Vísir - 14.11.1963, Síða 5
5
VlSIR . Fimmtudagur 14. nóvember 1963.
Haukur Eyjólfsson
Kveðjuorð til skólafélaga og vinar
í dag fer fram frá Fossvogskap-
ellu útför Hauks Eyjólfssonar skrif-
stofustjóra.
Haukur andaðist að heimili sínu
fimmtudaginn 7. nóvember síðast-
iiðinn.
Honum varð að atlurtila sjúk-
dómur, er hann hafði kennt um
árabil.
Þeir, sem bezt þekktu Hauk vissu
gíörla, að hann gekk eigi heill til
skógar síðustu æviáfin, enda þótt
ungur hann væri að árum, kvikur
í hreyfingum og léti hvergi á sjá
eða fyrir finna í fasi eða framkomu
hversu þjáður hann var á stundum.
Haukur Eyjólfsson fæddist á
Seyðisfirði 16. marz 1915.
Foreldrar hans voru Sigríður
Jensdóttir og Eyjólfur Jónsson,
fyrrverandi útibússtjóri í íslands-
banka á Seyðisfirði.
Þau mætu heiðurshjón eru bæði
látin fyrir allmörgum árum.
í foreldrahúsum á annáiuðu
myndar- og rausnarheimili á Seyð-
isfirði ól Haukur barnæsku og
fyrstu þroskaárin fram yfir ferm-
ingaraldur. Þá leitaði hann að heim
an til höfuðborgarinnar til þess að
leita sér aukinnar menntunar og
meiri en kostur var á heima fyrir.
Að hausti 1931 þreytti Haukur
inntökupróf í annan bekk Verzlun-
arskóla Islands og leysti öll verk-
efni af hendi með ágætum.
Vorið 1933 lauk hann eftir
tveggja vetra nám brottfararprófi
frá skólanum og hlaut ágætan vitn
isburð og góðar einkunnir í öllum
námsgreinum.
Að námi loknu réðist Haukur tii
starfa í einni af stærri heildverzl-
unum borgarinnar og starfaði þar
um hríð.
Eftir það stofnsetti hann ásamt
Þotan —
Framhald af bls. 8.
brást þetta, flugvélin „prjónaði"
í loftinu, svo að trjónan stóð
nærri beint upp, og lyftitæki
(elevators) sem stjórna hreyf-
ingum flugvélarinnar á upp- og
niðurleið, — verkuðu ekki. Og
BAC-III hrapaði stjórnlaus til
jarðar, og ætla má að hinn
reyndi flugmaður hafi á þeim
augnablikum reynt allt, sem
honum hafði áður orðið nota-
drjúgt, er hann var í vanda í loft
sölum uppi, en sú varð ekki
reyndin í þetta skipti.
*
Félagið átti aðra slíka flug-
vél í smíðum og var hún nærri
fullgerð, er þetta slys varð. Það
var tilkynnt, að í engu yrði
breytt áformum um fyrstu
reynsluferð hennar, en ekki hafa
borizt fréttir um það enn, að
hún hafi verið farin.
Nýlega gerði kanadiska flug-
félagið Trans Canada Airlines
mikla pöntun á bandarískum far
þegaþotum — og það var tekið
frarri, að það hefði engin áhrif
haft á ákvörðunina um þau
kaup, að fyrsta BAC-III far-
þegaþotan fórst, en það er vitað,
að gert var ráð fyrir miklum
sölumöguleikum á BAC-III í
Bandaríkjunum og Kanada. Og
allar götur er þetta mikið áfall
fyrir brezka flugvélaiðnaðinn.
starfsfélaga sínum íslenzk-erlenda
verzlunarfélagið.
Nokkru síðar lauk samstarfi
þeirra félaga og réðist Haukur þá
í þjónustu Reykjavíkurborgar, er
hann starfaði hjá f nærri tvo ára-
tugi.
Lengst af var hann fulltrúi hita-
veitustjóra, síðan skrifstofustjóri
innkaupastofnunar borgarinnar allt
til þess að hann fyrir nokkru síðan
réðist til starfa í lögfræðiskrif-
stofu hér í borg.
Kynni okkar Hauks Eyjólfsson-
ar hófust haustið 1931 í Verzlun-
arskóla Islands. Báðir vorum við
nýsveinar, er settumst þá í annan
bekk, en eigi í sömu deild.
Fundum okkar bar þó oft sam-
an þá tvo vetur, er við vorum sam-
an í skólanum. Við tókum báðir
mikinn og virkan þátt í málfund-
um og margvíslegu félagslífi í skól-
anum, sem þá stóð með miklum
blóma og var öflugt.
Oft á tíðum vorum við Haukur
ekki sammála á fundum og all
harðskeyttir hvor í annars garð.
Orðaskipti okkar urðu þó aldrei
til illinda eða togstreitu milli
bekkjadeilda heldur miklu fremur
til þess að vekja og kalla fram
áhuga og hispurslausar umræður
og skoðanir á sérhverju dægurmáli
líðandi stunda.
Haukur Eyjólfsson yar ákaflega
aðlaðandi og góður skólafélagi.
Námsmaður var hann ágætur, ein-
lægur og tryggur í öllum samskipt-
um Og vináttu. Gegiium állt lífið
fylgdu honum þessir góðu óg
drenglunduðu eiginleikar.
Haukur var skapmaður mikill,
harðsnúinn og einbeittur í skoðun-
um um menn og málefni, þegar
því var að skipta. Stefnufestu hans
fylgdi ávallt einlæg sannfæring.
Haukur var áhugamaður um fé-
lagsmál og lét víða að sér kveða á
þeim vettvangi.
Enda komst hann fljótt og fyrir-
hafnarlaust til forystu, þar sem
hann lagði lið sitt fram til félags-
málastarfa.
Einkum áttu íþróttir mikil og
sterk ítök í Hauki, enda sjálfur
góður íþróttamaður. Á skólaárun-
um í Verzlunarskóla íslands var
hann einn snjallasti og slyngasti
fimleikamaður skólans.
Framhald af bls. 9.
að taka úr því sex þúsund og láta
undir útvarpstæki þar 1 herberg-
inu, en skilja eitt þúsund krónur
eftir í veskinu. Með þær ætlaði
hann út um kvöldið.
Áður en varði var gesturinn guf
aður upp og með honum allir pen-
ingarnir úr veskinu, sjö þúsund
krónur. Húsráðandi kærði stuldinn
til lögreglunnar og við rannsókn
kom í ljós að enginn maður, sem
gæti verið þjófurinn, hafi gist Hótel
Sögu.
Svo leið og beið þar til s. 1.
föstudagskvöld að húsráðandi taldi
sig hafa séð gest sinn frá miðjum
október á förnum vegi í Reykjavík.
Gat hann gert lögreglunni aðvart
og handtók hún manninn og flutti
í geymslu.
Við yfirheyrslu daginn eftir
þrætti hinn handtekni lengi vel, en
þar kom þó um síðir að hann við-
urkenndi að hafa stolið peningun-
um og var þá svo vel fjáður að
hann gat borgað eigandanum aftur
sínar 7 þúsund krónur.
Snemma gerðist hann félagsmað-
ur í Knattspyrnufélaginu Víkingi
eftir að hann fluttist til Reykja-
víkur.
Var hann fljótlega kjörinn í
stjórn félagsins og formaður þess
um skeið. FuIItrúi félagsins var
hann á iþróttaþingum og valdist
til fleiri trúnaðarstarfa.
Mörg önnur félagsmál lét Hauk-
ur sig máli skipta og var m. a. for-
maður Austfirðingafélagsins i
Reykjavík, fulltrúi þess á þingum
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja og í stjórnum fleiri félaga.
Haukur kvæntist eftirlifandi konu
sinni, Ragnhildi Guðmundsdóttur
frá Djúpavogi 7. desember 1946.
Eignuðust þau tvo syni, Eyjólf,
16 ára, við nám í Verzlunarskóla
Islands, og Guðmund, 14 ára.
Áður en Haukur gekk í hjóna-
band eignaðist hann son, Atla, lög-
giltan endurskoðanda hér í borg.
Nú, á kveðjustundu, þegar Hauk-
ur Eyjólfsson er allur, reikar hug-
ur okkar skólasystkinanna, sem
brautskráðumst úr Verzlunarskóla
Islanfls voriljpij aft'
ur i timann og við rifjum upp
glaðværar samverustundir skólaár-
anna og alia tíð síðan, um leið og
við minnumst með söknuði og
syrgjum þá, sem horfnir eru úr
hópnum.
Við sendum í dag eiginkonu,
börnum og öllum ástvinum Hauks
Eyjólfssonar innilega hluttekningu
og samúðarkveðjur.
Adolf Björnsson.
Fjalllð —
Framhald af bls. -7
'J'alsverðar deilur hafa geisað
milli námuverkamannanna
og stjórnarinnar um fram-
kvæmdaratriði við leitina, og
blöðin gerðu sér talsverðan mat
úr þeim. Ludvig Erhard kanzl-
ari Vestur-Þýzkalands er búinn
að heimsækja Lengede og tala
við hina ellefu í nokkrar mín-
útur. Hann lofaði þeim því að
allt skyldi gert sem í mannlegu
valdi stæði til að bjarga þeim.
Þeir þökkuðu kanzlaranum og
kváðust vera rólegir. Ættingjar
og vinir eru hins vegar ekki í
rónni. Þó sér vart æðrumerki
á þeim.
En það gerðist kraftaverk,
sem varð til að bjarga hinum
ellefu, en ekki eingöngu það
sem í mannlegu valdi stóð. For-
ingi hinna ellefu hafði mælt
legu „dauðaholunnar". Otreikn-
ingum hans hafði „skeikað"
um 180 gráður, á þann hátt .að
hann kallaði norður það sem
var suður. Þessir útreikningar
komu þó ekki að sök. Ákveðið
hafði verið að bora talsvert frá
þeim stað sem mælt hafði verið
á. Það var gert til öryggis. En
áður en menn vissu af var bor-
inn kominn niður í „dauða
gryfjuna“. Og það án þess að
nokkuð alvarlegt gerðist. Síðan
voru félagarnir dregnir upp
hver af öðrum og fluttir í
I
i
Jónas G. Rafnar banka-
stjóri Utvegsbankans
Á fundi bankaráðs Otvegs-
banka íslands, sem haldinn var
kl. 10 í morgun, var samþykkt |
að ráða Jónas G. Rafnar, alþing |
ismann, bankastjóra í stað Jó- |
hanns Hafsteins, er skipaður hef 1
ur verið dómsmálaráðherra.
Jónas G. Rafnar er liðlega fer |
tugur að aldri. Hann lauk lög- |
fræðiprófi vorið 1946. Alþingis- i:
maður fyrir Akureyri var hann |
kjörinn 1949 og á nú sæti á fj
þingi fyrir Norðurlandskjör- F
dæmi eystra. Hann hefur gegnt |
fjölmörgum trúnaðarstörfum :
bæði í héraði og á þingi og er
nú formaður fjárveitinganefndar
Alþingis. Jónas G. Rafnar var
settur bankastjóri Útvegsbank-
ans hluta ársins 1961.
Jónas G. Rafnar bankastjóri
sjúkrahús. Þeir kröfðust þess
að fá að liggja allir saman f
stofu, þar sem þeir hefðu ver-
ið svo lengi saman í lífshættu.
Við þeirri ósk var orðið. Læknar
hafa sagt að líðan þeirra væri
Iangtum betri en búast hefði
mátt við.
Skekkjan í mælingunum gaf
tilefni til góðlátlegra hnipp-
inga. Blöð kommúnista vfða
um heim höfðu gagnrýnt stjórn
námunnar. Foringi námumanna
í Lengede sagði þá: Það getur
verið að við villumst stundum
á suðri og norðri en aldrei á
austri og vestri, og átti við að
hann og félagar hans Iétu sér
fátt um skrif austrænu press-
upnar finnast. '
Og nú er unnið af krafti í
Lengede að því að hreinsa. til
í járnnámunum. Námugröftur-
inn þarf að hefjast sem allra
fyrst. Allt er dottið í dúnalogn
að öðru leyti. Lengede verður
getið í annálum, en skyldu ekki
margir þegar vera búnir að
gleyma hinu frækilega björgun-
arafreki, þótt ekki sé langt um
liðið. Fólkið í Lengede þakkar
öllum, en það vill helzt gleyma
hættunum og skelfingunum.
Framh. af bls. 16.
verkalýðsfélaga munu síðan
hver um sig tilnefna fulltrúa í
samstarfsnefnd. En auk þess
munu prentarar og bókbindarar
tilnefna fulltrúa í samstarfs-
nefndina og Landssamband ís-
lenzkra verzlunarmanna einnig.
Mun samstarfsnefnd verkalýðs-
félaganna því að öllum líkindum
geta komið fram sem aðili allra
þeirra félaga, er nú eru með
lausa samninga og hefja vilja
samningaviðræður. Sennilega
verður samstarfsnefndin 10 — 15
manna nefnd.
Snorri Jónsson, framkvæmda-
stjóri ASÍ sagði í viðtalinu við
Vísi í morgun, að sennilegt
mætti telja, að fyrsti viðræðu-
fundur samstarfsnefndarinnar
við aðila yrði á morgun.
iélicim
Framh. af bls. 16.
síðan sem þingmaður Reykja-
víkur. Alls hefur hann setið á
19 þingum.
Jóhann JHafstein yar, skipaður
bankastjóri Útvegsbankans 1952
og lætur nú af því starfi, er
hann tekur við ráðherraembætti.
Síðari hluta árs 1931 gegndi
hann störfum . dómsmálaráð-
herra. Undanfarið hefur Jóhann
Hafstein setið þingmannafund
Atlantshafsbandalagsríkjanna í
París, en er væntanlegur heim
á morgun.
Þidfnaður
Á ' riðjudagsnóttina var
framið innbrot í söluskálann
undir Ingólfsfelli. Stolið var
nokkn. rnagni af vindlingum,
sælgæti ,svo og útvarpstæki og
teppi. í stöðvaði lögreglan
bifreið ,serr. tveir piltar voru í.
om þá í Ijós að varningur sá
sem stolið hafði verið úr sölu-
skálanum var í bifreiðinni. —
Málið er nú í rannsók hjá rann
sóknarlögreglunni og voru pilt-
arnis þar í yfirheyrslu í morg-
un.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Óska eftir 1—3 herb. íbúð. Skilvís greiðsla. Sími 21588.
IBÚÐ TIL LEIGU
3 herb. íbúð til leigu á bezta stað í bænum fyrir þann, sern getur eða
borgað fyrirfram allverulega fjáfupphæð strax. Tilgreind fjölskyldu-
stærð og um hve mikla fjárupphæð komi til greina. Tilboð sendist
Vísi fyrir 19. nóv., merkt „250“.
TRÉSMÍÐAVÉL - TIL SÖLIJ
Til sölu er lítii sambyggð vél, Sjopsmith, afréttari, 4 tommu hjólsög,
bor, hulsubor, rennibekkur, jukksög og pússiskífa 12 tommu. Sími 34411.
JÁRNBRAUT - LEIKFANG
Enskt rafdrifið Model-járnbrautarkerfi (Triang Scale Model) — til sölu.
Samanlögð brautarlengd 9 metrar. — Tvö rafdrifin og þrjú handstýrð
skiptispor. — Princess Victoria eimreið, kolavagn, tveir farþegavagnar
og brír vöruvagnar. — Fjarstýrisborð. — Selst á borði ásamt loftlampa
o. fl. — Verð kr. 3.200.00. Oppl. í síma 37600.