Vísir - 15.11.1963, Síða 6

Vísir - 15.11.1963, Síða 6
6 V1SIR . Föstudagur 15. nóvember 1963. mmmmnm^mmmnmmm^mmmmm Ríkisstjóíniai — Framh. af bls. 1. á forsetaúrskurði nr. 64 frá 20. nóvember 1959, að mér verði falið að gegna þeim ráðherra störfum, sem í þeim úrskurði voru falin Ölafi Thors, en Jó- hann Hafstein fari með þau mál efni, sem mér voru falin í nefnd- um úrskurði. í trausti þess, að fallizt verði á framangreinda til- lögu leyfi ég mér allra virðing- arfyllst, að leggja fyrir yður, herra forseti, til undirskriftar skipunarbréf handa Jóhanni Haf stein alþm. til að vera ráðherra f ráðuneyti Islands, svo og úr- skurð um breytingu á forseta- úrskurði frá 20. nóvember 1959 um skipun og skipting starfa ráðh. o. fl. 1 forsætisráðuneytinu 14. nóv- ember 1963, allra virðingarfyllst Bjarni Benediktsson, Birgir Thorlacius". Á þessa till. hefur forseti ís- lands einnig ritað: „Fellst á tillöguna. Ásgeir Ásgeirsson. Reykjavík 14. nóvember 1963“. Og jafnframt undirritaði hann skipunarbréf til handa Jóhanni Hafstein, til að vera ráðh. í ráðuneyti Islands. Og ennfremur forsetaúrskurð um breytingu á forsetaúrskurði frá 20. nóvem- ber 1959 um skipun og skipt- ingu starfa ráðh. o. fl., hljóðar hann svo: „Forseti Islands gerir kunn- ugt: Samkv. till. forsrh. er hér með gerð sú breyting á forsetaúr- skurði nr. 64 frá 20. nóvember 1959 um skipun og skipting starfa ráðherra o. að dr. Bjarni Benediktsson fer með for sætisráðherrastörf og önnur ráð herrastörf, er Ólafi Thors voru falin í nefndum úrskurði, en ráð herra Jóhann Hafstein fer með störf þau, er ráðh. Bjama Bene- diktssyni voru falin í nefndum forsetaúrskurði. Gjört í Reykjavík 14. nóvem- ber 1963, Ásgeir Ásgeirsson, Bjarni Benediktsson". Síðan mælti forsætisráðherra: Sú breyting, sem á ríkisstj. er orðin, hefur verið gerð vegna veikinda Ólafs Thors, en ekki af stjórnmálalegum ástæðum. Ný rikisstjóm hefur ekki verið mynduð, heldur kemur einungis maður í manns stað, svo sem ó- hjákvæmilegt er. Að öðru leyti er stjómin sú sama. Hún er studd af sömu flokkum og fylg- ir sömu stefnu og áður. Vfst er það mikii breyting, að Óiafur Thors skuli hafa látið af ráð- herrastörfum. Hann er nú aldurs forseti Alþingis, hefur setið lengst á þingi af núv. þm. og hefur frá upphafi verið í hópi , þeirra, sem mest hefur að kveð ! ið. 1 dag eru rétt 31 ár frá því, j að Óiafur Thors varð fyrst ráð-1 herra. — Tæpum 10 árum síð-' ar mync* íði hann sína fyrstu ríkisstjóm hina fyrstu af 5, sem hann hefur veitt forustu. Sem betur fer er ekki efni til að halda nú minnigarræðu um Ólaf Thors. Þingheimur sameinast um þá ósk, að hvfldin sem hann tekur sér, verði til þess, að hann nái góðri heilsu á ný og eigi Iangt og farsælt líf fyrir hönd- um. Allir vonum við að sjá hann hér í þingsölunum. Megi þjóðin sem allra lengst njóta hans mlkla mannvits, lífsreynslu, vfð- sýni og frábæru samningslipurð ar. Enginn hefur verið honum lagnari að laða saman ólíkar skoðanir. Á þessum hæfileikum hefur oft þurft að halda á Al- þingi og f fslenzku þjóðlffi. Þeirra þarf við nú ekki siður en áður. Þess vegna ríkir ein- lægur söknuður í huga okkar fylgismanna hans og samstarfs- manna. Um Ieið og ég þakka ólafi Thors forustuna, sem hann hef- ur veitt ríkisstjörninni síðustu 4 árin, óska ég okkur öllum úrræðagæða hans, umburðar- Iyndis og sáttfýsi. Eysteinn Jónsson fyrir hönd Framsóknarflokksins og Lúðvfk Jósefsson fyrir hönd Alþýðu- bandalagsins lýstu því yfir að afstaða flokka þeirra til ríkis- stjórnarinnar væri óbreytt þrátt fyrir mannaskiptin. Nýtl Innd Framhald af bls. 9. milli Islands og nágrannaland- anna. Við höfum heyrt nöfn eins og Atlantis, Frísland, Iscia, hið horfna land „van Buss“, Dun eyjar og mörg fleiri. Sum þess- ara landa eða eyja eru meira að segja til á gömlum landa- bréfum. Samt erum við vantrúuð á allar þessar sagnir um sokkin lönd. Við trúum þvf ekki nema við tökum sjálf á, að lönd rísi úr sæ og önnur sökkvi. En nú vitið þið um Nýey sem reis úr hafi fyrir 180 árum og sökk nokkrum mánuðum síðar. Og hví skyldi ekki ný Nýey, At- lantis eða Frísland geta verið að rfsa þessa dagana úr sjó við sunnanverðar Vestmannaeyjar? Þ. Jós. Mynd þessi var tekin á fundi landsnefndar verkamannafélaganna og Vinnuveitendasambandsins í gær. Samþykkt var á fundinum að vísa deilunni til sáttasemjara. / Fyrsti viðskiptasaming- urinn viðBúlgaríu Fyrir skömmu var gerður við- skiptasamningur við Búigaríu. Er hann merkur fyrir þær sakir, að þetta er fyrsti við- skiptasamningur sem ísland ger ir við Austur-Eyrópuríki, þar sem greiðsla fyrir íslenzkar af- urðir fer fram f frjálsum gjald- eyri, en ekki á vörúskiptagrund vclli, eins og hingað til. Er.þar brotið blað f sögu viðskipta okk ar við Austur-Evrópúríkin. Hér birtist fréttatilkynning ut anrfkisráðuneytisins um málið: Hinn 29. október 1963 var í Genf undirritaður verzlunar- samningur milli Islands og Al- þýðulýðveldisins Búlgaríu. Er þetta fyrsti verzlunarsamningur- inn, sem Island gerir við Búl- garíu. Samningur þessi byggist á grundvelli hinna almennu reglna um beztu-kjara ákvæði að því er snertir verzlun og siglingar. Allar greiðslur vegna viðskipta landanna fara fram I frjálsum gjaldeyri (U.S. dollurum eða ann arri frjálsri mynt). Engir vöru- listar fylgja samningnum og eng in skuldbinding er um, að jöfn- uður skuli vera f viðskiptum landanna. Af hálfu Islands undirritaði dr. Oddur Guðjónsson, viðskipta ráðunautur ríkisstjórnarinnar, samninginn, en af hálfu Búlgariu hr. P. Stefanov, forstjóri f ut- anríkisverzlunarráðuneytinu í Sofía. Samningur þessi gildir til eins árs og framlengist sjálfkrafa sé honum ekki sagt upp með þriggja mánaða fyrirvara. Sat á Litia Hrauni — tek- inn við landhelgisbrot Eyjn rís — go Framh. af bls. 'l'. því, a.m.k. teljum við okkur örugga hér í 500 metra fjarlægð. HÆTTA Á SPPRENGINGU En nú eftir að eyja hefur myndazt er mikil hætta á því, að sprenging verði í eyjunni og þá mundi verða flóðbylgja, sem skapað gæti mikla hættu fyrir skip, er væru í námunda við eyna. Enda þótt við höfum þeg ar orðið varir við talsverðan vikur og ösku, tel ég vikurgos- ið þó enn ekki meira en eins og á öðrum degi Öskjugossins. Get ur vikurgosið þvf vissulega auk- izt mikið enn. Ekki eru nú nein skip hér sjáanleg nema enskt herskip enda hafa skip verið vöruð viö því að vera nálægt gosstaðnum. EINS OG VIÐ JAPAN Til viðbótar þessari frásögn Þorleifs Einarssonar má bæta því við, að Sigurður Þórarins- son jarðfræðingur segir, að eld- gosið við Vestmannaeyjar sé mjög svipað og það sem orðið hafi skammt frá Japan 1952. Hafi þá verið sent skip með vísindamönnum að gosstaðmim en sprenging hafi orðið og skip ið farizt. Má telja líklegt að þar hafi orðið sprenging i eyjumynd un. Þeir dr. Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur, dr. Unnsteinn Stefánsson haffræðingur, Guð- mundur Kjartansson jarðfræð- ingur og fleiri héldu með Sæ björgu út f Albert í morgun. Var búizt við því, að þeir yrðu komnir á gosstaðinn um há- degi í dag. Hugðust vísinda- mennirnir framkvæma ýmsar at huga iir í dag. Félkið flykkist - Framh. af bls. 16. hvort ekki væri ástæða til ferða Brezkur togari, James Barrie H 15 frá Hull, var tekinn að meintum ólöglegum veiðum tvær sjómflur fyrir innan fiskveiðitak mörkin út af Vestfjörðum í nótt. laga þangað. Er þvi líklegt að L & L standi fyrir hópferðum f Landeyjar um helgina, enda mun flugvélakostur ekki geta annað þeim farbegastraumi, sem virðist ætla að verða um helg- ina. Fáir bátar hafa farið frá Vest- mannaeyjum út að gosstöðvun- um að sögn hafnsögumannsins, Jóns Sigurðssonar. Það er f fyrsta lagi talið ótryggt að fara nærri gosinu og f öðru lági hafa Vestmannaeyingar mjög gott út sýni yfir gosið, ef farið er út f Háeyna eða út á flugvöll. Úr flugturninum er t. d. mjög gott útsýni. Mikill áhugi er f Vest- mannaeyjum eins og gefur að skilja og ailt snýst um gosið og hálfgert verkfall er í skólum og á vinnustöðvum. Stanzlaus umferð var í gær og allan morgun að Kambabrún og austur f Landeyjar, að sögn veit ingamannsins Óla Ólasonar. Við ræddum Iítillega við Óla rétt fyrir hádegið og stóð hann þá f ströngu, enda stoppuðu margir í Skíðaskálanum og fengu sér hressingu. Gosið mun nú sjást allvel af Kambabrún, enda gott skyggni og ágætlega úr Landeyjunum. Óli sagði að fjölmargar áætiunarbifreiðir með skólafólki hefðu farið fram hjá og einkabílar hefðu einnig verið mjög margir. Varðskipið Þór kom að togaran- um, setti út dufl og merkti staðinn. Togarinn hjó þá af sér vörpuna og sigldi til hafs. Þór elti og tókst fljótlega að stöðva landhelgisbrjótinn. Farið var með togarann til ísafjarðar og munu réttarhöld fara fram í máli skipstjórans í dag. Skipstjórinn á togaranum reyndist vera Richard Taylor, sem er ísfirðingum gamalkunn- ur. Menn minnast þess e.t.v. að fyrir tveimur árum réðust skips menn á brezkum togara á lög- reglumenn á Isafirði. Skipstjór- inn Richard Taylor og tveir aðr- ir af áhöfn hans voru þá hand- Páll páfi teknir og dæmdir f þriggja mán aða fangelsi. Afplánuðu þeir hluta dómsins á Litla Hrauni en voru náðaðir til að komast heim fyrir jól. Hér er sá sami Richard Taylor kominn til Isafjarðar. |berdreymi>| i Fyrir nokkru dreymdi mann ( 1 nokkurn eldgos þrjár nætur í i’ / röð. Fannst manninum flóð- 7 S bylgja skapast við gosið. Mað- \ I urinn sagði kunningja sínum frá í t draumnum og daginn eftir kom i l fréttin um gosið! ] ! Almennur stúdentafundur verður haldinn í kvöld, föstud, á Gamla Garði, á vegum Kristilegs stúdenta félags. Sverrir Sverrisson, skóla- stjóri á Akranesi, mun flytja erindi um viðhorf kaþólsku kirkjunnar til mótmælenda. Eins og kunnugt er hafa ýmis ummæli verið höfð eftir tveim sfðustu páfum, er gætu bent í þá átt, að páfi liti nokkuð öðr- um augum á hina „frávilltu" mót- mælendur er reyndin hefur verið til þessa. Hafa ýmsir velt því fyrir sér, hvort kaþólska kirkjan muni vera að nálgast mótmælendur í kenningum sínum og viðhorfi. — Fundurinn á Gamla Garði í kvöld hefst kl. 20,30 og nefnist erindi Sverris skólastjóra: „Evangelisk- lúthersk og rómversk-kaþólsk við- horf. Ber minna á milli í dag?“ Öllum stúdentum er heimill að- gangur. STÚDENTAFUNDUR

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.