Vísir - 12.11.1963, Side 8

Vísir - 12.11.1963, Side 8
8 V í SIR . Þriðjudagur 12. nóvember 1963. VISIR Utgéíandi: Blaðaútgáfan VISIE. Ritstjóri: Gunnar G. SchraŒ. ASstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Þorsteinn 0. Thorarensen Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði. í lausasölu 5 kr. eint. — Slmi 11660 (5 línur). Prentsmiðja Visis. — Edda h.f. Nauðsyn heildarsamninga í ræðu á Varðarfundi fyrir skömmu drap dóms- málaráðherra Bjarni Benediktsson á það hve mikið skorti að unnt væri að gera heildarsamninga vinnu- veitenda og launþega, en mörg sambönd og aðilar eru þar í fyrirsvari eins og málum er háttað í dag. Þetta hefir það í för með sér að öll samningsgerð verður mun erfiðari þar sem við marga aðila þarf að semja og einnig hitt að ósamræmi skapast oft milli hinna einstöku félaga sem kallar á ótímabærar vinnu- deilur. Því er brýn nauðsyn á að bæði launþegar og vinnu veitendur taki skipulag samtaka sinna til endurskoðun- ar og komi því svo fyrir að unnt verði að gera heildar- samninga milli mun færri aðila en nú tíðkast. Það ó- fremdar ástand þarf að útiloka að hver smár starfs- hópur í sömu atvinnugrein semji fyrir sig, oft til mis- langs tíma. Afleiðingar þess verða gjarnan þær að lítið verklýðsfélag stöðvar starfsemi fleiri launþega eins og dæmin sýndu er þernur stöðvuðu verzlunarflotann. Annar þáttur þessa máls er ekki síður mikilsverð- ur. Því þarf að koma á að samið verði við launþega til mun lengri tíma en áður hefir tíðkazt hér á landi. Það skapar frið á vinnumarkaðinum og kemur í veg fyrir tíðar vinnudeilur, og það launatap sem þær hafa jafnan í för með sér. Við þá víðtæku samningagerð sem nú er í undir- búningi þarf þetta að vera eitt meginsjónarmiðið, ef vel á að takast til. Nýjar kjarabótaleiðir Mánaðarfrestinn þarf að nota vel, sagði Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra í viðtali við Vísi í gær. Það eru orð að sönnu. Megintilgangur ríkisstjórn- arinnar hefir frá öndverðu verið sá að koma á samn- ingum atvinnurekenda og launþega, um kjaramálin, jafnframt því að fundin verði frambúðarlausn á efna- hagsvanda þjóðarinnar í dag. Á það hefir oft verið bent að kauphækkanir einar eru ekki raunhæfastar kjarabótaleiðin. Það sýnir saga undanfarinna ára. Hér þarf því að brjóta nýjar brautir til þess að auka hlutdeild launþega í þjóðartekjunum. Þar eru ýmis ráð tiltæk. Efst á blaði eru ívilnanir í skatta og útsvarsmálum, ásamt auknum fjölskyldubótum. Veru- leg útsvarslækkun á lágtekjum er raunhæf kjarabót. í annan stað færir ákvæðisvinna og hlutdeildarfyrir- komulagið miklar kjarabætur ef rétt er á haldið. Og sama má segja um vinnuhagræðingu. Þessi mál eru enn á frumstigi hér á landi. En reynsla nágrannaþjóðanna sýnir að slík úrræði er sjálf sagt að innleiða hér í ríkum mæli. LUXEMBO N \ k» ý/ ■ \ \\ » ,' ; ^ tv^i 'M i* ,j 'sy- X\ mta / // ( \ / , tbuutte mta «-f. ^ . ' ■' :Wr ■iaJ' / ''*"||j \. u uxu Mn M. niAíírsn."in'te'Jli I kl ■ r > ' '&'££+> MK -—■' 9$ vat* . rojjRrwT. öt 'm /■ ' rwwr.i k* aí*_____ .,44. mrmtn ttt <* fj.' ....i-llÉIÍIlP U.vlUf»>W4HWW>4|IIM W '4 ttítm tu ** , sTMjawa; : mttn míb m tm M ///ftl :;V.\ . '*• TtíM XV \ ■:/. \' ■ .„, / l!\ \k'k .\ \ “ ■ \ ISUWMf TVa v \ '. tímu va a uiz ttAV h ■■'■-'" K • as iWa :>• ■ / f j V : cmsa w> v í . " j' tam «s»* ■ ,\ x ^ ■L, 'fá ^ " f J j •■> :•: 1 4' Btt tá tx ../. Uppdráttur ferðamálaskrifstofu Luxemborgar, sem sýnir ríkið sem feröamiðju Evrópu. 'É'g var einn 1 hópi ellefu ís- lenzkra blaðamanna sem dvöldust í vikutíma, síðustu viku, í smáríkinu Luxemburg. Það voru Loftleiðir sem buðu okkur í þessa ferð, þar sem fé- laginu fannst tfmi til þess kom- inn, að íslenzkir blaðamenn og blaðalesendur þar með fengju tækifæri til að kynnast nokkru nánar þessu litla, myndarlega ríki, sem hefur nú hafið sam- starf um að auka farþegaferðir sem mest með hinu íslenzka flugfélagi. Sigurður Magnússon fulltrúi I.oftleiða fylgdi okkur í þessari ferð. Hann skýrði okkur frá því, að það hefði fyrst verið fyrir níu árum, sem Loftleiðir hefðu hafið flugferðir til Lux- emborgar. Hafði hann þá farið smiðju í Evrópu, sem framleiðir hvorki meira né minna en eina milljón smálesta af járni og stáli á ári. Það var margt sem kom álíka skemmtilega á óvart í ferðinni. Við komumst að þvf, að Lux- emborgarar eru engin einangruð smáþjóð, heldur sannkallaðir heimsborgarar. Peir hafa verið djarfir að notfæra sér erlent fjármagn, sem hefur síðan stuðl- að að því að gera lífskjörin í litla landinu ennþá betri en f flestum öðrum löndum Evrópu. íyförg dæmi má nefna um þetta, svo sem hina risa- vöxnu hjólbarðaverksmiðju, sem bandaríska Goodyear fyrirtækið hinum fegursta rósagarði og sögðu landsmenn með nokkru stolti, að í honum væru fleiri tegundir af rósum, en í nokkr- um öðrum garði í Evrópu. Fegursta og stærsta rósin var afbrigði, sem hafði verið gefið heitið „Rós Karlottu stórher- togaynju", en hún er þjóðhöfð- ingi Luxemborgar. Enn má bæta við dæmi um hina sérstöku að- stöðu Luxemborgara. Land rósa- >4jarðsins var þröngt/ og var Vpví jákveðið að kaupa allstóra “landspildu af Frakklándi, sem var handan við mjótt sfki. Þannig stækkuðu þeir Luxem- borg með einu pennastriki, og lögðu kínverskar skrautbrýr yfir síkið, upplýstar með ljós- kerum. hliðið að Evrópu þangað til þess að kynnast land- inu. Hann vissi þá fátt um það, ímyndaði sér að þar væri allt smátt í sniðum, einangrunar- svipur héraðs eða sveitar á því og smábæjarbragur á öllu. En Luxemborg kom skemmtilega á óvart og sama held ég að sé hægt áð segja um okkur alla, sem tókum þátt í þessari ferð, að við undruðumst þann svip fjölbreytni og myndarskapar sem þarna var á öllu. T flugvélinni á leiðinni út vor- '4 um við að tala saman um það f gamni, að heldur hlyti að vera ómerkilegt að heimsækja slíkt dvergrfki sem stórhertoga- dæmið Luxemborg, hvort það væri ekki álíka og að fara í heimsókn austur á Egilsstaði til ? Sveins „stórhertoga". Það má því geta nærri, að það kom okk- ur talsvert á óvart, að fá tæki- færi til að heimsækja í dverg- rfkinu eina stærstu stálverk- hefur reist þar í einum dalnum. Goodyear hafði fyrir nokkrum árum hug á að koma sér upp verksmiðju í Evrópu og var langt komið með allan undir- búning að reisa hana í Hollandi. Aðeins var eftir að leysa eitt vandamál, það var hvar verk- smiðjan ætti að fá lóð og hvað hún skyldi kosta, en verk- smiðjulóðir eru mjög dýrar í Hollandi. En þá lét stjórn Lux- emborgar krók koma á móti bragði, hún sneri sér til Goodyear og sagði fyrirtækinu: „Við skulum skaffa ykkur lóð ókeypis, gerið svo vel“, og verksmiðjan var reist þar. Annað dæmi um kænlega framkvæmd Luxemborgara er hin mikla bað og heilsustöð, sem reist hefur verið í þorpinu Mondorf suður við landamæri Frakklands. Þar fannst lind 25 stiga heit og hún hefur nú orðið undirstaða að geysimiklu heilsu hæli, sem fólk frá Þýzkalandi þryptist til. Umhverfis heilsu- hælið hefur verið komið upp Camstarf Luxemborgara við íslendinga, sem nú er hafið líta þeir á með sama hætti. Þeir vita, að stóru flugfélögin f hinum stærri löndum Evrópu hafa andúð á Loftleiðum og hindra að Islendingar fái loft- ferðaleyfi fyrir þetta félag. En forstjóri ferðaskrifstofu Luxem- borgar, sem við hittum, sagði að þeim kæmi ekkert við, hvað stóru flugfélögin segðu. Það væri staðreynd, að ferðir Loft- leiða til Luxemborgar myndu auka ferðamannastrauminn til ríkisins, stuðla að þvf, að Lux- emborg yrði að miðstöð Ame- ríkuferða. Hvað varðar okkur þá um þó Air France eða Luft- hansaygglisig. Okkarlandamæri eru öllum opin og við fögnum því að Loftleiðir fá fjölda flug- farþega frá Frankfurt, Briissel og París. Luxemborgararnir sýndu okk- ur í þessu sambandi auglýsinga spjald, sem þeir hafa gert. Það sýnir nokkurn veginn þær Framh. á bls. 5. eftir Þorstein Ó. T horarensen

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.