Vísir - 08.02.1964, Page 3

Vísir - 08.02.1964, Page 3
3 V í SIR . Laugardagur 8. febrúar 1964. SL’RTSCY STÆKKAR ST0BU6T Surtamir em nú orðnir þrir talsins og sá elzti latur orðinn og væmkær. Hins vegar eru báðir nýju gígarnir þeim mun kraftmeiri og gjósa hvor f kapp við annan. Gosin em þó ólík mjög, þvf annað er ljósleitt gufugos, en hitt er raunveru- legt eldgos, tíguiegt og mikil- úðlegt á að horfa, ekki sízt eft- ir að rökkva tekur, því þá greinist eldsúlan mjög vel. Þetta er f heild hið skrautleg- asta eldgos og þó stórbrotið. Dr. Sigurður Þórarinsson, sem tók þessa mynd, telur sig sjald- an eða ekki hafa séð öllu feg- urra eldgos, þótt ekki jafnist það að mikilúðleik við hin mestu gos, eins og t. d. Heklu- gosið síðasta. Augsýniiegt er að mikil um- brot em undir sjónum á all- stóru svæði umhverfis Surtsey, því gufugosa hefur orðið vart beggja vegna við hana, annars þeirra fyrir áramót hins í þess- ari vilui, enda þótt eyjar hafi ekki skotið upp kollinum, a. m. k, ekki enn sem komið er. Vegna þess að Surtur gýs nú fastara efni en verið hefur til þessa, eru menn teknir að eygja von um að Surtsey kunni að vara og verði hinn syðsti út- vörður Vestmannaeyja. Síðast þegar Surtsey var mæld var hún orðin 174 metra há og um 1200 metra löng og hefur til þessa ekki orðið jafnstór. Á tímabili var sjór tekinn að ganga á hana og hafði hún þá bæði minnkað að ummáli og Iækkað. „Tollvörugeymslan breytir verilunarhóttum ykkar/# — segir forstjóri BRIDGESTONE i Hamborg „Ég er mjög hrifinn af öllu, sem fyrir augu hefur borið í dvöl minni hér í Reykjavík,“ sagði japanski forstjórinn Wat- anabe, sem rekur Hamborgar- útibú Hippon Trading Co., en það selur Bridgestone-hjólbarð- ana þar í landi, en hann fór utan í gærmorgun. „Allt, sem ég hef séð hér, finnst mér benda til góðs efna- hags hjá ykkur, fólkið er hraust- legt og húsin ykkar falieg. Ann- ars varð ég undrandi á, hve veðrabrigðin eru mikil. Þegar ég kom var allt á kafi í snjó, en núna þegar ég fer, er allur snjór horfinn." Bridgestone og Rolf Johansen, umboðsmaður Bridgestone héldu í fyrradag síðdegisboð i Þjóðl.- kjallaranum í tilefni af því að Bridgestone hefur tekið í notk- un geymslur sínar í Tollvöru- geymslunni. Er það 200 ferm. Watanabe, japanski forstjórinn, flytur ávarp sitt f móttöku Rolf Johansen, að stærð og hefur enginn aðili stærri geymslu. Gerir þetta fært að stytta afgreiðslufrest- inn úr 3 mánuðum í 3 daga. Sagðist Watanabe mjög hrifinn af Tollvörugeymslunni og lét í ljós það álit sitt, að hún ætti eftir að breyta verzlunarháttum hér mjög tii batnaðar.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.