Vísir - 05.06.1963, Blaðsíða 8
8
VÍSIR . Miövikudagur 5. júni 1963.
Qtgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR.
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ö. Thorarensen.
ivitstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og «fgreiðsla Ingóifsstræti 3.
Askrifsargjald er 65 krónur á mánuði.
I xausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur).
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Valið er auðvelt
Ábyrgð þeirra, sem ganga að kjörborðinu til þess
að segja til um það með atkvæði sínu, hvaða stjóm-
arfar þeir vilja hafa næstu árin, er ævinlega mikil, og
stundum liggja málin þannig fyrir, að margir em í vafa
um, hvað gera skuli. Sumir em þannig gerðir, að þeir
era alltaf óánægðir með stjómarfarið, vilja breyta til
og prófa annað, jafnvel þótt það hafi verið prófað áð-
ur og reynzt misjafnlega.
Sums staðar er það þetta fólk, þ. e. hinir óákveðnu
kjósendur, er taka ákvörðun sína á síðustu stundu,
sem raunverulega ráða því, hverjir fá völdin. Þessi
hópur kjósenda mun vera tiltölulega fámennari hér á
íslandi en í flestum öðrum löndum. Yfirleitt fylgist
fólk betur með þjóðmálum hér en í fjölmennari ríkjum
og er tryggara við þann flokk, sem það eitt sinn hefur
léð fylgi sitt, þótt það hafi ýmislegt við stefnu hans
og verk að athuga.
Sem betur fer er þó alltaf nokkuð af fólki, sem breyt-
ir til, ef það telur flokk sinn hafa brugðizt og gengur
í lið með þeim, sem fylgja betri og heilbrigðari stefnu.
Þetta á ekki skylt við óvissu þeirra, sem fyrr voru
nefndir, heldur er hér um að ræða raunhæfa afstöðu
til málanna, eins og þau em á hverjum tíma.
Val kjósenda ætti að vera óvenjulega auðvelt að
þessu sinni. Hópur þeirra óákveðnu ætti að vera
óvenjulega lítill, en þeir hins vegar margir, sem skipta
um flokk. Straumurinn ætti samkvæmt lögmálum heil-
brigðrar skynsemi að liggja frá Framsókn og kommún-
istum til viðreisnarflokkanna. Valið er um það, hvort
Sjálfstæðismenn og Alþýðuflokkurinn skuli áfram
vinna að þeirri uppbyggingu, sem fram hefur farið
undanfarin ár, eða hvort veita eigi Framsókn og komm
únistum aðstöðu til að kollvarpa því efnahagskerfi,
sem byggt hefur verið upp.
Þetta val ætti að vera auðvelt, þrátt fyrir allan áróð-
ur og blekkingar stjómarandstöðunnar, því að við-
reisnin sjálf talar sínu máli á öllum sviðum atvinnu-
og efnahagslífsins.
Upplausn óhjákvæmileg
Þrátt fyrir öll stóryrði Tímans og Framsóknarleið-
toganna um viðreisnina, er ekki líklegt að Framsókn
mundi hafa forgöngu um mikilvægar breytingar á efna
hagskerfinu, ef hún kæmist í ríkisstjóm, en eigi að
síður mundi brátt síga á ógæfuhliðina og hinna þröngu
flokkssjónarmiða, sem öll stjómarstörf Framsóknar-
manna einkennast af. Flokkur sem aldrei gerir stjóm-
arráðstöfun, hversu mikilvæg sem hún er fyrir þjóðina,
án þess að hugsa fyrst um það, hvaða hagnað hann
geti haft af henni sjálfur, er ófær til þess að stjórna
landinu.
Með hliðsjón af þessu og öllum hrossakaupunum
við kommúnista, sem óhjákvæmilega mundu fylgja
samstarfi þessara flokka, má auðsætt vera að ógæf-
unnar yrði ekki langt að bíða, ef þeir fengju völdin.
ViS andlát Jóhannesar 23.
Hér birtast ávarpsorö
kaþólska prestsins séra
Hackings í Landakoti sem
hann fiutti f fréttaauka
útvarpsins, þegar fregnin
barst um andlát Jóhannes
ar páfa 23.
Jóhannes páfi XXIII er lát-
inn, nærfellt 82 ára aö aldri.
Helminn setti hljóðan, þegar sú
frétt barst mönnum til eyma,
að sjúkdómur sá, sem páfinn
hafði kennt ári áður, hefði
reynzt alvarlegri en fyrst var
álitið, og að lífdagar páfans
væru þegar taldir.
Aliur heimurinn fylgdist með
gangi sjúkdómsins, því að hér
var um að ræða mann, sem á
skömmum tíma hafði unnið hug
og aflað sér virðingar ailra,
bæði kaþólskra og játenda ann-
arra trúarskoðana En einnig páf
inn hlýtur að deyja eins og hver
annar mennskur maður. Þótt
hann sé æðsti andlegi leiðtogi
mannanna, sjálfur staðgengill
Krists á jörðinni, þá getur hann
ekki framlengt æviskeið sitt
frekar en aðrir menn, og hann
hiýtur einnig að segja eins og
Job forðum: Drottinn gaf, Drott-
inn tók.
Með Jóhannesi páfa missir
kaþólska kirkjan sinn ástfólgn-
asta föður og hirði, og heimur-
inn syrgir sinn bezta vin. Jó-
hannes páfl var án vafa vin-
sælasti páfi vorra tíma og ef
til vill allra tíma. Á þessu
stutta stjórnartimabili hans á
Pétursstóli hefur hann komið
fram með svo mikilii hlýju,
hispursleysi og falslausrl ein-
iægni, að hann hefur unnið
hjörtu bæði kaþólskra sem ann
arra. „Mótmælendur halda því
fram, að þessi páfi sé sá bezti,
sem heimurinn hafi nokkum
tíma átt“, sagði kunnur þýzkur
guðfræðingur, og hinn frægi
mótmælendaguðfræðingur Paul
Tillich komst þannig að orði i
tilefni af sjúkdómi Jóhannesar
páfa: „Við ættum að biðja fyrir
Jóhannesi páfa, hann er góður
maður“.
Heimurinn hefur misst sinn
bezta vin. Jóhannes páfi hefur
alltaf borið fyrir brjósti það,
sem heimurinn þráir mest, frið
á jörðu, enda valdi páfinn þessi
orð sem kjörorð í skjaldar-
merki sitt: obedientia et pax, þ.
e. hlýðni og friður, og setti sér
við embættistökuna sem lífs-
takmark að stuðla að friði í
heiminum.
Sem fyrsta spor hans í átt-
ina til heimsfriðar mætti nefna
viðleitni hans að sameina ailan
hinn kristna heim, og hann rétti
bróðurhönd til allra þeirra, sem
ekki eru innan vébanda róm-
versk-kaþólsku kirkjunnar og
opnaði þeirn föðurhjarta sitt,
þess minnugur, að hann er
servus servorum Dei, þ. e. þjónn
þjóna Guðs. Hann tók á móti
fieiri trúarieiðtogum en nokkur
annar páfi, og voru sumar þær
móttökur sögulegir viðburðir,
eins og þegar hann tók á móti
æðsta veraldlegum vaidhafa
grísk-kaþólskra manna, þeini
fyrsta, sem gengið hafði á fund
páfa sfðan á dögum sfðasta
býzantíska keisarans, fyrsta
erkibiskupinum af Kantaraborg
síðan á 14. öid, fyrsta höfuð-
klekrki biskupakirkjunnar í
Bandaríkjunum, fyrsta yfir-
manni skozku kirkjunnar og
fyrsta æðsta presti Shintoista.
Hann kvaddi saman alla biskupa
kirkjunnar tii kirkjuþings, sern
er ef til vill mesta afreksverkið,
sem öldungur á hans aldri getur
unnið, bauð þangað áheyrnar-
fulltrúum frá mörgum öðrum
kirkjudeildum og trúarflokkum,
sem er einsdæmi í sögu
kaþólsku kirkjunnar.
Annað framlag hans f þágu
heimsfriðarins, og liklega hið
síðasta, er bréf það, sem hann
gaf út fyrir stuttu og ber yfir-
skriftina: pacom in terris um
frið á jörðu. Þar setur páfinn
fram skoðanir sinar á þvi, hvern
ið varðveita megi friðinn í heim
inum, jafnframt því, sem hann
leggur áherziu á mannréttindi,
persónurétt einstaklingsins og
skyldur. Það má með réttu
segja,, að aldrei hafi ríkisstjórn-
ir og ieiðtogar þjóðanna tekið
Einhvem næstu daga ganga i
gildi iög, sem samþykkt voru
á Alþingi 19. apríl s.i. um að-
gangseyri að vínveitingastöðum.
Samkvæmt þeim þarf það fólk,
sem kemur seinna en 8.30, að
greiða 25 krónur í aðgangseyri.
Föstudaga og laugardaga verð-
ur aðgangseyris krafizt frá kl. 7.
Þessum 25 krónum er svo
skipt f tvo hluta. 10 krónur fara
í skemmtanaskatt, og veitinga-
staðnum reiknaðar 15 kr., þar af
10 krónur í fatageymslu, hvort
sem gesturinn hefur með sér
yfirhöfn eða ekki. Um síðasta
atriðið hefur mikið verið rætt
og deilt, meðal veitingamanna,
páfabréf eins alvarlega og ein-
mitt bréf Jóhannesar páfa um
friðinn í hciminum.
Mikill páfi, mikill maður verð
ur þvi lagður til hinztu hvildar,
en afrek hans munu standa og
um þau mun verða talað um
ókomna tið. Þótt hann hafl lýst
þvi yfir siðustu dagaaa með
sinni alþekktu kfmni, að vér
skyldum ekki hafa neinar á-
hyggjur út af honum, að hann
væri ferðbúinn, þá eru það
milljónir og aftur milljónir, sem
syrgja hann og biðja fyrir hon-
um, þótt ekki væri nema þessa
einföldu bæn, sem vér gerum
nú að vorri eigin bæn: hann
hvfli í friði
og hafa þeir komizt að þeirri
niðurstöðu, að þetta sé heppi-
legasta fyrirkomulagið.
Því fé, sem veitingahúsin fá
með þessu móti, verður varið
meðal annars til að standa
straum af dýrum skemmtikröft-
um. Á fundi með fréttamönn-
um lýsti Helga Marteinsdóttii
veitingakona óánægju sinni meí
að vfnveitingastaðir þyrftu a!
loka kl. 11.30, aðra daga ei
föstudaga og laugardaga. Sagð
hún að efti- að umrætt gjah
sé komið á, sé enn meiri á
stæða til að hafa opið til a. m
k. id. 1.
Hinn ástsæli faðir hafði mikla gleði af að taka á móti gestum.
Aðgangseyrir að
vínveitingastöðum