Vísir - 10.12.1963, Side 1
VISIR
53. árg. — Þriðiudagur 10. desember 1963. — 169. tbl.
Sérviðræður verziunarmanne
Verzlunarmenn tóku síg í gær út úr hinum sameiginlegu viðræðum samstarfsnefndar
verkalýðsfélaganna og tóku upp sérviðræður við vinnuveitendur um mál sin.
Hófust þær laust fyrir kl. 7 í gærkvöldi, og er miðað að skjótri lausn kaup- og kjara-
deilu þeirra. Niðurstöður lágu engar fyrir er blaðið fór í prentun í gærkvöldi, en búizt var
við að fundur verzlunarmanna og vinnuveitenda myndi standa i nótt með sáttasemjara.
VCRKfAU HÓFST A MIDNÆTTI
komulcsgstilraunum huldið úfrum
@ Á miðnætti sl. kom til framkvæmda verkfall
yfir 50 verkalýðsfélaga í Reykjavík og úti á
landi. Stóð þá yfir sáttafundur en látlausar samn-
ingaviðræður hafa staðið yfir undanfarið án þess
að heildarsamkomulag hafi náðst.
0 Sáttafundur hófst kl. 2 í gær. Um kl. 7 var
gert hlé og hafði árangur þá enginn náðst. Hófst
fundur aftur kl. 8,30 og stóð hann enn er blaðið
fór í prentun í gærkvöldi.
Nær til yfir 50 verkulýðsfélagu. Sam-
Upphaflega höfðu verkalýðs
félögin boðað verkfall 10. nóv-
ember. Ríkisstjórnin bar fram
frumvarp um bann við verkföll
um og kauphækkunum fram til
áramóta til þess, að hún fengi
frest til þess að undirbúa ráð-
stafanir, er bætt gætu kjör
hinna lægst launuðu. En áður en
það frumvarp yrði samþykkt,
féllust verkalýðsfélögin á að
fresta öllum verkföllum til 10.
desember. Dró ríkisstjórnin þá
frumvarp sitt til baka, þar eð
tilgangur þess var aldrei annar
en sá að fá frest.
Tíminn, sem liðinn er síðan,
hefur verið notaður til samn-
inga, en án árangurs. 3. desem-
ber lagði ríkisstjórnin fram til-
lögur til lausnar deilunni. Lagði
hún til, að hinir lægst launuðu,
verkamenn og fleiri, fengju 8
prósent beina kauphækkun og
auk þess skattalækkanir, er jafn
gildu 4-5 prósent kauphækkun.
Au þess lagði stjórnin til, að iðn
aðarmenn fengju 4 prósent kaup
hækkun. Samstarfsnefnd verka
lýðsfélaganna taldi þessar tillög
ur ná of skammt. I fyrrinótt
gerðist það, að vinnuveitendur
buðu 10 prósent almenna kaup
hækkun á allt dagvinnukaup,
þ.e. bæði á verkamannakaup og
kaup iðnaðarmanna. En því til
boði var hafnað. Þegar Vísir
fór í prentun f gærkveldi hafði
ekki borizt nýtt tilboð.
Þessi félög taka þátt í verk-
fallinu strax eða fljótlega:
V.R. Verkamannafélagið
Dagsbrún, Félag járniðnaðar-
manna í Reykjavík, Bókbindara
félag íslands, Hið íslenzka prent
arafélag, Mjólkurfræðingafélag-
,'W, Iðja, félag verksmiðjufólks
'I Reykjavik, Trésmiðafélag
Reykjavíkur, Félag húsgagna-
smiða, Verkakvennafélagið
Framsókn, ASB, félag afgreiðslu
stúlkna í mjólkur- og brauð-
búðum, Félag bifvélavirkja,
Félag biikksmiða, Félag ís-
lenzkra rafvirkja, Hlíf Hafnar-
firði, Eining Akureyri, Iðja Ak-
ureyri, Verkalýðsfélag Vest-
mannaeyja, Verkakvennafélagið
Snót Vestmannaeyjum, Iðja,
Hafnarfirði, Verkamannafélagið
Þór Selfossi, Verkalýðs- og sjó-
mannafélagið Bjarmi Stokkseyri
Verkamannafélagið Báran Eyrar
bakka, Verkalýðsfélag Hvera-
gerðis, Verkakvennafélagið
Brynja Siglufirði, Þróttur Siglu
firði, Verkalýðsfélag Norðfirð-
inga, Verkamannafélagið Árvak
ur, Eskifirði, Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Stöðvarfjarðar,
Verkalýðsfélag Vopnafjarðar,
Verkalýðs- og sjómannafélag
Miðneshrepps, Sandgerði, Verka
mannafélag Húsavíkur, Verka-
kvennafélagið Framtíðin, Elski-
firði, Verkamannafélag Reyðar-
fjarðar, Verkalýðs- og sjómanna
félag Fáskrúðsfjarðar, Bflstjóra
félag Akureyrar og Verka-
kvennafélagið Framtíðin, Hafnar
firði.
Samningancndir aðila á fundum sínum í gærdag. Á efri myndinni eru fulltrúar yinnuveitenda á
fundi sínum. Á hinni neðri fulltrúar verklýðsféiagana.
FLESTAR SMÆRRl VERIL
ANIR VERDA 0PNAR
Bloðid i úag
z BIs. 3 1 hringferð með Gull
fossi. Texti og
myndir.
— 8 Gunnlaugur Blöndal
— Meistari lita og
forms.
— 9 Leiklist á öldum Ijós
vakans. Utvarpsleik-
ritin í vetur.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Visir aflaði sér hjá kaupmanna
samtökunum í gær munu flest
allar minni verzlanir verða opn-
ar þótt til verkfalls komi meðal
verzlunarfólks.
Kaupmenn hafa rétt til að af
greiða sjálfir og munu flestir
gera það þar sem þeir geta
komið því við. Það leiðir hins
vegar af sjálfu sér að störar
no mannfrekar verzlanir geta
ekki haft opið, og þær munu
loka frá upphafi.
Hitt er svo annað mál að
komi til allsherjarverkfalls end
ast birgðir skammt f verziun-
Framh. á bls. 5.
EKKERT
FLUG
Blaðið fékk þær uppýsingar
í gærkveldi hjá Flugfélagi ís-
lands að ekkert flug yrði ef til
verkfalls kæmi. Veldur þetta
mjög miklum erfiðleikum, því
um þessar mundir eru m.a. gíf-
urlegir póstflutningar fyrir jólin
og mikill fjöldi námsmanna hef
ur pantað flug heim fyrir jól-
in.