Vísir - 21.12.1963, Page 2
)
æa
Verkfallsverðir reyndu að
stöðva flutnlnáa ábensíni,
V í SIR . Laugardagur 21. desember 1963.
\jöti og kartöfíum
Mörg þeirra félaga, sem stað-
ið hafa í verkfalii að undan-
förnu, hafa haldið uppi fjöl-
mennri verkfallsvörzlu, einkum
þó Dagsbrúnarrrfenn, járnsmið-
ir og verzlunarmenn, þegar þeir
voru í verkfalli. Fyrstu daga
verkfailsins Iokuðu verzlunar-
menn nokkrum verzlunum um
stundarsakir, en hvergi kom tii
neinna stórátaka. Verkfali þetta
hefur verið með þeim friðsöm-
ustu, sem háð hafa verið og þeg
ar við hringdum í verkfalls-
stjóra Dagsbrúnar og spurðum
um hvaða varningur það hefði
einkum verið, sem þeir hefðu
tekið, svaraði hann: „Þetta eru
aðeins smámunir, sem ekki tek-
ur að minnast á.“
Meðan verzlunarmannaverk-
fallið stóð yfir lögðu margir
kaupmenn mjög hart að sér og
afgreiddu einir í verzlunum sín-
um frá morgni til kvölds. Til
smáátaka hefur komið á milli
verkfallsvarða Dagsbrúnar og
nokkurra kjötkaupmanna, þegar
þeir hafa verið að lauma inn
nokkrum kjötskrokkum í verzl-
anir sínar, til þess að geta út-
vegað viðskiptavinum sínum
kjöt I jólamatinn.
Dagsbrúnarmenn hafa haldið
úti allfjölmennri verkfallsvörzlu,
en áð sðgn Guðmundar J. Guð-
mundssonar, verkfallsstjóra
Dagsbrúnar, mjög lítinn varning
tekið. Einkum er það benzín,
kjöt og kartöflur, sem verkfalls-
verðir hafa tekið af mönnum,
sem flutt hafa það í bæinn.
Síðan verkfalli Iðju lauk hefur
Dagsbrún haft nokkuð öflugan
vörð við nokkrar verksmiðjur.
Mest alla s.l. viku hafa þeir
staðsett bifreiðir í Elliðaárbrekk
unni og stöðvað marga bíla á
leið til borgarinnar.
Margir leigubílstjórar hafa
NýflugvéE —
Framh. af bls. 12.
til síðustu utanlandsfarar sinnar
frá Keflavíkurflugvelli, sem
orsakaðist af þvf 'að flugvélin
var stödd þar þegar verkfallið
leystist í morgun. Það var
Viscountvélin Gullfaxi, sem fór
til Khafnar og kemur aftur
hingað í kvöld.
Skýfaxi var í morgun stadd-
ur í Khöfn, hann kemur síð-
degis f dag til Rvíkur, en fer
aftur til Khafnar á morgun og
er væntanlegur þaðan annað
kvöld.
Síðasta ferð Flugfélagsins til
útlanda er á mánudaginn 23.
þ. m. Þá fer Gullfaxi til Bret-
lands og Danmerkur og kemur
samdægurs til Reykjavíkur aft-
ur. Þann dag er nýja flugvélin
DC 6B einnig væntanleg hingað
til lands, og mun hefja ferðir
fljótlega upp úr því.
Innanlandsflug hefst af full-
um krafti að nýju frá Reykja-
vfk f dag. Skymastervélin
Straumfaxi, sem undanfarið
hefur verið í skoðun, byrjar á
innanlandsflugi að nýju í dag
og flýgur í kvöld til Akureyrar
og Egilsstaða. Hins vegar verð-
ur flogið í dag með Douglasvél-
um til Vestmannaeyja, Horna-
fjarðar og ísafjarðar.
náð í benzín út fyrir bæinn, en
einnig hafa flestar stöðvarnar
benzfngeyma. Til þessa tfma
hefur verið hægt að fá benzín
uppi f Borgarfirði, en geymarnir
þar hafa flestir verið fylltir af
benzíni, sem flutt hefur verið
úr Borgarnesi. Mjög mikið hef-
ur borið á benzínþjófnuðum og
eru margar slíkar bókanir hjá
Reykjavíkurlögreglunni. Einkum
eru það ýmiss konar vinnutæki
og vélar, sem stolið hefur verið
af. 12. desember var t. d. stol-
ið 200 lítrum af gatnagerðarbíl
í Hafnarfirði, einnig var sama
dag sprengt upp benzínlok á
mjólkurbíl í Brautarholti og
benzíni stolið áf geyminum. —
Mjög margir bílar hafa fengið
undanþágu og þegar benzfninu
hefur verið úthlutað hefur mátt
sjá upp í kílómeters langa röð
bíla frá benzínstöðvunum, sem
biðu eftir afgreiðslu.
Kjöt það, sem Dagsbrúnar-
menn hafa tekið, hefur verið
flutt til geymslu í Sænska frysti
húsinu. Kartöflurnar hafa verið
fluttar f Grænmetisverzlunina,
og eitthvað af benzíninu er
geymt í birgðarstöð Skeljungs
f Skerjafirði. Að sögn Dagsbrún
armanna verður öllu skilað aft-
ur, er verkfallinu lýkur.
Síðan Iðjuverkfallinu lauk
hafa margir borgarbúar lagt leið
sína í verksmiðjumar og dreg-
ið sér björg í bú og hafa verk-
fallsverðir lítið skipt sér af því.
Verkfallsverðir hafa tekið mann, sem reyndi að koma 50 lítrum
af benzíni til bæjarins úr nærsveitum. Lögregla hefur verið
tilkölluð að Ieysa málið.
Lögbann lagt við þvíað verkfalls-
Á miðvikudaginn I síðustu
viku ruddist hópur verkfalls-
varða úr járnsmíðaféiaginu í
Reykjavík inn f skipasmíðastöð-
ina Stálvík við Arnamesvog í
Gárðahreppi og 'stöðvaði vinnu
með valdi.
Stjórriándi Stálvíkur Jón
Sveinsson krafðist lögbanns við
Sverrir —
Framh. af bls. 7.
fiskiskipaflotans, svo og aukn
ingu og uppbyggingu þeirra fisk
vinnslustöðva og verksmiðja, er
vinna úr hvers konar sjávarafla
og eigi síður til nauðsynlegra
endurbóta á þessu sviði svo að
við getum hagnýtt okkur þá
fiækniþróun, sem á sér stað á
hverjum tíma í þessum efnum,
svo og að unnið verði að skipu
lagingu og vinnuhagræðingu við
veiðar og við vinnslu sjávarafl-
ans, en það mundi verða öllum
til hagsbóta og koma fram f
auknum þjóðartekjum.
I öðru lagi er tillagan flutt
með það í huga að samræmd
verði starfsemi lánastofnana er
lána til sjávarútvegsins f því
skyni að fjármagnið, sem er tak-
markað miðað við hinar miklu
þarfir fyrir það, verði hagnýtt
sem bezt og markvissast.
FJÓRAR LÁNASTOFNANIR
Þá gat ræðumaður þeirra
fjögurra lánastofnana sem tillag
an nær til, Fiskveiðasjóðs ís-
lands, Fiskimálasjóðs, Fram-
kvæmdabanka íslands og Stofn
lánadeildar sjávarútvegsins,
ræddi hann fjárhagsástæður
þessara stofnana og lánveiting
ar til sjávarútvegsins. Taldi
ræðumaður að kanna ætti hvort
ekki mætti sameina starfsemi
þessara lánastofnana auka fé til
slíkra stofnunar og lána þá hlið
stætt og gert er til húsnæðis-
málastjórnarinnar. En skipulags
breytinguna taldi ræðumaður
mega jafna til þeirrar breyting-
ar er gerð var á lánasjóðum
landbúnaðarins á s.l. ári.
þessum verkfallsaðgerðum og í
gær kvað fulltrúi bæjarfógetans
í Hafnarfirði Jón Finnsson upp
úrskurð í málinu, þar sem því
er lýst yfir, að Iögbann sé lagt
við slíkum verkfallsaðgerðum.
Dómur þessi er allathyglisverð-
ur og er fallizt f honum á eftir-
farandi kröfu Stálvíkur:
„að Iögbann sé lagt við því
að stjórn Félags Járniðnaðar-
manna f Reykjavík fari eða láti
aðra fara í leyfisleysi inn á
vinnustöð Stálvíkur í þeim yf-
irlýsta tilgangi að sjá til þess,
að fagmenn og iðnnemar leggi
niður störf þar“.
Af þessu má sjá, að úrskurð-
ur þessi er svo víðtækur, að
verkfallsverðir mega ekki fara í
leyfisleysi inn á vinnustað, en
á dyrum skipasmíðastöðvarinn-
ar er fest skilti, þar sem sagt
er að óviðkomandi sé bannaður
aðgangur.
Framkoma kommúnistanna f
Kjarabætur —
Framh. af bls. 1.
manna. En þeirri tillögu var
hafnað og í staðinn farið út í
verkfall sem m.a. hefur leitt til
þess, að kaup allra hækkar
jafnt. Við slíka þróun verður
erfitt að halda verðlaginu í
skefjum og tryggja verkamönn-
um árangur af kauphækkun
þeirra. Hætt er því við, að for-
usta kommúnista hafi nú enn
sem fyrr orðið verkamönnum til
lítils gagns. Greinilegt er, að
verkamenn hafa aðeins tapað á
verkfallinu.
stjórn járnsmíðafélagsins í Rvík
er með mjög óeðlilegum hætti.
Ætlun Stálvíkur var að halda
starfinu áfram, þar sem allir
járnsmíðasveinar í fyrirtækinu
eru í járnsmíðafélagí Hafnar-
fjarðar, sem |kkj, átti í .yerk-
falli. Þar eru' og fve'ir verk-
stjórar, annar úr Kópavogi en
hinn úr Reykjavík og gátu þeir
ekki átt þátt í verkfalli.
Þrátt fyrir það að Stálvík
væri þannig utan verkfallssvæð-
isins og starfsmenn þess á eng-
an hátt í verkfalli beita verk-
fallsmenn úr Reykjavík valdi til
að stöðva vinnuna.
Skjótlega eftir að verkfallið
í Reykjavík hófst fóru starfs-
menn járnsmíðafélagsins í
Reykjavík að koma suður í Stál
vik og beita hótunum og for-
tölum til að stöðva vinnuna.
Hámarki náði það á miðviku-
dag í síðustu viku. Þá komu
þeir Snorri Jónsson og Guðjón
Jónsson báðir úr stjórn járn-
smíðafélagsins þangað suður
rétt fyrir hádegi með 30 manna
;,hóp og skipuðu starfsmönnum
að hætta vinnu. Þá var kominn
matartími, en strax upp úr há-
deginu hófst vinna á ný. Fimm
verkfallsverðir úr Reykjavík
voru þá suður í Stálvík og sím-
uðu þeir til skrifstofu járnsmíða
félagsins og báðu um liðsauka.
Kom þá 30 manna hópur það-
an, ruddist með valdi inn í bygg
inguna og reif í sundur raf-
magnstaugar. Lögregla úr Hafn-
arfirði kom á vettvang og þá
kröfðust eigendur Stálvíkur lög-
bannsaðgerðarinnar, sem nú hef
ur fengizt staðfes:.
Stálvík mun höfða skaðabóta
kröfu vegna þessara lögleysu
aðgerða.
PÚSSNINGARSANDUR
Heimkeyrður pússninj. rsand„i
og vikursandur, sigtaður eða
ósigtaður við húsdyrnar eða
kominn upp á hvaða hæð sem
er, eftir sskum kaupenda.
SANDSALAN
við Elliðavog s.f.
Sími 41920
Togari —
Framh. af bls. 12.
togari kom skömmu síðar og
bjargaði skipverjunum af Grön-
land.
„Klukkan var um fjögur, þeg-
ar við héldum að togarinn væri
hættur að brenna," sagði Wein-
berg. „En þó Iagði mikinn reyk
úr togaranum. Hálfri klukku-
stund síðar gaus eldurinn upp
aftur og logaði hann til kl.
rúmlega tvö um nóttina. Þó
skipið væri hætt að brenna
þorðum við ekki að fara um
borð, vegna h’ættu á sprenging-
um.“
Þýzki togarinn Germany tók
síðan Grönland í drátt áleiðis
til Reykjavíkur, en við Gróttu
tók dráttarbáturinn Magni við
Grönland og dró hann til
Reykjavíkur. Klukkan var um
11,45 s.l. miðvikudag, þegar
Magni kom með Grönland, en
þá var liðinn rúmur 4y2 sólar-
hringur frá því að Grönland
var tekinn í drátt.
„Það sem bjargaði okkur var
að veðrið var mjög gott, þegar
eldurinn kom upp, en daginn
áður hafði verið mikið rok,“
sagði Weinberg skipstjóri að
lokum.
Það er ömurleg sjón að sjá
þennan glæsilega 2 y2 árs gamla
skuttogara stórskemmdan, þar
sem hann liggur nú við Ægis-
garð. Brúin öll með stjórntækj-
um er kolbrunnin, svo og vist-
arverur þar. Sama er að segja
um vélarúmið, þar sem eldur-
inn kom upp. Aðeins stálið
beyglað og bólgið stendur. Nem
ur því tjónið milljónum króna.
— Ráðgert er að láta bráða-
birgða viðgerð fara fram hér í
Reykjavík svo hægt sé að
draga hann til Þýzkalands.
Grönland er einn af glæsileg-
ustu togurum V.-Þjóðverja,
byggður fyrir rúmum tveimur
árum og hefur hann komið 6
sinnum hingað til Reykjavíkur.
Weinberg hefur verið skipstjóri
á togaranum frá því að hann
var byggður. — Ekkert verður
gert við togarann fyrr en um-
boðsmaður tryggingafélagsins
kemur frá Þýzkalandi. — Þeg-
ar Grönland var byggður kost-
aði hann 4y2 milljón marka.