Vísir - 13.11.1963, Page 3
V1SIR . Miðvikudagur 13. nóvember 1963,
3
.^v.v,.v^v^v.>w.:.. wrttowwywjgfti
& M
; V ' '
: *í
Í|- ÉM
ÍÍÍÍÁÍ-Í - ■> <■• í jí ^
' «c > " J.
:
FYRSTA VETRAR-
WrJgna
iiSLxai
Gullfoss fór í fyrstu vetrar-
ferðina 1. þ. m. Burtför hafði
seinkað um einn dag, og olli
það engum vonbrigðum, er burt-
farardagurinn rann upp heiður
og fagur í stilltu veðri, enda
var sólskinsbros á hverju and-
FERÐ
liti, er farþegar voru að stíga
á skipsfjöl, fólk á öllum aldri,
sumt með börn, og hafði eitt-
hvað af þessu fólki farið vetrar-
ferð á Gullfossi í fyrra og h'kað
sv.o vel, að nú þótti sjálfsagt að
fara aftur, þeirra meðal tvenn
hjón o. fl.
Tíðindamaður frá Vísi og ljós-
myndari skruppu um borð og
fengu ýmsar upplýsingar hjá
Kristjáni Aðalsteinssyni skip-
stjóra og Sigurlaugi Kristjáns-
syni og eru þessar helztar í
stuttu máli.
Heita má, að hvert rúm sé
skipað þegar í næstu vetrar-
ferð, en tvær þær fyrstu eru
farnar fyrir áramót og þá bæði
1. og 2. farrými í notkun.
GULLFOSS
nóælslð nnitenf><l • ití inunnöm .rnunu. .. • >v =
Af 157 farþegum í férðínni,
sem nú stendur yfir, fara 130
báðar leiðir.
Siglt er beint til Hamborgar
og þar dvalizt sólarhring —
þaðan til Kaupmannahafnar og
dvalizt þar í 5 sólarhringa, og
á meðan mikið gert til þess að
greiða fyrir farþegum, skipu-
lagðar ferðir um íslendingaslóð-
lr 1 Khöfn og um Sjáland o. s.
frv. Gist er í skipinu. Algengast
fargjald (báðar leiðir, allt inni-
falið) á 1. farrými er 5870
krónur.
Vetrarferðimar verða nú alls
7. — Þetta nýmæli var tekið
upp í fyrra .og var almenn á-
nægja með það. Og ekkert
bendir til annars en enn vax-
andi vinsælda með þessar ferð-
ir.
★
Efsta myndin er af farþegum,
er þeir stíga á skipsfjöl, mið-
myndin er af Hersveini Þor-
steinssyni skósmíðameistara og
konu hans Margréti Helgadótt-
ur, en á myndinni neðst til
vinstri eru hjónin frú Bryndís
og Georg Hólm og sonur þeirra
Haukur, sem — að því er blað-
ið bezt veit, — var yngsti far-
þeginn, — en manninn til hægri
þekkja víst allir, — en þar er
Sigfús Halldórsson tón-
skáld, þegar börnin em að
kveðja pabba, sem var að fara
í aðra vetrarferð sina með Gull-
fossi.