Vísir - 30.11.1963, Side 16

Vísir - 30.11.1963, Side 16
"I VISIR Laugardagur 30. nóvember 1963 Kvikmynda- r • syning um John Kennedy Varðberg efnir til kvikmynda- sýningar til minningar um John F. Kennedy, fyrrv. forseta Bandaríkj anna í Gamla Bíó kl. 14 1 dag. Sýndar verða kvikmyndir um líf og starf Kennedys.- M.a. verða sýndar kvikmyndir frá þeim degi er hann sór embættisseið sinn við hátiðlega athöfn í Washington, og loks kvikmynd frá útför hans I sömu borg, nú þremur árum síðar. Alls verða sýndar sjö kvikmyndir. Aðgangur er öllum heimill og er hann ókeypis. Skíðahótel / óbyggoum Islands? Undanfarin sumur hafa veriö famar skíðaferðir í Kerlingar- fjöll, sem em skammt suðvestur af Hofsjökli. Er skemmst frá að segja að ferðir þessar hafa hlotið einróma Iof manna, sem hafa kunnað vel að meta fjalla- sæluna í sólskini og hita. í Ár- skarði í Kerlingarfjöllum er skáli, sem Ferðafélag islands á og hafa ferðamenn haft afnot af þeim skála i skiðaferðunum. Á fundi Ferðafélags íslands fyrir skömmú ’k&rii það m. a. fram að uppi em áætlanir um byggingu skiöahótels I Kerling- arfjöllum. Það em nokkrir ung- ir athafnamenn sem vilja hrinda þessu í frartikvæmd en þeirra 1 ’ Framh. á bls. 6. ; 1 ■ rntí Teikning af skíðahótelinu í Kerlingarfjöllum. Flugvallargerð áAlftanesi óviðráSan leg vegna kostnaðar-400millj. kr. Verðum heldur uð endur- bætu Reykjuvíkurflugvöll Flugmálastjóri Agnar Kofoed Hansen skýrði frá því á fundi með blaðamönnum í gær, að það væri nú skoðun flug- málaráðherra Ingólfs Jónssonar, að það væri algerlega óraunhæft, að leggja út í byggingu nýs flugvallar á Álfta- nesi. Kostnaður við byggingu nýs flugvallar sé alltof hár, en ætla má, að hann myndi kosta 320 til 420 milljónir króna. Það er skoðun flugmálaráð- herra, að Reykjavikurflugvöll- ur verði áfram, þar sem hann er nú og muni hann þjóna utan- landsflugi og innanlandsflugi. Til þess muni þurfa endurbætur á Reykjavíkurflugvelli, sem myndu aðeins kosta brot, senni lega um sjötta hluta af verði -------------------------------Ujs Prestskosningar á morgun 20 þúsund manns ú kjörskrú Fullveldis- fagnaðurinn Á morgun fara fram prests- kosningar í 6 prestaköllum Reykja víkurprófastsdæmis og eru það yfir gripsmestu prestskosningar, sem Miðar á fullveldisfagnað Stúd- farið hafa fram hér í Reykjavík entafélags Reykjavíkur verða seld- til þessa. Alls eru á kjörskrá í ir á afgreiðslu Hótel Borgar frá há- kosningum þessum 20 þús. manns. degi I dag. Fyrir hádegi fást þeir | í Nesprestakalli verður kosið í í bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-1 Melaskólanum og í Mýrarhúsa- sonar. I skóla. 1 Háteigsprestakalli verður kosið f Sjómannaskólanum. í Lang holtsprestakalli verður kosið í Vogaskóla. í Bústaðaprestakalli verður kosið f Breiðagerðisskóla. I Ásprestakalli verður kosið í Lang holtsskóla en auk þess verður kjör deild í Hrafnistu fyrir vistmenn þar. í Grensásprestakalli verður kosið í Breiðagerðisskóla. nýs flugvallar. Willilandaflug myndi hins vegar flytjast til Keflavfkurflugvallar, þegar fs- lenzku flugféíögin tækju stærri þotur í notkun. Flugmálastjóri skýrði blaða- mönnum frá því, að þessi skoð- un flugmálaráðherra byggðist m. a. á vfðtækum rannsóknum, sem einn frægasti flugvallasér- fræðingur heims, Helmann frá ICAO hefir framkvæmt í sumar Hann sagði, að flugráð hefði þetta mál enn til athugunar og sjálfur kvaðst hann hafa rætt málið við m. a. flugmálaráð- herra, borgarstjórann f Reykja- vfk og ýmsa fleiri aðila. Agnar kvaðst ætla að nú um áramótin yrði tekin á- kveðin stefna f flugvallarmál- inu. Hann kvaðst þó vilja alger- lega mótmæla því, að nokkurt stefnuleysi hefði verið f flug- málunum, hitt væri réttara, að þar hefði ríkt féleysi. Hann gat þess m. a. að ef farið væri út f það, að endur- bæta Reykjavíkurflugvöll myndi það koma að mjög góðu haldi, að Reykjavíkurborg hefði fyrir skömmu sett á fót stóra og full komna malbikunarstöð. Hún Framh. á bls. 6. Hátíðahöld háskóla stúdenta 1. des. Stúdentar efna til fjölbreyttra há tiðarhalda á morgun, X. desember. Þau hefjast r.-:5 guðsþjónustu í kapellu Háskólans. KI. 14 hefst samkoma f hátíðasal Háskóla ís- SAMEINA VERÐUR EBE 0G EFTA — segir Hækkerup Oslo, 29. nóv. NTB. Það er nauðsynlegt, að samein- ing Efnahagsbandalags Evrópu og frfverziunarsvæðis sjöveldanna eigi sér stað hið fyrsta, sagði Per Hækkerup utanríkisráðherra Dana í ræðu, er hann flutti f Oslo í dag. Þvf lengur sem slík sameining dregst, því meira verður bilið milli markaðsbandalaganna. Hækkerup sagði, að ekki kæmi til greina, að Danir sæktu um aðild að Efnahagsbandalaginu án aðild- ar Breta að bandaiaginu. Og hann kvaðst ekki telja líklegt, að aðild Breta að EBE kæmist á dagskrá á ný á næstunni a. m. k. ekki fyrr en eftir þingkosningarnar, sem fram eiga að fara í Bretlandi næsta ár. „ Hækkerup flutti ræðu sína á fundi norskra iðnrekenda og var Halvard Lange utanríkisráðherra Noregs meðal áheyrenda. Hække- rup sagði, að vandinn í sambandi við lausn markaðsvandamálanna f Evrópu væri að verulegu leyti stjórnmálalegs eðlis. Hann sagði, að samkvæmt ummælum De Gaulle Frakklandsforseta 14. jan. sl. hefði slitnað upp úr viðræðum Breta og .EBE vegna áreksturs tveggja skoðana á þvf, hvert hlutverk Evr- ópu ætti að vera f framtfðinni. Annars j^Tégar var skoðun De Gaulle og Frakka en hins vegar skoðun annarra ríkja EBE og EFTA-ríkjanna. Skoðun Dana er sú, sagði Hækkerup, að Evrópa framtíðarinnar eigi að standa að samfélagi Atlantshafsríkjanna. Hækkerup kvað þá skoðun De Gaulles, að Evrópa ætti að standa Framh. á bls. 6. lands og um kvöldið er fagnaður að Hótel Borg. Sigurður K. G. Sigurðsson, stud. theol. prédikar í kapellunni kl. 10.30. Sr. Þorsteinn Björnsson þjón ar fyrir altari, kór guðfræðistú- denta syngur, Páll Kr. Pálsson verð ur við orgelið. Kl. 14 setur Hrafn Bragason, formaður hátíðamefnd- ar, samkomu í hátíðasal Háskól- ans. Félagar úr Musica Nova leika. Dr. Broddi Jóhannesson skólastjóri flytur ræðu um það efni sem dag- urinn er að þessu sinni helgaður: Stöðu einstaklingsins f nútfmaþjóð félagi. Kl. 19 hefst fagnaður að Hótel Borg með sameiginlegu borðhaldi. Sigurður Lfndal fulltrúi borgardóm ara flytur ræðu, ungfrú Benta Rua ger syngur með undirleik dr. Ró- berts A. Ottóssonar. Flutt verða minni og gamanþáttur, almennur söngur verður milli atriða og loks er dansað til 3 um nóttina. Veizlu- stjóri verður Halldór Blöndal stud. jur.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.