Vísir


Vísir - 07.10.1963, Qupperneq 8

Vísir - 07.10.1963, Qupperneq 8
8 V1SIR . Mánudaginn 7. október 1983, LJ VISIR Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR. Ritstjóri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Þorsteinn Ö. Thorarensen Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstrœti 3 Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði, í lausasölu 5 kr. eint. — Simi 11660 (5 línur). Prentsmiðja Visis. — Edda h.f. Verðból guhættan Hér í blaðinu hefir undanfarnar vikur verið vak- in athygli á því að þenslu- og verðbólguhættu er að finna í efnahagslífi margra Evrópuþjóða um þessar mundir. Danir hafa á undanfömum misserum átt við mjög svipaða örðugleika að etja og nú steðja að fs- lendingum. í Frakklandi og Sviþjóð hafa nýlega verið gerðar ýmsar stöðvunarráðstafanir til þess að koma í veg fyrir að verðbólgan næði tökum á efnahagskerfi landanna. Síðast hefir þetta sama gerzt á Ítalíu fyrir fáum dögum. f þessari viku kemur Alþingi saman. Það verður fyrsta hlutverk þess að ræða á hvem hátt ógnum verðbólgu og ofþenslu verður bægt frá dymm þjóðar- innar. Við stöndum i dag frammi fyrir því vandamáli að hinn mikli árangur viðreisnarinnar skerðist í eldi nýrrar dýrtiðar. Slíka ósvinnu þarf að hindra. Ráðin til þess hljóta hér að verða svipuð og nágrannaþjóðir okkar hafa gripið til. Hagfræðin kann mörg svör við slíkum vanda. Ekki em þau öll líkleg til þess að verða vinsæl hjá almenningi, en það verður hiklaust að beita þeim svo sú óheillaþróun verði stöðvuð, sem nú blas- ir við þjóðinni. Ekkert þjóðfélag í veröldinni þolir 30—40% almenn- ar kauphækkanir á einu ári án þess að til vandræða dragi. Þá staðreynd verða menn að gera sér Ijósa. Hóf í kjarakröfum færir launþegum raunhæfar kjara- bætur. EHa brestur hinn hátt spennti bogi með þeim afleiðingum, sem öll þjóðin þekkir af biturri reynslu. Haustveður Eini blaðamaðurinn sem þátt tók í hinum mikla leitarleiðangri Húnvetninga á Eyvindarstaðaheiði fyrir helgina var Þorsteinn Jósepsson frá Vísi. f blaðinu í dag birtist frásögn hans af svaðilför Ieitarmanna. Þar er brugðið upp glöggri svipmynd af erfiðleikum íslenzka fjárbóndans og baráttu hans við að ná fé sínu heim heilu á húfi úr fönn og byl. Erflð- leikar gangnamanna norðanlands em einstæðir á þess- ari öld og hið leiftursnögga áhlaup hefir valdið tug- milljóna króna tjóni. Ævi íslenzka bóndans er erfið og á miklu ríður að stjómarvöldin í landinu geri honum kleift að auka bústofn sinn,byggja ný hús og stækka búin eins og hann telur nauðsynlegt. Að því hefir núverandi ríkis- stjóm vel unnið. Stofnlánadeild landbúnaðarins hefir nú verið komið á fót og lánasjóðirnir, sem áður voru gjaldþrota, réttir við. Landbúnaður hlýtur ávallt að vera undirstöðu- atvinnugrein á þessu landi. fslenzki bóndinn á við næga erfiðleika að etja, þó skammsýni yfirvaldanna bætist þar ekki við. Vtan hafðl veigamiklu hlutverki að gegna og var e. t. v. þarfasti þjónninn í aiiri þessari för. Hér sést hún ýta mlkilli snjóbreiðu á undan sér, en á bak við bíða dráttarvélamar þar til brautin er rudd fyrir þær. I. Tjað er mánudagsmorgunn og fundur er settur með blaða- mönnum á ritstjórnarskrifstofu Vlsis. í forsæti situr ritstjóri Vísis. Hann vekur máls á því að sig vanti einhvern úr hópn- um til að skreppa I haustgöng- beindust öll sigri hrósandi að mér. „Þá er bezt að þú farir, Þor- steinn" Þannig hljóðaði dauða- dómurinn yfir mér af hálfu rit- stjórans. Ég sá mig I anda sokk- inn í snjóskafl upp að höku og byrjaði að skjálfa. miði að heiðinni, og þeir sem ekki geta sýnt það svart á hvítu að þeir séu í þvílíku fati verða tafarlaust endursendir." Fyrir mig var þetta hálfu meiri skelfing heldur en nokk- urn tima snjóskafl upp í höku. Ég hafði einu sinni farið i ur norður á Eyvindarstaöaheiði. Þar sé fé bænda teppt vegna fannfergis, en gera eigi út leið- angur úr Svartárdal morguninn eftir til að freista þess að bjarga fénu. Blaðamaður frá Vísi megi fljóta með ef einhver fáist til ferðarinnar. Ritstjórinn bætti því við að snjórinn næði meðal- mðnnum frá buxnastreng og upp 1 höku. Hins vegar yrðu leitarmenn dregnir á sleðum aft an í beltisdráttarvélum og jarð- ýtu upp á háheiði. I bakaleið yrði hver að sjá um sig sjálfur, en þá hallaði líka undan fæti. Og það er betra að vaða snjó I höku niður í móti heldur en upp brekku. „Hver býður sig svo fram til þessarar farar?“ spurði ritstjórinn að lokum. Allir þögðu og allir litu hver á annan með skelfinguna og kviðann uppmálaðan I andlltlnu. „Hvernig er það með þig, Þor stelnn Jósefsson, þú hefur far- 18 1 göngur sem gamall sveita- maður?" spurði ritstjórinn til að rjúfa þögnina. „Jú, fyrir um það bil 40 ár- um,“ varð ég að vlðurkenna. „Og þú þekklr kindur frá öðr- um skepnum?" „Já, frá fuglum," anzaði ég aumlega og reyndi að leiða at- hyglina frá mér. Augu starfssystkina minna FYRRI GREIN „En það er eitt, sem ég þarf að taka fram við þig áður en þú leggur af stað," bætti Gunn- ar ritstjóri við. „Það verður eng- inn tekinn 1 ferðina upp á Ey- vindarstaðaheiði nema hann sé fklæddur prjónanærbuxum. — Prjónanærbuxur eru aðgöngu- prjónanærbuxur á unglingsárum minum, hélzt við í þeim I tvo daga, en síðan klæjar mig um allan kroppinn ef ég hugsa til þvílíks Iláts fyrir neðri hluta llkamans. II. Aðfaranótt þriðjudagsins fer Vaikyrjumar í ferðinni, þær Sigurbjörg Stefánsdóttir frá Steiná t. v. og Sigurlaug Markúsdóttir frá Reykjarhóli t. h. Þær hafa báðai farlð oft í haustgöngur á Eyvindarstaðaheiði áður, en aldrei lent í öðrum eins erflðleikum og í haust. Þær voru báðar í göngunum þegar leitarmenn urðu að snúa heim af fjallinu safnlausir í hríðarveðri og kafa ófærð. Og nú þegar þær fóru að sækja safnið lentu þær í hrakviðri heila nótt á leiðinni upp. En þeim sá hvergi bregða og eftir einnar stundar svefn voru þær sendar f erfiða göngu norður heiðina.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.