Vísir - 22.11.1963, Blaðsíða 9

Vísir - 22.11.1963, Blaðsíða 9
V1 S IR . Föstudagur 22. nóvemöer 19S3. 9 qftir Þorstein Q.'T horarensén 1 ingu og náð kosningu með glæsi legum persónulegum sigri. Sama daginn og forseti okkar heim- sækir þinghöllina standa þeir andspænis hvor öðrum í Neðri málstofunni þeir Sir Alec og Harold Wilson og vega óþægi- lega hvor að öðrum með vopna- fimi mælskusnilldar og tilfinn- inga. Þar með er einmitt verið að hefja kosningabaráttuna, en um það stendur allur leikurinn, hvor skal hljóta virðingu og völd í þingkosningunum næsta sumar. Frami Home lávarðar hefur verið furðu skjótur og val hans nú sfðast f embætti forsætisráð- herra myndu flestar aðrar þjóð- ir en Bretar teljá rriéð undárlég- um hætti. í því efni er brezki íhaldsflokkurinn vissulega í- haldssamur og hefur það nú orðið mjög áberandi við val 2ja forsætisráðherra í röð, Macmill- ans og nú val Homes lávarðar, að það er ekki lýðræðisleg at- kvæðagreiðsla, sem ræður kjöri, heldur ríkir hér einhvers konar höfðingjavald, aðalstign og ætt artengsl ráða miklu. A tímabili Viktoríu drottning- ar var mælt, að 150 aðals- ættir Bretlands ríktu alráðar í landinu. Nú hefur að vísu orðið mikil breyting á. Ennþá á 20. öld viðhalda Bretar þó hinni furðulegu þingdeild aðalsmanna, þar sem sæti eiga fimm konung legir hertogar, 27 hertogar, 38 markgreifar, 203 jarlar, 138 greifar og 523 barónar. Og marg ir þeirra eru virkir þátttakendur í stjórnmálum. Þeir hafa að vfsu átt óhægt um vik, þar sem þeir hafa ekki mátt bjóða sig fram í þingkosningum, samt sjást á- hrif þeirra m.a. af því, að Chur- chill er bróðursonur hertoga, Eden sonur baróns og Macmill an tengdasonur hertoga. En sl .vor gerðust þau merki legu tíðindi, að einn af þing- mönnum Verkamannaflokksins, Anthony Wedgwood Benn, sem hafði þá erft aðalstign, barðist fyrir þvf og fékk því framgengt með lágasétningu, að lávarðar mættu afsala sér aðalstign, — Þingmenn Verkamannaflokksins sem þá greiddu þessu atkvæði hafa víst ekki gert sér grein fyrir því, að með því væru þe:r að opna leið lávarðar til sjálfs forsætisráðherraembættisins ett ir nokkra mánuði. JJome lávarður eða Sir Alec eins og hann er nú kallaður er einmitt af göfugustu og auð- ugustu ættum Bretlands og hafði hann erft margfalda aðals tign. Hómarnir eru skozkur ,,klan“ og voru þeir forustu- menn f landamærahéruðum Skotlands fyrr á öldum í styrj- öldum gegn Englendingum, síð ar blandaðist ættin hinni frægu skozku „konungs-ætt“ Douglas- Sir Alec og kona hans í setustofunni í Downingstreet 10. Sir Alec leggur af stað á drottningarfund. Framh. á bls. 10. Tj’g gæti trúað, að forsetanum okkar þætti Bretlandsförin á margan hátt skemmtilegri en flestar aðrar utanlandsferðir hans. Þar hefur honum gífizt tækifæri til að kynnast og ræða við fleiri nafnkunna og heims- fræga menn en á nokkrum öðr- um stað sem hann hefur neim- sótt. Það eitt er talsverður við- burður, að fá tækifæri til að rabba við sjálfa Bretadrottningu en hún er nú komin langt á leið og eins og kunnugt er þá er það jafnan hið mesta gleðiefni f ger- völlu heimsveldinu, þegar nýr prins eða prinsessa er á leið- inni. Það rriun hafa verið áætláð, að forsetinn hitti að máli sem forsætisráðherra Breta hinn aldna Macmillan, en manna- skipti hafa nú orðið á skipinu Britanniu og stóðst það hérum- bil á endum, að Bretum tókst tímanlega að koma bústaðnum í Downing Street 10 í lag eftir viðgerð og umrótið og öldugang inn við stjómarskiptin var far- ið að lægja. i~kg nú hefur nýr forsætisráð- ^ herra setzt undir stýri, Home lávarður eins og hann hét áður eða Sir Alec Douglas Home eins og hann kallar sig nú. Um allt hefur verið búið eins og vera ber, hann hefur sagt af sér lávarðstign, boðið sig fram til þings í aukakosn- unum. Enn eiga þeir geysi víð- áttumikil lönd, kastala og hall- ir í Skotlandi. Höll Sir Alecs er í Berwicks- hire og þar á ættin fjóra kast- ala, 21 þúsund hektara af ökr- um og túnum, 14 þúsund hekt- ara af beitilöndum og heiðum og 1200 hektara af skógum. Hómamir hafa jafnan verið frægir laxveiði og skotmenn og er það m.a. í frásögur fært, að árið 1725 hafi 8. jarlinn af Home veitt 70 punda lax. Á vorum tímum hafa þeir kunnað vel að ávaxta sitt pund. Faðir Sir Alecs komst að þvl, að mikil kolalög voru f jörð und ir einum kastala hans. Hann lét tafarlaust rffa kastalann og vinna kolin. Það er talið að eignir Sir Alecs séu nú ekki undir milljón sterlingspundum að verðmæti. Allt frá barnæsku hefur Sir Alec því aldrei þurft að hafa áhyggjur af morgundegin- um. Þannig hefur hann hlotið sitt uppeldi sem sannur aðals- maður og þó segja mætti mörg áfellisorð um þann stóra mun sem tfðkast á lífskjörum og eignum hinna æðstu og lægstu stétta í Bretlandi, er Sir Alac vissulega einkennandi dæmi um það, hvernig Eton og Oxfo'd ala brezku þjóðinnni upp for- ustumenn, sterka, djarfa, hrein- skilna og sjálfstæða skapgerð- armenn. Það er sagt að Sir Alec hafi lifað áhyggjulausu lifi á upp- vaxtarárunum .stundað þjóðar- íþróttina krikket og ekki hefur hann heldur slegið slöku við laxveiðamar fremur en forfeð- ur hans, því að hann mun hafa veitt yfir þúsund laxa á ævinni. Eftir skólagöngu f Oxford á- kvað hann að snúa sér að stjóm málunum, bauð sig fram til þings, féll en náði síðar kosn- ingu. Þá varð hann um tfma áður en hann erfði sjálfur lá- varðstign nánasti. aðstoðar- og samstarfsmaður brezka forsætis ráðherrans, Sir Neville Chamb erlain og sat með honum m. a. hina alræmdu Mlinchen-ráð- stefnu með Hitler. Er það nokk urt undrunarefni að Home skuli hafa verið valinn forsætisráð- herra, þar sem sá armur Ihalds Lávarðurinn í Downing Stree

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.