Vísir - 13.06.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 13.06.1963, Blaðsíða 16
VÍSIR Fimmtudagur 13. iúní 1963. Um borð í GuSlfoss í morgun | 150 V-ISLEND- INGAR HÉR Um 160 Vestur-lslendingar veröa staddir hér á morgun. Þrjátíu og sjö manna hópur kom hingað 6. júní og dvelst hér til 6. júlí. Hundr- að og tíu manna hópur kemur á morgun með leiguflugvél til Kefla- víkur, eftir belnt flug frá Van- couver. Vestur-lslendingarnir 37 eru hér undir forystu Valdimars Líndal, dómara. Þeim hefur líkað dvölin vel, farið m.a. í eina hópferð til Þingvalla og fara brátt út um land- ið ýmist í hópferðir eða dreifðir. 1 Reykjavlk býr fóikið ýmist á hótelum eða í heimahúsum. Líndal dómari býr á Hótel Sögu. Vísir mun birta lista yfir Vestur-lslend- ingana á morgun. Þríijisáttafundur- inn verður í dag dag kl. 16. Fundur var fram yfir miðnætti í gær, en bar engan árangur. Fulltrúar siglfirzkra verka manna komu til fundar I gær. — Áheyrnarfulltrúar eru á fundunum frá Dagsbrún og Landssambandi verzlunarmanna, einnig frá Vinnu- veitendasambandi Islands og Vinnu máiasambandi samvinnufélaganna. Þriðji sáttafundur atvinnurekenda og verkamanna norðanlands, sem haldinn er f Reykjavík, verður f Fyrirlesfur um stjórnskipun Nýju íslunds Fegurðardrottningu fslands fagnað um borð f GuIIfossi. 1. vélameistari, Ásgeir hlagnússon (yzt tfl vinstri) hefur afhent fegurðardrottningunni, Thelmu Ingvarsdóttur, blómvönd. Situr Thelma á milli foreldra sinna, Ingvars Bjömssonar, skipverja á Gullfossi og Lydiu konu hans. (Ljósm. Vfsis: I .M.) Fegurðardrottningu fagnað Meðal þeirra f jölmörgu sem fögnuðu heimkomu Gullfoss í morgun, eftir þriggja mánaða útilegu, var fegurðardrottning ís lands, Thelma Ingvars- dóttir. Beið hún þar föð- ur síns, Ingvars Björns- sonar, sem er skipsmað- ur á Gullfossi, dagmað- ur í vél, en hann hafði ekki séð dóttur sína síð- an hún hreppti titilinn „Fegurðardrottning ís- Iands“. Glæsileg fegurðardrottning vekur að sjáifsögðu ætfð at- hygli, en atburðurinn hefðl þó ekki verið f frásögur færður, nema þar sem Thelmu, auk þess sem hún fagnaði föður sfnum, var sjálfri fagnað um borð! — Skipsfélagar Ingvars f vélinni fluttu Thelmu nefnilega ham- ingjuóskir sínar og afhentu henni myndarlegan blómvönd í tilefni af sigri hennar í fegurð- arsamkeppninni. Svo skemmti- Iega vildi til, að fréttamenn Vfs is sem einmitt voru um borð vegna heimkomu Gullfoss, rák- ust inn í sama mund og 1. véla- meistari, Ásgeir Magnússon, af- henti fegurðardrottningunni blómvöndinn, og náðu þar þeirri skemmtilegu mynd, sem hér fylgir. Valdimar J. Líndal, dómari frá Winnipeg, heldur í dag í Háskól- anum fyrirlestur, sem hann nefnir „Stjórnskipun Nýja Islands". Hefst fyrirlesturinn kl. 5.30 og er öllum heimill aðgangur. Valdimar J. Líndal er Vestur- íslendingur, kominn af fslenzkum ættum, og hefur getið nér frábært orð f Vesturheimi sem dómari og fræðimaður í lögvfsindum. Verður fyrirlestur hans án efa hinn fróð- legasti. SH áríð Í962 aldrei verið meiri en á árinu 1962 eða 82.500 tonn að verð- mæti 1131 milljón króna. Eftir skýrslu formanns voru kjömar nefndir og fram- kvæmdastjórar fluttu ræður sfnar, m.a. Björn Halldórsson og Þorsteinn Gíslason um sölu- og markaðsmál. Fulltrúar 60 hraðfrystihúsa, sem eru í SH, voru á fundinum. EISENHOWER Á FUNDKENNEDYS Kirkjubazar Kvenfélag Óháða safnaðarins heldur bazar í safnaðarheimilinu Kirkjubæ við Háteigsveg kl. 8.30 annað kvöld (föstud.). Það mun vera sjaldgæft að bazarar séu haidnir á kvöldin en þá er einmitt hentugur tími fyrir margar hús- mæður að gera _ innkaup. Margir eru nú að búa böm f sveit. Tuttugasti aðalfundur Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna var settur f húsi Slysavarnafélags- ins á Grandagarði kl. 14 f dag. Formaður félagsstjómar Elías Þorsteinsson setti fundinn og flutti skýrslu stjómarinnar. 1 henni kom m.a. fram að heildarframieiðslan á árinu 1962 hefði verið 62 þúsund tonn, en útflutningur 64 þús- und tonn, hafði árið áður verið 56 þúsund tonn og þvf aukizt um 14.5% á árinu. Helztu við- skiptalönd voru Sovétrfkin með 19.700 tonn, þar af 5000 tonn af síld, Bandaríkin 14.500 tonn, Bretland 5.100 tonn, Tékkósló- vakfa 5.100 tonn og Vestur- Þýzkaland 4.200 tonn. Heildarútflutningur þjóðar- innar á frystum afurðum hefur Kennedy Bandarfkjaforseti kvaddi Eisenhower fyrrverandi forseta á sinn fund f gær og ræddust þeir við f 70 mfnútur um kynþáttamál- in, að sögn aðallega um boðskap þann, sem forsetinn er að senda þjóðþinginu um aukln réttindi og öryggi blökkumanna. Það er talið sýna gleggra en flest annað, hve Kennedy þykir mikils við þurfa í baráttunni ,að hann kallar til sfn Elsenhower til Iiðs við sig f bar- áttunnl, en það er þjóðarbarátta sem Kennedy telur sig heyja vegna frlðar og framtíðar Banda- ríkjanna. Kennedy ræðir í dag við 250 verkalýðsleiðtoga um kynþáttamál- in. Verðlaunum að upphæð 10.000 dollarar hefur verið heitið hverj- um þeim, sem iætur í té uppiýs- ingar, sem leiða til handtöku laun- morðingja blökkumannaleiðtogans Medgar Evers. MORÐIÐ Medgar hafði setið fund í Jackson Missisippi ,en hann var einn af helztu mönnum umbótafélags sem vinnur í þágu blöklcumanna (The National Association for the Ad- vancement of the Coloured Pe- ople). Hann var að stíga út úr Framh. á bls. 5 Vivian Malone sezt á skólabekk í Tuscaloosa. Eindæma selveiði / Þjórsá Eindæma selveiði hefur verið í Þjórsá sfðustu dagana og munu selveiðibændur naumast eða ekki aðra elns veiði. Vísir átti f morgun tal við einn selveiðibænda við Þjórsár- ósa, Jón Sturluson f Fljótshól- um. Hann sagði, að veiðin hafi byrjað s.l. föstudag og væri senn að ljúka, enda stendur hún venjulega ekki yfir nema viku- tfma. Á þessum fáu dögum, sem veiðin hefur staðið, hefur veiðzt talsvert á 3ja hundrað kópa, en ekki kvaðst Jón vita nákvæm- ar tölur. Austan Þjórsár er selveiðin aðeins stunduð frá tveim bæj- um, Sauðholti og Sandhólaferju, en vestan árinnar er hún stund- uð frá fleiri bæjum, eða frá Fljótshólum, Hólmaseli, Sel- parti, Efri- og Syðri-Sýrlæk, Ferjunesi, Mjósundi, Villinga- holti og Egilsstöðum. Kópaskinn eru í háu verði um þessar mundir. Bændur fá tryggðar 1100 krónur fyrir hvert skinn, -sem iendir f 1. flokki, en f honum lendir lang- mestur hluti skinnanna. Það er helzt ef skinnin eru mjög ljós á lit, að lægra verð fæst fyrir þau, eða þá hitt, ef skinnin reynast klóruð. Það er næsta algengt að kæpan þrffur óþyrmi- lega til kópanna ef styggð kemst að henni og ef henni finnst ungviðið ekki nógu viðbragðs- fljótt eða hlýðið. Við þær að- gerðir kæpunnar sér á skinnun- um og þá falla þau f verði. Fyrir 2. flokks skinn eru 800 krónur greiddar, en lægra fyrir 3ja flokks skinn. Stundum er uppbót greidd á skinnin, ef þau seljast vel á erlendum markaði. Hvað verður f vor er ennþá ekki vitað, en öruggt að bændur fá a. m. k. framangreint verð hvað sem öðru líður. Ef gert er ráð fyrir 300 kópa veiði í Þjórsá í þessari hrotu og meðalverð fyr- ir hvem kóp 1000 krónur fá selveiðibændur við ána 300 þús. krónur aukatekjur f vor. Jón í Fljótshólum taldi, að sel- veiðin hafi byrjað heldur með fyrra móti f vor, en annars var það venja fyrr á árum, að veið- in Hæfist um þetta leyti, eða f 7.- 3. viku sumars.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.