Vísir - 07.10.1963, Page 6

Vísir - 07.10.1963, Page 6
6 V í S IR . Mánudaginn 7, október 1963. $#tlttaft ... ræsir bílinn SMYRILL LAUCAVECI 170 - SIMI 12260 Fyrsta flokks rafgeymir sem fullnægir ströngustu kröfum tiönpr — Framhald af bls. 9. kvísl. Það er leiðarendinn á þessari ferð. Raunin varð reyndar allt önn- ur. Þangað komumst við ekki fyrr en klukkan 5 um morgun- inn eftir. Fram til þessa hafði veður verið eins fagurt og bezt varð á kosið, blæjalogn og mánaskin sem merlaði á snæ- breiðurnar svo langt sem aug- að eygði. Það var hugðnæm kvöldstund og rómanttsk við Galtará og hvort myndi Jónas ekki hafa hugað að lokkum ástmeyjar sinnar í fölu skini mánans ef hann hefði átt þess kost? En við höfðum ekki langt farið eftir þessa undurfögru kvöldstemningu við Galtará, er við sáum dökkan skýjabakka út við sjóndeildarhringinn teygja sig óðfluga upp á himinhvolfið frá suðvestri. Það var næsta uggvænlegt hversu skýjabakk- inn færðist hratt upp á himin- inn, og á örskammri stundu hafði hann byrgt sýn til tungls- ins og færzt yfir allt himin- loftið. Sem hendi væri vetfað brast óveðrið á. Fyrst snöggar en stuttar bylgusur og þvi næst blindhríð. Fólkið hnipraði sig saman á sleðanum, reyndi að búa um sig eftir föngum og skýla sig hvort við annað. En ekkert dugði. Snjórinn lamdist inn í andlitið, maður yarð að loka augunum, hörundið særð- ist undan snjónum "em tamdist með feikna afli á andlit manns. Dráttarvélastjórarnir einir máttu horfa í veðrið og létu engan bilbug á sér finna hvern- ið sem stormurinn geísaði og hrlðin djöflaðist beint í fang þeirra. Það voru fangbrögð við náttúruöflin. . Verst af öllu var það að engin leið var að greina hvert eða hvernig halda skyldi. Leið- sögumaður ýtustjórans, þaul- kunnugur leiðinni og harðdug- legur ferðalangur varð hvað eftir annað að láta ýtuna nema staðar á meðan menn gengu á undan til að reyna að kanna hvaða leið helzt væri fær. Sem betur fór varði hríðin ekki lengi nætur, en á eftir blotaði og þá fór fólkinu fyrst fyrir alvöru að verða kalt. Snjórlnn bráðnaði I fötum þess og sætin urðu rennblaut. Stíg- vélin fylltust af vathi, og vett- linga mátti vinda. Allur galsi var horfinn, smalarnir urðu þögulir og sátu hnipnir þar sem þeir voru komnir. Þeir Voru einnig svefnvana og þreyttir eftir langan dag. Kuldadoði færðist smám saman í gegnum líkama þeirra. Samt held ég að engum þeirra hafi Vaxið þetta veður í augum, eða fundizt neitt athugavert við það. Þetta er daglegt brauð sveitamannsins. Hann er alinn upp Við þvílík veður ög þau herða hann og styrkja I llfsbaráttunni. Ég er ef til vill einn um það að finn- ast þetta veður vont og finna til óþæginda af þvl að vera holdvotur I kuldahreti. Én svo vont þótti mér veðrið að það læddist að mér lúmskur grunur um að „föðurlandið", sem ég var klæddur I að ofan og neðan og innst klæða hafí bjargað heilsu minni þessa nótt. VI. Það er vafasamt að nokkur ykkar viti hvemig manni verði innanbrjósts þegar dauðinn stað næmist allt I eínu I 50 senti- metra fjarlægð. En ég veit það. Við erum lcomin að svoköll- uðum Vöðum við Ströngukvfsl. Klukkan er að verða 5 að morgni og manni verður æ kaldara með hverju augnablik- inu sem líður. En nú eru ekki nema nokkur hundruð metrar eftir heim I sæluhúsið og þar logár ljós I glugga. Það er forn siður að Iáta loga ljðs I glugga á óveðursnóttum þegar gesta er von. Það hefur vafalaust bjargað mörgum nauðstöddum vegfaranda I villum, hríðum og náttmyrkri. Ljósið I Ströng- kvfslarskálanum höfðum við séð lengi og ég hef það á til- finningunni að það hafi gert okkur gott, haldið voninni við og bjartsýninní þegar okkur var sem kaldast aftan á sleð- anum. Við vissum að þarna var skjöl og að þarna var hlýja og það færðist ósjálfrátt og óvit- andi hlýja I dofna fætur og loppnar lúkur. Færið er hér betra og minni snjór heldur en norður á heið- innt og hér taka dráttarvélarn- ar frumkvæðið og renna síðasta spottan fram úr jarðýtunni sem ekki hafði sama spretthraða I góðu færi og þær. Félagar mínir voru allir á fremri sleðanum, nema Guðmundur Sigurðsson á Leifsstöðum sem stóð aftan á beizlistaumum dráttarvélarinn- ar sem Aðalsteinn bróðir hans stýrði. Ég hafði gengið nokkurn spotta mér til hita, en um leið og Aðalsteinn fór fram hjá mér með sleðann kastaði ég mér upp á hann ofan á heypoka og hélt mér þar föstum. En við höfðum ekki langt farið þegar dráttarvélin nam staðar. Hún var olíulaus orðin. Aðalsteinn fór þá af henni til að bæta á hana ollu, en Guð- mundur brððir hans stóð enn kyrr á beizlinu, sem sleðinn var festur I. Jarðýtan var skammt á eftir og nálgaðist óðfluga. Ég sá sterk kastljósin frá henni fær- ast með hverju augnablikinu nær. Allt í einu tekur sleðinn heljarmlkinn rykk og hendist fram á dráttarvélina og slðan fer allt á stað, bæði sleðinn og véin og kastast áfram. Mér varð litið aftur fyrir mig og sá mér til undrunar og skelfingar að jarðýtan hafði ekið á sleðann, ýtulömin hafði skollið á heypoka 50 senti- metra fyrir aftán mig og ef ég hefði fleygt mér á þann poka, en ekki hálfum metra framar hefði ég ekki kunnað frá tíðindum að segja. Ég hafði þó engan tlma til umhugsunar um þetta því I sama vetfangi heyrði ég hátt og hvellt sársaukahróp fyrir fram- an mig. Það sem skeð hafði var það, að um leið og ýtan skall á sleðanum og kastaði honum fram á dráttarvélina missti Guðmundur fótanna af beizlinu og klemmdist með annan fótinn milli sléðans og vélarinnar. Ég sá andlit Guðmutidar í logaskærri birtu frá ýtunni. Það var afskræmt af sársauka og hann hélt áfram að hljóða. En ýtumennirnir sáu ekki niður til okkar fyrir óhreinindum á rúðunni, heyrðu ekki sársauka- hljóðin I Guðmundi fyrir veður- gný og vélarskrölti og vissu ekkert hvað var að ske. Ýtan hélt áfram að kasta sleðanum og dráttarvélinni á undan sér eins og hverju öðru fisi. Ég taldi vlst að Guðmundur myndi kremjast sundur á hvaða augna bliki sem væri og ég fór sjálfur að hljóða og æpa ef það mætti verða til þess að vekja athygli ýtumanna á því sem var að ske. Allt I einu stöðvaðist ýtan. Mennirnir I henni höfðu orðið einhvers varir og komu skelf- ingu lostnir út. Þeir sáu að Guðmundur hafði losnað úr klemmunni og að hann kastaði sér niður á snjóinn bak við dráttarvélina. Við héldum allir að hann væri brotinn og meira eða minna limlestur. Sem bet- ur fór töldum við að svo væri ekki. Hann gat tyllt I fótinn og það benti til að fótleggurinn væri a. m. k. ekki í sundur. Ég veit ekki ennþá hve mik- ið Guðmundur hefur meiðzt. Ég vissi það eitt að hann var fiutt- ur til læknis niður á Blönduós á fimmtudagskvöld þegar kom- ið Guðmundur hefur meiðzt. Ég vissi tvennt annað líka. Annað það, að Guðmundar var mjög saknað I smalamennskunni þvi hann var talinn I röð allra beztu leitarmanna norður þar. Hitt, að ég hef aldrei séð slasaðan mann bera sig karlmannlegar heldur en Guðmund. Hann hvorkj æðraðist né kvartaði, þótt fóturinn bólgnaði og sársaukinn ágerðist. Hann hló og gerði að gamni sínu eins Framh. á bls. 5. CONSULCORTINA ^__— : ‘ hann er metsölabíll á Norðurlöndum. Vegna hins glæsilega útlits og mörgu góðu eig- inleika, hefur CONSUL CORTINA verið met- sölubill á Norðurlöndum. Hann er stærsti bíllinn í þessum verðflokki — rúmgóður og þægilegur, með góðu bili milli sæta, sem gefur gott rými fyrir fæturna. Hann er gæddur dærnafáum styrkleika í bygg- ingu, eins og ótal akstursprófanir hafa sýnt - og því vel valinn fyrir íslenzkar aðstæður. Hann er ótrúlega sparneytinn, hefur rúmgóða farangursgeymslu, og er búinn margs konar þægindum, sem aðeins fæst I dýrari bitUm. CORTINA STATION hefur alla sömu kosti að bera. 4 dyra DE-LUX, mjög rúmgóður 5 manna btll. Hin stóra farangursgeymsla, sem auka má með því að leggja fram aftursætin, gerir bílinn hinn ákjósanlegasta til fefðalaga. Val um 53V2 ha. og 64 ha. vél. FORD tryggir gæðin. SVEINN EGILSSON H.F • Laugaveg 105

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.