Vísir - 10.12.1963, Blaðsíða 5
V í SIR . Þriðjudagur 10. desember 1963
5
Hamstra —
Framh. af bls. 16.
fólk rogast Ut með milli 10 og
15 potta af mjólk.
Mikil ös var við margar benz
ínstöðvar síðdegis í gær og gær
kvöldi og margir bílstjórar
höfðu með sér brúsa. í öllum
vörugeymslum Eimskipafélags-
ins og annarra skipafélaga var
stöðugur straumur af fólki, er
var að leysa Ut vörur. Einnig
kom Gullfoss i gær hlaðinn alls
konar varningi, sem flestir
flýttu sér að leysa Ut, en ó-
hætt er að segja að mest allur
jólavarningur hafi verið fluttur
í verzlanir.
Verzlaair —«■
Framh. af bls. 1.
unum og þær hljóta að stöðv-
ast fyrr eða síðar.
Vísir hafði samband við Mjólk
ursamsöluna og Snorra Jóns-
son framkvæmdastjóra ASÍ í
gærkvöldi og innti þá fregna
af því hvort leyfð yrði sala á
mjólk, ef til verkfalls kæmi.
Kváðu þeir endanlega ákvörðun
enn ekki hafa verið tekna (kl.
9 e.h.), en oft hefur í verkföll-
um verið veitt undanþága til
mjólkursölu. Einnig mun oft
hafa verið veitt undanþága fyr
fisksölu.
ASB, félag afgreiðslustúlkna í
mjólkur- og brauðbúðum hefur
ekki boðað verkfall fyrr en 11.
des. þannig, að stúlkurnar geta
unnið í dag þó verkfall verði
hjá öðrum. En mjólkurfræðing-
ar og verkamenn í mjólkurstöð
inni höfðu boðað verkfall á mið
nætti sl.
Sjónvarpið
Miðvikudagur 11. desember
17.00 I’ve Got A Secret
17.30 Sea Hunt
18.00 AFRTSNews
18.15 The Sacred Heart
18.30 True Adventure
19.00 The Dick Powell Theater
19.55 AFRTS News Extra
20.00 Bonanza
21.00 Navy Band Concert
21.30 Hootenanny
22.00 Fight Of The Week
22.55 AFRTS Final Edition News
23.10 The Steve Allen Show
Fimmtudagur 12. desember
17.00 To Tell The Truth
17.30 The Bob Cumming Show
18.00 AFRTSNews
18.15 The Telenews Weekly
18.30 The Ted Mack Show
19.00 Walt Disney Presents
19.55 AFRTS News Extra
20.00 Biography
20.30 Hollywood Sings
21.30 Four Star Anthology
22.00 The Untouchables
22.55 AFRTS Final Edition News
23.10 The Tonight Show
■
BÆKUR FYRIR ALLÁ FJÖLSKYLDUNA
Geysir á Bárðarbungu eftir Andrés Krisfjánsson
Saga Geysisslyssins mun Iengi í rninnum höfð. Hún er saga
undarlegra örlaga, meins og mildi, harms og gleði. Saga um
mikla þrekraun áhafnar ílugvélarinnar óg stórhrotín átök
dugmikilla íslendinga yið hamfarir íslenzkra náttúiruafla.
Úr heimsborg í Grjófaþorp II
Ævisaga Þorláks Ó. Johnson effir Lúðvík Krisfjánsson
Saga Þorláks er brot af þjóðarsögunni á síðari helmingi 19.
aldar. horlákur var einn nánastí samstarfsmaður Jóns Sig-
urðssonar forseta og lagði fyrir hann tillögur um íslfenzk
framfaramál. Yar hann í senn framsýnn og hugmyndaríkur.
Frjáls verzlun og framtíð Reykjavíkur voru þau niál, sem
hann helgaði fyrst og fremst krafta sína.
Eigi má sköpum renna effir Elínborgu Lárusdóffur
Ættarsaga frá 18. öld, sem öðrum þræði er sönn lýsing á aldar-
fari og þjóðháttum þess tíma, en að hinum hrífandi fögur og
sterk ástarsaga. Þetta er rammíslenzkt skáldverk’um ramm-
íslenzkt fólk.
Segðu engum effir Hönnu Krisfjónsdóffur
I Saga um fjölskylduvandamál, æskufólk og ástir, eftir höfund
metsölubókarinnar ÁST Á RAUÐU LJÓSI. — Bók sem allar
ástfangnar konur,'ungar sem gamlar, ættu að eignast og lesa.
Ferð í leif að furðulandi eftir Ejnar Mikkelsen skipstjóra
Ný bók eftir höfund bókarinnar AF HUNDAVAKT Á
HUNDASLEÐA. Mikkelsen skipstjóri er óviðjafnanlegur sögu-
maður. Hér samcinar hann alla höfuðkosti góðrar, viðburða-
í-íkrar ævisögu og spennandi og fræðandi sjóferðabókar.
Lokaðar Ieiðir eftir Theresu Charles
Töfrandi fögur og heillandi ástarsaga eftir hina vinsælu skáld-
konu, sem skrifaði bækurnar FALINN ELDUR, MILLI
TVEGGJA ELDA og TVÍSÝNN LEIKUR.
Karólína á Hellubæ effir Margit Söderholm
Karóhna var ein hinna glæsilegu heimasæta á Hellubæ, img
og fögur, elskuð og dáð. Rómantísk’ sænsk herragarðssaga.
Trilla og leikföngin hennar eftir J. L. Brisley
Ný telpubók eftir hinn vinsæla höfund bókanna lun Millý
Mollý Mandý.
Kökur Hargréfar effir Maígréfi Jónsdóffur-*-
Engar kökur jafnast á við heimabakaðar kökur, — og engar
heimabakaðar kökur jafnast á við kökur Margrétar. Lítíl,
ódýr, handhæg og góð bók, sem allar húsmæður þurfá að
eignast.
Kývöknuð augu effir Ingólf Krisfjánsson
Skemmtilegar smásögur mn margbreytilegt efni. f senn ramm-
íslenzkt og alþjóðlegt.
Drengurinn, sem vildi ekki borða
er ein bókanna í BÓKASAFNI BARN-
'ANNA. sem er safn litprentaðra ævintýra-
bóka fyrir börn á- aldrinum 3—8 ára, f
þessu safni eru þegar komnar 12 bækur,
hver annarri fallegri óg skemmtilegri, en
ótrúlega ódýrar þð, kosta aðeins 29:krón-
ur hver bók.
f'
Villiblóm í lifum eftir Ingimar Óskarsson
Litmyndir eru af 667 vilíiblómum. Sagt er í hvernig jarðvegi
plantan vex, hve há.hún cr, hvenær hún blómgast og hve út-
breidd hún er. Þetta cr Flóra íslands og Norðurlandanna í
máli og myndum, — fallcg, handhæg og þægileg í notkun.
SKUGGSJA
Símx 50045 -.Hafnarfirði
Hér kennir Ríkharður unglingunum knattborðsleik.
Ríkharður opnar témsfundahús
Glæsilegt tómstundahús var opn
að á Akranesi s.l. sunnudag. Pað
er hinn góðkunni knattspyrnumað
ur Ríkharður Jónsson, sem á og
rekur Tómstundahúsið, sem er í
180 ferm. nýbyggði húsnæði að
Heiðarbraut 53. Tómstundahúsið er
opið alla daga fyrir yngri jafnt
sem eldri, til margs konar tóm-
stundaiðkana, en eftir áramótin er
hugmyndin að hafa húsið opið á-
kveðna daga, eingöngu fyrir ungl-
inga 12 — 16 ára.
Hugmyndina að þessu Tómstunda
húsi fékk Ríkharður í Þýzka-
landi, þar sem hann hefur dvalizt
við knattspyrnuiðkun og til lækn
inga. Tómstundaheimilið er rek-
ið í nýbyggðu húsi, er Ríkharður
kallar Tómstundahúsið og eru
húsakynni öll hin vistlegustu og
skemmtiiegustu. Á neðri hæðinni
er rúmgóður salur, sem nota á til
sýninga á íþrótta- og fræðslumynd
um, einnig verða þar flutt fræðslu-
erindi. I framtíðinni á að vera hægt
að fá salinn leigðan út fyrir smærri
hópa.
Á efri hæðinni eru ýmiss konar
leiktæki og er smáleiga tekin fyr-
ir afnot af þeim. Meðal leiktækj-
anna er borðtennis, bobb, „biljard"
og margs konar smærri spil. í
Tómstundahúsinu eru seldir gos-
drykkir og sælgæti, en reykingar
ekki leyfðar.
Tómstundahúsinu hefur Ríkharð-
ur komið upp sjálfur á eigin kostn-
að, og bætir þetta glæsilega hús
mjög úr allri aðstöðu til tómstunda
iðkana á Akranesi. Hér er um mjög
lofsvert framtak að ræða sem
margir mættu taka sér til fyrir-
myndar.