Vísir - 08.02.1964, Side 13

Vísir - 08.02.1964, Side 13
V1 SI R . Laugardagur 8. febniar 1964. * ÞEIR FRAMKVÆMDU - Framh. af bls. 8 ir fanga voru geymdar. Með- ferðin á þessu fóiki var hroða- leg, það var pyndað og ofsótt, sumir hýddir svo þeir flöktu í sárum. Við komu fangalest- anna var farið í gegnum far- angur fanganna og öllum verð- mætum stolið. Var þar um milljónaverðmæti að ræða. Þá skal vikið nokkuð að á- kæruatriðum gegn SS-mönnun- um, sem nú eru fyrir rétti í Frankfurt. Hér situr á ákæru- bekknum Gerhard Neubert, sem stjórnaði sjúkraskálum í Monowitz-búðunum, sem voru eins konar hjáleiga frá Ausch- ana og segja til um, hvort þeir væru starfhæfir. En SS-foringj- arnir hafa oftsinnis tekið þetta verk að sér og stundum hefur þeim ekki komið saman við læknana um valið. Enn einn hinna ákærðu dr. Schats, sem var tannlæknir að menntun hefur afsakað sig við réttarhöldin með því að þeir hafi aðeins verið að hlýða fyr- irskipunum. Þeir hafi ekki með nokkru móti getað risið upp gegn æðri fyrirmælum um að svo og svo marga skyldi taka af lífi. Sjálfur segist hann þó aldrei hafa tekið þátt í að velja menn til dauða, aðeins horft á. witz. Það kemur m. a. fram í skjölunum, að hann hafi tekið við 25 dollara mútum frá ein- um fanganum. Það brot skiptir þó litlu máli móti þeirri ákæru, að hann hafi farið í gegnum sjúkraskálana með vissu milli- bili og valið úr þá. sjúklinga, sem skyldu leiddir í gasklefana: Mörg vitni bera, að fjórir hinna ákærðu Stark, Boger, Broad og Dylewski hafi stöðugt unnið að því að rýma fanga- skála, sem þeir stjórnuðu. Þeir sem teknir voru þarna voru ekki allir leiddir til gasklefanna, symir voru Ieiddir að hinum svokallaða „Svarta vegg“. Við ' hann æfðu hinir ákærðu sig við að skjóta fangana í hnakkann. Hinn ákærði Stark hafði þó eftir á einhvers konar eftir- þanka eftir slík verk. Eftir hverja aftöku lét hann fanga, er starfaði sem þjónn hans koma með vatn, svo hann gæti þvegið hendur sínar. Annar ákærði Oswald Kaduk virðist hins vegar ekki hafa þjáðst af samvizkubiti. Hann sat á stól á stéttinni og fang- arnir voru látnir ganga fyrir hann. Hann hafði staf í hend- inni og með honum benti hann á þá fanga sem flytja skyldi í gasklefana. Líflát með sprautum Þannig heldur ákæruskjalið áfram: Fjórir eru sakaðir um annars konar brot. Þeir heita Klehr, Scherpe, Nierswicki og Hantl. Þeir eru sakaðir um að hafa líflátið fanga með því að sprauta Fenoli inn I hjarta þeirra. Meðal þeirra, sem þeir myrtu þannig voru börn. Einn þeirra, Scherpe, gafst þó upp á þessu um tíma og lýs- ir hann því að búið hafi verið að flytja 60 pólska unglinga til þeirra og átti að lífjáta þá með Fenol-sprautum. En áður en verkið var framkvæmt æptu unglingarnir svo ámátlega í klefanum, að það gekk til hjarta illmennisins. Þá gafst ég upp, segir bann. Eftir nokkra daga hafði hann þó náð sér eftir þetta og hélt starfanum áfram. Enn einn hinna ákærðu Franz Hofmann viðurkennir, að flestir foringjarnir í Auschwitz hafi tekið þátt í að velja fanga til aftöku. Sjálfur færir hann sér það til málsbóta, að hann hafi nokkrum sinnum tekið frá fanga, sem búið var að velja til dauða og krafizt þess, að þeir fengju að lifa þar sem þeir væru starfhæfir. Aftur á raóti bera vitni að annar hinna á- kærðu Dr. Willi Frank hafi hins vegar oftsinnis tekið úr fanga, sem búið var að velja til Iífs og lýst því yfir að þeir væru ó- starfhæfir og skyldu því fara í gasklefana. Kemur fram af þessu, að það átti að vera hlutverk. læl^np að skoða fang- Hcimilislæknirinn Meðal hinna ákærðu er Iyfja- fræðingurinn 1 Auschwits, dr. Capesius. Hann var frá Rúm- eníu en af þýzkum ættum. Hafði hann stundað lækningar í Rúm- eníu fyrir stríð og kom það fyrir að gamlir sjúklingar hans voru í fangaröðinni, sem gekk fyrir hann. Átti hann að fram- kvæma úrval. Vitnið Josef Gluck skýrir frá þvf, að hann hafi verið í hópi rúmenskra Gyðinga, sem fluttir voru til Auschwits 11. júní 1944. Þar varð hann að þola það, að fjölskyldu hans var stfað í sundur, sjálfur fékk hann að lifa en kona hans og börn voru send f gasklefana. Hann segist hafa orðið forviða, þegar hann sá hver sat á pall- inum og framkvæmdi valið. Það var enginn annar en gamall heimilislæknir hans dr. Cape- sius. Hækkaði fljótt í tign Réttur er settur og tekið fyrir mál Robert Mulkas. Hann var næstæðsti stjórnandi allra Auschwits-fangabúðanna. Og eftir styrjöldina komst hann einnig lengst áfram allra þess- ara sakborninga, þar sem hann hafði sett á fót stóra útflutn- ingsverzlun í Hamborg. Hann stendur upp og segir: — Ég hafði ekki hugmynd um, hvað Auschwits var, þegar ég var sendur þangað. Það var ekki fyrr en ég kom þangað f janúar 1942, sem ég fékk að vita að þetta væru fangabúðir. Ég vissi ekki hvað beið mfn, en strax og mér var það ljóst, óskaði ég þess að vera sendur á annan stað og síðar bar ég fram ítrekgðar óskir um það, en því var ekki sinnt. — En þér genguð sjálfviljug- ur f SS-sveitirnar? — Já, mig hafði langað til þess að verða liðsforingi f þýzka hernum, en þegar ég fékk það ekki sótti ég um inngöngu f SS-sveitir Himmlers. Hann leggur áherzlu á það, að hann hafi allan tfmann ver- ið gegn vilja sínum í Ausch- wits og loksins hafi honum árið 1943 verið vikið úr starfi og fangelsaður fyrir að tala niðr- andi um einn forustumann naz- ista. En í ákæruskjalinu segir, að ferill hans og skjót hækkun í tign beri þess vitni að hann hafi unnið verk sín röggsam- lega. En það var sérstakt hlut- verk hans, að útbúa og stjórna gasklefunum miklu. Trampaði fanga í hel Næstur er -v.yfirheyrður Os- wald Kaduk. Hann er spurður af hverju hann hafi sótt um inngöngu í SS. — Það var ekki af pólitískum ástæðum, segir hann. Allir' félagarnir í aífawaaEwaiHBig’ ——— skák-klúbbnum og vfðar voru í SS. Þetta var 1940 og eftir eitt ár var hann hækkaður í tign og sendur til Auschwits. Ég var færður til, það var skipun, sem ég varð að hlýða. Síðan verður Kaduk tvísaga, pegir fyrst að hann hafi gert allt sem hann hafi getað til þess að verða ekki sendur til Auschwits, síðan segist hann ekki hafa haft hug- mynd um, hvað Auschwits var. — Hvert var hlutverk yðar í Auschwits? - Að halda uppi kyrrð, aga og hreinlæti og ann- ast bréfaskriftir. — Nokkuð fleira? er hann spurður. — Já, koma f veg fyrir skemmdarverk og mótspyrnu. Ákæran gegn þessum sak- borningi er hræðileg. Hann er sakaður um að hafa trampað Gyðingadreng í hel, vegna þess, að hann hafði sofið yfir sig. Hann er sakaður um að hafa skipað fanga að standa kyrr í heilan dag og þegar fanginn gafst loksins upp, kastaði hann honum á rafmagnsgaddavírinn. Þegar verið var að hengja fanga, slitnaði snaran. Kaduk brást þá við ofsaleiður, hýddi fangann og lét sfðan hengja hann með nýrri snöru. Hann er sakaður um að hafa í ölæði drepið faga með þeim hætti, að hann Iagði göngustaf á barka hans og stóð síðan á stafnum unz fanginn var látinn. Það eina sem Kaduk sér á- stæðu til að afsaka f þessu, er að hann hafi verið drukkinn. En var nokkur furða þótt mað- ur drykki með þessi ósköp fyrir augunum. Ég h§f :.a${ei. drukkið eins mikið og Ausch- wits. Síðan bætir hann við: — Já, ég veit, að ég var harður f horn að taka. Ég hef líka oft talað um það við kunningja mína, að fangabúðirnar hafi ver- ið smánarblettur. Bogerstaurar Þá er tekið til við að yfir- heyra Wilhelm Boger, sem ef til vill var enn harðari og misk- unnarlausari en flestir hinna. Hjá honum virðist litla eftirsjá að finna. Hann var á sfnum tíma alræmdur fantur í fanga- búðunum. Eftir strfðið fékk hann starf sem skrifstofumaður hjá Heinkel-firmanu í WUrttem- berg. Hann er ákærður um að hafa skotið pólsk hjón og þrjú börn þeirra, sparkað pólskan herforingja í hel og skotið a. m. k. 100 manns f hnakkann. 1 Auschwits voru hýðingarstaurar almennt kallaðir Boger-staurar og sýnir það nokkuð að hverju hann starfaði. Vitni ber að Boger hafi svalað kvalaþorsta sínum eitt sinn með þvf að berja fanga 150 svipuhögg. Dag- inn eftir lézt fanginn. Hvaða skýringu gefur Boger á þessu? — Hann segir: Ég sá um þá deild fangabúðanna, sem sá um refsingar fyrir ýmis brot í fangabúðunum, m. a. fyrir strok. Ég viðurkenni að viðurlögin voru hörð. En síðan bætir hann við með velþóknun eins og hann sé að gorta af sjálfum sér? — Meðan ég starf- aði í Auschwits voru flóttatil- raunir fanga þar færri en í nokkrum öðrum fangabúðum. Þannig verða hinir ákærðu hver eftir annan að gera grein fyrir máli sínu. Þrátt fyrir allt fara réttarhöldin fram með virðuleikablæ, hinir ákærðu fá nægan tíma til að tala og þeir eru ávarpaðir, „Herr“ líkast því Bolludagurinn er á mánudaginn CMA8 11»; úrvolsvorar 0. JOHNSON & KAABER 7r I sem þetta séu virðulegir heið- ursmenn. Litu á fangana sem dýr Þeir sitja þarna 22 á ákæru- bekknum í Frankfurt, sá 23. liggur sjúkur af berklum. En ákærandinn vildi gjarnan ná í fleiri slika herra, sem hafa komizt undan. Þeirra á meðal er yfirlæknirinn í Auschwits, Josef Mengele, en talið er að hann hafi komizt undan og búi nú f Suður-Ameríku, sennilega I Chile. Hefur 20 þúsund mörk- um verið heitið hverjum þeim sem getur gefið upplýsingar um hann. Þá er vitað að aðstoðar- maður hans Horst Schumann er á lífi. Eftir stríðið setti hann upp lækningastofu I Gladbeck í Rínarhéruðum og starfrækti hana til 1951. Þá fór hann úr landi til Afríku og hefur siðan verið líflæknir Nkrumah, for- seta Ghana síðustu þrjú ár. Farið hefur verið fram á að hann yrði framseldur, en Ghana-stjórn neitar því. Hann er sakaður um að hafa gert til- raunir á ungum stúlkum, þann- ig að hann vanaði þær með röntgen-geislum, krufði þær síðan til að rannsaka árangur- inn. Eins og fram kemur af skýrslunum var alltaf nokkur hluti fanganna látirin Iifa, þ.ári ■' 1.1 j ’ , .'’ . lí > / '/■!„, ). ; ti;i í uij, jTMiiipini imi æmnszv * l ! .7 'I (I 7 ,V ,!' *:•/ I' i I y <■ •.; r y' .- 'n ■ i’ sem þeir voru taldir starfhæfir. Voru þeir sendir til starfa í nálægum verksmiðjum. — Líf þeirra var þó ekkert sældar- brauð, því að tilgangur nazistanna var aðeins að nýta krafta þeirra án þess að kosta of miklu til í fæðu. Þeir voru sveltir og þrælkaðir við vinnuna og gátu ekki vænzt þess að lifa nema nokkra mán- uði. Þegar þeir gáfust upp var þeim svo aftur safnað saman og fluttir til Auschwits. Þeir gengu undir heitinu „múham- eðstrúarmennirnir", því að þeir voru svo útslitnir, að þeir gengu með slútandi höfuð eins og múhameðstrúarmenn á bæn. Það er erfitt að skilja, það dýrslega hugarfar, sem stendur að baki öllum hryðjuverkunum í Auschwits. Ef til vill hefur franskur læknir, sem var á sín- um tfma fangi I Auschwits túlk- að það bezt með þessum orð- um: — Þeir álitu, að fangarnir væru alls ekki mannlegar ver- ur, heldúr versti sori heimsins. Fangarnir voru í þeirra augum eins konar dýr, sem átti að refsa, sem urðu að þola kvalir með öllum ráðum áður en þeim yrði útrýmt. Meðaumkun og mannleg tilfinning voru fram- andi hugtök hjá fangavörðun-

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.