Vísir - 08.02.1964, Qupperneq 8
8
V1SIR . Laugardagur 8. febrúar 1964.
VÍSIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR
Ritstjóri: Gunnar G. Schr'am.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði
I lausasöiu 5 kr. eint. — Sfmi 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Áhrif stjórnarandstöðunnar
XJLÖÐ stjórnarandstöðunnar hafa haldið mjög
fram þeirri kenningu, að þróun, landsmálanna sé að
öllu leyti komin undir stefnu þeirrar ríkisstjómar,
sem fer með völd á hverjum tíma. Ekki er nú þessi
kenning að öllu leyti hagstæð núverandi stjómar-
andstöðu, ef reiknað er með að fólk muni gang
þjóðmálanna nokkur ár aftur í tímann. Forustumenn
vinstri stjórnarinnar frægu héldu því a. m. k. óspart
fram, að afstaða stjórnarandstöðunnar hefði valdið
miklu um þróun mála þá. Fall þeirrar óheillastjórnar
var t. d. m. a. kennt Sjálfstæðisflokknum fyrir það,
að hann hefði stutt kröfur iðnverkafólks um lítilfjör-
lega kauphækkun, miðað við þau ósköp, sem núver-
andi stjórnarandstaða hefur haft forgöngu um.
En eru nú stjórnarandstæðingar að öðru leyti sjálf-
um sér samkvæmir í þessum áróðri? Við skulum at-
huga orð Eysteins Jónssonar í áramótahugleiðingu
hans í Tímanum, núna síðast. Hann segir þar, í sam-
bandi við átökin á Alþingi um tveggja mánaða frest-
inn, sem ríkisstjórnin óskaði eftir til þess að ráða fram
úr kaupgjaldsmálunum: „Við þessar sviptingar kom
ýmislegt ánægjulegt í ljós. Öflug og málefnaleg barátta
minnihluta á Alþingi, getur ekki aðeins veitt aðhald og
mótað margt hjá stjórninni smátt og smátt á langri leið.
Um það höfðu menn glögga vitneskju og reynslu áður.
En nú sáu menn, að slík barátta gat borið skjótan
árangur í örlagamáli . . .“ Og hann bætir við litlu
síðar: „Sumir sáu Alþingi nær því í nýju ljósi við þessa
atburði“.!
Svona hreykinn er Eysteinn af því skemmdar-
verki, sem stjórnarandstöðunni tókst að vinna í þetta
sinn. — En svo lætur hann blað sitt halda því fram
næstu daga, að minnihlutinn sé gersamlega áhrifalaus
á gang málanna og ríkisstjórnin beri ein ábyrgð á öllu,
sem skeður í stjórnmálum. ^
Núverandi ríkisstjórn fékk að sönnu í síðustu kosn-
ingum meiri sigur en dæmi eru til áður um nokkra
aðra. Eigi að síður er meirihluti hennar ekki svo mikill,
að andstaðan sé áhrifalaus, og slíks er heldur varla
dæmi í nokkru lýðræðisþjóðfélagi. Óábyrg stjómar-
andstaða getur því unnið mikil og margvísleg skemmd-
arverk, eins og dæmin sanna hér á íslandi síðustu ár-
in.
Engum heilvita manni ætti að blandast hugur um
það, að stefna ríkisstjórnarinnar í launamálunum var
sú rétta. Það sem mest reið á, var að bæta kjör hinna
lægst launuðu, án þess að veita nýjum verðhækkun
um út í efnahagskerfið. Þetta mátti takast að mestu
leyti, ef samstaða hefði náðst um þá lausn, sem stjórn-
in vildi. Mótspyrna stjórnarandstöðunnar var eingöngu
pólitísk og í fullu ósamræmi við afstöðu Framsóknar-
flokksins, þegar hann hefur verið í ríkisstjórn. Komm-
únistar létu sig einnig hafa það, að lögbinda kaupið,
begar þeir fóru í vinstri stjórnina, enda ekki óþekkt
þar sem þeir ráða í öðrum löndum. — Hvað er þá hægt
að kalla þetta annað en óábyrga stjómarandstöðu?
Þaimig prýddu nazistamir inngangshlið Auschwitz fangabúðanna með skrúðorðunum: Arbeit macht
frei eða Vinnan mun gera yður frjáisa.
jyjenn hafa nokkrum
sinnum veitt athygli á
síðustu árum fregnum
frá Þýzkalandi þess efn-
is, að nýir og nýir stríðs-
Frankfurt am Main réttarhöld
yfir 22 stríðsglæpamönnum frá
Auschwitz. Við þessi víðtæku
réttarhöld er enn verið að opin-
bera þau hræðilegu glæpastörf,
sem nazistar unnu á stríðsár-
unum. Má segja að þetta sé
eldur í bækistöð lögreglunnar í
borginni. Þá kastaði slökkviliðið
hlaða af brennandi skjölum út
úr húsinu. Þar var þá staddur
maður nokkur að nafni Emil
Vulkan, sem hafði nýlega losn-
að úr fangabúðum kommúnista.
glæpamenn hafi verið að
finnast. Þetta em gamlir
Gestapo-menn og SS-
menn, sem frömdu sví-
virðilega glæpi á stríðs-
árunum, einkum í fanga-
búðunum, þar sem þeir
unnu að fjöldaaftökum,
pynduðu fólk og sendu
það í gasklefana.
Einna mesta athygli vakti það
fyrir um þremur árum þegar
Richard Baer einn yfirmaður
Auschwitz-fangabúðanna í Pól-
landi fannst. Þessi stórglæpa-
maður fyafði þá falizt allan
tímann frá stríðslokum í Þýzka
landi, hann hafði starfað undir
fölsku nafni sem viðarhöggsmað
ur í Saxlandi. Þar kom lögregl-
an að honum, þar sem hann var
að höggva tré, og tók hann fast-
an. Meðan rannsókn málsins
stóð yfir, var honum haldið í
gæzluvarðhaldi,, en hann and-
aðist í því s. 1. sumar.
Réttarhöld í Frankfurt
Fregnir hafa borizt um það,
að ýmsir fleiri Auschwitz-yfir-
menn hafi fundizt og verið gripn
ir og nú er það orðið ljóst, að
búið er að safna saman nokkr-
lim helztu glæpamönnunum,
sem gerðu Auschwitz að ill-
ræmdum kvalastað á stríðsárun-
um. Fyrir nokkru hófust svo í
þriðja stigið I striðsréttarhöld-
unum. Strax að styrjöld lokinni
voru nokkrir æðstu forsprakkar
nazista dregnir fyrir dóm í Niirn
berg og sumir þeirra dæmdir til
dauða. Segja má, að annað stig
þessara réttarhalda hafi farið
fram austur í ísrael, réttarhöld-
in yfir Eichmann, sem hafði ver
ið æðsti yfirmaður þessarar
glæpastarfsemi, en hafði þó að-
eins setið á sinni skrifstofu og
gefið fyrirskipanir um að fram-
kvæma glæpina.
Nú er komið að þriðja þættin-
um, hér hefur verið safnað sam
an í dómssalnum í Frankfurt
nokkrum þeirra, sem fram-
kvæmdu fyrirskipanirnar. Er
hætt við því, að þessi réttarhöld
verði hroðalegust af þeim öll-
um, þvi að hér er komið að
framkvæmdinni, hér gefa ótal
vitni nákvæmar lýsingar á
tryllingslegustu glæpastarfsemi
veraldarsögunnar.
En hvernig stendur á því, að
verið er að rifja þetta upp núna,
tuttugu árum eftir að glæpirnir
voru framdir. Til þess liggja
margar ástæður, m. a. sú á-
stæða, að nægjanlegar upplýs-
ingar voru ekki fyrir hendi um
atburðina austur í Auschwitz.
ÖIl skjöl höfðu verið eyðilögð,
þegar rússneski herinn sótti
fram yfir Pólland.
Leyniskjöl koma í ljós
Þann 8. maí 1945, skömmu
eftir að Rússar höfðu tekið borg
ina Breslau í Slesiu, kom upp
Hann tók þar nokkurn hlaða af
óbrunnum skjölum og fór með
þau heim til sín.
Þrettán árum slðar, eða 1958,
fór Emil á fund kunns blaða-
manns í Frankfurt, Thomas
Gnielka og afhenti honum skjöl
in. Blaðamaðurinn afhenti þau
síðan saksóknara ríkisins.
• Það kom í ljós, að þessi skjöl
höfðu inni að halda þýðingar-
miklar upplýsingar um starfs-
skipun og verkefni I útrýming-'
arstöðinni 1 Auschwitz. Hófst nú
víðtæk rannsókn í málinu, var
jafnframt skjölunum safnað upp
lýsingum frá vottum, sem höfðu
lifað af dvölina í fangabúðun-
um. Leiddu upplýsingarnar
smám saman til þess að glæpa-
menn, sem farið höfðu huldu
höfði, fundust. Sá áhugi, sem
vaknaði á þessum málum við
Eichmann-réttarhöldin varð og
mjög til þess að beina almenn-
ingsálitinu gegn þessari glæpa-
starfsemi og stuðlaði það að því
að koma upp um felustaði
sumra.
Það hefur svo orðið úr, að
saksðkn er ákveðin gegn 22
mönnum, sem voru fremstir í
ofbeldisverkum 1 Auschwitz, en
einn þeirra liggur sjúkur. Er tek
ið fram, að sakir þess hve lang
ur tími er liðinn frá þessum
atburðum, sé ekki hreyft við
minni brotum, eins og það þó
varðmaður i skotturni hafi skot
ið á fanga, sem voru að strjúka.
Réttarhöíd hafin yfir fanga-
vörðunum í AUSCHWITZ