Vísir - 04.01.1964, Qupperneq 3
3
tTlSIR . Laugardagur 4. janúar 1034.
BMBB3 II ■■III IIWI
Hallgrímskirkja f Reykjavík
fékk góða jólagjöf frá Alþingi
að þessu sinni.
Við lokaafgreiðslu fjárlaga
fyrir árið 1964 — á síðasta
starfsdegi Alþingis nú fyrir
jólin — samþykktu alþingis-
menn með samhljóða atkvæð-
um tillögu fjárveitinganefndar
upi 1 millj. kr. framlag til bygg
ingar Hallgrímskirkju á Skóla-
vörðuhæð.
Þetta góða, einhuga framlag
og sú viðurkenning Alþingis
við Hallgrímskirkju, sem í því
er fólgin, hefir orðið til veru-
iegrar uppörvunar og gleði fyr-
ir hina fjölmörgu velunnara
Hallgrímskirkju.
+
Eins og kunnugt er, þá eru
á næsta ári 350 ár liðin frá
fæðingu trúarskáldsins sr. Hall-
gríms Péturssonar. Árið 1914
var 300 ára afmælið hátíðlegt
haldið með eftirminnilegum
hætti — að sögn eldri manna.
350 ára afmælis sr. Hallgríms
verður að sjálfsögðu einnig
minnzt með verðugum hætti.
Framlag það sem Alþingi
hefir nú samþykkt til Hallgríms
kirkju á árinu 1964 er bæði vel
við eigandi og tímabært. Skrið
er nú komið á byggingu kirkj-
unnar og hafa framkvæmdir á
yfirstandandi ári verið miklum
mun meiri en á nokkru einu ári
áður, frá því bygging hennar
hófst.
*
Eins og áður hefir verið
skýrt frá í fréttum hefir nú
Skipulag Skólavörðuholtsins með Hallgrímskirkju.
KIRKJA SÁIMASKÁIDSIHS RÍS
verið gerð framkvæmda- og
kostnaðaráætlun um byggingu
Hallgrímskirkju í áföngum, sem
miðast við að kirkjan verði
fullgerð og vígð á 300. ártíð
sr. Hallgríms árið 1974. Sam-
kvæmt þessari nýgerðu áætlun
hefir nú verið ákveðið að vinna
framvegis að byggingu klrkj-
unnar — eftir því sem fjárhags
ástæður frekast leyfa — og
stefnt að því æskilega marki að
hún verði fullsmíðuð 1974,
Margt bendir til þess nú —
auk hins myndarlega framlags
frá Alþingi — að á 350. afmæl-
isári sr. Hallgríms muni kirkja
hans á Skólavörðuhæð hljóta
verulega aukinn stuðning víðs-
vegar að.
Má i því sambandi m.a. nefna,
að á fjárhagsáætlun Reykja-
víkur fyrlr árið 1964, sem borg-
arstjórn samþykkti skömmu
fyrir jólin, er framlag til kirkju-
Fyrir 15 árum — hinn 5. des.
1948 — var Hallgrímskapellan
vígð og tekin í notkun. Myndin
er af kapellunni, sem raunar er
neðsti hluti hins væntanlega
kirkjukórs.
I okt. s.l. var lokið undir-
stöðum turnsins, en kjallari er
undir mið-turni. 1. hæð turns-
ins er nú í smíðum og er mynd
in tekin nú í des. af þeim fran-
kvæmdum.
bygginga í Reykjavík hækkað
um tæp 35% frá þvl sem verið
hefir undangengin ár — en
Hallgrímskirkja fékk s.l. vor
fyrirheit borgaryfirvalda um
aukinn stuðning í framtíðinni.
Lútherska heimssambandið
— sænska deildin — hefir sýnt
sérstaka áhuga á byggingu
Hallgrimskirkju með þvl að
senda hingað til lands fulltrúa
sinn til að kynna sér sem bezt
allt, sem lýtur að byggingu
kirkjunnar. Mun stuðnings að
vænta úr þeirri átt — í ein-
iiverri mynd — þegar á árinu
1964.
Hallgrímssöfnuður í Reykja-
vík Ieggur að sjálfsögðu árlega
fram álitlega upphæð til kirkju-
byggingarinnar, auk þess sem
kirkjunni berast stöðugt stærri
og rninni áheit og gjafir víðs-
vegar að.
Skipshafnir á fslenzkum skip
um hafa einnig sent Hallgríms-
klrkju góðar gjafir og nú fyrir
jólin barst tæpl. 20 þús. kr.
gjöf frá skipverjum á m/s
„Hamrafell“,
Húsameistari rikisins hefir
yflrumsjón með byggingu kirkj-
unnar, en Jörundur Pálsson
arkitekt vinnur sérstaklega og
eingöngu á teiknistofu húsa-
meistara fyrir Hallgrímskirkju.
Verkfræðistörf eru unnin á
Verkfræðistofu Sig. Thorodd-
sen af Sigurbirni Guðmunds-
syni verkfræðingi. Verktaki er:
Halldór Guðmundsson húsa-
smíðameistari.
Formaður sóknarnefndar og
byggingarnefndar Hallgríms-
kirkju en Sigtryggur Klemenz-
son ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu.
☆
BZSŒB^-aSSWSEWSBaBHaS