Vísir - 13.11.1963, Side 16
Miðvikudagur 13. nðv. 1963
Athöfn vegna
þriggja afda af-
mæfis Arna
Magnússonar
Þessi mynd var tekin við opnun sjálfvirku stöðvarinnar í Kópavogi. Frá vinstrk Sigurgeir Jónsson, bæjarfógeti i Kópavogi, Sigurjón Bjöms-
son, forstöðumaður pósts og sfma í Kópavogi, Hjálmar Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, Bragi Kristjánsson forstjóri rekstursdeildar pósts og
sfma og Gunnlaugur Briem póst- og símamálastjóri.
Markmiðið er sjálfvirkt
símakerfi fyrir allt landið
Háskóli lslands og Handritastofn-
un íslands gangast fyrir athöfn í
hátíðasal Háskólans á þriggja alda
afmæli Árna Magnússonar í dag,
13. nóvember klukkan 5.30. Þar
flytur forstöðumaður Handritastofn
unar, dr. Einar Ól. Sveinsson pró-
fessor fyrirlestur um Árna Magnús-
son, ævi hans og störf.
öllum er heimill aðgangur að at-
höfn þessari.
Einar Olatur Svemsson.
Á miðnætti aðfaranætur sunnu-
dagsins 3. þ.m. var tekin í notkun
sjálfvirka símstöðin í Kópavogi.
Var hún sýnd gestum daginn eftir
og flutti Bjarni Forberg bæjarsíma
stjóri ræðu við það tækifæri og
ræddi þróunlna í sfmamálum, hinn
nýja áfanga og horfur.,
Bæjarsímastjóri minntist á, að
fyrir nokkrum árum hefði af opin-
berri hálfu verið lýst yfir, að allt
símakerfi landsins skyldi verða
sjálfvirkt. Með Kópavogsst. væri
merkum áfanga náð á þeirri leið.
Str:rð stöðvarinnar er nú 2000
númer, en þeim má fjölga í núver-
andi húsakynnum í 5000 númer.
Næsta skref verður að stækka hús
ið með framhaldsbyggingu, þannig
að 10.000 númera stöð fáist, en
Bretlandsför forseta ls-
lands hefst á mánudaginn
Næstkomandi mánudag
mun forseti íslands Ásgeir
Ásgeirsson og forsetafrúin
fara í opinbera heimsókn
til Bretlands. Utanríkisráð-
herra Guðmundur í. Guð-
mundsson og forsetaritari
Þorleifur Thorlacius verða
með í förinni.
Lagt verður af stað frá Reykja
vlkurflugvelli á mánudagsmorg-
un með flugvél Loftleiða og flog
ið rakleitt til Lundúna, Þar
verður lent á Gatwick-flugvell-
inum, en ekið þaðan með járn-
brautarlest til Viktoria-járn-
brautarstöðvarinnar, þar sem
formleg móttaka verður. Þar
munu Sir Douglas Home fors.-
ráðherra og Butler utanríkisráð-
herra taka á móti gestunum.
Hin opinbera heimsókn stend-
ur yfir dagana 18. —22. nóv. og
munu forsetahjónin m.a. sitja há
degisverðarboð Ellsabetar
drottningar og kvöldverðarboð
Sir Douglas Home forsætisráð-
herra og borgarsjórans, Lord
Mayor I London.
Þá mun forseti heimsækja
brezka þingið, British Museum
og listasafnið Tate Gallery.
Ennfremur mun hann dveljast
Framh. á bls. 5.
stærð stöðva er oft miðuð við þá
tölu. Núverandi gólfflötur tengi-
grindar og einnig hleðsiutöflu- og
rafmagnsherbergis er fyrir 10.000
númer, svo að það pláss þarf ekki
að stækka.
Öllum símabúnaði stöðvarinnar
er komið fyrir á annarri hæð, einn-
ig tengihylkjum jarðslmanna með
rennu eða gangi gegnum fyrstu
hæð I gangstétt Digranesvegar.
Seinna meir er svo ætlunin að
ieggja stokkakerfi út frá þessum
grunni um bæjarkerfið.
Rafgeymar stöðvarinnar eru
tveir, 48 og 1365 ampertíma hvor
- annar til vara - en þó báðir I
•notkun samtímis. Ættu þessir raf-
geymar að nægja nokkra sólar-
hringa þótt rafveitan bilaði. Jarð-
símallnur út frá símstöðinni eru
til 4400 notenda. Loftlínur eru enn
margar I Kópavogi, en það verður
unnið að því á næsta ári að leggja
þær I jörðu. Milli Kópavogsstöðv-
ar og miðbæjarstöðvar I Reykjavík
hefir verið lagður sérstakur 500
lfnu strengur, en aðeins þarf að
nota 203 línur fyrir 2000 númer.
Hinar eru ætlaðar fyrir framtíðar-
stækkun stöðvarinnar. Milli Kópa-
vogs og Hafnarfjarðar eru 27 línur.
— Húsið er tvær hæðir. Flatarmál
fyrstu hæðar er 292.2 ferm. annarr
ar hæðar 346.7 ferm og rúmmál
Framh á bls. 5.
STÓRÞJÓFNAÐ-
UR UPPL ÝSTUR
Stórþjófnaður, sem framinn var
um miðjan dag 24. okt. s. 1. f
skrifstofu Heildverzlunar Kr. Ó.
Skagfjörðs, Tryggvagötu 4, er nú
upplýstur. Má segja að það hafi
Tollgæzlan stórefld / nýrri
vörugeymslu hafnarinnar
ÞEGAR hið nýja vöru-
geymsluhús Reykjavík-
urhafnar á Grandagarði
verður tekið í notkun í
vetur, mun aðstaða Toll-
gæzlunnar batna mjög
mikið, sagði Unnsteinn
Beck yfirmaður Toll-
gæzlunnar í viðtali við
Vísi í gær. Kvað Unn-
steinn unnt að stórefla
eftirlit Tollgæzlunnar
við tilkomu hins nýja
geymsluhúss.
Ákveðið hefur verið að leigja
Eimskipafélagi íslands hið nýja
vörugeymsluhús Reykjavlkur-
hafnar. Áður hafði Eimskip sótt
um að fá að byggja vörugeymsl
ur I örfirisey, en borgaryfirvöld-
in töldu sig ekki geta veitt Eim-
skip athafnasvæði þar vegna
þess, að fiskiðnaðurinn þyrfti á
þvl svæði að halda. Þegar á-
kveðið hafði verið að Reykja-
vlkurhöfn byggði vörugeymslu
á Grandagarði var jafnframt á-
kveðið, að Eimskip fengi það á
leigu vegna hins mikla skorts
félagsins á geymslurými.
Tollgæzlan hefur lengi haft
hug á að byggja geymslur, er
auðveldað gætu henni tollskoð-
Framh. á bls. 5.
atvikazt vegna næmrar og góðrar
eftirtektar starfsstúlku í banka.
Þjófnaðurinn var framinn I há-
deginu umræddan dag. Menn sem
voru við vinnu I skrifstofunum
urðu þjófsins ekki varir og komst
hann óséður á brott með peninga-
kassa undir hendinni. 1 kassanum
voru mikil verðmæti, þ. á m. tæp-
lega 12 þús. kr. I seðlum, 60 — 70
þús. kr. I ávísunum, auk þess ávls-
anahefti óútfyllt, þar af eitt stimpl
að með stimpli fyrirtækisins, og
ýmis skjöl og plögg, sem voru verð
mæt fyrir fyrirtækið, en gagnslaus
þjófnum.
Seint I síðustu viku bar það við
að maður nokkur kom sama dag-
inn I þrjá banka hér 1 Reykjavík
með falsaðar ávísanir, allar með
stimpli Heildverzlunar Kr. Ó. Skag-
fjörðs, og vildi fá þær greiddar. í
einn bankann kom hann fyrir há-
degi, en hina tvo eftir hádegi.
Þegar maðurinn varð þess var
að fólk tók að athuga ávlsanirnar,
greip hann hræðsla og hraðaði sér
út. Þannig slapp hann út úr öllum
þrem bönkunum. En starfsstúlka
úr útibúi Landsbankans á Lang-
Framh. á bls. 5.
A