Vísir - 04.01.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 04.01.1964, Blaðsíða 1
Bréfhelgin ítrekai rofín Eitt af stærstu útgerð- arfyrirtækjum landsins hefir ítrekað fengið bréf í pósti sem greinilega hafa verið rifin upp áður en þau bárust til viðtak anda. Hér er um fyrir- tækið Júpiter h. f. að ræða. Forstjóri þess, Tryggvi Ófeigsson hefir komið að máli við Vísi og skýrt frá þessum furðulegu tíðindum. í nýju umslagi. í sumar oarzt fyrirtækinu 6- frímerkt bréf, sem augsýnilega var ekki f upprunalega umslag- inu. Þó kom þetta bréf alla leið Framh. á bls. 5 Bréfin tvö sem Júpiter h.f. bárust rétt fyrir jólin frá Hellier & Co. f Hull og höfðu bæði verið rifin upp. VISIR 54. árg. — Laugardagur 4. janúar 1964. — 3. tbl. Hver sagii Gunnarí Ben. ai Vera Hertsch væri á iifí? í tUefni af skrifum dönsku blaðanna um Veru Hertsch og ummælum HaUdórs Kiijan Laxness i Skáldatfma um aftöku hennar, átti Vísir f gær stutt viðtal við Gunnar Benediktsson rithöfund, er skýrði frá þvf f Þjóðviljanum fyrir skömmu, að hann hefði séð Veru Hertsch 1953. Gunnari Benediktssyni fórust orð á þessa leið f ritdómi um Skáldatfma, er blrtist f Þjóð- viljanum 17. nóvember s.I. (Hann er að ræða um frásögn Laxness af aftöku Veru Hertsch): „Ég varð svo gagntekinn af þessari frásögn, að mig skar allt f einu f hjartað, þegar nið- ur í vitund mína laust einhverj- um minningarórum frá sumar- dögum 1953. Vera Hertsch varð mér allt í einu svo kunnugleg. Mér fannst að Vera Hertsch, sem rússneska leynilögreglan druslaði að tjaldabaki að Hall- dóri Laxness ásjáandi 1938, hefði ég mínum augum Iitið Framh. á bls. 6. Skemntdirnar á Akraborg koma betur í liás í Slippnum Akraborgin var dreg- in upp í slipp í fyrradag og var þessi mynd þá tekin af stjórnborðshlið- inni á henni og má sjá þá djúpu skoru, sem Skjaldbreið skar á hana í árekstrinum á Þorláks- messunótt. Er það víst að Akraborgin verð ur alveg frá allan janúarmánuð, ef ekki líka allan febrúar. Það kom í ijós þegar upp i slippinn kom, að Akraborgin var einnig skemmd tals vert bakborðsmegin, þar sem hún hafði núizt við bryggjuna. Víst er að allmörg bönd í henni eru bogin og þá er núna kaldasti og myrkasti tími ársins, þegar útivinna í slippn- um gengur iakar en á öðrum tfm- um. M. a. mun þurfa að rífa ein- hverja hluta af innréttingingunni í neðri farþegasal á Akraborg. Ekki hefur enn frétzt að félagið Skallagrfmur, sem á Akraborg hafi gert neinar ráðstafanir til að fá | annað skip til að annast flutninga. Pramh á bls 5 <s> ísland skipa? ambnssndor í Rúmenéu Ákveðið hefur verið, með sam- komulagi milli ríkisstjórna íslands og Rúmeníu, að skiptast framvegis á ambassadorum, en fram að þessu hefur verið skipzt á sendiherrum. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 31. des. 1963. Ejdgosið_ hefur engin áhrif á fískigöngu né veiðisæld Blciðið0 í dag BIs. 2 íþróttir. — 3 Kirkja sálmaskálds- ins rís — Myndsjá 7 Helztu atburðir árs- ins ’63 rifjaðir upp. — 8-9 Ahorfendur eru liis- ' elixír leikarans. — Rætt við Gunnar Eyjólfsson. Vestmannaeyjum i gærkveldi. Vestmannaeyingar eru sem óð- ast að búa báta sfna út á línuveið- ar, þeir fyrstu eru þegar búnir að beita, og hefðu róið í kvöld ef hefði gefið. Veðurútlit var hins vegar ijótt og spáin óhagstæð. Frá Vestmannaeyjum verða gerð ir út í vetur um 90 bátar, sem er svipaður fjöldi og f fyrra. Von er nokkurra nýrra báta f flotann í vetur og einn er þegar kominn. Hann kom í stað v.b. Bergs sem fórst í fyrra, og verður Kristinn Pálsson skipstjóri á honum. Þá á Ársæll Sveinsson von á nýjum báti og Óskar Sigurðsson von á öðrum einhvern tíma eftir ára- mótin. Vestmannaeyingar líta vonbjört- um augum á veturinn og vertfð- ina, en vantar hins vegar mikið af vertíðarfóiki bæði til starfa f landi og á bátum. En slíkt er venja jafnan í byrjun vertíðar. Nokkrir Vestur-íslendinganna, sem komu í fyrra til Vestmanna- eyja eru hér enn kyrrir og ekki vitað annað en þeir verði það a. m. k. f vetur. Það eru harðdugleg- ir menn og okkur lfkar vel við þá. Mikla óánægju meðal sjómanna og útgerðarmanna vakti fréttaauki Ríkisútvarpsins fyrir skemmstu, þar sem Ási f Bæ lýsti þvf yfir að Vestmannaeyingar væru uggandi um vertfðina vegna eldgossins og þar glataðist með öllu línupláss fyrir 50 — 60 báta, sem hörfa yrðu til annarra miða. Út af þessum fréttaauka efndi skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi í Vestmannaeyjum til mótmælafundar. Var á það bent á fundinum, að á því svæði sem gos- stöðvarnar eru ,nú, hafi fyrir mörg um árum verið aflasæl fiskimið, en síðustu árin brugðið svo við að þar hafi ekkert veiðzt. Renna menn nú orðið grun í að það kunni að hafa stafað frá hræring- um á ^sjávarbotni, þó þær hafi ekki komið f dagsljósið fyrr en nú. Þá kom það einnig fram að bátar sem stunduðú veiðar á nálægum slóðum við gosið í haust fengu þar álíka meðalafla og fengizt hefur þar á undanförnum haustum. Allt virðist þvf benda til að ösku- eða vikurfall frá eldgosinu hafi ekki haft nein áhrif á fiskgöngur eða veiðisæld í námurida við gos- stöðvarnar. Um gósið er það að segja, að það hefur legið með öllu niðri í Surtsey f dag, þannig að hún hef- ur alls ekki bært á sér. Við nýja Framh. á bls. 5.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.