Vísir


Vísir - 14.11.1963, Qupperneq 1

Vísir - 14.11.1963, Qupperneq 1
CIDCOS VID VESTMANNACYJAR Lýsing frá flugferð fréttumunnu Vísis í morgun í morgun snemma hófst eldgos suðvestur af Vestmannaeyjum á að gizka 4 sjómílur frá Álfs- ey. Þegar leið á morguninn magnaðist gosið til muna, Ijós mökkur steig hátt til lofts, hækkaði stöðugt og var um 11 leytið kominn í um það hil 4000 metra hæð. Fréttamaður og Ijósmyndari Tómasi Tryggvasyni jarðfræð- frá Vísi fóru um 10-Ieytið í flug- ingi, og komu þeir aftur um há- vél á gosstöðvarnar, ásamt degi. Þegar komið var austur Þarna er um mikil eldsumbrot að ræða og Sáust eldglæringar eða leiftur í mekkinum endrum og eins, en þó ekki oft. Svartar gossúlur með vikri eða gjalli stigu stöðugt upp úr sjónum, mismun- andi háar en að því er fréttamanninum virtist, náðu þær á að gizka 50—100 metra hæð. fyrir fjall, sást ekkert annað en rétt áður en flugvélin kom upp dimmt mistur og skýjaþykkni til undir Vestmannaeyjar, að vart hafsins, og það var ekki fyrr en varð við reykjarsúluna stíga upp frá haffletinum. En síðan reis Ijósgrá reykjar- súla upp í um það bil 4000 metra hæð, eða 12 000 fet eftir mæling ingum, sem gerðar voru úr flug vél. Sjórinn litaðist á stóru svæði í kringum gossúluna og var þar mógrænskolaður á lit- inn, og stakk mjög í stúf við hinn eðlilega lit sævarins. Mistur náði til hafs svo Iangt sem auga eygði. Tómas Tryggvason jarðfræð- ingur telur að þarna sé um i Framh. á bls. 3. Ríkisráðsfundur / morgun Bltfðið í dág Bls. 3 Myndsjá frá eldgosinu. — 6 Heimdallarsíða. — 7 Námuslysið í Þýzkalandi. — 8 Furðuþotan brezka. — 9 Smygl hefir minnk- að. Samtal við Unn- stein Bech. Ríkisráðsritari gaf út eftirfarandi frétt um há- degisbilið í dag: Á fundi Ríkisráðs í dag féllst forseti íslands á beiðni Ólafs Thors um lausn frá embætti for- sætisráðherra af heilsufarsá- stæðum. Jafnframt skipaði for- seti dr. Bjarna Benediktsson for- sætisráðherra. Þá var Jóhann Hafstein al- þingismaður skipaður ráðherra í ráðuneyti fslands og fer hann með dóms- og kirkjumál og önn- ur ráðherrastörf, er dr. Bjarni Benediktsson hafði með hönd- um. Ríkisráðsritari. Reykjavík, 14. nóvember 1963. Birgir Thorlacius. Mynd þessi var tekin í morgun á ríkisráðsfundi. — Frá vinstri: Ingólfur Jónsson landbúnaðarráðherra, Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Birgir Thorlacius ríkis- ráðsritari, forseti fslands Ásgeir Ásgeirsson, Guðmundur í. Guðmundsson utanríkisráðherra, Ernil Jónsson sjávarútvegsmálaráðherra og Gylfi Þ. Gíslason viðsk iptamálaráðherra. Jóhann Hafstein dómsmálaráðherra var fjarverandi.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.