Vísir - 14.08.1963, Blaðsíða 8
V1SIR . Miðvikudagur 14. ágúst 1963.
8
Sigvaldi Hjálmarsson
Frh. af bls. 7:
fyrir ólfk viðhorf. Það er al-
mennur misskilningur, að guð-
spekinemar álíti sig eitthvað
heilagri eða vitrari en annað
fólk. en þótt svo kunni að
vera f stöku tilfellum, held ég
ekki, að það sé algengt sjónar-
mið meðal félagsmanna. Þeir
ganga í félagið af ýmsum á-
stæðum, samúð með stefnu-
skránni, löngun til að fræðast
um dulrænar kenningar og hitta
aðra, sem hafa áhuga á svipuð-
um efnum, en þetta er langt frá
því að vera trúfélag eða sér-
skoðanasöfnuður, enda tilheyra
þvf menn af öllum trúarbrögð-
um og trúleysingjar, fylgjendur
ýmissa heimspekistefna eða
engra, og enginn, hvorki for-
setinn né nokkur félagsmaður,
hefur rétt ti! að þröngva skoð-
unum sínum eða kenningum
upp á aðra“.
Kjaminn vel menntað
fólk og vísindamenn.
„Hvað eru margir í félaginu?"
„Þeir eru ekki mjög margir,
eitthvað milli 30 og 40 þúsund
f u. þ. b. 50 löndum, en ég
myndi segja, að kjarninn væri
yfirleitt vel menntað fólk, og
fjöldinn allur af vfsindamönn-
um, sálfræðingum, rithöfundum
og svokölluðum .intellectuals'
starfar þar af miklu kappi. 1
Stokkhólmi eru það mestmegnis
verkfræðingar, sem halda starf-
seminni uppi, f London aftur á
mótj mikið af eðlis- og efna-
fræðingum. í háskólanum f
Leyden f Hollandi er kennara-
stóll f .metafýsfk f guðspekileg-
um anda' eins og hann er kalf-
aður, og þar fara fram ýmsar
athuganir á dulvfsindalegum
gmndvelli".
„Gerið þið mikið til að út-
breiða kenningakerfi guð-
spekinnar?"
„Nei, við höfum ekki trú á,
að heppilegt sé að boða dul-
speki með áróðri. Að sjálfsögðu
er haldið uppi víðtækri fræðslu-
starfsemi fyrir þá, sem hafa á-
huga á að kynnast kenningun-
um, en á sama hátt og ekkert
kennivald er innan félagsins, er
ekki reynt að þvinga neinum
skoðunum upp á almenning ut-
an þess. Menn laðast að þessum
fræðum, þegar þeir eru orðnir
móttækilegir fyrir þau — fyrr
þýðir ekkert að demba þeim
yfir þá“.
„Hvenær fékkst þú fyrst á-
huga á guðspekinni?"
„Ja, ætli ég hafi ekki fæðzt
með hann? Ég veit ekki, ég get
a. m. k. sagt, að ég aðhylltist
ungur þessar frjálslyndu kenn-
ingar og hef orðið þvf hrifnari
af þeim sem ég kynntist þeim
betur".
„Þú trúir á endurholdgun —
manstu eitthvað úr fyrri lffum
hér á jörðinni?"
„Ég held, að flestir, sem að-
hyllast endurholdgunarkenning-
una, geri það af því að þeim
finnist hún skýra betur og leysa
ýmis vandamál mannlegrar til-
veru en nokkrar aðrar tilgátur
— ekki af þvf að þeir telji sig
muna fyrri jarðvistir. Og enda
þótt menn telji, að þeir hafi
minningar um fortilveru, þurfa
þær ekki að vera nein sönn-
un þess, að þeir hafi lif-
að hér áður — ótal aðrar á-
stæður geta komið til greina,
eins og sálfræðingar geta út-
skýrt. Þessa hlið dulspekinnar
þarf að nálgast algerlega óper-
sónulega og á vfsindalegan
hátt, þvf að það er alltaf hætta
á, að fmyndunaraflið leiði menn
í gönur, ef persónulegar hvatir
og ef til vill dulbúinn hégóm-
Ieikur fá að spila inn í“.
„Sannanir“
jafnan afstæðar.
„En hefurðu sannreynt sjálf-
ur, að kenningarnar séu byggð-
ar á traustum grundvelli?"
„Mér er ekki gefið um að
blanda persónulegri reypslu
inn í umræður um dulspeki, því
að hún er hvort eð er engin
sönijun fyrir neinn nema mann-
inn sjálfan — og það sem ein-
um finnst sönnun, er það
kannske ekki fyrir annan, og
það sem þér finnst sönnun í
dag, álfturðu enga sönnun eftir
tíu ár, o. s. frv. Ég get sagt,
að ég hafi fengið persónulega
reynslu fyrir því, áð sumt, sem
haldið er fram f þessum kenn-
ingum, sé ekki tóm fmyndun.
Annars hef ég smám saman
komizt að þeirri niðurstöðu, að
bezt sé að vinna af frjálsri og
hleypidómalausri athugun á
andlegum kenningum, því að
einhver sannleikur sé fólginn f
þeim öllum, þótt engin þeirra
sé einhlít. Það sjónarmið finnst
mér auðveldast að halda mér
við, þegar ég vinn fyrir guð-
spekina og Guðspekifélagið".
„Hvað álfturðu, að Guðspeki-
félagið hafi gefið heiminum?"
„Ef það hefur gefið honum
eitthvað, held ég, að það sé
fyrst og fremst hvatningin til að
hugsa sjálfstætt, mynda sér
sfnar eigin skoðanir og gleypa
ekki umhugsunarlaust við nein-
um kreddum og kennisetning-<S>
um, hvo<ki f trúarbrögðum,
vísindum,, heimspeki né dag-
Iega lffinu. Ég held, að Guð-
spekifélagið hafi verið fyrsta fé-
lagið f heiminum, sem setti tak-
markalaust jafnrétti alls mann-
kynsins á stefnuskrá sína. Það
hefur haft sín áhrif. Og kenn-
ingar þess og skýringatilraunir
á eðli mannsins og tilverunnar
hafa borizt vfða og mótað hugs-
un margra, sem ekki hafa hug-
mynd um, að félagið sé til".
„Heldurðu, að kenningakerfi
guðspekinnar hafi siðbætandi
áhrif á þá, sem aðhyllast það?"
„Ja, það er rík áherzla lögð
á að lifa f samræmi við skoðanir
sínar, hvernig sem það nú tekst.
Ég er þó viss um, að guðspeki-
Iegt viðhorf hlýtur að vera mjög
jákvætt f mannlegu lífi, þvf að
það felur f sér trú á, að eitt-
hvert gagn sé f allri viðleitni,
og að maðurinn geti haft áhrif
á heiminn, sem hann lifir f, ekki
einungis hið ytra, heldur einnig
með hugsunum sínum og tii-
finningum. Um leið og hann
þroskar sjálfan sig, þroskar
hann brot af heildinni, og ef
nógu margir leggia alúð við að
bæta sig, batnar heimurinn af
sjálfsdáðum".
„Já, en flestir eru meira
gefnir fyrir að bæta aðra en
sjálfa sig“.
„Það er nú gallinn á. Til þess
að heimurinn batni, þarf hver
einstaklingur að bæta sig, en
á þvf er hvorki nægur áhugi né
skilningur almennt. Annars er
ég persónulega alltaf bjartsýnn
á framtfð mannkvnsins og hef
ekki trú á, að neitt alvarlegt
slys gerist, þó að mennirnir hafi
f höndum þessi ógurlegu eyð-
ingarvopn. Þrátt fyrir allt hef-
ur heimurinn kannske aldrei
verið betri en f dag og aldrei
eins almennt leitazt "ið að út-
rýma þjáningu og vanbekkingu
— og ef til vill stafar öll
bjáning af vanbekkingu".
Mystík vísindanna.
,,0g nú ertu að fara til Ind-
lands í Vizkuskóla Guðspeki-
félagsins".
„Já, ég ætla að kynnast starf-
seminni eins vel og mér er unnt.
.Vizkuskóli' er álíka óheppilegt
nafn og .guðspeki', en ég get
ekki hætt við skólagönguna þess
vegna! Mig langar að reyna að
kynna mér starfsemi vísinda-
deildanna innan félagsins — ég
hef alltaf haft mikinn áhuga á
framgangi efnisvfsindanna, og
ég álít, að bilið milli mestu upp-
götvana eðlisvfsindanna annars
vegar og trúarreynslunnar hins
vegar sé ekki eins breitt og
margir vilja vera láta. Ég
held, að eitthvað sé að koma
upp, sem nefna mætti ,mystík
vfsindanna', og mig langar að
kynna mér það lftillega".
„Setjum svo, að vfsindarann-
sóknirnar gætu sannað, að allar
kenningar guðspekinnar væru
rangar og tilhæfuiausar —
hvernig myndir þú bregðast við
þvf?"
„Mér fyndist það bara gott.
Maður á alltaf að hafa það, sem
sannara reynist, og kæra sig
kollóttan, þó að allt hitt hrynji.
Ég vi! helzt aldrei binda mig
við neinar kenningar, þvf að
viðhorfin eru stöðugt að breyt-
ast. Heimsmyndin breytist eftir
skilningi mannsins; það, sem er
sannindi f dag, þarf ekki endi-
lega að vera það á morgun.
Sannleikurinn sjálfur skiptir
máli, ekki skilningur okkar á
honum á þessum og þessum
tíma. Ef til eru algild sannindi,
breytast þau ekki, hvort sem
við skiljum þau og trúum á þau
eða ekki — ef þau eru ekki til,
er eins gott að vita það!“
— SSB.
Jón G. Jónsson
f. 31. júlf 1903 — d. 19. júnf 1963
Horfinn ertu Jón
úr jarðlífi þessu
vægðarlaus dauði
dreif þig héðan,
en eftir þig lifir
orðstír góður
dáð og drengskapur
það eyðir sorgum
sannra vina.
Ungur varstu áður
ástrfkur sveinn
íturt ungmenni
f æsku blóma
óx þér með ald
öflug dáð
hugljúft hjarta
heillum reifað.
Nú fór sál þfn
til sælli heima
kallið kom snöggt
komin var stundin. —
Enduð útlegð
önd þín héðan
svifin svanflevg
úr sorta jarðar
hátt f heiðfagran
himinljóma.
Vinarkveðja.
Næturvarzla vikunnar 27. júli
til 3. ágúst er í Vesturbaejar
Apóteki.
Næturlæknir í Hafnarfirði vik-
una 20.—27. júlí er Jón Jóhann-
esson.
Neyðarlæknir — simi 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
nema laugardaga.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9,15-8, laugardaga
frá kl. 9,15-4., heigidaga frá kl.
1-4 e.h. Sími 23100.
Holtsapótek, Garðsapótek og
Apótek Keflavíkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7 laugardaga frá
kl. 9-4 og helgidaga frá kl. 1-4.
Slysavarðstofan f Heilsuvernd-
arstöðinni er opin allan sólar-
hringinn, næturlæknir á sama
stað klukkan 18—8. Sfmi 15030.
Slökkviliðið og sjúkrabifreiðin,
sími 11100.
Lögreglan, sími 11166.
Sjúkrabifreiðin Hafnarfirði, —
sfmi 51336.
(Jtvarpið
Miðvikudagur 14. ágúst.
Fastir liðir eins og venjulega
18.30 Lög úr söngleikjum.
20.00 Jan Hubat og hljómsveit
Ieika sfgaunalög.
20.15 Vísað til vegar: Þórisdahir
(Gestur Guðfinnsson).
20.40 íslenzk tónlist: Lög eftir
Skúla Halldórsson.
21.00 Smásaga: „Vinningsnúmer-
ið“ eftir Margery Sharp f
þýðingu Áslaugar Árnadótt
ur (Herdfs þorvaldsdóttir
leikkona).
21.20 Tónleikar.
21.40 Bóndinn Páll Ólafsson. —
Brynjólfur Jóhannesson leik
ari les úr Ijóðum skáldsins.
22.10 Kvöldsagan: „Dularilmur"
eftir Kelley Roos, I. (Hall-
dóra Gunnarsdóttir blaða-
maður þýðir og Ies).
22.30 Nbeturhljómleikar.
23.35 Dagskrárlok.
O • ' • <ac
sjonvarpið
Miðvikudagur 14. ágúst.
17.00 What’s My Line?
17.30 Sea Sunt
18.00 Afrts News
18.15 Canadian Travel Film
18.30 True Adventure
19.00 My Three Sons
19.30 Expedition Colorado
19.55 Afrts News Extra
20.00 Bonanza
21.00 The Joey Bishop Show
21.30 As Caesar Seet It
22.00 Fight of The Week
22.55 Afrts Final Edition News
23.00 Northern Lights Playhouse
„Mask of the Dragon"
■RB'RC,'W 'W M
*
3PIB
. . . mig vantar bara eitt orð 18
stafa og það endar á verkfall.
Tóbaks-
korn
áf
..." Nicolin þessi var danskur
tannlæknir, sem starfaði í Reykja
vík fyrir aldamótin, og lýsti Ben.
Gröndal þannig iðju hans í bréfi
til eins af kunningjum sfnum.
... jú, það kom hingað fram-
sóknarframbjóðandi rétt fyrir
kosningarnar f vor, og hann vildi
fá mig til að kjósa sig á þeirri
forsendu, að hann 'æri íhalds-
maður í hjarta sfnu ...
Bl’óðum
flett
„Nú er Nikolin dauður, þessi
útlærði „dentist" og tanntrekkj-
ari, sem gerði svo mikla lukku
hér meðal þessa fína fólks, sem
civilisationin hafði eyðilagt alla
tanngarðana á með brjóstsykurs-
át og kaffbrauðshampi, en þá kom
Nikolin og dró tennurnar út með
afli og brá um þær svarðreipi og
togaði og spyrnti f magann á kon-
um og meyjum, en þær útdregnu
tennur hrutu víðsvegar út um allt
Kaffitár
.. elskan mín, þú mátt ekk
segja nokkrum lifandi manni frí
því — en við Jói erum búin ac
leggja inn pöntun hjá ferðaskrif
stofunni á plássi í fyrstu sumar
leyfisferðinni, sem farin verður ti
tunglsins ... hvað heldur að húi
segi þá, frúin hérna á neðri hæð
inni...
Eina
sneið.
... ég segi fyrir mig, að mér hefði
svosem ekki fundizt það neitt ó-
eðlilegt, þó að Beethoven hefði
fengizt við að semja elektróniska
tónlist...