Vísir - 17.10.1963, Blaðsíða 8

Vísir - 17.10.1963, Blaðsíða 8
s Vt STR . Fimmtudagtim 17. oktúber 1963. Utgefandi: BlaBaútgáfan VlSIfi_ Ritstjóri: Gunnar G. Schraat- AðstoSarritstjóri: Axel Thorsteinson f Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178. Augiýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði. 1 Iausasölu 5 kr. eint. — Simi 11660 (5 iínur). Prentsmiðja Visis. — Edda h.f. Tryggjum krónuna ORÐ Bjama Benediktssonar dómsmálaráðherra á Varðarfundinum í fyrrakvöld hafa vakið mikla athygli. „Þeim leik að fella gengið verður að ljúka. Við verðum að hafa þann manndóm að láta honum ljúka“, sagði ráðherrann þar. Undir þessi ummæli munu allir taka, sem hafa þau heilindi í brjósti að viljá'leysa efnahagsvanda þjóðarinnar þannig að traustur grundvöllur sé fenginn undir framförum og uppbyggingu atvinnuveganna. Allt of lengi hefir sú hugsun átt upp á pallborðið að gengisfelling væri lausnin á ógöngum efnahagsmál- anna. En slík ráðstöfun er engin lausn, eins og ráð- herrann undirstrikaði. Þótt innlendar skuldir minnki að yerðgildi þá verður þó alltaf einhver að borga fyrir verðmætin. Og sá sem borgar er þjóðin öll. Dómsmálaráðherra lagði áherzlu á að það ei* ein- ungis með aukinni framleiðslu, sem hægt er að bæta kjörin. Hin óraunhæfa kröfugerð hlýtur að leiða til þess að atvinnuvegir þjóðarinnar stöðvist, eins og bit- ur reynsla liðinna ára sýnir. Verkföll leiða einungis til þess að hlutur hinna lægstlaunuðu versnar enn í sam- anburði við kjör þeirra sem í kjölfarið sigla, eins og saga umliðinna ára sýnir einnig. Það er hins vegar aukin framleiðsla og umfram allt bætt vinnubrögð og vinnuhagræðing sem færir launafólki raunhæfar kjara- bætur — allt upp í 20—30% lífskjarabætur á nokkrum tíma, eins og reynsla annarra þjóðá sýnir. í stað hinnar óraunhæfu kröfugsrðar eiga íslenzk verklýðsfélög að fara þessa leið til bættra lífskjara. Hin leiðin er löngu úrelt. Ríkisstjórnin mun gera það sem í hennar valdi stendur til þess að hinir lægst launuðu í þjóðfélaginu fái nú bætt kjör sín. Á hinn bóginn er það ljóst að stór- felldar almennar launahækkanir eiga engan rétt á sér, eins og sakir standa. Frá þeim verður að hverfa og einbeita sókninni þess í stað að því að tryggja verð- mæti hins íslenzka gjaldmiðils, eins og hann er í dag. í slíkri tryggingu felst framtíðaröryggi íslenzkra laun- þega. V efkamannasambandið Stofnun sérstaks landssambands verkamanna gengur í berhögg við fyrri ályktanir ASÍ. Hér er ein- ungis um tilraun kommúnista innan verklýðshreyfing- arinnar að ræða til þess að halda völdum í slíku sér- sambandi, þegar þeir missa tökin á ASÍ innan skamms Það er mikilvægt að allir verkamenn geri sér þessa staðreynd ljósa og einnig aðrir meðlimir ASÍ. Þar að auki er verið að fjölga um enn einn samningsaðila verkafólks í landinu. Það er öfugþróun. Samstaðan er mikilvæg í samr.ingum. Hér er hins vegar verið að kljúfa samtök launþega, sundra þeim á lævísan hátt. Fátt sýnir betur hinn sanna hug kommúnista til hins vinnandi manns. Horfnmar l sambúð Marokko og Alsír eru a5 alira dómi hinar alvarlegustu. Marokkanskar her- sveitir hafa vaðið inn í Alsír, barizt hefir verið um landa- mærastöðvar og nokkurt mann- tjón orðið og átökum ekki Iokið, er þetta er skrifað, en þrátt fyrir þetta, og að Ben Bella forsætisráðherra hefir boðað al- mennt herútboð „allra þeirra, sem börðust gegn Frökkum“, er reynt að ná friðsamlegu sam- komulagi, og það er tvennt til um það hvernig ástatt verður þegar þetta kemur f blaðinu, hvort óbreytt ástand helzt eða versnar eða samkomulag næst. M Landamærastöðvarnar, sem Marokkanar gerðu árásir á, heita Hassibeidi og Tindouf, og eru 30 km. frá iandamærunum. Fréttum hefir ekkj borið saman um hverjir hafi þessar stöðvar á valdi sínu, Ben Bella sagði fá- mennt lið hafa varizt þar og verjast þar áfram, þrátt fyrir á- rás 4000 manna liðs frá Mar- okko — og stjórn Marokko seg- ir liðið á valdi Marokkoher- sveita. En enginn vafi er, að hersveitir Marokko hafa sótt lengra fram inn á sandflæmi Sahara. M Deilt er um landamæri Mar- l f okko krefst spildu, þar sem málmar eru í jörðu, vegna þess f\ að Marokko ásælist þessar auð- • i lindir — að því er stjórn Alsír ■ segir, og enn fremur, að Mar- okko hafi ekki gefið upp von Ein helzta spurningin, sem menn nú bíða svars við — á tíma hinnar nýju hættu í Alsír — er: Hvað gerir Hocine Ait-Ahmed, — erkifjandi Ben Bella, Ieiðtogi uppreisnarmanna í Kabiliufjöllum? Ný hætta í ALSÍR um, að sölsa undir sig Mauret- aniu, og seilist því til yfirráða á alsírskri landspildu alveg að landamærum hennar. M Ben Bella hvatti landsmenn til sameinaðrar baráttu gegn „deyjandi konungsveldi Mar- okko“. En nú „er eftir að vita“, símaði fréttaritari brezka út- varpsins frá Algeirsborg, „hve margir af þeim 40.000 hermönn- um, sem uppi stóðu eftir bar- dagana við Frakka svara kvaðn- ingunni". Óbeint virðist gefið í skyn með þessu, að undirtektir kunni að verða daufar, — og vafalaust er þjóðin þreytt á bar- dögum. Og svo er annað: Hve mikil alvara er á ferðum? Er landið í hættu? Er um innrás að ræða, sem er undanfari styrj- aldar milli Marokko og Alsír? Eða var bara farið yfir landa- mærin til þess að „steyta hnef- ann“? Sé raunveruleg styrjaidar- hætta á ferðum má víst heita, að undirtektir við kvaðningu til herskyldu verði betri en ef menn eru ekki trúaðir á, að til styrjaldar komi. M Fyrsta tilkynning alsírska landvarnaráðuneytisins um inn- rásina var svo hljóðandi: Aðfaranótt 14. október fóru herflokkar úr konunglega mar- okkanska hernum yfir landa- mæri Marokko og Alsír inn á alsírskt landsvæði við Moham- med el Ghozane um 400 km. suðvestur af Bechar (sem áður hét Colom-Bechar). Að morgni þess 14. var ráðizt á stöðvarnar Hassibeidi og Tindouf 30 km. innan landamæra Alsír. Flokk- ar úr þjóðarhernum alsírska eru á vettvangi og verjast þrátt fyr- ir að Marokkanar beittu skrið- drekum og flugvélum landher- flokkum sínum til stuðnings. — Áframhald var á bardögum eft- ir að dimmt var orðið. m Á mánudagskvöld sendi Ben Bella þingmanninn Mohamed Yazis og Slimane Hoffmann of- ursta til Rabat „opinberra er- indagerða". Og Taieb Sabbani, ■sérlegur sendimaður Bourguiba sem nýlega var í Rabat,, höfuð- borg Marokko, sagði, að horfur væru góðar á, að æðstu menn Túnis, Marokko og Alsír kæmu saman á fund. En eftir þetta versnuðu horf- ur svo sem fyrr var greint — en þó áfram von um samkomu- lag. M ' Það er sagt, að Alsír ráði yf- ir 60 — 75 þúsund manna her — og Marokko álíka mannmörgum — en nokkur hluti hers Alsír hefir verið sendur til Kabiliu. Hefir orðið að flytja nokkrar hersveitir þaðan aftur, vegna þess að Ben Bella verður nú að horfast f augu við hina nýju hættu. Hvort hún verður til þess að sameina þjóðina, — eða upp- reisnarmenn nota sér hana, er eftir að vita, en það hefir verið rólegt í Kabiliu, síðan er her- sveitir Hocine Ait Ahmed hörf- uðu frá Michelet.aðalbækistöð sinni. »* Ben Bella skaut málum til Samtaka Afrikuþjóða með skír- skotun til sáttmála þeirra, sem gerður var í Addis Abbeba. Sam tökin stuðla áreiðanlega að sam komulagi. Og jafnvel Hussein V konungur segist vilja sam- komulag. Var hann þá bara að steyta hnefann? eða átti hann við samkomulag eftir sinu eigin höfði? *

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.