Vísir - 12.06.1963, Blaðsíða 1
Skip rekst á ísjaka
land
Franskt skip var í morg
un snemma í nauðum statt
djúpt út af Húnaflóa og
bað um aðstoð eftir að
hafa rekizt á ísjaka.
Franskt skip rakst á ísjaka djúpt
út af Húnaflóa í nótt eða morgun
snemma og kom að því leki, svo
að skipshöfnin taldi sig í hættu,
sendi út neyðarskeyti og bað um
aðstoð. Sendi Slysavarnafélagið út
tilkynningu undir eins og útvarpið
byrjaði, greindi frá skipinu og
stöðu þess og bað skip á nærliggj-
Framhald á bls. 5.
53.
fyrir norðan
Rlchard Thors, formaður stjórnar Sölusambands íslenzkra fiskframlelðenda flytur skýrslu sfna á aðalfundi samtakanna í morgun.
Aðalfundur S.I.F. hófst / morgun
Þrítugasti aðalfundur Sölusam
bands íslenzkra fiskframleið-
enda var settur í Sjáifstæðishús-
inu í morgun kl. 10. Formaður
félagsstjórnar, Richard Thors,
setti fundinn. Fundarstjóri var
kjörinn Davíð Ólafsson, fiski-
málastjóri, en fundarritari Gunn
ar Hafsteinsson, lögfræðingur.
í upphafi fundarins flutti
formaðurinn skýrslu stjórnarinn
ar. Þar kom meðal annars fram
að á þessu ári hafa verið seld
15.500 tonn af saltfiski til ým-
issa landa. Búið yrði að senda
síðustu sendingar í júlí og þá
mundi verða búið að greiða fyr-
ir fiskinn. Formaðurinn gat þess
að hægt hefði verið að setja
mun meira magn.
Saltfiskframleiðsla ársins 1962
var 31.736 tonn eða um 800 tonn
um meiri en árið 1961. Salan
gekk vel, enda sölumöguleikar
víða meiri en við getum upp-
fyllt.
Þá voru reikningar afgreiddir
Kjósa átti í nefndir svo og í
stjórn samtakanna________________
Lík Jóns BjörnS"
sonar finnst
Laust fyrir kl. 10 í gærkvöldi
barst lögreglunni tilkynning um að
lík hafi fundizt rekið þá rétt áður
vestur í Selsvör.
Samkvæmt upplýsingum frá rann
sóknarlögreglunni í morgun reynd-
ist þetta vera lík Jóns Björnsson-
ar, Blönduhlíð 12, en hann var
annar piltanna, sem hurfu heiman
að frá sér aðfaranótt 15. maf s.l.
og mest leit var gerð að þá
skömmu sfðar.
Líkfundur þessi staðfestir þann
grun, að piltamir hafi farið út á
báti frá Selsvör umrædda nótt og
báturinn sokkið með báðum mönn-
unum úti á víkinni.
SULLF0SS kemur
í fyrrumálið
Gullfoss er væntanlegur á ytri
höfnina klukkan 5—6 í fyrramálið
og upp að bryggju kl. 8 — úr
fyrstu ferð sinni heim eftir brun-
ann og viðgerðlna f Khöfn. Hvert
rúm er skipað og veður hefur ver
fágætt alla Ieiðina heim.
Þetta sagði Sigurlaugur Þorkels-
son hjá Eimskipafélagi Islands Vísi
í morgun, er hann spurði hann
frétta af Gullfossi, en Sigurlaugur
hafði þá nýfengið fréttir frá skip-
stjóranum, Kristjáni Aðalsteins-
syni.
Á skipinu eru 210 farþegar og
komu 134 þeirra um borð í Leith.
Ailir ljúka miklu iofsorði á hve
smekklega hafi verið gengið frá
breytingunum í reyksal og borð
sal — bæði að því er þægindi
varðar og fegurðarauka.
Sigurlaugur kvað allt upppant-
að f sumar og jafnvel f fyrstu vetr
arferðina — þar væri kominn lang
ur biðlisti.
Við lftum svo á, sagði Sigurlaug
ur, að margir geti haft mikið gagn
og ánægju af vetrarferðunum, og
miðum þá m. a. við reynslu þeirra,
sem fóru í slíka ferð í fyrra í stað
sumarleyfis. Veðurskilyrði voru
hagstæð að öðru leyti en því, að
kalt var og fsalög, er langt fram
á vetur kom. Vetrarferðimir gáfu
góða raun og þeim verður haldið
áfram. En — nú er Gullfoss að
koma og sumarferðimar komnar í i
fullan gang.
Nýr
bæjarfógeti
Freymóður Þorsteinsson hefur
verið skipaður bæjarfógeti í Vest-
mannaeyjum frá og með 10. júní.
Eins og kunnugt er lézt Torfi Jó-
hannesson bæjarfógeti í Vest-
mannaeyjum fyrr í vor. Freymóð-
ur sem var fulltrúi við embættið
í Eyjum, hefur verið settur bæjar-
fógeti sfðan Torfi Jóhannesson,
fyrrum bæjarfógeti lézt fyrr í vor.
SÍLD NORÐVEST-
.K&i
ii
Frá Sigiufirði er sfmað að
Hannes Hafstein frá Dalvík hafi
fengið 1500 tunnur norðvestur
af Grimsey í morgun og þykja
það góðar fréttir.
Auk þess er blaðinu kunnugt
um eftirtalin skip, sem fengu
síid í gærkvöld og f nótt:
Sipurpáll 1200 tunnur, Stíg-
andi 700, Haffell 600, Sæþór 300
og Jón Garðar 250. Síidarleitin
er ekki tekin til starfa fyrir norð
an og austan og er þess vegna
erfiðleikum bundið að afla ná-
kvæmra frétta af sfldarmiöunum
en hún mun taka til starfa um
helgina.
Akureyringar hefja viðræður
við sáttasemjara / Reykjavík
Eins og Vísis skýrði
frá í gær, hafa verið
boðuð verkföll fyrir
norðan um og upp úr
mánuðinum, á Akureyri,
Siglufirði, Húsavík og
Raufarhöfn.
Akureyrardeilan er nú
komin til Torfa Hjartar-
sonar, sáttasemjara rík-
isins, og kom fjölmenn
sendinefnd frá Akureyri
til Reykjavíkur í gær og
hafði fund með sátta-
semjara í gærkvöld og
annar hefur verið boðað
ur kl. 4 í dag.
í sendinefnd þessari eru full-
trúar frá 4 félögum á Akureyri,
verkalýðsfélaginu Einingu, Iðju,
félags verksmiðjufólks, Bílstjóra
félaginu og frá félagi verzlunar-
og skrifstofufólks á Akureyri.
Ennfremur eru fulltrúar frá sam
tökum atvinnurekenda á Akur-
eyri og frá Vinnuveitendasam-
bandi Islands og vinnumálasam
bandi samvinnufélaganna á
þessum sáttafundum.
Kröfur verkalýðsfélaganna í
þessari deilu, sem kommúnista-
forystan í Alþýðusambandi
Norðurlands og Alþýðusam-
bandi Islands reynir að magna
sem allra mest, eru gífurlegar,
allt að 70—80% hækkun á eft-
irvinnu t. d., eins og Vlsir sagði
í gær. Fyrst er þess krafizt að
almenn laun hækki um 20%. Þá
er næsta krafa sú að verkafólk
vinni ekki nema 44 stundir á
viku en fái greiðslu fyrir eins
og unnið hafi verið f 48 stundir,
en það jafngildir 8,3% launa-
hækku.n til viðbótar. Þá er enn
Framhald á bls. 5.
VISIR