Vísir - 22.11.1963, Blaðsíða 13
V í SIR . Föstudagur 22. nóvember 1963.
/ 3
I SOLISTI
VENETI
f/
//
Stjómandi: Claudio Scimone.
Hljómleikar
( Þjóðlcikhúsinu föstudaginn 22.
nóvember kl. 9 (í kvöld).
ViCfangsefni:
„Árstíðirnar" eftir Vivaldi.
Concerto grosso í e-moll op. 3
no. 3 eftir Geminiani.
Concerto grosso I g-moll op. 6
no. 8 eftir Corelli (Jóla-
konsert).
Sónata no. 6 fyrir strengi í
D-dúr eftir Rossini.
Tekið á móti aðgöngumiða-
pöntunum í síma 1 62 48.
Nokkur ummæli heimsblaðanna
um leik „I Solisti Veneti":
The Times: „Ensemble with
Brilliance of Soloists"
Observer: „Completely unani-
mous ensamble combining
elegance and strength'*
Daily Express: They were so
good I felt like grabbing a
gondola and following them
back to Venice"
Berlingske Jidende:
„Prægtige solisti".
Aðgöngumiðasala í Þjóðleik-
húsinu kl. 13,15 1 dag.
Kulda
húfur
slæður og
hanzkar
mikið og fjölbreytt
úrval.
HATTABÚÐIN HULD
Kirkjuhvoli
Kornkaupin —
Framhald af bls. 5.
staðar annars staðar í heiminum
að Suður-Afríku undantekinni,
— en vegna hins kalda loftslags
væri gullnámið svo miklum erf-
iðleikum bundið, að það mundi
vart gefa arð. En það var sigr-
azt á þeim erfiðleikum.Þetta var
á þeim tíma sem Stalin var að
koma á samyrkjukerfinu f sov-
ézkum landbúnaði. Bændur sem
snerust gegn áformum hans
voru miskunnarlaust sendir til
Sibiriu — í milljóna tali. Þetta
voru harðgerfr menn og vanir
erfiði. Leynilögreglunni var fal-
in yfirstjórn og setti hún á stofn
sérstaka stofnun (Dal stroy) til
gullnámsins og sá stjórnin í
Moskvu um, að útvega henni allt
það vinnuafl, sem hún þarfnað-
ist, með því að senda þangað
menn í nauðungarvinnu.
GULL FANNST
VlÐAR í SIBIRIU.
Nú fannst gull víðar i
Norðaustur-Sibirfu og yfirráða-
svæði Dalstroy stækkaði óðum
og nær nú yfir 2.4 milljónir
ferkílómetra, og er með öðrum
orðum að flatarmáli sex sinnum
stærra en Frakkland. Og þarna
er ekki stjórnað eftir stjórnar-
skrá Sovétríkjanna, heldur eru
allar framkvæmdir og yfirráð í
höndum Dalstroy, sem hefir
þarna öll yfirráð.
Þarna er unnið að meðalta!:
10 klst. á sólarhring alla daga
ársins og föngunum úthlutuð
matvæli eftir dugnaði hvers
einstaks — í byrjun hvers dags
er hverjum vinnuflokki sagt
hvað hann eigi að skila miklum
afköstum þann daginn til þess
að fá fullan matarskammt.
Vitanlega eru menn misdug
legir og þeir veikbyggðustu
bugast að lokum, á síminnkandi
matarskammti vegna minnkandi
afkasta. En það er nóg af fólki
í hinu víðlenda ríki sem er
fjandsamlegt ríkisstjórninni og
vinnuafl því alltaf nægjaTilegt.
Gullnámið f Kolymadalnum
hefir stóraukið gullframleiðsluna
í Sovétríkjunum, hluti hcnnar af
heimsframleiðslunni hefir vaxið
úr 4.6% 1910 f 23,3% 1962. Og
það er fyrst og fremst vegna
gullsins úr Kolymadalnum, sem
gerir Sovétríkjunum kleift að
kaupa korn nú.
En samningamenn Sovétrfkj-
anna, sem semja um verð og
flutning á korni í Washington,
munu þögulir um þær þiáningar.
sem milljónir manna hafa orðið
að þola, til þess að framleiða
gullið, jsem greitt er með.
_______________________■
S/INGUR
Endurnýjum gömlu
sængurnar. Eiguro
dún- og fiðurheld ver
Æða- og gæsadún-
sængui og kodda fyrir
liggjandi.
Dún- og fiðurhreinsunin
Vatnsstig 3 — Sfmi 18740
Áður Kirkjuteig 29
LAUGAVEGI 90-02
Sölusýning á bifreiðum alla
virka daga vikunnar.
O
Stærsta úrval bifreiða á
einum stað.
•
Salan er örugg hjá okkur.
ferrania
filmur
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinsemd við
andlát og jarðarför eiginmanns, sonar og bróður.
ÁSTRAÐS K. HERMANNÍUSSONAR
Guðrún Eyjólfsdóttir
foreldrar og systkini.
NÝJASTA LANDKYNNINGARBÓKIN
I 'OSKJU
ellir d,- SIGURD ÞORAHINSSOM
— til vina og viðskiptamanna erlendis.
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ
Glæsilegir hljómleikar
hljómleikar Sihfóníu-
hljómsveitarinnar f vetur, fóru
fram f gærkvöldi. Þar var mikið
um 19. aldar dýrðir eins og fyrri
daginn, en þó farið vel fram á
þá 20. með gömlu verki eftir Jón
Nordal, þ. e. Konsert fyrir hljóm
sveit, sömdum 1949. Það verk
ber öll merki þess, sem efst var
á baugi í músík Evrópu og Ame
ríku þá dagana, nýklassísks
stíls og malanda Páls nokkurs
Hindemiths, sem Jón Þórarins-
son kennari J. N. og margra ann
arra flutti með sér inn í landið
að vestan. Þetta var „avangard-
ismi“ þess tíma, og ýmsum kann
að firinast hann nokkuð slitinn
og beinaber nú, eftir að viðhorf
manna hafa þróazt allmjög í aðr
ar áttir. En mikill viðburður
hefur frumflutningur þessa
verks verið, og Iyftistöng okk-
ar fátæklega músíklífi. Það er
samið fyrir litla hljómsveit, (ein
falt tré og blikk) eða þau hljóð-
færi sem hér voru fáanleg með
góðu móti. Sú hljóðfæraskipan
gefur skiljanlega ekki tilefni til
stórbrotinna sinfónfskra átaka,
en fellur hins vegar ágætlega
að kammermúsfkölskum stíl P.
H. & Co. Auðvitað er þetta nem-
andaverk, og gallar þess aug-
ljósir, sérstaklega í síðasta þætt
inum, þar sem mjög skortir til-
breytni. En því miður er stað-
reyndin sú, að enn hefur ekki
verið samið heillegra verk á
skólabekk hér í landi, (reyndar
er mér til efs, að betur sé að
farið f konservatóríum annars
staðar). Proinnsías Ó ’Duinn
stjórnaði hljómsveitinni af miklu
öryggi og nákvæmni. Hefði ver
ið fróðlegt og mikil ánægja, að
heyra hann fara með t. d. Brota-
spil eftir Jón Nordal, þroskaðra
og á allan hátt merkara verk,
sem fékk herfilega útreið á
hljómleikum hér, fyrir. hartnær
tveimur árum.
Þá var knminn hér Ricardo
Odnoposoff, til að leika fiðlu-
konsert eftir Tjækovskí. Maður
þessi er einn af fremstu fiðlu-
leikurum veraldar, og því mikill
fengur og brjóstbirta í honum.
Fyrir utan óvenju glæsilega
tækni, er hann listamaður sem
gætir sér hófs, og skýtur aldrei
yfir markið með yfirmáta tilfinn
ingasömum leik. Þetta eru eigin
leikar sem gott var að heyra í
Tjækovskí konsertinum, sem
stendur annars berskjaldaður
fyrir froðsurum. Enda man ég
ekki eftir, að hafa hlýtt á þetta
verk mér til meiri ánægju f ann-
an tíma. Þó skorti nokkuð á að
hljómsveitin fylgdi einleikaran-
um á köflum, og mun það nokk
uð hafa ráðið, að síðasti þáttur-
inn varð ekki eins glæsilegur
og efni stóðu til. Þessi fiðlu-
leikari mun einnig leika með
hljómsveitinni á aukahljómleik-
um annað kvöld, og er það ve!
til fundið, þar sem býsna margir
viljugir áheyrendur, komust ekki
að fyrir húsfylli í gærkvöldi.
Lokaverk hljómleikanna, Syn
fónía í d moll eftir Cesar
Franck, var flutt með glæsibrag,
og hefur hljómsveitin sjaldan
verið samstilltari í fáguðum
leik. Ó ’Duinn sýndi hér, að
hann býr yfir fágætum hæfileik
um sem stjórnandi. Formun
þáttanna var með miklum á-
gætum, þar skiptust á ljós og
skuggar í eðlilegum hlutföllum,
og hraðabreytingar (rubati) voru
talsverðar, en alltaf sannfær-
andi. Með þessum hljómleikum
sýndi hljómsveitin, að hún hef-
ur mikla framfaramöguleika, ef
hún nýtur handleiðslu alvarlegs
og heilbrigðs stjórnanda. Og
hér höfum við hann.
Leifur Þórarinsson.
VÉLVIRKI - VINNA
Vélvirkja vantar hreinlega vinnu eftir áramót, helzt nálægt Vogahverfi.
Margt kemur til greina. Tilboð sendist Vísi merkt „Reglusamur 8000“.
ATVINNA - ÓSKAST
Ungur laghentur maður með meira bílprófi óskar eftir atvinnu. Margt
kernur til greina. Sími 12956.
BÍLSTJÓRI ÓSKAST
Vörubílstjóri óskast við fiskvinnslustöð á Gelgjutanga. Sími 24505
FLUGUMFERÐASTJÓRI
óskar eftir íbúð f Reykjavík, Kópavogi, eða Hafnarfirði Sími 40793.
GEYMSLUPLÁSS ÓSKAST
Geymslupláss óskast. Þarf að vera upphitað. Helst sem næst Miðbænum.
Mætti vera íbúð eða iðnaðarhúsnæði. Barnablaðið Æskan Kirkjuhvoli.
Sfmi 14235.
HERBERGI ÓSKAST
Farmaður óskar eftir herbergi sem næst miðbænum. Sími 23606.
j7Ji