Vísir - 12.11.1963, Blaðsíða 2
2
VISIR . Þriðjudagur 12. nóvember 1963,
lllliliiiiipir
gU, % mm i!
5!L Jf *||. “1,
JÓN BIRGIR PÉTURSSON
Steinþór kennir stjörnunum áskíðum
Steinþór Jakobsson frá Isa-
firði ráðinn skólastjóri hjá
stórum skíðaskóla i BancJcs-
ríkjunum
Ævintýrið um unga manninn
sem lagði af stað út í hinn stóra
heim og freistaði gæfunnar á
vel við Steinþór Jakobsson,
skiðakappa frá ísafirði. Steinþór
Iagði nefnilega af stað út í hinn
stóra heim fyrir ári og nokkrum
dögum betur, lærði listir hjá
heimsfrægum sænskum skíða-
kennara og hefur nú verið ráð-
inn skólastjóri yfir 19 skíðakenn
urum á næststærsta skíðaskólan
um í miðvesturríkjum Banda-
rfkjanna.
Steinþór Jakobsson hefur um
árabil verið einn bezti skíðamað-
ur landsins og annálaður sem
góður skíðakennari og kenndi
m. a. gestum Skíðaskálans í
Hveradölum um skeið.
Þegar Steinþór kom til Banda-
ríkjanna í fyrrahaust, iagði hann
leið sína til Colorado-ríkis og
gerðist einn af mönnum Svíans
Sten Erikssons, sem rekur geysi
mikinn skíðaskóla í Aspen.
Þarna bætti Steinþór miklu við
það sem hann hafði áður numið
í skíðalistinni, lærði m. a. að
stökkva heljarstökk á skíðum.
í sumar kom forstjóri næst-
stærsta skóla mið-vesturrfkj-
anna til Steinþórs og bauð hon-
um stöðu skólastjóra hjá sér.
Tók Steinþór boðinu og fór með
forstjóranum í mikla auglýsinga-
ferð um Bandarfkin í sumar.
Skíðaskóli Steinþórs er f bæn-
um Cadillac í Michigan ,og heit-
ir Caberface. Skólinn hefur
starfað í 25 ár og ræður yfir
landi sem er 580 ekrur að
stærð. Skólinn hefur yfir mikl-
um mannvirkjum að ráða, og t.
d. þarf vart að kvíða snjóleysi,
því þar er að finna stóra snjó-
vél til að framleiða snjó ef með
þarf.
Margt frægt fólk gistir skíða-
hótelið og skólann í Caberface,
og á myndinni sem fylgir er
Steinþór með einum nemenda
sinna, kvikmyndaleikkonu, sem
við treystum okkur ekki til að
nafngreina.
á aðeins 4 dögum
Sheffield United er efst i J. deild
uðu áhorfendur sér sómasamlega
að þessu sinni, aðeins pappír og
brauði(!) var kastað í leikmenn, en
engum örvum var fleygt inn á
leikvanginn. Á velli Leyton Orient
var maður hins vegar handsamaður
fyrir að kasta ör (dart), sem lenti
í öðrum innherja Northampton og
særði hann, þó ekki hættulega.
Ipswich lék á heimavelli um helg-
ina, en enn einu sinni varð liðið að
uppskera tap, 0 — 2, fyrir Stoke
City, sem var nokkuð neðarlega í
deildinni en er nú með 15 stig eft-
ir 17 leiki. Ipswich hefur aðeins
unnið einn leik á þessu keppnis-
tímabili en hefur 5 stig eftir 17
leiki. Næst á undan- og í stórri fall-
hættu er Bolton með 7 stig. Bolton
en tapaði fyrir Liverpool með 2 — 1.
í 2. deild er Leeds efst með 26
stig eftir 17 leiki, tók forystuna
af Sunderland eftir sigur sinn yfir
Grimsby með 2 —0 á útivelli. Sund-
erland hefur sömu stigatölu en er
með einum fleiri leiki, eða 18.
Sunderland gerði um helgina jafn-
tefli við Preston, sem er í 3. sæti
með 25 stig eftir 17 leiki. Swindon
gerði jafntefli um helgina á úti-
velli hjá Middlesborough og er í
fjórða sæti.
í Skotlandi eru Rangers efstir
eftir 11 umferðir með 20 stig, en
Kilmarnock er með 19 stig og Dun-
dee með 16 stig. St. Mirren tapaði
um helgina fyrir Edinborgarliðinu
Hearts með 1 — 5 og er nú í 7.
átti einnig heimaleik um helgina | sæti með 12 stig.
Denis Law, hinn stórkost-
legi innherji Manch. Uni-
ted, er sannarlega virði
hinna 115.000 sterlings-
punda, sem United gaf fyr-
ir hann. Law skoraði í síð-
ustu viku alls 7 mörk á
þrem dögum. Fyrst 4 gegn
Noregi í landsleik Noregs
og Skotlands á Hampden
Park, en honum lauk 6-1
fyrir Skotland, og á laug-
ardag bætti Law síðan við
brem mörkum í 4—1 sigr-
inum yfir Tottenham og
átti stærstan þáttinn í 4.
markinu. Brezku blöðin
hæla Law á hvert reipi fyr-
ir leikinn og segja að eng-
in bönd geti haldið honum.
Sheffield United eru enn efstir
í 1. deild í Englandi. Þeir unnu um
helgina Leichester á heimavelli
hinna síðarn. og hafa nú 24 stig eft-
ir 17 leiki. Sheffield var annars
heppið að vinna þennan leik, en
markið skoraði Keith Kettlebor-
uogh seint í seinni hálfleik. Lei-
cester hefur aðeins fengið 3 stig
út úr 5 siðustu heimaleikjum sin-
um, en er um miðbik deildarinnar
með 17 stig eftir jafnmarga Ieiki.
Arsenal er nú í öðru sæti keppn-
innar með 23 stig eftir 18 leiki, en
Arsenal náði aðeins jafntefli heima
gegn West Ham, 3 — 3, en nær 58
þús. manns horfðu á mjög spenn-
andi viðureign liðanna. Leikir Ars-
enal og West Ham á Highbury eru
alltaf skemmtiiegir og West Ham
I 1 I ! !
hefur ekki tapað þar leik síðan
1932. Einu stigi á eftir Arsenal
kemur Manch. United eftir hinn
frækilega sigur yfir Tottenham og
er með 22 stig eftir 17 leiki.
Furðulegustu úrslit helgarinnar
voru e. t. v. tap Everton á heima-
velli sínum Coodison Park gegn
Blackburn 4 — 2, sem skaut Black-
burn upp fyrir Everton í 4.-7.
sæti ásamt Liverpool, Tottenham og
Burnley. Everton hefur síðan í
febrúar 1961 aðeins tvisvar tapað
deildaleik á heimavellinum, báðum
á þessum vetri. Everton er í 8.
sæti með 20 stig eftir 16 leiki. Markvörður Aston Villa bjargar þarna skoti frá framvörðum Fulham á Craven Cottage vellinum. Fulham
Þrátt fyrir ósigur heimaliðsins hög- vann leikinn 2:0 og krækti sér í dýrmæt stig, því liðið hefur verið í nánd við botninn undanfarið.
mmt'áí