Vísir - 22.11.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 22.11.1963, Blaðsíða 3
V1 S IR . Föstudagur 22. nóvember 1963. 3 m GOSl YJA RRA NNSÓKNIR Unnsteinn Stefánsson við vinnu ásamt aðstoðarmanni sínum. (Ljósmynd. Vísi I.M.) Vísindamennirnir okkar brugðu skjótt við, þegar það fréttist að mikið neðansjávar eldgos væri suð-vestur af Vestmannaeyjum. Þegar í stað var flogið yfir stað- inn og ekki leið langur tími, þang að til fjölmennur flokkur vís- indamanna var kominn nálægt gosstöðvunum á varðskipimum Aibert og Maríu Júlíu. Margþætt sýnishorn voru tek- in til þess að vinna úr. Og þessa dagana sitja margir vísindamann- anna ásamt aðstoðarmönnum sin- um við smásjár og önnur rann- sóknartæki og vinna úr þeim sýn- ishornum, sem tekin hafa verið á gosstöðvunum eða f námunda við þær. Myndsjáin í dag er tekin af 3 vísindamönnum, sem þessa dag- ana vinna að athugunum sínum. Fyrst skruppum við til dr. Sig- urðar Þórarinssonar jarðfræðings niður á Náttúrugripasafn, þar sem hann vinnur að söfnun og könn- un ýmissa gagna í sambandi við eldgosið. Sigurður heitir á þá, sem urðu fyrstir eða meðai þeirra fyrstu tii að veita gosinu athygli af sjó, úr Eyjum eða af megin- landinu, að senda sér frásagnir af því hvernig gosið kom þeim fyrir sjónir og tfmasetja athuganir sfn- ar, eftir því sem hægt er. Einnlg teiur hann mjög þýðingarmikið að þeir sem taki myndir af gosinu skrifi hjá sér strax myndatöku- stað, stund og dag, því tímasett- ar myndir eru hinar ágætustu heimildir um þetta eldgos. Þegar við litum inn á Rann- sóknastofu Fiskifélagsins hittum við fyrir dr. Unnstein Stefáns- son, haffræðing, þar sem hann var að vinna ásamt aðstoðar- manni sfnum, úr sýnishornum, sem hann hafði tekið um borð f varðskipinu Albert. í hýbýlum Atvinnudeildar Há- skólans hittum við dr. Guðmund Sígvaldason, jarðefnafræðing, en hann annazt efnagreiningu á gos- efnunum sjálfum. Starf þessara vfsindamanna er umfangsmikið og margþætt og því má búast við að nokkuð langur timi verði þangað til niðurstöður rannsókn- anna fást. T. h. dr. Guðmundur Sigvaldason athugar sýnishorn er hann tók á gosstöðvunum. T. v. dr. Sigurður Þórarinsson skoðar myndir, sem teknar voru um það bil tveim tímum eftir að menn urðu varir við gosið. f

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.