Vísir - 23.12.1963, Síða 16
Mánudagur 23. desember 1963.
VÍSIR
Vísir kemur út fyrir
hádegi á morgun. Þriðja
í jólum kemur blaðið út
á venjulegum útgáfu-
tíma.
Vísir.
Tvö skot lenda írjúpnask yttM
Akureyri 1 morgun.
Um helgina slasaðist maður
f EyjafirSi af voSaskoti og
munaSl litlu aS banaslys hlytist
af. Þetta skeSi á rjúpnaveiSum
á Hólsfjalli.
Atvik voru þau að Hjalti Þor
steinsson málari á Akureyri fór
ásamt Páli Rist lögregluþjóni á
rjúpnaskytterí á Hólsfjall í Eyja
firði og óku þangað í bifreið.
Bifreiðina skildu þeir eftir á
þjóðveginum og héldu gangandi
með vopn sfn til fjalls. Vopn
Hjalta var tvíhleypt haglabyssa
og var hún hlaðin.
Skömmu eftir að leiðir þeirra
félaga skildu, bar Hjalta að
gilskomingi nokkrum, en þar
skrikaði honum fótur á svell-
bunka, missti við það byssuna,
svo hún rann niður í gilið. —
Stefndu hlaupin í áttina að
Hjalta og hlupu bæði skotin úr
henni samtímis.
Það má telja fullvíst, að það
hafi orðið Hjalta til lffs, að skot
Framhald á bls. b
ÓSAMIÐ VID FJÖLDA
VFRKAL1DSFÍLAGA
Mörg verkalýðsfélög f Reykja-
vík eiga enn eftir að ganga frá
nýjum samningum en aðeins eitt
þessara félaga er í verkfalli, þ. e.
Trésmiðafélag Reykjavíkur.
Fjöldi lftilla verklýðsfélaga í höf ^
uSstaðnum tók ekki þátt í verk-
fallinu og er nú unnið að nýjum
samningum fyrir þessi félög.
Þegar verkfallinu lauk hjá
Dagsbrún og flestum félögunum,
var eftir að ganga frá samning-
um fyrir nokkur félög iðnaðar
manna, er vinna eftir uppmæli-
ingu. Félag þessi eru Trésmíða-
félag Reykjavíkur, Málarafélag
Reykjavfkur, Félag húsgagna-
bólstrara, Múrarafélag Reykja-
vfkur og Félag pípulagningar-
manna. Tvö þau síðast nefndu
drógu sig út úr samstarfsnefnd
verklýðsfélaganna og gerðu
aldrei verkfall. Auk þess var eft
ir aS semja við mjólkurfræðinga
en deilan við þá er nú leyst eins
og fram kemur f annarri frétt í
Vísi f dag. Málarar hófu aldrei
verkfall en samningar hafa nú
tekizt við húsgagnabólstrara um
svipaða hækkun á ákvæðisvinnu
og nemur hækkun þeirri, er fé-
lögin hafa áður samið um á viku
kaupi og mánaðarkaupi.
Meðal þeirra félaga í Reykja-
vík„ sem enn eiga eftir að gera
Framh. á bls. 5.
Drukknaði /
Það hörmulega slys varð í Reykja-
víkurhöfn f fyrrakvöld, að sjómað-
ur frá Patreksfirði féll út af báti
og drukknaði. Maðurinn hét Gylfi
Axelsson, 25 ára að aldri.
Slysið varð laust fyrir miðnætti,
eða nánar til tekið kl. 23.40. Þá
var báturinn Hannes Hafstein frá
Dalvík að leggja frá Ægisgarði og
var honum „bakkað" frá garðin-
um. Þegar báturinn var kominn
um það bil 50 metra frá Iandi sást
að eimn skipverja féll útbyrðis.
Hann greip sundtök og var bjarg-
hring kastaö niður til hans, en
Gylfi sökk og skaut ekki upp aftur.
í gær voru ráðstafanir gerðar til
að fá froskmann til að leita lfksins
á hafnarbotninum. Froskmaðurinn
byrjaði að kafa um hádegisieytið
og kl. 2 e. h. fann hann lfk Gylfa.
Gylfi mun hafa verið undir á-
hrifum áfengis þegar hann féll út-
byrðis.
Ulla Cappelen, dóttir norska sendlherrans, kveikir á Osióartrénu. j
Kveikt á Oslóartrénu
Á laugardag var kveikt á, jóla
trénu, sem Oslóarborg hefur gef
ið Reykjavik og staðsett er á
Austurvelii.
Hófst athöfnin ki. 16 með því
að Johan Cappelen sendiherra
Norðmanna á íslandi hélt stutta
ræðu og afhenti jólatréð. Sfðan
kveikti dóttir sendiherrans Ulla,
á jólatrénu Borgarstjórinn f
Reykjavfk Geir Hallgrfmsson
veitti trénu viðtöku fyrir hönd
Reykvíkinga og þakkaði hina
höfðinglegu gjöf Sfðan söng
dómkirkjukórinn og Lúðrasveit
Reykjavíkur lék
Nokkuð skyggði á gleðina hve
leiðinlegt verður var meðan á
athöfninni stóð, rok og rigning.
Jólatréð, sem er um 17 metrar
á hæð er hið fegursta 'og prýðir
Austurvöll og næsta umhverfi
mjög.
Ungfrú íslond í jóloheimsókn:
Eg er alíslenzk og
er stolt af því"
— segir Thelma fegurðordrottning
og neitar því sem dönsk blöð sögðu
V18 hlttum Thelmu hjá Halldóri gullsmið á Skólavörðustígnum, þar
sem hún var að skoða skartgripi. „Ég er að velja gjafir handa vinum
mínum erlendis, — og kannski eitthvað handa sjálfri mér. Ég hef notað
skartgripi með islenzkum steinum mikið vlð ljósmyndatökumar. -
UNGFRÚ ÍSLAND 1963
— Thelma Ingvarsdóttir
— kom í heimsókn í fyrri
nótt og verður heima
hjá fjölskyldu sinni um
jólin og nýáríð. Thelma
er, eins og kunnugt er,
orðin ein vinsælasta fyr
irsæta Dana, og raunar
víðar um Evrópu, því
hún er mjög víðförul og
tefur ekki lengi í hverju
landi.
Við vöktum Thelmu snemma
f morgun með sfmtali á heimili
foreldra hennar að Baugsvegi 13
í Skerjafirði.
— Það er alveg dásamlegt að
vera komin heim, sagði Thelma.
Það verður kærkomið að hvíla
sig eftir stranga vinnu undan-
farna mánuði, þvf það hefur
verið mikið að gera hjá mér,
ekki sfzt eftir Miss Skandinavíu
keppnina.
— Hefurðu farið víða sfðan?
— Já, ég flaug daginn eftir
keppnina til Hamborgar, þá til
Mtinchen, Oslóar, Gautaborgar
og Stokkhólms. Við vorum þá
með skinnavöru fyrir A. C.
Bang í Kaupmannahöfn. Þetta
var alveg óskaplega þreytandi.,
Flugferðir og járnbrautarferðir
á víxl. Sýningarnar fóru fram
á beztu hótelum hverrar borgar
og áhorfendur sannarlega ekki
af kotungakyni.
Framh. á bls. 5.