Vísir - 19.09.1963, Side 5

Vísir - 19.09.1963, Side 5
V í SIR . Fimmtudagur 19. september 1963. Fyllsta öryggis gætt á Söluopi og styttum sölutíma mótmælt — segir í skýrsSis sérfræðings AlþjéðaflugniálastofDiunarðniMflr S.l. vor fékk flugmálastjóri Agnar Kofoed Hansen hingað til lands tæknisérfræðlng Alþjóða- fi nálastofnunarinnar (IACO), J. S. Shepard til „að athuga hvort n vsrandi starfræksla flugfélaga okiiar af Reykjavíkurflugvelli sé nægilega örugg hvað farþegum viðvíkur og hvort hún hafi í för með sér sérstaka hættu fyrir íbúa næsta nágrennis Reykjavíkur“. Shepard dvaldist hér um hríð og gerði allar nauðsynlegar athuganir og hefur hann nú skilað skýrslu um athuganir sínar og niðurstöður. Boðaði flugmálastjóri Agnar Kofoed Hansen og nánustu sam- starfsmennu hans fréttamenn á sinn fund í gær og skýrðu þeim frá og afhenti skýrslu Shepards. Kemur fram £ henni að fyllsta ör- yggis sé gætt 1 öllum atriðum á Reykjavíkurflugvelli. Á fundinum í gær sagði flug- málastjóri að lengi hefði verið látið að því liggja bæði í blaða- greinum og ummælum að öryggi á og við Reykjavíkurflugvöll væri ábótavant og væri því nú að feng- inni skýrslu fulltrúa Alþjóðaflug- málastofnunarinnar mjög nauðsyn- legt að almenningur gerði sér grein fýrir að svo væri ekki. í sambandi við hindranir í að- flugi kom fram að um þær væri vart að ræða nema helzt Frl- kirkjuturninn, hann væri 5 metrum of hár. Má þetta kallast mjög gott sagði flugmálastjóri og myndu margir stórir flugvellir úti um heim vera stoltir ef þeir gætu sagt sömu sögu. Hér fara á eftir kaflar úr skýrslu J. J. Shepards: Ég kom til Reykjavíkur 17. apríl 1963 kl. 13.00. Síðari hluta komudags átti ég fund með flug- málastjóra og nánustu samstarfs- mönnum hans, til að fræðast nánar um ástandið og vandkvæði þau, sem við var að stríða. Þegar flugmálastjóri skýrði fyr- irmæli sín, sagði hann, að nokkuð bæri á áhyggjum manna vegna hávaða þess, er stafaði af flug- vélum, sem hefja sig til flugs af flugbraut 02—20. Flugtakssvæði flugbrautar þessarar nær yfir íbúðahverfi. Hann samsinnti þvl hins vegar, að þessi vandkvæði væru ekki bundin við Reykjavík eina og gerði sér Ijóst, að svo fremi sem starfræksla flugvéla af flugbraut- Bókasýning — Frambald at bls. 1. frá 14—22 daglega en á sunnu- dögum frá 10—12 og 14—22. Að- gangur verður ókeypis. Vestur-Þjóðverjar gefa um 23000 bæku-r út árlega, svo að þarna er aðeins um lftið sýnishorn að ræða, en engu að síður merkilegt safn. þrír fjórðu hlutar allrar bókaútgáfu í V.-Þýzkalandi eru nýjar bækur, en hitt eru endurútgáfur. Samband v.-þýzkra bókaútgefenda og bók- sala hefur haldið 131 bókasýningu á erlendum _ vettvangi síðan eftir heimsstyrjöldina. Síðast var haldin v-þýzk bókasýning á íslandi árið 1959. um þessum væri I samræmi við alþjóðlegar flugöryggisreglur væri lítið meira hægt að gera I þessu efni. Aðaláhyggjuefnið væri al- mennar æsingar og áróður fyrir Iokun og flutningi Reykjavíkur- flugvallar á annan stað. Átt hefðu sér stað talsverð blaðaskrif um þennan ágreining og væri augljós tilhneiging til þess að telja mönn- um trú um, að flugumferð væri ekki örugg um núverandi flugvöll. í Ijósi þessara umræðna og með tilliti til þess, hve stuttur tími var til stefnu, var verkefni það, er flugmálastjóri fól mér sérstaklega að athuga og gera skýrslu um ör- yggi flugs af flugbraut 02—20 með núverandi vélakosti íslenzku flugfélaganna tveggja og skyldi ég beina athyglinni sérstaklega að hindrunarskilum (obstacle clear- ances) við flugtalc og nauðsynleg- um takmörkunum á hámarksþunga. STARFRÆKSLA LOFTLEDÐA. Athuganir mínar voru gerðar I samvinnu við flugdeildarstjóra og yfirflugumsjónarmann. Getu og hæfnisskrár (Perform- ance charts) DC-6B I flughandbók þess flugfélags voru nákvæmlega yfirfarnar að þvl er viðvíkur hraða-stöðvunarlengdum (accel- erate-stop distance) flugtakslengd, flugtaksleið og lendingalengd. Loftleiðir tjáðu mér, að þeir notuðu einvörðungu handbækur frá Pan American flugfélaginu, að þær væru viðurkenndar af flug- málastjórn Bandaríkjanna og væru stöðugt endurskoðaðar. Mér reikn- aðist, að hámarksbrottfararþungi af flugbraut 02—20, I logni á venjulegum degi, fyrir DC—6B flugvél væri 101.200 ensk pund. Þessi þungi er innan þeirra tak- marka, sem fyrir eru lögð I hæfn- iskröfum rekstrarhandbóka fé- lagsins. Félagið notar hámarks- þunga, sem er 100.600 ensk pund. Niðurstöðurnar fengust með þvl að nota alla flugtakslengd, sem fyrir hendi er, eða 5.800 fet eins og gefið er til kynna á kortum flugmálastjórnarinnar. Nauðsyn- legt tillit var tekið til brautarhalla. Tiltæk brautarlengd takmarkar hámarksþunga. Getu- og hæfnisskrárnar stað- festa, að óhætt er að halda flug- taki áfram, þótt veigamesti hreyfill bili, þegar flugvél hefur náð til- skildum flugtakshraða eða meiri hraða, þvl að nægt afl er fyrir hendi til að fljúga ofar öllum hindrunum á flugtakssvæðinu. Það var einnig staðfest í hand- bókum flugvélanna, að leyfilegt væri að nota báðar flugbrautir til lendingar með hinum takmarkaða hámarksþunga. Flugdeildarstjórinn tjáði mér enn fremur, að félagið notaði Kefla- víkurflugvöll, þegar krap væri á flugbrautum. Það er eingöngu á flugleiðinni Reykjavík-Norður-Ameríka, sem nauðsynlegt er að takmarka há- marksþunga. Á styttri flugleiðum til Evrópu er hinn eiginlegi há- marksþungi talsvert undir 100.600 lbs., til þess að lendirigarþunginn sé innan tilskilinna takmarkaría á ákvörðunarstað. STARFRÆKSLA FLUGFÉLAGS ÍSLANDS H.F. Þetta flugfélag notar fjórar teg' undir flugvéla, DC—6B, Viscount 759 DC—3 og DC—4. Athuganir, voru gerðar I samráði við yfirflug- umsjónarmann. Síðar var rætt við flugdeildarstjóra, er var þá að koma úr ferðalagi til Evrópu. Fyrir flugvélar af gerðinni DC— 6B notar flugfélagið flughandbók frá SAS. Þessi handbók hefur ver- ið viðurkennd af flugmálastjórn Bandarlkjanna (FAA), og er hún leiðrétt jafnóðum og eina flug- handbókin, sem notuð er. Þar eð félagið notar vélar þessar ein- vörðungu á stuttum flugleiðum til Evrópu, ber enga nauðsyn til þess að fljúga þeim þyngri en 44.400 kg (þ.u.b. 97.500 lbs). Konýð hef- ur fyrir, að DC—6B flugvélar fé- lagsins hafa verið leigðar Loftleið- um og eru þær þá alltaf starfrækt- ar £ samræmi við reglur Loftleiða. Hámarksþungi DC—6B reiknaður skv. SAS flughandbókinni gefur sömu tölur og þær, er fást með aðstoð flughandbókar PAA, sem Loftleiðir nota. Fyrir Viscount-vélarnar er not- uð flughandbók Viscount 759 flugvéla, sem reyndist leiðrétt og I fullu gildi. Þessi flugvélarteg- und er starfrækt með hámarks- þunga og sannprófað var, að brautarlengd, var nægileg og að fljúgá mStti ýfir hindranir ofar til- skilinrii'!%á8'1 flugsvæðiriu. Ýéfár áf "gerðirini DC—3 eru einnig starfræktar með hámarks- þunga og einnig I þvl tilfelli eru brautarlengd og hindranaskil nægi- leg. Að því er varðar starfrækslu véla af gerðinni DC—4, sem not- uð er einvörðungu á stuttum flug- leiðum, er hámarksþungi sá, sem notaður er lægri en leyfilegur há- marksþungi, sem er 33.475 krg., til þess að vélarnar séu hæfilega þungar við lendingu. Þar af leiðir, að brautarlengd og hindranaskil eru ríflega innan settra marka. NIÐURSTÖÐUR. Takmarkanir á hámarksþunga DC—6B flugvéla Loftleiða, sem fljúga milli íslands og Bandaríkj- anna, eru nauðsynlegar og þeim framfylgt. Takmarkanirnar eru byggðar á Félag Söluturnaeigenda hélt blaðamanrfafund I gær og kom eftirfarandi sjónarmiðum á fram færi: Félagið vill harðlega mótmæla öllu, sem I reglugerðinni er bein línis stefnt að því að Iama eða jafnvel eyðileggja starfsemi söluturna, svo sem styttum af- greiðslutíma, fækkun vöruteg- unda og nú slðast þeirri kvöð, að selt sé út um söluop. Félagið lltur á kvöð um sölu- op sem dulbúið neyzlubann, enda tilbúna til þess að sala minnki hjá söluturnum og fær- ist til annarra aðila, enda þótt það sé látið I veðri vaka, að kvöð þessi eigi að vera til að bæta siðmenninguna I bænum. Félagið mótmælir því harð- lega, að svonefnt „sjoppuhangs“ sem I reglugerðinni er notað til árása á eigendur söluturna, eigi sér almennt stað. Ef um slíkt væri hins vegar að ræða, telj- um við, að reglugerðin ætti fremur að gera ráð fyrir, að þeir eigendur söluturna, sem leyfa slíkt, verði sviptir leyfi að undangenginni aðvörun. Hvers vegna þarf að stytta af- greiðslutímann, ef hvergi er hægt að hanga inni? Þá bendir félagið á að af- greiðsla um söluop sé ósamboð- in neytendum og muni færa neyzluna út á götur. Einnig að flestar sölurnar hafi almennings síma, en sú þjónusta muni leggj ast niður. Loks segist félagið llta á heim ildina til hverfaopnunar mat- vörubúða sem spor I rétta átt, en telur að matvörukaupmenn muni varla hafa áhuga á að nota sér heimildina. viðurkenndum flughandbókum, sem flugfélögin leggja fram og eru með nýjustu leiðréttingum og I fullu gildi ásamt upplýsingum flugmálastjórnar um stærð flug- brauta og hæð og fjarlægð hindr- ana. Útreikningar eru miðaðir við flugaðstæður að degi til, I logni og leiðréttar vegna brautarhalla. í starfrækslu sinni taka flugfélög- in ennfremur tillit til alls annars er máli skiptir, svo sem veður- hæðar, hitastigs og þéttleika lofts- ins. Takmarkanir eru nauðsynlegar vegna ónógra stöð'vunarmöguleika eftir að flugtakshraða hefur verið náð. Éngin vandkvæði eru á að fljúga ofar hindrunum á flugtaks- svæðunum. Eins og nú háttar starfrækslu eru takmarkanir á flugvélum af gerðinni DC—3, DC—4 og Vis- count ónauðsynlegar og hindrana- skil fullnægjandi. Með þvl að haga starfrækslu sinni skv. viðurkenndum flughand- bókum og upplýsingum flugmála- stjórnar um flugvöllinn og aðflugs hindranir, virðast bæði flugfélögin fullnægja ákvæðum Annex $, AMC No 1.2 málsgrein. Núverandi starfræksla flugvéla Loftleiða og Flugfélags íslands h.f. veitir farþegum fullnægjandi ör- yggi og skapar íbúum næsta ná- grennis flugvallarins enga sérstaka hættu. Meðan stóð á athugun minni fékk ég það álit,/ að bæði flug- málastjórn og ráðamenn beggja flugfélaganna gengju ríkt eftir því, að tryggt væri, að öll starf- ræksla flugvéla færi fram I sam- ræmi við ströngustu öryggiskröfur. Hæfasti — Framhald af bls. 16. mæltu báðir sóknarprestamir f Eyjum með þvl að staðan yrði veitt Sigfúsi Johnsen, svo og fráfarandi skólastjóri. Auk þess að Sigfús er yfirkennari Gagn- fræðaskóla Vestmannaeyja, á hann Iengstan starfsaldur allra umsækjendanna að baki sér. En sem fyrr segir var staðan veitt þriðja umsækjandanum, Eyjólfi Pálssyni, sem framan- greindir aðilar, sem umsögn skulu gefa samkv. lögum um slíkar stöðuveitingar, töldu ekki jafn hæfan og Sigfús Johnsen. Skipafélag — Framn l siðu birtingarblaðinu er hlutafé fé- lagsins heilar 5 millj. króna og eru án efa fá félög með eins mikið hlutafé. Kaupskip h.f. hef ur leitað fyrir sér um kaup á vöruflutningaskipi og mun fél- agið nú hafa keypt yfir 2 þús. tonna vöruflutningaskip, en einn hluthafa, Vigfús Friðjóns- son, dvelst um þesnar mundir úti I Þýzkalandi. Eftir því sem blaðið veit bezt mun skipið verða væntanlegt til landsins um næstu mánaðamót. Úrskurður ffirnefndar: A furSaverS tíl bænda kækk■ ar um 20,8% Yfirnefnd 6 manna nefndar- innar kvað I gær upp úrskurð sinn um verðlagsgrundvöll land búnaðarafurða fyrir verðlagsár- ið frá þessu haustí til næsta hausts. Samkvæmt úrskurði hennar hækkar afurðaverð til bænda nú um 20.8%, og þeim úrskurði verður ekki áfrýjað lögum samkvæmt. í þessu sambandi er vert að rifja upp að fulltrúar framleið- enda I nefndinni höfðu mælt með þvl að verðlagsgrundvöll- urinn hækkaðj um 36,5% og stéttarsambandsfundi bænda þótti það of skammt gengið. Hins vegar höfðu fulltrúar neyt enda. f sex manna nefndinni lagt til að hækkunin næmi að- eins 10 — 11%, svo að þarna bar mikið á milli og því fór verð- lagsgrundvöllurinn fyrir yfir- nefnd. Hið rétta var trúlega ein hvers staðar þarna á milli, eins og fram kom með úrskurði yf- irnefndar. í yfirnefndinni eiga sæti Klemenz Tryggvason hag- stofustjóri, sem er oddamaður, Gunnar Guðbjartsson, framleið- endafulltrúi og Sæmundur Ól- afsson neytendafulltrúi. Sex manna nefndin á nú eftir að fjalla um verð á einstökum afurðum I haust, I samræmi við hinn nýja verðgrundvöll, og um þann vinnslu og dreifingar- kostnað, sem leggst á afurðirn- ar. Það er því ekki unnt að birta tölur ennþá um útsölu- verð á einstökum landbúnaðar- vörum.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.