leggur annar hópurinn af stað frá Winni- peg, hinn frá Vancouver, B. C., vest asta fylki Kanada. Blaðið Lögberg-Heimskringla hef ur gefið út aukablað, samtals 32 bls., í tilefni heimferðarinnar, prent að á vandaðan pappír með mörgum fróðleiksgreinum um ísland og á- gætum myndum. Eru nokkrar grein anna á ensku. Blaðið flytur kveðjur James K. Penfields, ambassadors Bandaríkjanna á íslandi, og Hall- gríms Fr. Hallgrimssonar, aðalræð- ismanns Kanada á íslandi. Grettir Jóhannsson ræðismaður átti hug- myndina að útgáfu blaðsins. Vann hann að henni með Haraldi Bessa- syni prófessor og Ingibjörgu Jóns- son, ritstjóra Lögbergs-Heims- kringlu. í ritstjórnargrein í blaðinu segir, að í ferðinni taki „þátt fólk á öll- um aldri, fólk, sem komið var til fullorðins ára er það kvaddi ætt- jörðina — fólk, sem aðeins á æsku spor sin á íslandi — menn og kon- ur borin og barnfædd hér í álfu". Og ennfremur: „1 þessum hóp verður og margt yngra fólk, sem á örðugt með að mæla á íslenzka tungu, en íslenzkt blóð streymir I æðum þess engu síður en hinna, og það langar til að kynnast frændum sínum á Is- landi. Fáeinir fylgjast með hópn- um, sem venzlaðir eru íslendingum en eru orðnir íslenzkir í anda vegna sambúðarinnar við þá“. Það munu verða alls um 150 manns sem koma, 110 manns frá Vancouver og um 40 manns frá Winnipeg.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.