Vísir - 21.12.1963, Síða 11

Vísir - 21.12.1963, Síða 11
VÍSIR . Laugardagur 21. desember 1963. 77 — Nú erum við auðug, og ég vil hafa ungar og laglegar þern ur, — pabbi getur komið þess- ari gömlu kerlingarskrukku fyr ir einhvers staðar. Birgitta hafði matinn til kl. 8,30. Cecile leit á úr sitt og sagði við sjálfa sig: — Hann getur komið á hvaða andartaki sem er. Nú verð ég að taka á öllu vilja- þreki mínu, reyna að látast vera róleg og glöð, en ég mun ekkert gera til þess að útskýra allt fyrir honum. Ég verð að binda endi á þetta. Ég læt skeika að sköpuðu hverjar sem afleiðingarnar verða. Ég veit að faðir minn krefst þess, að ég segi honum nafn elskhuga míns til þess að krefjast þess, að hann gangi að eiga mig. Hvílík heimska. Heiðurinn er ekki glat- aður, ef ekkert kemst upp. Hvemig ætti ég að geta gifst þessum manni — leikara? Nú kemur pabbi með mikinn auð. Þegar maður er ríkur getur mað ur gert kröfur. Ég skal aldrei verða eiginkona Pauls Dharville, aldrei, aldrei, aldrei! Þess vegna mun ég neita að segja föður mínum nafn elskhuga míns. Ég segi að hann sé dauður. Hún leit enn á úrið. Klukkan var orðin níu. — Hvað hefur tafið hann?, hugsaði hún. Hann skyldi þó aldrei hafa frestað heimförinni? I þessum svifum var barið létt á hurðina. Cecile kipptist við og svaraði: — Kom inn! Það var Birgitta, sem komin var. — Hvað viltu? - Ég ætlaði bara að segja, að klukkan væri orðin níu. - Það veit ég eins vel og þú — Er ungfrúin ekkert kvíð- in, þar sem hann er ekki kom- inn? — Hvers vegna skyldi ég vera það? Hann hefir tafizt í Dijon eða kemur með næstu lest. — En ef eitthvert slys hefði komið fyrir? Cecile yppti öxlum. — Slys! Hvernig getur þér i dottið svona vitleysa í hug? Þú | heldur þó ekki, að ég fari að ala I áhyggjur að ástæðulausu. Faðir minn hefir tafizt, það er allt og sumt, og verði hann ekki kom- inn klukkan 10 sezt ég að morg unverðarborði. Stundvíslega. Skilurðu það? — Já, ungfrú. Þegar Birgitta var komin fram í eldhúsið hugsaði hún sem svo, að herra Bernier mundi verða var allmikillar breytingar á dótt ur sinni. Hún botnaði ekkert í henni, fannst einhvern veginn að Cecile þætti ekki lengur neitt vænt um föður sinn, þrátt fyrir það, að hann hafði alltaf dekrað við hana og sæi ekki sólina fyrir henni. Tíminn leið. Klukkan var orð- in tíu. Cecile fannst einkenni- legt , að faðir hennar skyldi ekki jiafa sent henni skeyti, e| hann hefði breytt ferðaáætlun- inni, en þar sem hún í rauninni kveið fyrir heimkomu hans, gat hún tekið þessum drætti með meiri ró en ella. Hún gerði Birg- ittu aðvart, að hún vildi. neyta morgunverðar. Henni Yannst hún vera svöng, er hún settist, en samt gat hún nær engu kom ið niður. Það kom fyrir hana eitthvert máttleysi, andlegt og líkamlegt, og hún sagði við Birg ittu: — Ég er búin að borða, það má bera af borðinu. — En ungfrúin hefur ekkert borðað. — Ég hef ekki lyst. Ég verð þeim mun lystugri þegar mið- degisverðurinn verður á borg borinn. Cecile gekk til herbergis síns, tók bók og reyndi að lesa, en gat ekki fest hugann við hana, hún var sveitt.annað augnablik- ið köld hitt, og kvíði greip um sig, kvíði sem var ekki að öllu af sömu rótum runninn og kvíð- inn við reiði föður hennar. Hún komst helzt að þeirri nið urstöðu, að hún væri að verða veik. Henni var ómótt, fannst hún vera að kafna, gekk út að glugganum og opnaði hann, en þegar kaldur norðanvindurinn bl£s inn skalf hún af kulda. Him ininn var þokugrár og kuldajeg ur, fátt manna á ferli á snævi þöktum götunum. Hún var í þann veginn að loka gluggun- um, er hún var þess vör, að vagni var ekið að húsinu. — Það hlýtur að vera nabbi, sem er að koma hugsaði hún og varð nú óttaslegnari með hverju andartakinu sem leið. Lestinni hefur sjálfsagt seinkað vegna hríðarveðursins. Hún sá mann með svarta hanzka á höndum stíga út úr vagninum og líta á númerið yfir húsdyrunum. — Það er ekki faðir minn, hugsaði hún og létti henni nú stórum. Nú var henni hrollkalt, lok- aði glugganum og settist við ofninn. HREINSUM FYRIR JÓL Efnalaugin LINDIN Hafnarstræti 18 . Skúlagötu 51 Vogaðu þér ekki að líta upp frá skrifborðinu. 1119 Klukkan var að verða hálf tólf. Allt í einu var dyrabjöll- unni hringt harkalega og hún kipptist við og stóð upp. — Þesi maður átti þá erindi hingað, hugsaði hún, Skyldi eitt hvað hafa komið fyrir?' Hún lagði við hlustirnar, heyrði óm af mannamáli í for- stofunni og andartaki síðar kom Birgitta inn. — Hvað er um að vera?, spurði Cecile titrandi röddu. Hver er kominn. — Það er kominn maður — — Hvað vill hann? — Hann vill fá að tala við ung frúna - það er víst mikilvægt og hann segir, að hann verði að fá að tala við yður undir eins. — Láttu hann þá koma inn. Það var Caseneuve, - „Ijós- ormurinn", sem kominn var sam kvæmt fyrirskipun yfirmanns hans. Maðurinn leit ekki þannig út, að kvíði Cecile minnkaði — frek ar hið gagnstæða. En maðurinn hneigði sig kurteislega og sagði: — Leyfist mér að tala við ung frúna? Ég hefi tekið rokkrar prufur hérna Tarzan, segir læknirinn við hann. Það er r- ki hægt að bjarga þeim ef þeir verða kyrrir héma. Umhverfið e rallt eitt pestarbæli. Við getum gefið þeim mat að ’oarða, en við getum ekki læknað þá af sjúkdómunum ef þeir verða hér. Kannski ef við komum þeim burt héðan, á einhvern góðan stað, þá geti læknavísindin bjarg- að þeim. Það eru tvö stór ef, segir Tarzan dapur. EF þeir vilja leyfa okkur að flytja sig, og EF einhver annar ættbálkur vill leyfa þeim að vera á sínu landi. SÍÐDEGIS OG KVÖLDKJÓLAR fallegt úrval. Náttkjólar, undirkjólar og millipils, nýkomið. Góðar jólagjafir. Peysur (rúllukragi), pils, ullartreflar, slæður, hanzkar. jgéffr'ML. þingholtsstræti 3 slmi 11987 Wssat?>•* *»r »

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.