Vísir - 22.11.1963, Blaðsíða 5

Vísir - 22.11.1963, Blaðsíða 5
VÍSIR . Föstudagur 22. nóvember 1963. utlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun utlönd morgmi SCNDU SO VtTMlNN HtlM SNÖ66 KLÆDDA SOKKALílSTUNUM Kongóstjórn segir sovézku sendiráðsstarfmennina, sem nú hafa verið gerðir landrækir, hafa verið samstarfsmenn landráða- manna, þ. e. flóttamanna í Brazzaville, sem vinna að því að kollvarpa stjórn Kongó. Sendiráðsmönnunum sovésku, sem handteknir voru í Leopold- ville, fyrir 3 dögum, var vísað úr Iandi í gærkvöldi, og skipað að vera á burt innan tveggja sólarhringa, og Iögðu þeir af stað þegar f gærkvöldi með flugvél til Brussel. Samtímis var tilkynnt í Leopoldville, að Kongo gæti ekki lengur fallizt á aðra starfsmenn sendiráðsins sem fulltrúa Sovétríkjanna í Kongó, að meðtöldum sendi- herranum, og er litið á þessa yfirlýsingu sem forleik að því, að stjórnmálasambandinu verði slitið milli landanna. Menn þeir, sem sendiráðs- starfsmennirnir eiga að hafa haft samband við, eru flótta- menn frá Kongó, sem eiga sæti í þjóðlegri frelsisnefnd, sem eiga sæti í þjóðlegri frelsisnefnd, sem starfar í Brazzaville. Þeg- ar sendiráðsmennirnir komu þaðan og voru handteknir neit- uðu þeir að opna skjalatöskur sínar, en í þeim segir Kongó- stjórn að hafi fundizt gögn, sem sanni að sendiráðsmenn hafi tekið að sér að koma á framfæri beiðni um fé til vopna- kaupa og var beðið um franslfa seðla, andvirði fimm milljarða Kongófranka. í NTB-frétt segir, að hermenn hafi farið með sendiráðsmenn- ina tvo að flugvélinni sem flutti þá burt. Annar þeirra a. m. k., Voronin, var snöggklæddur, bindislaus og skólaus. Hinn var Juri Miakotnyhk. — Ekki var sagt hvenær annað starfsfólk sendiráðsins færi. í Moskvu afhenti Andrei Gromiko utanríkisráðherra Sov- étríkjanna orðsendingu til þess að mótmæla aðgerðum Kongó- stjórnar. Fulltrúi U Thants frkvstj. Sameinuðu þjóðanna gekk á fund Adoula í fyrradag og lagði áherzlu á vernd þá, sem skylt væri að veita sendiráðsmönn- um. Adoula hafði svarað því til, að sendiráðsmönnum bæri að sýna trúnað á móti, en þessir menn hefðu brotið í bág við hefðbundnar og viðurkenndar reglur. Adoula hafði lofað því, að rafmagnsstraumur yrði settur á aftur í sendiráðinu, en straumurinn var tekinn af um stundarsakir a.m.k. og fallhlifa- lið umkringdi það. Líklegt er talið, að fram- haldsdvöl tékkneska sendiráðs- ins verði einnig talin óæskileg. Kratar unnu en íhnldsfl. spnð hngstæðnri bp Úrslit aukakosningar sem fram fór í Skotlandi f gær, gæti bent til þess, að byr fari að verða hagstæð- ari ihaldsflokknum. Aukakosning fór fram í gær í Dundee (Dundee West) Skotlandi og héldu kratar þingsætinu eins og búizt hafði verið við, en íhalds- flokkurinn fór ekki eins illa út úr þessum kosningum og margir höfðu búizt við, þótt fylgi hans sé enn rýrnandi. Fylgið minnkaði um 9% og er það minna en sums staðar annars staðar, en fylgi jafn aðarmanna jókst um 1%. Kosn- ingaþátttakan var rúmlega 71 af hundraði en var yfir 80 f seinustu almennu þingkosningum. í aukakosningunni fékk frambjóð andi krata 22.449 atkvæði, íhalds- flokksins 17.494, skozkra þjóð- ernissinna 3.285 og kommúnista 1.115 og glötuðu tveir hinna síðast töldu frambjóðenda tryggingarfé sínu. I almennu þingkosningunum 1955 voru frambjóðendur 3. Þá sigruðu kratar með rúmlega 700 atkvæða meirihluta, nú með 4955 atkvæða meirihluta. — En hvar getum við keypt kom, þegar kommúnisminn hefir sigrað um heim allan? (De Alba í Washington Post). HVADAN 06 HVBUH6 FÁ RÚSS- AR 6ULUD Afleiðing uppskerubrestsins f Sovétríkjunum á sfðastliðnu hausti varð sú að ekki varð hjá því komizt að ráðast í mikil kornkaup í Kanada og Eanda- ríkjunum. í nokkru stappi hefir gengið með kaup á bandaríska kominu, aðallega vegna hærri flutningsgjalda bandarískra skipafélaga en evrópskra, en í fyrri viku náðist samkomulag milli fulltrúa rikisstjórna Sovét- ríkjanna og Bandarfkjanna, sem varð til að greiða fyrir því, að gengið væri frá samningum, svo að kornflutningarnir gætu haf- izt. í grein í norsku blaði um sovézka gullið og kornkaupin segir, að fréttum beri ekki sam- an um fyrir hve háa upphæð korn verði keypt i báðum ofan- greindum löndum, Kanada og Bandaríkjunum, en þó mun mega segja, að hún sé milli 800 og 900 milljónir dollara og muni af kaupverðinu verða greitt í gulli. Nú mun um það spurt hvað- an Rússar fái hið feikna mikla gullmagn, sem svo oft er gripið til, þegar um stórviðskipti er að ræða út á við. Til nokkurs sam- anburðar má það vera hér,' segir blaðið, að samkvæmt hag- skýrslum í Noregi, árbók út- gefinni um þau efni, hafi gull- forði Noregs 1961 numið 30 milljónum dollara, en sovét- stjórnin geti gripið til þrítug- faldrar þeirrar upphæðar til kaupa á einni vörutegund. Og blaðið spyr: Hvaðan kemur allt þetta gull? Og svarið er: Vitað er, að Rússakeisararnir gömlu voru meðal auðugustu fursta heims. Árið 1912 var einkaeign Nikulásar II. keisara talin nema 182 millj. punda — og í þann tíð var talað um gull- pund. Einnig er vitað, að i Rússlandi var slík eign, eins og gulleign indverskra og tyrk- neskra fursta fyrr á tímúm, sama sem hinn opinberi höfuð- stóll landsins, aldaárangur ein- veldis og skattpíningar. Og loks er vitað, að allur þessi gullforði keisarans hvarf f ginnungagap byltingarinnar. HIÐ NVJA RÚSSLAND sem reis upp úr rústum og ösku byltingarinnar, var fátækt þjöðfélag og allt varð að byggja frá grunni. Samt lifum við það nú, að þetta sama land kaupir korn í Vesturálfu fyrir 6000 milljónir króna (n. kr.) og greið- ir að mestu í gulli. Og þetta gerist þrátt fyrir það að utan- ríkisverzlun landsins sé frekar lítil í hlutfalli við stærð lands- ins og gæði. Fyrr á tímum var það „fljóta- gull“, gull sem unnið var við fljótin : Ura! og Kuznebsk, sem safnaðist í gullforðabúr keisar- anna. Og allt gullnám í heimin- um var þá hægfara. En það kom skriður á gull- nám í heiminum um miðbik 19. aldar, því þá komu til sögunnar gúllfundirnir mikiu f Kaliforníu. Frá 1850—1875 eða á einum aldarfjórðungi var unnið meira gull úr jörð en á öllu tímabilinu frá 1500-1850. - Árin 1870- 80 var gullframleiðslan tiltölu- lega lítil, eða 200.000 kg. að meðaltali — miðað við 1 millj. kg. 1960. Frá því um 1880 hefir Suður- Afríka verið mesta gullfram- leiðslulandið—framl. nú 52% af öllu gulli í heiminum — og Sov- étríkin eru ekki langt á eftir sem næstmesta gullframleiðslu- landið. 1 fyrra mun gullfram- leiðsla Rússa hafa numið % af gullframleiðslunni í heiminum. Nú kemur gullið ekki frá Ural- héruðunum, heldur úr Kolyma- dalnum í norðausturhluta Sibirfu. ÞEGAR GULLIÐ FANNST í KOLYMA. Gullfundurinn f Kolymadaln- um vakti feikna athygli. Þetta var kringum 1920 og stjórnin í fjárkreppu. Hana vantaði reiðu- fé til þess að greiða fyrir mikl- ar vélapantanir erlendis frá. Lán til langs tíma var ekki unnt að fá og til þess að geta selt víxla til greiðslu á lánum, sem veitt voru til skamms tíma varð sovétstjórnin að greiða frá 30 upp í 40% vexti. Gullfundirnir virtust opna nýjar Ieiðir út úr erfiðleikunum. JARÐFRÆÐILEIÐANGUR var sendur til Kolymadalsins 1925 og f skýrslu hans segir, að líkur séu fyrir, að þarna sé meira gull í jörðu en nokkurs Framhald á bls 13.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.