Vísir - 02.09.1963, Side 15

Vísir - 02.09.1963, Side 15
VÍSIR . Mánudagur 2. sept. 1963. 75 E3S5S2KE Peggy Gaddis: 13 mmm Peebles þessi hafði flutt allt sitt hafurtask í Afdalinn á vagni, sem uxum var beitt fyrir. Og enn voru í kofunum ýmsir hlutir frá göml- um tfma, jafnvel kjóllinn, cem kona hans hafði verið í, er þau voru gefin saman. Og þayna var margt húsgagna, sem hann sjálfur hafði smíðað. Marthy frænka hafði verið ekkja síðan nótt eina fyrir ellefu árum, •er maður hennar, drykkfelldur iðju- 'leysingi, hrapaði til bana augafull- ur uppi í fjöllunum, þar sem hann bruggaði, en það var hans eina iðja. En Marthy frænka var af öðr- um málmi steypt. Hún var nú kona um fimmtugt, hlý kona og góð- hjörtuð og sístarfandi, sem aldrei máttti aumt sjá, og alltaf var reiðu búin að hjálpa öðrum. Margoft gekk hún marga kílómetra vegar, þar sem neyð ríkti, ti! þess að verða að einhverju liði, og það jafnt á vetrum, þegar ófærð var, eins og á sumrin. Hún var því kona vinsæl og hvarvetna vel fagn- að, hún átti líknarhug og líknar- hendur, og huggunarorð hennar létu vel í eyrum hinna sorgmæddu. Meredith hafði svo sem að lík- um lætur kynnzt henni og fengið miklar mætur á henni ,og ætti hún leið í Afdalinn, var hún því vön jafnan, gæti hún því við komið, að líta inn til hennar og rabba við hana góða stund. Það var yndislegan miðsumars- dag nokkurn, er Meredith ók bif- reið sinni að bjálkakofanum, og er hún var komin út úr henni, og Marthy hvergi sjáanleg, hóaði hún, í von um að hún. væri einhvers staðar nálæg. Og eftir dálitla stund kom hún, þerrandi blautar hendur á svuntu sinni: — Ef það er þá ekki Merry læknir, sem komin er — og vel- komin veri hún. Alltaf gleðst ég að sjá yður, Merry — og nú megið þér til með að koma inn smástund. Þegar inn kom þurrkaði Marthy af stól með svuntu sinni og bað hana að setjast. Þegar þær höfðu næðst við um stund gerði Mere- dith sér grein fyrir að eitthvað var að — ekki var hún í vafa um, að Marthy var jafn innilega glöð yfir að sjá hana og vanalega, en einhvern veginn fannst henni, að hún væri eitthvað viðutan og tæki ekki alltaf eftir því, sem hún sagði, og loks gat Meredith ekki stillt sig um að spyrja. — Hvað er að, Marthy frænka? Mér dylst ekki, að eitthvað amar að. Marthy frænka leit snöggt á hana. Henni hafði brugðið. Svo Ieit hún undan og var þögul langa stund. Meredith sá, að æðaberar, knýtt- ar hendur Marthy frænku, sem hún studdi að knjám sér, lyftust lítið eitt, er hún kreppti fingur fastar að knjánum, og varir hennar bærð- ust, — svo virtist sem hún vildi segja eitthvað, en gæti ekkert sagt. Meredith beið á meðan, full nam- úðar, og loks Ieit Marthy frænka á hana, og það var ótti og kvíði r hinum gráu augum hennar. — Já, þtð er eitthvað að mér, Merry læknir, og ... og ég er hrædd um, að það sé eitthvað mjög slæmt. Meredith strauk sem snöggvast handarbak Marthy frænku og sagði svo með áherzlu: — Segðu mér nánara frá þessu, Marthy frænka, til þess eru lækn- ar, að til þeirra sé leitað, ef eitt- hvað er að. Vertu nú ekki allt of kvíðin, — það er engin vissa fyrir, að þetta: sé eins alvarlegt og þú heldur. — Komið sem snöggvast inn í svefnherbergið, sagði Marthy frænka og reis á fætur. Það var komin harka í rödd hennar. Svefnherbergið var bjart og allt þokkalegt þar, hvítar gardínur, hreint á rúminu, gólfið hvítskúrað. Hún hneppti frá sér blúsunni ó- styrkum fingrum og afklæddi sig nægilega til þess, að Meredith gæti hlustað hana og skoðað. Þegar hún | hafði lokið því, horfði Merthy | frænka á hana, jafn kvíðafull og fyrr, og sagði: — Ég er svo hrædd um, að ég sé með krabba ... í augum fólksins í Afdalnum var krabbamein eins óttalegt orð og dauði og merkti hið sama — að fá krabbamein hugði það miklu verra en að fá a ðdeyja úr nokk- urr; annarri veiki, því að það væri sama sem að þjást mánuðum ef ekki árum saman, ávallt með dauð- ann framundan. — Við skulum vona það bezta, Marthy frænka. Ég get ekkert ákveðið sagt um slíkt eftir skoðun sem þessa, — það þarf nákvæmari skoðun til og gegnumlýsingu og myndatökur. Hefirðu haft þjáning- ar í brjóstinu fyrr? — Já, það var einhver bólga, ég var talsvert veik, og Jónatan dreng- urinn minn var þá fjögurra mán- aða, og ég varð að láta hann fá pelann, og fólk segir, að það sé þess vcgna ser.r það lifði ekki. — Vitleysa, Marthy frænka. Mill- jónir, tugmilljónir hraustra karla og kvenna voru eitt sinn pelabörn, og reyndi að mæla sem hessileg- ast, og leyna þeim beyg, sem í hug hennar var, að eitthvað mjög alvar- legt væri að. Hún dundaði við að hagræða einhverju í læknistösku sinni meðan Marthy fræna var að laga sig til, og sagði svo: — Hlustaðu nú á mig, Marthy frænka, sagði hún, þú ættir nú að koma með mér í bæinn til gegnum- lýsingar og myndatöku. Það er eina leiðin til þess að vita vissu sína í svona tilfelli. Sýni myndirnar ekk- ert alvarlegt muntu verða vonglöð og hress á ný. — En ég þarf að mjólka og sinna hænsnunum — og það er orðið framorðið. — Þú veizt vel, að nágrannarnir munutaka það að sér — Fowler og kona hans — og ég skal aka þér hingað í fyrramálið — og það yrði tilbreyting fyrir þig að skreppa í bæinn um leið. — Hamingjan góða, sagði Marthy frænka ,næstum af barnslegri furðu er hún hugsaði til þess eins og hún væri að leggja út í mikið ferðalag, og ég sem hef ekki farið að heiman óratíma, nema hérna um dalinn til þess að sitja yfir veikum eða svo- leiðis — það hljóta að vera ein 15-20 ár. — Þá er sannarlega kominn tími til að þú hverfir frá þínum daglegu störfum eins og einn sólarhring, sagði Meredith ákveðin, — svona, farðu nú og taktu saman það, sem þú þarft, og búðu þig. svo í þessa miklu langferð. A^jn^fct-'fer^g og tala við Fowler og konu hans. _ _ _ 6 ! — Hvort ég vil, Merry læknir, sagði Abe Fowler, við skulum líta eftir öllu fyrir hana. Það er meir en kominn tfmi til, að einhver geri eitthvað fyrir hana, sem alltaf hef- ur verið reiðubúin til þess að hjálpa öðrum. Það er þó vonandi ekkert alvarlegt að Marthy frænku? Mér fannst hún hressileg þegar ég sá hana í morgun. — Fráleitt neitt mjög alvarlegt, sagði Meredith, þótt hana grunaði annað, en hún vildi ekki verða til þess að vekja áhyggjur í hugum vinveittra nágranna Marthy frænku ef það skyldi svo reynast svo, að hún væri ekki hættulega veik. — Hún hefur verið eitthvað las- in og mér fannst rétt að hressa upp á hana og fá hana með mér í bæ- inn. Þá get ég skoðað hana betur um leið, þó ekkert sé að, hefur hún gott af tilbreytingunni. Abe Fowler og kona hans voru henni fyllilega sammála og þegar hún ók af stað eftir veginum til gilsins, sem vegurinn lá um, var veifað til þeirra úr hverjum kofa, því að það hafði frétzt furðu fijótt, að Merry læknir væri á ferð og hefði tekið Marthy frænku með sér til River Gap. Rosalie tók Marthy frænku vel, en var dálítið hissa á komu hennar, þar til Meredith hafði sagt henni hvernig á stóð. Vísaði Rosalie Mar- thy inn í gestaherbergi og fannst Marthy svo fín þar, að engu var líkara en að hún væri smeyk við að setjast niður. Rosalie bað hana að láta sem hún væri heima hjá sér og stjanaði við hana meðan Mere- dith hringdi til Frazier læknis. Hún sagði honum í stuttu mállfrá Mar- thy frænku og bætti svo við eins og hálfhikandi: — Ef þér treystið yður til þess að hjálpa mér við myndatökurnar væri ég þakklát. Og hve dásamleg það væri, ef í ljós kæmi að ótti minn væri ástæðulaus. — Ég kem, sagði Frazier ákvcð- inn. Hvenær viljið þér að ég komi? — Komið til miðdegisverðar, sagði Meredith og var sem fergi væri af henni létt. Á ég að taka húsráðandu með mér? spurði Frazier læknir og vott- aði fyrir glettnj í rödd han->. — Fyrir alla muni, sagði Mere- dith með áhuga. Frazier hló og lagði frá sér heyrn artólið, en hægt andvarp leið frá brjósti Meredith, sem uppgötvaði sér til undrunar, að hún var dálítið óstyrk á taugum. Hún minntist þess, sem Evan Farley hafði ávallt lagt áherzlu á, að þeir sem vildu verða góðir lækn- ar yrðu að koma fram við hvern einstakan sjúkling án tilfinninga- semi, að líta ávallt eingöngu svo á, að um sjúkdómstilfelli væri að ræða, — sjúkdóm, sem þyrfti að lækna, en Meredith hafði fyrir Iöngu komizt að raun um, að hún gat ekki annað en látið persónu- legra tilfinninga gæta í allri með- ferð og framkomu gagnvart sjúk- lingum. Og i-Máháyr frænka var kona við aldur, góð sál, sem öllum hafði ávallt viljað gott gera og mikið liðið á Iangri ævi. Hvernig gæti hún annað en látið allt þetta hafa áhrif á sig. Og hún hvorki vildi né gat bægt þeim áhrifum frá. Þetta var á sumarkvöldi og byrj- að að húma. Hún vissi, að hún hefði átt að skreppa heim í húsið, til þess að segja Jeanne, að þrír gestir yrðu til miðdegisverðar, en hún var óvenjulega þreytt og ó- venjulega bölsýn, og hún óskaði sér þess, að Jónatan væri hjá henni. Hún lokaði skrifborði sínu og var í þann veginn að leggja af stað heim, þegar hún heyrði geng- ið hröðum .léttum skrefum að úti- dyrunum. Og á næsta andartaki næstum flaug Louella inn til henn- ar, svo hýr *á svipinn og ham- ingjusöm, að hún ætlaði varla að trúa sínum eigin augum. Louella faðmaði Meredith þegar að sér í innilegri hamingju sem hún auðsæilega var gagntekin af. — O, Meredith læknir, þér eruð alveg dásamlegar, ég blátt áfram elska yður, ég er, ó, ég er svo inni- lega hamingjusöm, og veit ekki, hvernig ég get þakkað yður. Meredith hló og smitaðist af æskufjöri hennar og endurheimti þegar nokkuð af eigin gleði og bjartsýni. Barnið gott, segjum sem svo, að ég sé dásamleg, en hvernig fórstu að uppgötva það? — Ég veit — ég veit ég var alveg skammarlega leiðinleg þeg- ar mamma kom með mig hingað, og ég vil gera hvað sem er til þess að sýna hvað ég sé eftir því og hve þakklát ég er, því að þér hafið kippt öllu í lag. — f Q 03 03 □ SS 03 E3 Q Q Q Q Q Q Q Q Q Q Q Q MY OKPEKS FKOM 6EKIEK.AL YEATS AKE TO T VERV WELL,CW’TAIW WILPCM\ .. / BUT l'VE JUST PROVEP THAT 5 MOSTMOTO-MOTOS AKE NOT SAVASES1 X THINK. WE CAW USE . MOTO-MOTOS-FOK. PEACE! SRIWS YOU OUT IM THE COFTER.TAKZAM, OR STAY WITH YOU'. IF YOU STAV AMOMð THESE SAVAGES^ I STAY'. j-------j Jæja, eins og þú vilt Tarzan, segir gamli höfðinginn, farðu með þá til Nombuzi og láttu dæma þá þar. Ég hef skipanir frá Yeats hershöfðingja um að koma með þig með mér Tarzan, sc' Tild cat, ef þú verður hérna áfram, þá verð ég líka. Eins og þú vilt, svarar Tarzan honum, en ég hef ■££' sannað, að það eru ekki allir Moto Motoar blóðþyrstir. Ég held að við getum auðveldlega haldið frið við þá. j Hárgreiðslustofan HÁTÚNI G, sími 15493. [ Hárgreiðslustofan [sðLEV ^Sólvallagötu 72. jSími 14853. : Hárgreiðslustofan iPIROLA [ Grettisgötu 31, sími 14787. Hárgreiðslustofa VESTURBÆJAR Grenimel 9, simi 19218. Hárgreiðslustoía AUSTURBÆJAR (María Guðmundsdóttir) Laugaveg 13, sími 14656. Nuddstofa á sama stað. Hárgreiðslu- og snyrtistofa STEINU og DÓDÓ Laugaveg 18 3. hæð (lyfta). Sími 24616. Hárgreiðslustofan Hverfisgötu 37, (horni Klappar- stígs og Hverfisgötu). Gjörið svo vel og gangið inn. Engar sérstakar pantanir, úrgreiðslur. P E R IVI A, Garðsenda 21, simi 33968 — Hárgreiðslu og snyrti- stofa. Dömu, hárgreiðsla við allra hæfi ‘ TJARNARSTOFAN, Tjarnargötu 10, Vonarstrætis- megin. Sími 14662 Hárgreiðslustofan Háaleitisbraut 20 Sími 12614 ^WWWWWNAAAAAAAAi Ódýrar þykkar dreagjapeysur HAGKAUP Miklatorgi

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.