Vísir - 13.11.1963, Síða 1

Vísir - 13.11.1963, Síða 1
í gærkvöldi gaf forsætisráðherra Ólafur Thors út tilkynningu um það, að hann hefði ákveðið að biðjast lausnar frá embætti sínu. Læknar hans hafa ráðlagt honum að taka sér algjöra hvíld frá störfum í nokkra mánuði. ] Vísir átti í morgun stutt samtal við Ólaf Thors í tiiefni þess að hann lætur nú af enibætti. Fórust honum orð á þessa leið: „Ráðherrastarfið er líkt framkvæmdastjórastöðu í stóru fyrirtæki. Því starfi hefi ég haft ánægju af og mun sakna þess. En eins og ég sagði við Morgunblaðið í gær gat ég ekki innt af hendi skyldustörfin án langrar hvíld- ar og var þá ekki um annað að ræða en hætta, því forsætisráðherra er til þess að stýra förinni. Annað segi ég ekki í bili, því að ef ég fer að leysa frá skjóðunni veit ég ekki hvað velia skal af öilu, sem þar er geymt. Efst er mér þó í huga þakklætið til Sjálfsíæðismanna. Ég kveð félaga mína í ríkisstjórft og alla samstarfsmenn með þakklæti og bið þeim blessunar“. 5 í gær var það samþykkt með samhljóða atkvæðum að óska eftir því að Bjarni Benedikts- son formaður Sjálfstæðisflokks- ins tæki við embætti forsætis- ráðherra. Jafnframt voru Ólafi Thors fluttar þakkir fyrir merkt starf hans f þágu flokks og þjóð ar. Alþýðuflokkurinn hélt þing- flokksfund á sama tíma f gær. Par var samþykkt í einu hljóði, samkvæmt yfirlýsingu formanns þingflokksins Emils Jónssonar, að afstaða Alþýðuflokksins til stjórnarsamstarfsins um núver- andi ríkisstjórn væri óbreytt þar sem heilsufarsástæður ein- ar réðu lausnarbeiðni forsætis- ráðherra. Gert er ráð fyrir því að for- seti Islands muni f dag fela Bjarna Bcnediktssyni að taka við forsæti ríkisstjómarinnar og muni formlega gengið frá því á morgun á ríkisráðsfundi. Ólafur Thors hefir gegnt for- sætisráðherraemhætti í fimm rikisstjórnum. Vorið 1942 mynd aði hann flokksstjóm Sjálfstæð isflokksins sem fór með völd til ársloka það ár. Árið 1944 myndaði hann ný- sköpunarstjórnina og gegndi þar bæði embætti forsætisráð- herra og utanrikisráðherra. Sú stjóm sat að völdum þar til í ársbyrjun 1947. í byrjun des- ember 1949 myndaði Ólafur Thors þriðja ráðuneyti sitt. Var það minnihlutastjórn Sjálfstæð- isflokksins og fór hún með völd þar til f marz 1950. Sumarið 1953 myndaði Ólafur Thors fjórða rððuneyti sitt, sem var samsteypustjórn Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknarflokks- ins. Sat sú stjóm að völdum þar til á miðju ári 1956. Fimmta ráðuneyti Ólafs Thors er núver andi ríkisstjórn, sem farið hef- ir með völd síðan haustið 1959. Tilkynning forsætis- ráðherra. Hér fer á eftir tilkynning for- sætisráðherra ,sem hann birti í gærkvöldi: „Læknar mínir hafa tjáð mér, að mér sé nauðsynlegt að taka mér algera hvíld frá störfum í nokkra mánuði. Ég get því ckki unnið að lausn hinna ýmsu vandamála, sem framundan bíða. Haustið 1961 stóð svipað á fyrir mér. Tók ég mér þá hvíld frá störfum í þrjá mánuði. Ég tel ekki rétt að hafa sama hátt á nú og hef því ákveðið að biðjast lausnar fr embætti mínu. Reykjavík, 12. nóvember 1963. Ólafur Thors“. Á fundi þingflokks Sjálfstæð- isflokksins sem haldinn var kl. Bjami Benediktsson, dómsmálaráðherra, tekur við embætti forsætisráðherra á morgun. Ólafur Thors, forsætisráðherra Hefir Ólafur Thors því gegnt forsætisráðherraembætti f 5 ráðuneytum eða oftar en nokk ur annar Islendingur. Fyrst varð Ólafur Thors ráð- herra í rfkisstjórn Ásgeirs Ás- geirssonar árið 1932. Árið 1939 varð hann atvinnumálaráðherra í þjóðstjórninni og gegndi því embætti til vors 1942, er hann varð fyrsta sinni forsætisráð- herra. Auk þess gegndi hann störfum atvinnumálaráðherra í stjórn Steingríms Steinþórsson- ar 1950-1953. Fy.-st var Ólafur Thors kjör- inn á þing árið 1925 fyrir Gull- bringu- og Kjósarsýslu og var þingmaður þess kjördæmis óslit ið þar til kjördæmaskipuninni var breytt 1959. Pá varð hann 1. þingmaður hins nýja Reykjanes- kjördæ nis og hefir verið það síðan. Hann hefir setið lengst allra þingmanna á Alþingi eða sam- tals á 46 þingum og er nú aldurs forseti þingsins, 71 árs að aldri. Ólafur Thors mun áfram gegna þingmennsku, þótt hann hafi sagt af sér embætti försæt- isráðherra. Formaður Sjálfstæðisflokksins varð Ólafur Thors árið 1934 og fór óslitið með formennsku flokksins þar til 1961 er Bjarni Benediktsson var kjörinn for- maður Sjálfstæðisflokksins. Um forsætisráðherraskiptin er rætt í forustugrein blaðsins f dag.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.